Alþýðublaðið - 29.04.1988, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.04.1988, Blaðsíða 4
4 + MINNING + Föstudagur 29. apríl 1988 JÓN HJÁLMARSSON f 9. okt. 1924 - Þar bíöa vinir í varpa, sem von er á gesti, kvaö skáldió og í þetta sinn er gesturinn Jón Hjálmarsson, fv. erind- reki ASÍ, og vinahópurinn án efa stór, sem fagnar þar góö- um gesti, því aö Jón var afar vinsæll maöur og ræktarsam- ur viö vini sína. Hann var einn af bestu vin- um fööur míns og fastur heimilisvinur á bernskuheim- ili mínu allatíð og einn af aufúsugestunum þar, alltaf hress, káturog ræöinn, hvernig sem á stóö, hvenær sem hann leit þar inn, og sópaði aö honum. Kynni fööur míns af þeim þræðrunum, Sigvalda og Jóni, hófust á bernskuslóö- um þeirra bræöra í Bólstaóar- hlíðinni í Húnavatnssýslu á þeim árum, sem faðir minn gegndi stööu erindreka ASÍ og feröaöist þar um sveitir, og sögöu bræðurnir oft við hann, að þeir hefðu oróið fyrir sterkum áhrifum af d. 18. apríl 1988 honum á sviöi jafnaðar- stefnu. Vinátta sú, sem þar var stofnað til, hélst alla ævi, þótt einkum væri milli þeirra nafnanna, fööur míns og Jóns. Þaó styrkti líka vináttu þeirra, þegar þeir fóru aö vinna saman á skrifstofu Al- þýðusambandsins, Jón sem erindreki en faðir minn sem framkvæmdastjóri. Jón er því einn af þeim mönnum, sem ég hef þekkt frá því i bernsku, og tók ég snemma eftir því, hversu barnelskur hann var, og raungóður í alla staöi, ef á þurfti aö halda. Greiðviknin virðist hafa verió honum í blóð borin, því að ævinlega þegar foreldrar mín- ir þurftu einhvers með eöa á aöstoð aö halda, þá var leitaö til Jóns, enda boðinn og bú- inn hvenær sem á þurfti aö halda. Ég get nefnt mörg dæmi þess, þótt þau verði ekki tíunduð hér. Það verður því sagt það eitt um Jón Hjálmarsson, aö hann hafi verið traustur vinur vina sinna, og eiga eflaust margir honum ótalmargt aö þakka, þegar þeir nú kveöja hann hinstu kveðju. Ég get seint þakkað honum fyllilega fyrir þá miklu fórnfúsu greiövikni, sem hann lét foreldrum mín- um í té, ekki síst á efri árum þeirra, þegar aldurinn og stirðleikinn til allra snúninga og útréttinga sagöi til sín. Það sýndi lika, hversu annt Jóni var um kjör og aðbúnað aldraðra, og hversu raungóð- ur hann var einkum í garð þess aldurshóps í þjóðfélag- inu, enda vann hann ötult starf í þágu hinna öldruðu. Hann sýndi þeim líka mikinn skilning, sem þurftu að sjá um gamalt fólk, og fann ég inn á það, þá þegar hann kom í heimsókn á bernsku- heimili mitt, stundum fær- andi hendi, án þess um væri beðið, eða aðeins til að athuga, hvernig gömlu hjón- unum leið og hvort hann eæti nokkuð fyrir okkur gert, ug hefur sjálfsagt þótt full- mikið fyrir mig eina að kom- ast yfir það allt saman, sem ég hafði að gera á þeim dög- um, íyrir utan það að vera I námi. I heimsóknum sínum gaf hann sér alltaf tíma til að stansa góða stund og spjalla við foreldra mína um liðna daga, en ekki síður ræða um menn og málefni. Þegar rætt var um Alþýðu- flokkinn og verkalýðshreyf- inguna, var aldrei komið að tómum kofunum hjá Jóni, og þegar þeir nafnarnir, hann og faðir minn, rifjuðu upp atvik frá starfsárum sínum í Al- þýðusambandinu og barátt- unnar í verkalýðshreyfing- unni, var það kennslustund fyrir ungan jafnaðarmann. Þegar svo Jón kvaddi okkur að heimsóknum loknum, var hans vanaviðkvæði: „Þið hringið svo og látið mig vita, ef ég get eitthvað fyrir ykkur gert“. Betri kveðju getur gamalt fólk og góðir vinir ekki fengið. Þetta sýndi, hvert innra eðli Jóns var, og hversu góður drengur hann var, svo ég vitni til orða föður míns um hann. Fyrir þessa ómældu greið- vikni, allar sendiferðirnar, sem Jón fór fyrir foreldra mína, og óeigingjarna, trausta og góða vináttu í garð okkar allra, þakka ég Jóni Hjálmarssyni að leiðar- lokum. Þar sem góðir menn fara eru guðs vegir, og ég veit, að á þeim vegum verður vel tekið á móti honum, en líka sárt saknað af vinum og vandamönnum hér á jörðu, því að stórt skarð er fyrir skildi, sem verður seinfyllt. Eiginkonu Jóns, Huldu Þorsteinsdóttur, og öðrum aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Megi minn- ingin um góðan og göfugan mann verða þeim huggun harmigegn. Guðbjörg Snót Jónsdóttir NE YTENDAMÁL VILLANDI UPPLÝSINGAR Það er talið óhæfilegt gagnvart neytendum að gefa vöru eitthvert glæsilegt nafn sem gefur i skyn að varan sé önnur og betri en hún er í raun. Kaupandi sem kaupir poka með áletruninni möndl- ur verður að sjálfsögöu fyrir vonbrigðum þegar „möndl- urnar'* reynast vera lakkris- töflur. Sama máli gegnir um þann sem kaupir sófasett með áklæði gert úr leðurlíki í þeirri trú að um leður sé að ræöa. Forsendur þær sem ráða vali kaupenda á mark- aðnum eiga að vera réttar, í því felst mikil neytendavernd. í nýju fréttabréfi Verðlags- stofnunar er greint frá nokkr- um deilumálum sem komið hafa til kasta neytendamála- deildar stofnunarinnar, en deildin á samkvæmt lögum að annast eftirlit með órétt- mætum viðskiptaháttum og neytendavernd. Að þessu sinni voru valin nokkur mál þar sem seljend- ur setja fram upplýsingar um vöru og þjónustu á villandi hátt í því skyni að efla sölu á þeim varningi sem þeir hafa á boðstólum. Til þess að vernda neyt- endurgegn uppáþrengjandi söluaðferðum eru m.a. laga- ákvæði þar sem tekið er fram að seljendum sé óheimilt aö veita neytendum kaupbæti eða að gefa þeim kost á þátt- töku í getraunum, happdrætti o.þ.h. Mörg mál og margar spurn- ingar viðvíkjandi þessum lagagreinum hafa á undan- förnum árum borist til neyt- endamáladeildarinnar, ekki síst frá seljendum drykkjar- vara. Það bendit til að slíkar söluaðferðir skili góðum árangri, enda hafa seljendur meiri þörf fyrir en áður að vekja athygli á söluvarningi sínum. Alþýðublaði birtir hér nokk- ur dæmi úr fréttabréfi Verð- lagsstofnunar: Ekki skal þröngva þjónustu upp á viðskiptavini Samkvæmt gildandi regl- um ber að láta verðlista liggja frammi á áberandi staö, þar sem tilgreint er verð þeirrar þjónustu sem á boð- stólum er á hárgreiðslustof- um. Verðupplýsingar sem gefn- ar eru munnlega og á verð- listum skoðast sem bindandi tilboð um söluverð þjónust- unnar í heild, sem í té er lát- in. Að sjálfsögðu eiga þau efni sem nauðsynleg þykja til að framkvæma þá þjónustu sem beðið er um að vera innifalin í verðinu. Kona nokkur, sem pantaði klipp- ingu á hárgreiðslustofu, sem samkvæmt verðlistanum átti að kosta 850 kr. var hins veg- ar látin greða 1291 kr. Hún tók skýrt fram að hún óskaði einungis eftir klippingu. Hár- greiðslukonan fór hins vegar að blása hárið á þeim forsendum að það ætti að þurrka það og væri það alltaf gert á þessari stofu, þegar hár væri klippt. Að auki var borið i þaö lakk-gel sem konan bað ekki um. Á nót- unni var verðið tilgreint á eftirfarandi hátt: Klipping 850 kr. Þurrkun 376 kr. Lakk-gel 65 kr. Samtals 1291 kr. Slíkan reikning á viðskipta- vinur að neita að greiða þar sem þjónustan fór fram úr því sem um var beðið. Kötturinn keyptur í sekknum Neytandi nokkur bað um möndlur I verslun og var hon- um afhentur ógagnsær rauð- ur poki áletraður með stórum stöfum „möndlur". Mynd af svörtum ketti var á pokanum enda kom í Ijós þegar hann var opnaður að engar möndl- ur voru í honum, heldur rauð- ar möndlulagaðar töflur með lakkrísbragði. Þegar betur var að gáð kom í Ijós að á pok- ann var prentað með smáu letri lýsing á innihaldi, þar sem kom m.a. fram að lakkrís væri í töflunum og hindberja- rautt litarefni. Framleiðandinn sagði að sælgætið hefði verið á mark- aðnum í 30 ár og komin væri hefð á heiti þess. Hjá Verðlagsstofnun var talið að heitið á vörunni væri villandi. Lagt var til að næst þegar prenta þyrfti umbúðir fengi lakkríssælgætið með möndlulöguninni nýtt heiti eins og t.d. lakkrísmöndlur (sbr. Ijósaperur). Hér á landi starfa mörg happdrættisfyrirtæki með það að markmiði að styrkja ýmis þjóðþrifamál. Við ís- lendingar höfum gaman af að spila í happdrætti og eiga vonir um vinning. Það er góð og gild afsökun á spilafíkn- inni að verið sé að styðja gott málefni. Hins vegar geta það tæp- lega talist góðir viðskipta- hættir, að efla söluna með því að gera meira en efni standa til úr þeim tækifær- um til vinnings og þeim gæð- um sem vinningshafi nýtur. Vinningshlutfall sem slær allt út. Neytandi taldi það villandi í auglýsingu frá happdrættis- fyrirtæki nokkru þar sem því var haldið fram að vinnings- hlutfall væri 70%. Dregið væri úr öllum útgefnum miö- um og rynni því stór hluti af vinningsfjárhæðinni til happ- drættisins. Auglýsingin var borin undir marga menn og þeir spurðir hvernig bæri að skilja hana. Var hún lögð út á ýmsa vegu. Flestir hristu höfuðið og sögðu hana markleysu en sumir töldu að 70% allra miða hlytu vinning. í lögum um það happ- drætti sem auglýsti, segir að vinningsfjárhæð skuli nema a.m.k. 70% af iðgjöldum samtöldum. Ef t.d. helmingur af útgefnum miðum selst má gera ráð fyrir að um helming- ur vinninga falli á hina seldu miða þegar dregið er úr öll- um útgefnum miðum. Vinn- ingar nema þá um 70% af innkomnu fé, enda kemur það fram í bókhaldi happ- drættisins. Happdrættinu var bent á að ef orðið vinningshlutfall væri notað í auglýsingu væri rétt aö skýra nánar við hvað væri átt. Útsöluafsláttur á tombólu- veröi í verslun einni var auglýst útsala sem fram fór með nýstárlegum hætti. Til þess að hleypa lifi í söluna var ákveðiö að gefa viðskiptavin- um kost á að draga miða við kassann, sem segði til um hve afslátturinn af þeim vör- um sem keyptar væru ætti að nema mörgum prósentum. Á miðanum voru tölur frá 0 og upp í 90%. Framkvæmdastjóra versl- unarinnar var bent á að ekki mætti úthluta vinningum með hlutkesti í því skyni að efla sölu. Ennfremur var á það bent að aðeins mætti auglýsa útsölu ef um raun- verulega verðlækkun væri að ræða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.