Alþýðublaðið - 30.07.1988, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.07.1988, Blaðsíða 11
Laugardagur 30. júlí 1988 11 Er ást þín endurgoldin? Þráirðu að fá svar við einhverri brenn- andi spurningu — t.d. í ástarmálum? Reyndu þá að leita aðstoðar spila- stokksins. síðan inn í spilastokkinn aft- ur og stokkar. Þar næst skiptir hann spilunum í þrjú búnt með vinstri hendi og leggur þau hlið viö hlið, eins og sýnt er á myndinni. Nú hefst leitin að mannspilinu og hjartaníunni, en það spil táknar óskina eöa þrá hjart- ans. Ef bæði þessi spil eru í sama búntinu, mun þráin ör- ugglega rætast. Ef þau eru ( búntinu lengst til vinstri við spyrjandann, mun óskin ræt- ast fljótlega. Ef spilin eru bæði í miðbúntinu, má búast við smávægilegri töf á því að óskin verði uppfyllt. Séu spil- in hins vegar í búntinu á hægri hönd spyrjandans, má gera ráð fyrir töluverðri töf — en þó fer allt vel að lokum. Þegar hjartanían er ein í búntinu lengst til vinstri, er enn einhvervon um að þráin rætist. Ef nían er ein í mið- búntinu, eru líkurnar minni og ef hún er ein f búntinu lengst til hægri (séð frá spyrjandanum), þá er eins gott að gera sér ekki of mikl- ar vonir.“ Þannig fer maöur að því að fá svör við brennandi spurn- ingum, samkvæmt Nerys Dee — og þó. Málið er ekki alveg svona einfalt. Á öðrum stað í bókinni má nefnilega lesa eftirfarandi: „Það gilda ákveðnir siðir og venjur um það hvernig spil eru valin og hvernig lesið sé ofar en í hæð venjulegrar borðplötu. Sagt er, að þetta sé gert til þess að spilin séu yfir veraldlega hluti hafin og best er talið að geyma þau i efstu hillu í dimmum skáp. Þeir sem taka þetta mjög al- varlega, segja að sauma veröi silkipoka utan um spilin og að setja verði þau í hann um leið og spámennskunni er lokið. Þetta er gert til þess að viðhalda véfréttarstyrk þeirra, sem eykst við rétta notkun. Ef farið er illa meö spilin eða þau notuð við leiki, minnkar þessi kraftur og samspil hinna mismunandi þátta fer úrskeiðis. Þetta hef- ur bæði áhrif á spyrjandann og þann, sem les úr spilun- um.“ Þeir, sem taka þessi mál alvarlega, umgangast spila- stokkinn sem sagt með mikl- um hátíðleika. En það erekki þar með sagt að við hin get- um ekki líka tekið okkur spil í hönd og athugað hver útkom- an verður. Og ef svörin gefa ekki tilefni til bjartsýni — þá er þetta jú bara léttur leikur! Gangi ykkur vel. er úr þeim. Best er að fylgja þessum venjum, ef þess er nokkur kostur... Best er að kaupa sérstak- an spilastokk, sem eingöngu er notaður til spádóma. Eng- inn má meðhöndla spilin nema þú og spyrjendurnir, sem velja sér spil úr stokkn- um til þess að láta þig túlka þau fyrir sig. Það má alls ekki nota þessi spil til þess að fara í leiki, hvaða nafni sem þeir kunna að nefnast. Spil, sem notuð eru til spá- dóma, á helst alltaf að geyma á sama stað, sem best er að Allir hafa sinar sérstöku adferðir við að leysa þau margvislegu vandamál, sem fylgja lífi okkar hér á jörðinni. Sumir arka niður í fjöru eða upp á fjöll og hugsa þar sinn gang. Aðrir skríða undir sæng eða leita til ráðagóðra vina. Svo eru líka þeir, sem grípa til gömlu, góðu spil- anna í von um svör. En hvern- ig skyldu þeir fara að því? í bókinni Spáð í spilin eftir Nerys Dee, sem Bókhlaðan gaf út fyrir þremur árum, er sagt frá spádómsaðferðinni „Þrá hjartans". Það er ekki hefðbundin aðferð, heldur einfaldlega leið til þess að komast að því hvort ákveðin þrá eða ósk verður að vgru- leika. Sagt er, að ástsjúkur maður við frönsku hirðina hafi fundið þessa spádóms- aðferð upp — hvað svo sem til er í því. Hún er a.m.k. mest notuð, þegar komast á að því hvort draumaprinsinn/ draumadísin elskar mann eð- ur ei. Aðferðinni er lýst á eftirfar- andi hátt: Búnt 1. Búnt 2. Búnt 3. . „Nauðsynlegt er að velja mannspil til þess að tákna þann heittelskaða, en það spil verður að vera hjarta. Spyrjandinn setur mannspilið Erlendir pennavinir Blaðinu hafa borist bréf frá fólki úti I heimi, sem langar til aö skrifast á við íslendinga. Þeim er hér með komið á fram- færi: Miss Kang Ho-sun P.O.Box 261 Pusan 600, KOREA Þessi stúlka skrifaði okkur bæði fyrir sína hönd og skólafé- laga sinna. Þau vilja heyra frá sem flestum íslendingum, en því miður getur stúlkan ekki um ald- ur. Hún vill hins vegar að þeir, sem skrifa til hennar, segi frá kyni, aldri, áhugamálum og að- stæðum sínum almennt. Ekki sakar heldur að láta það fylgja með, hvort þið viljið fremur skrif- ast á við stelpu.eða strák. Bréfa- skriftirnar myndu fara fram á ensku. Japanese friend c/o International Friendship Club, P.O.Box 5, Akabane, Tokyo, Japan 115 Þetta er klúbþur krakka í Jap- an, sem vilja skrifast á við fólk i öðrum löndum. Þau telja að slík tengsl á milli ólíkra þjóöa geti stuðlað að heimsfriði og hlakka því til að heyra frá ykkur. Touko Muraoka 44-3 3chome Kamiya, Kita-ku Tokyo 115 Japan Þessi stúlka er 17 ára og hennar helstu áhugamál eru píanóleikur, bóklestur, tónlist og kvikmyndir. Hún hefur lika mjög gaman af að skrifa bréf og vill gjarnan fræðast um ísland. Francesca Zucchi via Moizo 6/7 17100 Savona Italy Þessi stúlka er ítölsk, en skrif- ar á frönsku. Hún er 19 ára og vill gjarnan koma til íslands og fá þá að búa hjá væntanlegum pennavinum. í staðinn býður hún þeim að gista hjá sér, ef þeir eiga leið um Ítalíu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.