Alþýðublaðið - 31.08.1988, Page 1
Fimmtán kaupstaðir víðs-
vegar um landið búa við aur-
skriðu- og snjóflóðahættu
vegna staðsetningar sinnar.
Átta þessara staða eru á
Vestfjörðum, tveir á Norður-
landi og fimm eru á Aust-
fjörðum. Nú er unnið að þvi
að hættumeta þessa staði til
að hægt sé að skipuleggja
varnarvirki til að minnka
hættu í byggð.
Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins, sagði í samtali við
Alþýðublaðið að þessir staðir
væru allir á skrá og nú væri
unnið að því að hættumeta
þá til að hægt væri að setja
upp heppilega varnargarða til
að minnka hættu meðal íbú-
anna. Guðjón sagði að þessir
staðir byggju allir við mis-
mikla snjóflóðahættu, en
hinsvegar væri aurskriðu-
hætta á öllum stöðunum.
Fylgst er náið með þessum
stöðum og er Ólafsfjörður
einn þeirra. Mátti búast við
aurskriðum á þeim slóðum
við þær aðstæður sem úr-
koman skapaði.
Guðjón sagði ennfremur
að varlega yrði að fara í gerð
varnarvirkja, því ef ekki er rétt
að þeim staöið geta þau
verið skaðvænleg.
Þegar snjóflóðin féllu á
Patreksfjörð fyrir 5 árum voru
þar nýlega byggðir varnar-
garðar sem taldir eru hafa
beint flóðinu inn í byggðina í
stað þess að verja hana. Það
þarf því að meta aðstæður á
hverjum stað áður en ráðist
er í varnarframkvæmdir. Sjá
nánar á baksiðu.
Magnús Friðgeirsson hjá Iceland Seafood
MIKILL VANDI
A HONDUM
„Vissulega er hér mikill
vandi á feröum. Á sama tíma
og orðið hefur verulegt verð-
fall, ef ekki verðhrun, hefur
dollarinn verið veikur gagn-
vart öðrum gjaldmiðlum.
Þetja hefur liklega aldrei
áður gerst samtímis," sagði
Magnús Friögeirsson, for-
stjóri lceland Seafood
Corporation, dótturfyrirtækis
Sambandsins i Bandaríkjun-
um, i samtali við blaðið í
gær.
Verð á þorskblokk hefur
hrapað úr 2 dollurum allt
niður í 1 dollara og 25 sent
pundið og hefur sala á blokk
nánast engin verið síðustu
vikur. Er því verið að vinna úr
birgðum og bíða þess að
markaðurinn taki við sér aftur
og stöðugleiki náist [ verði.
Magnús sagðist hafa heyrt
að nokkrir framleiðendur frá
Danmörku og Nýja-Sjálandi
myndu ekki standa af sér
áfallið. Því væri spurning
hvort færri framleiddu á
þennan markað í framtíðinni.
Borgarráð
Bjarni P. samþykkur sölu Granda
Á fundi borgarráðs í gær
var samningurinn um sölu
hlutabréfa borgarsjóðs í
Granda hf. lagður fram, en af-
greiðslu málsins frestað til
næsta fundar. Á fundinum
lögðu þó fulltrúar allra flokka
fram bókanir og voru sjálf-
stæðismenn einhuga með
sölunni og auk þess var
Bjarni P. Magnússon, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, sam-
þykkur sölu Granda.
í bókun Bjarna segir að hið
opinbera eigi ekki að standa
i atvinnurekstri, sem aðrir
geta annast, og sala Granda
verði væntanlega til þess að
auðvelda uppbyggingu frekari
félagslegrar þjónustu við
borgarana.
Fulltrúar annarra minni-
hlutaflokka lýstu sig andvíga
sölunni og segir í bókun Sig-
urjóns Péturssonar, Alþýðu-
bandalagi, að söluverðið sé
fjarri eðlilegu markaðsverði.
Sigrún Magnúsdóttir, Fram-
sóknarflokki, mótmælti harð-
lega vinnubrögðum borgar-
stjóra í málinu þar sem borg-
arráðsmönnum hafi ekki
verið gefinn kostur á að
ígrunda tilboðið áður en und-
irritun fór fram. í bókun full-
trúa Kvennalistans, Elínar G.
Ólafsdóttur, segir aö starfs-
fólk Granda sé að meirihluta
konur, sem með þessu séu
seldar „mansali" fyrirtækjum
sem þessa sömu daga verði
að fá aðstoð ríkisins við að
lækka laun fólksins til að
halda sér á floti. Þá sé kaup-
tilboðið ekki í neinu sam-
ræmi við heildarverðmæti
fyrirtækisins.
Islensku landsliðsmennirnir i fótbolta stöþpuðu i sig stálinu i gær og undirbjuggu sig fyrir landsleikinn við
Svoétmenn sem hefst klukkan 18 í kvöld á Laugardalsvellinum. Það skal tekið fram að Ólafur Þórðarson
skagamaður slapp óskaddaður, þrátt fyrir vigalega tilburði félaga sins. A-mynd/Magnús Reynir.