Alþýðublaðið - 31.08.1988, Page 3
Miðvikudagur 31. ágúst 1988
3>
FRÉTTIR
Jón Sigurðsson svarar gagnrýni á framkvœmd verðstöðvunarinnar
GRUNNURINN
NÓGU TRAUSTUR
Nafnvextir lœkkaðir
Lækkun raunvaxta
algjörlega háð
verðlagsþróuninni
mótin. Ennþá velta menn
hins vegar fyrir sér hver þró-
un raunvaxta geti orðið, en
haft var eftir viðskiptaráð-
herra i útvarpi um helgina, að
þeir hækkuðu að minnsta
kosti ekki. I samtali við blað-
ið sagði Jón ekki hægt að
slá neinu föstu fyrirfram.
Viðskiptaráðherra benti á
að raunvextir hefðu þegar
lækkað allt að hálfu prósenti
á verðtryggöum skuldabréf-
um. „Ef við náum tökum á
verðlagsþróuninni ætti að
geta orðiö framhald á þeirri
þróun.“
Haft er eftir Steingrími
Hermannssyni utanríkisráð-
herra í Tímanum i gær, að
ekki sé ólfklegt að hægt
verði að afnema lánskjaravísi-
töluna u.þ.b. mánuði eftir að
niðurfærslan hefst. „Ef okkur
tekst að ná verðbólgunni niö-
ur í eins stafs tölu, þá verður
auðvitað þörfin minni fyrir
slíka verðtryggingu," sagði
viðskiptaráðherra.
Efasemdamenn um ágæti
niðurfærslunnar hafa bent á
að aðgerðin dugi aldrei til
langs tíma varðandi vextina,
og ýmsir telja útilokað að
tala um að ná vöxtunum nið-
ur á það stig sem þekkist í
helstu viðskiptalöndum,
vegna þess hve íslenska
bankakerfið er óhagkvæmt.
Jón Sigurðsson sagðist
geta tekið undir það að besta
tryggingin fyrir lækkun vaxta
til langframa væri vel skipu-
lagt og ódýrt bankakerfi. „En
það þarf meira til. Ríkið þarf
sjálft aö ná tökum á fjármál-
um og útgjöldum hjá sér áð-
ur en þessi árangur næst var-
anlegur," sagði Jón Sigurðs-
son.
Bráðabirgðalög hefðu ekki komið
Jón Sigurösson viöskipta-
ráðherra segir grundvöll
nógu traustan til að fram-
kvæma verðstöðvunina.
Hann segir engu að síður
liggja i hlutarins eðli að eng-
inn einn dagur hafi verið
ákveðinn þótt i yfirlýsingu
rikisstjórnarinnar sé kveðið á
um að miða skuli við siðustu
verðupptöku Verðlagsstofn-
unar.
Hann vísar því á bug gagn-
rýni Ásmundar Stefánssonar,
forseta Alþýðusambandsins,
og telur að útilokað hefði ver-
ið að setja bráðabirgðalög.
„Viö erum því að beita
ákvæðum gildandi laga og
til greina
viljum gera eins ákveðið og
frekast er kostur," sagði Jón
I samtali við blaðið í gær.
„Samkvæmt okkar laga-
setningarhefð er ekki hægt
að setja slík lög afturvirk, og
allra sist með bráðabirgða-
lögum,“ sagði Jón Sigurðs-
son.
I gær var búist við aö við-
skiptabankarnir skiluðu
Seðlabankanum tillögum um
lækkun nafnvaxta, sem rikis-
stjórnin telur að geti orðið
10—12%, og i dag verður
væntanlega tekin ákvörðun
um lækkunina. í Alþýðublað-
inu í gær sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri að
bankarnir væru sammaála
um að skilyrði væru fyrir
slikri lækkun nú um mánaða-
Kaupmaðurinn á horninu og viðskiptavinir hans eiga ekki að fara varhluta af verðlagseftirlitinu og verðstöðvuninni frekar en aðrir. Samkvæmt yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar á Verðlagsstofnun að miða við verðupptöku um miðjan ágúst og reynir þvi á verðskyn fólks að komið verði i veg fyrir
tilraunir til verðhækkana. A-mynd/Magnús Reynir.
A Iþýðubandalagið
Ólafsfjörður
SKURÐIRNIR STÖÐVfl SKRIÐUFÖLL
Hafa leitað aðstoðar viðlagasjóðs
Ekki féllu neinar skriður á
Ólafsfjörð í gær, en hættu-
ástand ríkti enn í fjallinu fyrir
ofan bæinn. Þær aðgerðir
heimamanna að grafa skurði
i fjallshlíðina til að veita vatni
úr fjallinu telja þeir að hafi
gert það að verkum að ekki
varð af fleiri skriðuföllum.
Bæjarbúar hafa leitað að-
stoðar viðlagasjóðs vegna
tjóns af völdum aurskrið-
anna, og var maður á vegum
sjóðsins á leið til Ólafsfjarð-
„Baráttan gegn þátttöku
íslands i hernaðarbandalagi
er nú sem fyrr brýnasta sjálf-
stæðismál þjóðarinnar,“
segir í ályktun ráðstefnu sem
ar til að kanna ástandið.
Guðbjörn Arngrlmsson,
sem er í almannavarnanefnd
Ólafsfjarðar, sagði ástandið
þokkalegt er blaðiö hafði
samband við hann I gær.
Guðbjörn sagði aó mikið
hefði rignt um morguninn og
fram yfir hádegi, en ekki
hefðu fallið neinar sjáanlegar
skriður. Enn væri þó hættu-
ástand I fjallinu fyrir ofan
bæinn. Guðbjörn sagði það
Alþýðubandalagið hélt á Hall-
ormsstað um síðustu helgi.
Um sjötíu manns sátu ráð-
stefnuna, þar á meðal Ólafur
vera öruggt að skurðgröftur-
inn uppi í fjallinu hefði bjarg-
að þvl að ekki féllu fleiri
skriður. „Það rennur óhemju-
mikið vatn eftir þessum
skurðum, en það er mjög
mikið vatn engu að siður I
fjallinu. Það fóru menn upp í
fjallið í morgun og þeir
sögðu aö það dúaði allt,
þetta væri eins óg að ganga
á vatnsdýnu," sagði Guð-
björn. Guðbjörn sagði enn-
fremur að von væri á manni
Ragnar Grímsson, formaður
flokksins, og Jakoblna Sig-
urðardóttir, sem flutti frum-
samið Ijóð.
frá viðlagasjóði á hverri
stundu, og taldi hann vist að
bæjarbúar fengju eitthvað úr
sjóðnum, þvl hlutverk hans
væri að bæta tjón sem
verður af völdum náttúruham-
fara. Ekki er nákvæmlega
vitað hve mörg hús liggja
undir skemmdum, en þau eru
mörg. Það eru hvort tveggja
hús sem urðu fyrir skriðun-
um og hús sem hafa stór-
skemmst af vatni og aur. Eitt-
hvað af húsunum er óíbúðar-
hæft.
Unnið hefur verið ( allan
dag við hreinsun gatna og
holræsakerfa og við að dæla
vatni úr kjöllurum. Almanna-
varnanefnd var viðbúin
hættuástandi á sunnudaginn
og var á fundi þegar fyrri
skriðan féll á bæinn. Þegar
var búið að kalla út björgun-
arsveit til að dæla vatni úr
húsum og brást nefndin ( alla
staði rétt og skjótt við.
Þing kall-
að saman
Þingflokkur Aiþýðubanda-
lagsins krefst þess að Al-
þingi verði kallað saman inn-
an 10 daga til að fjaiia um
raunverulega stöðu þjóðar-
búsins og yfirvofandi efna-
hagsaðgerðir. Sendi þing-
flokkurinn ósk þess efnis til
rikisstjórnarinnar i gær en
þingflokkurinn fundar nú á
Halíormsstað.
Vill flokkurinn þannig
koma í veg fyrir aö endur-
tekið komi til setningar
bráðabirgðalaga aðeins
nokkrum vikum áðuren þing
á að koma saman og segja
þingmennirnir í bréfi sínu til
forsætisráðherra að með því
aö kalla Alþingi saman yrði
tryggt að þjóðin fengi réttar
upplýsingar um ástand efna-
hagsmála og afleiðingar
hinna ýmsu ráðstafana sem
nú séu lokaðar inni I ráðu-
neytum og þar með komið i
veg fyrir lýðræðislega um-
ræðu i landinu.
A Iþýðubandalagið
ÍSLAND ÚR NATO HERINN RURT