Alþýðublaðið - 28.04.1988, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 28. apríl 1988
t MINNING f
JÓN HJÁLMARSSON
f 9. okt. 1924 -
Vinur minn og góöur ráö-
gjafi, Jón Hjálmarsson fyrrv.
erindreki ASÍ, er fallinn frá,
langt um aldur fram, aöeins
64 ára gamall. Það eru ekki
margir dagar síöan hann
gekk á minn fund, ásamt öör-
um stjórnarmönnum Félags
eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, til þess aö reifa
áform og tillögur um aö
koma upp félagsmiöstöð og
samastaö fyrir eldri kynslóð-
ina á höfuðborgarsvæðinu til
samverustunda, tómstunda-
iöju og heilsuræktar.
Jón var einn af hvatamönn-
um að stofnun þessa félags-
skapar fyrir tveimur árum og
bar hag samborgara sinna
mjög fyrir brjósti eins og
hann reyndar geröi alla sína
tíö. Þaö voru engin elli- eöa
þreytumerki á málflutningi
nafna mins. Hann ræddi ekki
liöna tíö heldur framtiðará-
form af þeim hugsjónaeld-
móöi sem næröist af um-
hyggju fyrir samborgurum, en
var á sama tíma tempraður
raunsæi og ábyrgðartilfinn-
ingu, í anda þeirra lífsviö-
horfa sem Jón tileinkaði sér
ungur.
Kynni okkur Jóns hófust
fyrir tæpum áratug, þegar ég
settist í ritstjórastól Alþýóu-
blaösins. Jón var einn þeirra
reyndu og rótgrónu Reykja-
víkurkrata sem lagði hlustir
viö málflutningi nýja ritstjór-
ans. Hann átti oft leið á rit-
stjórnarskrifstofur Alþýðu-
blaösins, til aö ræöa málefni
liöandi stundar.
Ég veitti því strax eftirtekt
aó þarna var sérstakur maöur
á ferð. Jón var jafnaðarmaður
aö hugsjón. Hann hugsaði
sína pólitík út frá gagnrýn-
inni umhyggju fyrir málstaö
verkalýöshreyfingarinnar og
Aiþýöuflokksins í þaula. Þaö
sem hann miðlaði mér af
þeirri sögu kom mér að góðu
haldi þegar ég tók aö kynna
mér innviði Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Jón Hjálmarsson
var einn þessara fágætu hug-
d. 18. apríl 1988
sjónamanna, sem aldrei
hugsa um eigin hag heldur
ævinlega um framgang mál-
staöar og málefna sem hann
batzt ungur ástfóstri vió.
Jón Hjálmarsson var ekki
einasta fróóur um lífsbaráttu
og pólitík fyrri tíöar. Hann
haföi lært af reynslunni og
vildi gjarnan leggja sitt af
mörkum til að bæta fyrir fyrri
mistök okkar hreyfingar og
treysta samstöðu vinnandi
fólks um samtök sfn og
meginstefnu fremur en ala á
fyrri misklíöarefnum. Þess
vegnavar Jón Hjálmarsson
umburöarlyndur gagnvart
mönnum og málefnum. Hann
var fróöur, íhugull og gagn-
rýnin á leiðir — en ævinlega
jákvæöur í afstööu sinni.
Þess vegna var bæði gaman
og gagnlegt aó ræða vió
hann málefni liöandi stundar
og aö setja þau í stærra sam-
hengi fortiðarog framtíðar.
Þaö kom þvi eins og af
sjálfu sér aó ég leitaði í
smiöju til nafna míns þegar
sækja þurfti og verja málstað
okkar jafnaóarmanna í fólk-
orrustum stjórnmálanna. Á
þaö reyndi strax í Alþingis-
kosningum 1979 og í Þeirri
kosningabaráttu sem háö
hefur verið síöan, bæöi
bæjar- og Alþingiskosning-
um.
Þá er ekki siður eftirminni-
legt samstarfiö innanflokks, í
nefndavinnu og á málfundum
þar sem Jón Hjálmarsson lét
sig sjaldan vanta.
Ég treysti því aö aðrir veröi
til þess aö gera lífshlaupi og
æviferli Jóns Hjálmarssonar
betri skil í minningarorðum,
því að þessar línur eru hrip-
aöar niöur á blað á stolnum
stundum milli funda. En að
leiðarlokum vil ég nota tæki-
færiö og þakka Jóni Hjálm-
arssyni fórnfúst og óeigin-
gjarnt starf, í bókstaflegum
skilningi þeirra oröa, í þágu
jafnaðarstefnu, verkalýös-
hreyfingar og Alþýðuflokks-
ins. Eftirlifandi konu hans,
Huldu Þorsteinsdóttur, börn
um þeirra og öörum vanda-
mönnum flyt ég hugheilar
samúöarkveöjur.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaöur Alþýöuflokksins
Vinur minn, Jón Hjálmars-
son, er látinn. Mér brá mjög,
er ég frétti lát hans. Aö vísu
vissi ég, aö hann hafói ekki
gengið heill til skógar undan-
farið. En stuttu áöur en hann
lést hafði hann komið á skrif-
stofu mína léttur í bragöi og
hress aö því, er virtist. Þann-
ig aö andlátsfréttin kom mér
mjög á óvart eins og raunar
alltaf, þegar einhver nákom-
inn fellur skyndilega frá.
Meö Jóni Hjálmarssyni er
failinn frá góöur drengur,
mikill jafnaöarmaöur og
sannur verkalýðssinni.
Þaö er nú hálfur fjóröi ára-
tugur liöinn síðan leiöir
okkar Jóns lágu fyrst saman.
Þaö var í Félagi ungra jafnað-
armanna í Reykjavík. Ég sá
strax, aö þar fór eldhugi,
mikill hugsjónamaöur, sem
vildi berjast fyrir málefnum
Alþýöuflokksins og jafnaðar-
stefnunnar. Og þaö varö hlut-
skipti Jóns aö gerast stríös-
maður verkalýðshreyfingar-
innar og Alþýóuflokksins.
Jón var um skeiö erindreki
Alþýöusambands Islands. Og
þær voru áfáar stundirnar,
sem hann eyddi í störf á
skrifstofum Alþýðuflokksins.
Oftast vann hann þar kaup-
laust enda var Jón með af-
brigðum ósérhlífinn og
KRATAKOMPAN
Alþýðuflokksfélag Garða-
og Bessastaðahrepps
Fundur í Bæjarmálaráöi mánudaginn 2. maí í Goða-
túni 2.
Stjórnin
Skrifstofa Alþýöuflokksins er lokuö eftir hádegi í
dag vegna útfarar Jóns Hjálmarssonar.
Alþýöuflokkurinn.
Breyttur
vinnutími í
Stjórnarráðinu
Ákveöið hefur veriö aö
færa starfsdag í Stjórnarráö-
inu fram um klukkutíma yfir
sumarmánuðina. Veröa þvi
skrifstofur Stjórnarráðs ís-
lands opnar kl. 8.00 til kl.
16.00 mánudaga til föstudaga
frá 1. maí til 30. september
1988.
1. MAÍ KAFFI
Mætum öll í 1. maí kaffið í Naustinu
Húsió veróur opnaö kl. 15.00.
Allir velkomnir, takið meö ykkur gesti.
Alþýðuflokkurinn
óeigingjarn maður. Hann
safnaöi ekki þessa heims
auöi.
Jón Hjálmarsson var skarp-
greindur maöur og vel lesinn.
Hann var búfræðingur aö
mennt en kunni skil á flestu.
Hann var sérstaklega vel aö
sér um þjóömál öll, efna-
hagsmál og landbúnaðarmál
og sér í lagi um verkalýðs-
mál. Maöur kom aldrei að
tómum kofunum hjá Jóni
Hjálmarssyni.
Hér veröa ekki rakin öll
þau störf, sem Jón vann um
ævina. Hann kom viöa viö og
má segja, aö hann hafi unnið
hin margvíslegustu störf frá
verkamannavinnu til skrif-
stofustarfa. Síöustu árin var
Jón húsvöröur í Skúlatúni 2,
þar sem skrifstofur borgar-
verkfræðings eru og borgar-
stjórn Reykjavíkur heldur
fundi sína. Öll störf sín vann
Jón af stakri samviskusemi.
Jón var mikill félagsmála-
maður. Síóustu árin starfaöi
hann af miklum áhuga í sam-
tökum eldri borgara. En fyrst
og síðast var þaó ávallt Al-
þýöuflokkurinn og verkalýös-
hreyfingin sem hugur hans
stóó til.
Ég er þakklátur fyrir aö
hafa notið kynna Jóns Hjálm-
arssonar og vináttu. Ég votta
eftirlifandi konu hans, Huldu
Þorsteinsdóttur, og börnum
þeirra samúö mína.
Drottinn blessi minningu
Jóns Hjálmarssonar.
Björgvin Guðmundsson.
Auglýsing
um bann við notkun matarleifa til skepnu-
fóöurs.
Vegna hættu á búfjársjúkdómum og samkvæmt lög-
um nr. 28/1928, um varnir gegn því aö gin- og klaufa-
veiki og aörir alidýrasjúkdómar berist til landsins, er
hér meö bannað aó nota til skepnufóðurs matarleif-
arsem aflaðerutan heimilis. Þettagildirþartil ööru-
vísi verður ákveöiö.
Landbúnaðarráðuneytið
26. apríl 1988
Félagsmálastofnun Reykjavikur
Námskeiö í gömlum
dönsum fyrir
eldri borgara
Gömlu dansarnir rifjaöir uppog kennd ýmis afbrigöi.
Kennt veröur alla þriöjudaga í maí kl. 17-18 aö Norö-
urbrún 1 og kostar námskeiðið kr. 500,-
Innritun og nánari upplýsingar í síma 686960 dag-
lega frá kl. 10-16.
Félagsstarf aldraða.
Laus staða
Viö Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla ís-
lands er laus til umsóknar staöa handmennta-
kennara.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
námsferil og störf, skulu hafa borist menntamála-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reyjavík fyrir 24.
mai n.k.
Menntamálaráðuneytið
25. apríl 1988.
Frá Menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Hamrahlíð vantar kennara í
tölvufræði.
Við Verkmenntaskólann á Akureyri eru lausar til
umsóknar kennarastöóur í eftirtöldum greinum:
Efna- og líffræði, félagsfræói, hagfræöigreinum, ís-
lensku, rafeindavirkjun, sagnfræði, saumum, stæró-
fræöi, tölvufræði, vefnaöi, vélstjórn, viöskiþtagrein-
um. Auk þess vantar stundakennara i ýmsum grein-
um.
Vió Menntaskólann á Egilsstöðum vantar kennara í
þýsku, frönsku, dönsku, líffræöi, stæröfræöi, tölvu-
fræói, félagsfræöi, sálfræöi, vióskiptagreinum og
íþróttum.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 20 maí. næstkomandi.
Menntamálaráöuneytið