Alþýðublaðið - 31.08.1988, Page 7

Alþýðublaðið - 31.08.1988, Page 7
Miðvikudagur 31. ágúst 1988 7 ÚTLÖND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir ENGIN DÆGURFLUGA Johnny Logan, tvöfaldur sigurvegari í söng- lagakeppni sjónvarpsstöðva, á uppleið á ný. „Það er einhvern veginn þannig, að ég enda alltaf með þvi að semja ástarlög, og flest þeirra eru ákaflega raunaleg. Þetta hlýtur að segja sína sögu um ástalíf mitt...“ Aug- un eru blíðleg, brosið ofurlít- ið feimnislegt, en skapið er írskt. Hann segist hafa verið dá- lítið barnalegur hér á árum áður en sé nú óðum að þroskast. Hann segir einnig að hann sé ekki það stór upp á sig, að hann myndi hafna þátttöku í enn einni söngva- keppni, ef hann þyrfti á pen- ingum að halda. Á einu stendur hann fastar en fótum, hann vill ekki vera söngvavél eða dægurfluga. „Eg er farinn að hafa svo gaman af þessu söngstússi að ég vona aö ég geti starfað við það allt mitt líf,“ segir hann. FJÁRMÁLIN GANGA UPP OG OFAN Johnny Logan er þrjátíu og þriggja ára, fæddur í Astralíu og hann hefur upplifað sitt af hverju á sinni ungu ævi. Hann hefur ferðast víða um heiminn meö söngva sína í farteskinu. Þetta hefur þó ekki allt verið dans á rósum. Misgengið í fjármálum hans byrjaði í rauninni strax eftir að hann „sló í gegn“ árið 1980. Hann varð heimsfrægur á svipstundu og ríkur eftir því. Nokkrir fjárglæframenn söls- uðu undir sig allt sem hann átti meó svikum og prettum, jafnvel heimilið missti hann. Hann er nú aftur kominn á toppinn, sáeini sem hefur sigrað í sönglagakeppninni tvisvar sinnum. Johnny Logan var í Kaup- mannahöfn á dögunum við hljómleikahald. Hann kynnti þar nýjasta lagið sitt, „How do you say goodbye", og seg- ir það vera það besta sem hann hafi samið. Hann samdi það á fimm klukkustundum þegar hann var í heimsókn hjá foreldrum sínum á írlandi. ÍRSKIR BRANDARAR Johhny Logan hélt blaða- mannafund fyrir dönsku pressuna, og var ekki laust við að blaðamennirnir virtust heldur syfjulegir og áhuga- lausir. Það lifnaði þó fljótlega yfir þeim. Hann sagöi írska brandara um leið og hann spilaði á píanóið og er skemmst frá að segja aó hann heillaði við- stadda með barnslegum „sjarma", en sagðist ekki geta sungið fyrir blaðamenn- ina því hann væri enn hálf- dasaður eftir þotuflugið. Hópur aðdáenda hafði tek- ið sér stöðu fyrir utan hótelið og beið þolinmóður eftir átrúnaðargoðinu, margir með blóm, og ung stúlka í hópn- um sagðist vera með 100 kossa til Johnny! „Ég er hræddur um að stærstur hluti ádáenda minna sé ennþá undir 16 ára aldri,“segir Logan og skýrir frá því að það sé erfitt að komast upp úr söngvakeppni- kassanum. SÁ TÍUNDI LÍKLEGASTI „Árið 1980, þegar ég sigr- aði í fyrra sinnið, var ég 24 ára og eins bláeygður sak- leysingi á öllum sviðum og hugsast getur. Til að byrja með var mér spáö tíunda sæti, en þegar nær dró keppninni var gjörsamlega búið að má mig út, sem sagt vonlaust. Þá gerðist undrið, ég sigraði ... Þegar ég var orðinn þekkt- ur hafði ég mestan áhuga á að komast í hljómsveitina Duran Duran. Peningamenn- irnir sem söfnuóust i kring- um mig voru nú aldeilis ekki áþeim buxunum, þeir vildu gera mig að einskonar Julio Iglesias. Smám saman gerði ég mér Ijóst að þetta gekk ekki upp. Ég áttaði mig líka á því að umboðsmenn lista- manna vita miklu minna um hlutina en listamennirnir sjálfir. Þeir (umboðsmennirn- ir) vilja eiga mann með húð og hári og skipa fyrir verkum og þeim tekst þetta oft þegar sá listamaður sem I hlut á er ungur og lítt veraldarvanur. Það kom að þvi að ég varð bitur og gerði tilraunir til að ná aftur þeim fjármunum sem höfðu verið sviknir út úr mér. Það tókst ekki, jafnvel þó ég setti lögfræðing I mál- ið. Ég varö sem sagt að byrja algjörlega upp á nýtt. Það eru ýmsir sem taka mig ekki alvarlega, af því ég tók þátt í sönglagakeppni sjónvarpsstöðvanna. Á hinn bóginn hefur þátttaka min I keppninni opnað ýmsar dyr. Ég valdi þann kost að byrja á nýjan leik og nú ætla ég að gera hlutina eins og mér finnst réttast,“ segir Johnny Logan, sem jafnframt því að taka þátt I kvikmynd í Los Angeles ætlar að fara að gefa út hljómplötu og uppá- haldslagið hans, „How do you say goodgye", verður ein- mitt eitt laganna á plötunni. (Det fri Aktuelt) Johnny Logan kærir sig ekki um að verða „söngvavél eða dægurfluga", en segist myndi taka þátt i enn einni söngvakeppni, ef hann þyrfti á peningum að halda.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.