Alþýðublaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 7
Þriójudagur 30. ágúst 1988
7
UTLÖND
Umsjón: Ingibjörg ’
Árnadóttir i
ER RUGLAÐUR
„Er drengurinn vitlaus?“
spyr blaðamaöur Bild Zeitung
á focsíÖHj blaðsins á dögun-
um, eftir að Mathias Rust
„Kreml-flugmaður" kom
heim. Fyrir rúmu ári var hann
talinn einskonar hetja, þó
ekki væri ráðlegt fyrir vestur-
þýsk ungmenni að taka hann
sér til fyrirmyndar! Núna er
hann kallaður „draumóra-
maöur og kjáni“ í viðlesnasta
blaði Vestur-Þýskalands.
Vikuritiö Stern keypti
einkarétt á „Mathias Rust-
sögunni" fyrir stórfé, en þaö
var áöur en geislabaugur
hetjunnar var farinn aö hall-
ast.
í Stern lýsir Mathias Rust
framtíöaráformum sínum.
Hann ætlar aö halda áfram
að vinna að skilningi milli
þjóöa, friöi og umhverfis-
vernd. Viö réttarhöldin í
Moskvu sagði hann að sitt
hjartans mál væri samband
Vestur-Þýskalands og Rúss-
lands.
Hann hefur hafnaó tilboöi
frá Hollywood og segist ekki
trúa því aö þaö hjálpi nokkuð
friðaráformum sínum.
EKKI JARÐBUNDINN
Heidron Brauer, sálfræð-
ingur í Hamborg, segir um
Mathias Rust: „Drengurinn er
hreint ekki í sambandi við
raunveruleikann, hann þyrfti
nauósynlega meðferð hjá sál-
fraeðingi.“’
Ákvörðunina um að takast
á hendur flugferðina til
Moskvu segir Rust hafa þró-
ast smátt og smátt „en ferð-
ina fór ég að vandlega at-
huguðu máli“.
Ein af þessum draum-
kenndu hugmyndum Rust var
„sælurfkið Lagonia", þaul-
hugsað árið 1986! Þar á að
ríkja lýðræöi fólksins, ekki
þingbundið lýðræði, og virð-
ist sem hann miði við sitt
eigið fjölskyldulíf sem hann
segir einkennast af öryggi og
vilja til að þóknast öllum fjöl-
skyldumeðlimum.
KÆFANDI ÁST
Á hinum fjölmörgu mynd-
um sem birtar eru í „Stern“ af
heimkomu Mathias Rust er
það móðirin, Monica Rust,
sem ásamt syninum er oft
eins og aðalstjarnan. Sjón-
varpsupptökur frá heimsókn
foreldranna til Rust, meðan á
fangelsisvist hans stóð, sýna
einnig móður, sem alltaf
reyndi að trana sér fram til
þess aö vera viss um að
sjást. Sálfræðingurinn
Heidron Brauer segir móður-
ina hafa hellt yfir soninn
kæfandi, yfirþyrmandi ást.
Brauer segir ennfremur að
Mathias Rust eigi erfiða tíma
framundan. „Hann mun kom-
ast að því að fólki þótti flug-
Sálfræðingur segir Mathias Rust ekki vera í sambandi við raunveruleikann og eitt viðlesnasta blað i Vestur-
Þýskalandi lýsir honum sem „draumgjörnum kjána“.
Um tíma var Mathias Rust hetja, en eftir heimkomuna frá
Rússlandi, þar sem hann sat í fangelsi, hefur hann verið
gagnrýndur harðlega í ýmsum þýskum blöðum. Sálfrœð-
ingur nokkur segir hann „ruglaðan og ekki í sambandi við
veruleikann“.
Mathias Rust er til hægri á myndinni, sem tekin var þegar hann fékk að ræða við flugstjóra Lufthansa-véiar-
innar sem flutti hann heim. Þaö er talið hæpið að Rust fái nokkurn tima atvinnuflugmannsleyfi eftir flug
ferðina á Rauða torgið.
ferð hans vissulega áhuga-
verð, en fólkinu stendur ná-
kvæmlega á sama um mann-
eskjuna Mathias Rust.“
LÆRÐI RÚSSNESKU
Meðan á fangelsisdvölinni
stóð fékk Rust engin erlend
dagblöð og hann fékk ekki
að hlusta á útvarp eða horfa
á sjónvarp. Hann las mikið
og lærði hrafl í rússnesku af
klefafélögum sínum. Þessa
varð vart á heimleiðinni í
Lufthansa-vélinni, sem flutti
hann heim, þá talaði hann
ensku en skaut rússneskum
og þýskum orðum inn í
annað slagið.
Rust afþakkaði mat I vél-
inni, lét sér nægja smákökur,
te og ölkelduvatn. Ein flug-
freyjan gaf honum litla pl.ast-
flugvél og hann tók brosandi
viö henni. Þegar flugferðin
heim var hálfnuð var Mathias
boðið að heimsækja flug-
stjórnarklefann og ræða við
flugstjórann.
Ein af heitustu óskum
Mathias Rust er að verða
flugmaður hjá Lufthansa.
Heimsóknin í flugstjórnar-
klefann er trúlega það sem
hann kemst næst þeim
draumi.
Flugmálayfirvöld í Ham-
borg fjalla nú um hvort
Mathias Rust verði afhent
flugskírteini sitt sem einka-
flugmaður á nýjan leik.
Vestur-þýska ákæruvaldið
ætlar að veita honum áminn-
ingu fyrir að hafa gefið upp
rangan áfangastað, jafnframt
því að hafa lagt flugsam-
göngur I mikla hættu með
ungæöishætti sínum. Hvor
tveggja þessi yfirvöld verða
að bíða með lokaákvörðun í
þessum málum þar til yfir-
heyrslum yfir Mathias Rust
er lokið, en þær eru nú á
lokastigi.
í viðtalinu við „Stern“ lýsti
Rust því yfir, að hann vildi
allt til vinna aö fá leyfi til að
fljúga aftur.
(Det fri Aktuelt)