Alþýðublaðið - 28.04.1988, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 28.04.1988, Qupperneq 7
Fimmtudagur 28. apríl 1988 7 BROR BLIXEN HVITÞVEGINN Það var ekki hann, sem smitaði Karen Blixen af sýfillis. Honum hefur verið lýst sem ákaflega ótrúum eiginmanni. Guðsonur hans, Ulf Aschan hefur ritað bók um Bror Blixen og gefið henni heitið „Manden som kvinderne elskede Hann var ákafur veiðimað- ur villdýra það er satt, en aö hann hafi verið mikiö fyrir aö eltast við konur er ekki satt. Þær eltu nefnilega hann, segir guðsonur Bror Blixen, Ulf Aschan í bók sinni „Manden som kvinderne elskede“. Hann segir á skemmtileg- an og umhugsunarverðan hátt frá manninum, sem i Danmörku og víðar var þekkt- astur fyrir að vera maðurinn sem bakaði Karen Blixen mikla óhamingju — og smit- aði hana af sárasótt. Spurningunni um það, af hverju allar hinar konurnar sem Bror Blixen var með smituðust ekki (sem reyndar læknar á þeim tíma undruð- ust) svarar Aschan í bókinni með þessum orðum: Það var vegna þess að það var alls ekki Bror Blixen sem smitaði Karen. Það er staðreynd að faðir Karenar, Wilhelm Dinesen, smitaðist af sárasótt á yngri árum sínum. Hann framdi sjálfsmorð árið 1895, og ástæöan fyrir því gæti verð sú, að sjúkdómurinn hafi þá verið kominn á hátt stig, skrifar Aschan og fullyrðir að Karen hafi ekki verið neinn sakleysingi þegar hún giftist Bror Blixen. Sönn ímynd af mannin- um Aschan segist hafa skrifað bókina til að hin sanna ímynd mannsins Bror Blixen komi fram. Hann minnist guðföður síns sem glaðlegs, sól- brennds manns sem lyfti snáðanum upp á barstól á strandhótelinu í Falsterbo og lét kviknaktan strákinn hrópa „tvöfaldan gin og tonic handa vini mínum, appelsín fyrir mig — og settu þetta á reikning föður míns“. Bror var léttlyndur, lét hverjum degi nægja sína þjáningu leitaði sífellt nýrra ævintýra, segir Aschan í bók sinni sem kom út á sænsku fyrir tveimur árum. í kjölfar kvikmyndarinnar „Out of Africa", var hún síöan þýdd á ensku. Dillandi mjaðmir Blaðamaður Det fri Aktuelt, segir að þegar mað- ur lesi bókina verði maður svekktur yfir því að hafa ekki þekkt manninn! Þetta var maður sem naut lífsins í botn, var rausnarleg- ur við vinkonur sinar og horfði beint framan í fílana! Það var Karen sem fékk hann með sér til Afríku, en hann heillaðist ekki síður af álfunni en hún. Hún skrifaði um Afríku, hann nýtti sér 1 Bror Blixen (til vinstri) var mikið fyrir villidýraveiðar og vildi „nýta“ Afriku, eins og hann orðaði það. Afríku. Frá því að vera glaum- gosi í Svíþjóð varð hann að veiðimanni villtra dýra í Afríku. Þessi maðurvirtist hafa haft slíka þersónustöfra og verið svo fullur af lífs- þorsta, að það hljóti að hafa verið unun að umgangast hann. Þegar afrfkanska sveita- setrið leystist upp — og hjónabandið, gerðist Bror Blixen atvinnumaður í veiði- menskunni. Á árunum 1922- 28 fór breski aðallinn að stunda „safari" með kampa- vín, baðker, þjóna og silfur- bakka í farteskinu, og Bror gerist leiðangursstjóri og far- arstjóri í þessum „safari" ferðum. Hann kunni vel að meta dillandi mjaðmir svörtu stúlknanna, sömuleiðir brak- andi silki bresku hefðar- kvennanna, og kvenfólkið var vitlaust í honum. Konan sem hann tók sam- an við eftir skilnað þeirra Karenar var Cokkie Hoogterp — sem mörgum árum seinna sagði: „Ég iðrast einskis — nema þess aö ég fór frá Bror Blixen. Hann var stóra ástin í lífi minu“. „Hann var yndis- legur, ótrúr eiginmaður, og besti elskhugi sem ég hef nokkurntíma þekkt“, sagði Cokkie, sem hafði aldrei verið afbrýðisöm — en varð það þegar hin sænska Eva Dick- son birtist allt í einu. Hún steig út úr jeppanum og sagði: „Eg var að koma frá Dar - Es - Salaam og er mjög þyrst“. Eva hafði heyrt talað um Bror Blixen heima í Sví- þjóð, ferðaðist til Afriku og ók 700 km. leið til þess að kynnast honum náið. Önnur ástmær Bror var Beryl Markham (sem þýdd grein birtist um í Alþýðublað- inu fyrir nokkrum mánuðum) hún var kjarkmikil flugkona og Eva vildi sýna að hún væri jafn kjörkuð og ók því á bíl yfir Sahara eyðimörkina á 30 dögum. Beryl flaug sóló-flug yfir Atlantshafið árið 1936. Ári seinna skipulagði Eva æv- intýralegan leiðangur, þvert í gegnum Asíu — í þeim leið- angri fórst Eva í bilslysi í Ind- landi. Bror yfirgaf Afríku og fór til Bandaríkjanna. Hann hafði áhuga á því að taka þátt í „vetrarstriöinu" í Finnlandi. Finnland féll og Bror Blixen fór til Svíþjóðar. Þar kynntist hann Ruth, sem var einmitt af þeirri gerð kvenna sem Bror var hrifnastur af — kona með eigin peninga og gat séð fyrir sjálfri sér. Lífsreglur Bror Blixen voru einfaldar. Nr. 1. „Ef þú ætlar að búa á hóteli þá veldu það besta, þá er þér treyst fyrir skuldum." Nr. 2. „Ef þú ætlar að vera í nánu sambandi við konu, þá veldu þér konu með eigin peninga. Konurþeirrar gerðar passa upp á mannorð sitt og þær fara ekki á veit- ingahús sem er of dýrt fyrir Þig.-“ Arin með Ruth í Svíþjóö voru hamingjuár. Árið 1946 voru þau í bil á leið til úti- hátíðar, bíllinn rann til í snjónum og fór út af vegin- um. Bror, sem var í aftursæt- inu, vafði handleggjunum ut- an um Ruth, sem var í fram- sætinu til að verja hana gegn því að slengjast i framrúðuna og þaö tókst honum. En þeg- ar billinn lenti á tré rakst höf- uð hans i loft bílsins og hann dó samstundis. Einkunnarorð hans var: „Lifið er veisla, en það verður allt svo hljótt þegar gullfisk- urinn deyr.“ Hann var sjálfur gullfiskur margra og þegar hann lést varð hljótt og öm- urlegt í andapollinum. (Det fri Aktuelt.) Guðsonur Karen Blixen, segir hana ekki hafa verið neinn sak- leysingja.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.