Alþýðublaðið - 31.08.1988, Page 5
Miðvikudagur 31. ágúst 1988
5
FRETTASKYRING
Ómar Fridriksson
skrifar
A AÐ RIFA HEIMILIN OKKAR?
spurðu vistmenn á Sólborg, Skálatúni
og Sólheimum þegar fréttir bárust um
að Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið
tækju undir tillögur um að leggja
þessar stofnanir niður og byggja þess í
stað minni og frjálsari heimiliseiningar
fyrir fatlaða. Hugmyndirnar mœta
mikilli andstöðu hjá forstöðumönnum
þessara vistheimila fyrir þroskahefta.
„Þetta eru fráleitar hug-
myndir og byggjast eingöngu
á tískusveiflu. Það er líka frá-
leitt hvernig að þessari um-
ræðu hefur verið staðið og
hefur skapað óróa hjá vist-
mönnum sem hafa verið hér
grátandi sumir hverjir af ótta
við að Sólheimar verði lagðir
niður.“ Þetta sagði starfs-
maður á vistheimilinu Sól-
heimum í Grímsnesi í samtali
við Alþýðublaðið vegna álykt-
unar Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalagsins um að
ieggja beri niður þrjár sólar-
hringsstofnanir fyrir þroska-
hefta og að unnið verði að
uppbyggingu frjálsari búsetu-
forma fyrir þroskahefta og
fatlaða.
Á sameiginleguinn auka-
fundi fulltrúaráða Öryrkja-
bandalags íslands og Lands-
samtakanna Þroskahjálpar,
sem haldinn var sl. laugar-
dag, urðu miklar umræður
um þá niðurstöðu stjórnskip-
aðrar nefndar að leggja beri
niður þrjár sólarhringsstofn-
anir fyrir þroskahefta: Skála-
tún I Mosfellsbæ, Sólborg á
Akureyri og Sólheima I
Grímsnesi. Fagnaði fundur-
inn þessari niðurstöðu og
eins og fram kom í fréttum
um helgina ályktaði fundur-
inn um að að þessu bæri að
vinna. Var þar lýst ánægju
með niðurstöður starfshóps-
ins og þeim eindregnu til-
mælum beint til stjórnvalda
að tekið yrði mið af niður-
stöðum starfshópsins varð-
andi heildarskipulag allra sól-
arhringsstofnana á landinu
og tryggt til þess nægilegt
fjármagn á næstu árum.
Fundurinn lagöi áherslu á að
fatlaðir ættu sama rétt á eðli-
legu umhverfi, sjálfsákvörð-
unarrétti um eigið llf og bú-
setu og sambærilegum lífs-
kjörum og aðrir þegnar þjóð-
félagsins.
Þessar hugmyndir mæta
andstöðu stofnananna
þriggja sem hér um ræðir. Er
m.a. óttast að þær verði til
þess að auka enn frekar á
fjársvelti stofnananna og þvl
er harölega mótmælt að
þessar stofnanir standi fyrir
ómannúðlegri starfsemi.
Forsaga málsins er sú að í
janúar á þessu ári skipaði fé-
lagsmálaráöherra starfshóp
til að skilgreina hlutverk sól-
arhringsstofnana og gera til-
lögur um framtíðarskipan
þeirra í samræmi við lög um
málefni fatlaðra. Var gerö út-
tekt á rekstri stofnananna
þriggja og þegar hun lá fyrir
var það samdóma álit nefnd-
armanna, að stofnanir þessar
í núverandi mynd samrýmd-
ust ekki markmiðum laganna.
Tillaga starfshópsins var svo-
hljóðandi: „Nefndin telur að
stefna beri að því á næstu 15
árum aö leggja allar umrædd-
ar stofnanir niður sem sólar-
hringsstofnanir fyrir fatlaða. í
þvi skyni verði unniö mark-
visst að uppbyggingu annarra
og frjálsari búsetuforma og
stoðþjónustu fyrir íbúa
þeirra, og verði fjármagn
tryggt til þess. Við fram-
kvæmd þessa verði haft fullt
samráð við (búa, starfsfólk
og aðstandendur. Þess verði
gætt að framkvæmd þessi
hafi sem minnsta röskun I för
með sér, einkum fyrir eldri
fbúa, sem átt hafa heimili
lengi á viðkomandi stofnun-
um, m.a. með löngum aðlög-
unartlma og staðsetningu
nýrra heimila... í samræmi viö
þetta langtímamarkmið telur
nefndin að frekari uppbygg-
ing stofnananna verði stöðv-
uð á þann hátt, að ekki verði
veitt fé til nýframkvæmda."
„Ég tel að reynslan af sam-
býli fyrir fatlaða sé góð og
ætla ekki að setja mig á móti
þvi að leggja sólarhrings-
stofnanir niður svo framar-
lega sem eitthvaö annað er
■fyrir hendi. En því miður eru
biðlistar svo langir hér á
Reykjanesi og í Reykjavík að
ég fæ engan veginn séð
hvernig þetta á aö geta gerst
á 15 árum. Eins er ég hrædd-
ur um að þessar umræður .
hafi þau áhrif að við verðum
fyrir enn frekara fjársvelti i
þessum stofnunum," segir
Björgvin Þ. Jóhannsson, for-
stöðumaður Skálatúnsheimil-
isins í Mosfellsbæ. „Þar á of-
an fæ ég ekki skilið hvað fær
menn til að staðhæfa að
þessar stofnanir séu ómann-
úðlegar," segir hann og bætir
þvi við að þetta sé ekki sfður
mál foreldra þroskaheftra
barna. „Við erum með 55 for-
eldra og það er auðvitað
þeirra að sækja um sambýli
ef þeir óska þess, en í dag
liggur aðeins ein beiöni fyrir
um flutning frá Skálatúni.
Foreldrar eru undantekning-
arlaust mjög ánægðir með
þá þjónustu sem við bjóðum
hér.“
Ólafur Mogensen, aðstoð-
arforstöðumaður Sólheima,
segir þessar hugmyndir
byggjast á stefnu sem
erlendis hafi verið fylgt um
nokkurra ára skeið en þessar
tillögur gangi þó mun lengra
en þekkist annars staðar.
„Okkur finnst að þarna sé
verið að rýra þjónustu við
fatlaða ef Sólheimar verða
lagðir niður. Stór hluti fatl-
aðra þarf að búa í vernduðu
umhverfi og þetta er eina
stofnunin af þessu tagi sem
er fyrir utan þéttbýli. Það hef-
ur ýmsa kosti.
Undir þetta tekur Þórhildur
Svanbergsdóttir, þroskaþjálfi
á vistheimilinu Sólborg á Ak-
ureyri. Hún segir að hug-
myndirnar gangi allar út á að
flytja þjónustuna á mölina.
Fleiri hafa sýnt viðbrögð
við tillögum um að leggja
þessar stofnanir niður.
Stjórnarnefnd um málefni
fatlaðra ályktaði á fundi sín-
um 27. júní sl. að vegna fjár-
skorts til framkvæmda í þágu
fatlaðra væri ekki tímabært
að taka afstöðu til tillagn-
anna að svo stöddu. Þess
vegna væri rétt að bíða með
ákvarðanatöku um framtíð
stofnananna í fimm ár. Þessi
ályktun hefur samvinnunefnd
Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalagsins mótmælt.
Blöndun er lykilorð í þess-
um nýju hugmyndum og er
þá átt við að fatlaðir og ófatl-
aðir geti lifað hlið við hlið í
samfélagi sem lagað er að
þörfum þegnanna, burtséð
frá andlegri eða likamlegri
getu. „Enda,“ segja stuðn-
ingsmenn stefnunnar, „eru
heimili reist fyrir fólk, ekki
fötlun þess.“
Það gleymist hins vegar að
gera ráð fyrir viðbrögðum
vistmannanna sjálfra. Allir
viðmælendur blaðsins á
stofnununum þremur sögðu
að þar hefðu vistmenn fyllst
ótta eftir fréttaflutning sjón-
varps um helgina og spurt
hvort það ætti að fara að rifa
heimilin þeirra niður.
„Þroskahjálp vill gleyma því
að hér er um einstaklinga að
ræða. Ég er t.d. alveg mótfall-
in þvi að Sólheimum verði
lokað, þvi það er mikilvægt
að bjóða upp á sambýli fyrir
fatlaða í sveit. En tillögur
Þroskahjálpar miðast allar
við að byggja upp þjónustu á
mölinni — í Reykjavík," segir
Þórhildur.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984- 2.fi. 1985- 2. fl.A 10.09.88-10.03.89 10.09.88-10.03.89 kr. 333,32 kr. 222,85
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, ágúst 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í2.FL.B1985
Hinn 10. september 1988 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 6 verður frá og með 10. september nk. greitt sem hér segir:
__________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.001,70_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. mars 1988 til 10. september 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 2254 hinn 1. september 1988.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 6 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. september 1988.
Reykjavík, 31. ágúst 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS