Alþýðublaðið - 31.08.1988, Side 8
Sólveig Ólafsdóttir skrifar
JILÞYÐ1IBLÍÐ19
Miðvikudagur 31. ágúst 1988
_____________VHyMUÐ__________
ERFITT AÐ VERJAST
Rœtt við Guðjón Petersen framkvæmdastjóra Almannavarna ríkisins
I aldanna rás myndast þykk jarðvegstorfa uppi i hliöinni sem verður svo
óstöðug í rigningu, þegar hún blotnar vel upp. Þá getur hún hrapað
niður og grafið stóran hluta byggðar undir sig.Þetta er hættulegasta
tegund aurskriðu.
Á sunnudag var lýst yfir
hættuástandi á Ólafsfirði er
aurskriður féllu á kaupstað-
inn. Fóru skriðurnar á hús og
garða og hrifu með sér bila
og lausa hluti. Vegir að bæn-
um grófust í sundur og flug-
völlurinn lokaðist vegna
bleytu i vatnsviðrinu sem
gekk yfir, þannig að Ólafs-
fjörður varð algerlega ein-
angraður. Um 200 ibúar voru
fluttir úr húsum sinum vegna
hættunnar sem skapaðist við
skriðuföllin. Þetta atvik hefur
vakið mikinn óhug hjá fólki
og vangaveltur um hvar slíkar
náttúruhamfarir gætu orðið
næst. Alþýðublaðið hafði
samband við Guðjón Peter-
sen, framkvæmdastjóra Ai-
mannavarna ríkisins, í gær
og spurði hann hvort ein-
hverjar upplýsingar lægju
fyrir um hvaða kaupstaðir á
landinu væru í aurskriðu- og
snjóflóðahættu vegna stað-
setningar sinnar?
„Þeir eru mjög margir, en
viö erum meö skrá yfir þá.
Viö erum nú þegar byrjaöir
að hættumeta þessa staöi
vegna snjóflóöahættunnar,
en þá eingöngu vegna snjó-
flóöa því hitt er mun erfiðara,
og er nú unniö aö hættumati
allra þeirra staöa sem búa viö
snjóflóðahættu. Þaö eru 15
kaupstaðir sem um er að
ræða: Ólafsvík, Patreksfjörö-
ur, Tálknafjörður, Bildudalur,
Flateyri, Hnífsdalur, ísa-
fjöröur og Súöavík á Vest-
fjörðum, Siglufjöröur og
Olafsfjöröur norðanlands og
fyrir austan eru þaö Seyðis-
fjöröur, Neskaupstaöur, Eski-
fjörður, Reyöarfjöröur og Fá-
skrúðsfjöröur. Þetta eru allt
staöir sem búa viö mismikla
snjóflóöahættu, sumir veru-
lega en aðrir minni. Allir
þessir staðir búa hinsvegar
einnig viö aurskriöuhættu."
— Þær haldast þá i hend-
ur, snjóflóðahættan og aur-
skriðuhættan?
„Nei, ekki alveg. Ef viö tök-
um dæmi þá er Eskifjörður
ekki talinn búa vió mikla
snjóflóóahættu, en hann býr
hinsvegar viö mikla aur-
skriðuhættu. Snjóflóöahætt-
an fer eftir fjallslögun og
snjósöfnun. Aurskriöan fer
náttúrlega eftir landslagi og
fjöllum líka, en þar ræöur
meira efnið í fjöllunum og
rigningarúrkoman, þannig aö
þaö er svolítiö breytilegt
hvaöa hætta er mest á hverj-
um stað.“
— Er eitthvað hægt aö
gera til þess að verja þessa
kaupstaði hættu, hægt að
beita einhverjum forvörnum?
„Það er mjög erfitt aö
verjast aurskriðum. Aurskrið-
ur eru svo margskonar. Þaö
er hugsanlegt aö verjast aur-
skriðum sem spýtast út úr
giljum, þar sem aurskriður
koma niður lækjarfarvegi,
meö því aö halda þeim hrein-
um og sjá til þess að þar sé
gott rennsli. Einnig þarf aö
fylgjast mjög vel meö á
meðan miklar rigningar eru.
Ef á, sem er í miklu rennsli,
allt í einu þornar upp þá eru
líkur á því aö skriða hafi fall-
iö ofar sem siðan muni spýt-
ast fram neðar, vegna fyrir-
stööunnar. Þessi skriöu-
svæöi eru þekkt og lítið
byggt inn á þau, því þaö eru
yfirleitt sýnilegar skriður
undir þessum giljum, sem
menn forðast. Hættulegu
skriöurnar eru hinsvegar
þess eölis, aö í aldanna rás
myndast þykk jarövegstorfa
upp eftir hlíð. Síöan kemur
aö því að hún er orðin þaö
þykk aö þegar hún blotnar
vel upp í rigningu veröur hún
óstööug og „húrrar“ þá öll
niður. Slík jarövegstorfa getur
grafið stóran hluta byggöar
undir sig. Þaö má sjá fyrir
hvort svona torfur eru aö
veröa óstöðugar, eöa eru aö
nálgast það aö geta fariö á
hreyfingu, því að þær vilja
leggjast í fellingar áður. Þetta
sést oft í fjöllum þegar koma
stallar f grasbrekkuna. Tré
sem eru í slíkum torfum vaxa
yfirleitt þannig að efsti hluti
stofnsins stendur út úr fjall-
inu, síöan hefur tréö alltaf
leitast viö aö fara í lóörétta
stefnu og bognað, þannig aö
efri hlutinn snýr upp. Það
þýöir aö á mörgum árum
hefurtorfan skriðið. Einnig
má sjá skrið á símastaurum
og rafmangsstaurum þegar
þeir taka aó hallast, þá er
torfan eitthvaö á hreyfingu.
Á Ólafsfirði var einmitt
torfa sem við höföum áhyggj-
ur af, hún var farin aö verða
ansi laus í sér þarna í rign-
ingunni. Þeir brugðu á það
ráð, skilst mér, aö grafa hana
I sundur meö skurðum til
þess að þurrka hana. Ég hef
ekki séö þetta, en mun fara
norður á morgun. Mér skilst
aö þetta hafi ekki verið reynt
áður, en trúlega er þetta
bráðsmellin lausn þar sem
menn eru hræddir um aö
þetta sé aö fara af staö, aö
reyna aö flýta fyrir rennsli
vatnsins í gegn þannig að
torfan veröi ekki vatnsósa.
Þetta er hættulegasta teg-
undin af aurskriöu."
— Nú vilja margir meina
að í snjóflóðunum á Patreks-
firði hafi varnargarðar, sem
nýlega var búið að réisa,
beint flóðunum inn í byggð-
ina. Er ekki mjög vandasamt
að fara út í forvarnir svo að
vel sé?
„Jú, þaö er mjög vanda-
samt, og þess vegna höfum
viö viljað fara mjög varlega í
þessar framkvæmdir. Þessir
varnargarðar á Patreksfiröi
voru ekki gerðir að okkar til-
hlutan á sínum tíma, heldur
var þetta eitthvað sem menn
geröu „eftir eyranu". Ég veit
ekki hvenær eða hver tók þá
ákvöröun, né hvernig. Þetta
hættumat sem viö erum að
vinna aö núna á einmitt aö
vera grundvöllur aö gerö
varnarvirkja gegn snjóflóö-
um. Þaö er auðveldara yfir-
höfuð en gegn aurskriðum.
Það eru nokkrar aöferðir sem
menn vióurkenna sem varnir
gegn snjóflóðum. í það fyrsta
er hægt að varna þvl aö snjó-
flóðið byrji aö skriöa í hlíð-
inni. Þá eru reistar stálgrind-
ur eöa stálgirðingar eftir hlíö-
inni, þvert á flóðstefnuna, yfir
þaö svæöi þar sem talið er
að snjór geti safnast fyrir í
þaö miklum mæli aö hann
geti skriðið af staö. Þessum
giröingum er ætlað aö halda
snjónum í hlíðinni þannig aö
hann skríöi aldrei. Þær geta
ekki beint flóði á neina
hættulegri staði, því annað-
hvort halda þær eða missa.
Það eina sem þær geta vald-
iö, ef þær eru ekki nógu
sterkar til þess aö halda því
snjómagni sem safnast hefur
fyrir, er aö snjómagniö veröur
meira og snjóskriöan því
stærri. Þaö hefuraldrei gerst
svo viö vitum. Síðan er sú aö-
ferðin aö byggja keilur eöa
garöa fyrir neðan hlíðina,
ofan byggðar. Þessar keilur
brjóta flóð upp þegar þau
koma og draga úr orkunni,
svo þau veröa ekki aö neinu.
Þriöja aðferðin er, eins og
þeir gerðu á Patreksfiröi, aö
byggja stefnubreyta sem
beina flóörennslinu í aöra átt.
Þaö má náttúrlega alls ekki
gera nema engin byggð sé í
þeirri átt sem beina á flóðinu
í. Okkar varnarvirki yröu gerö
þannig aö það yrði víst að
þeim yröi beint frá byggð á
opið svæöi.“
— Er þá á döfinni hjá
ykkur aö fara út í fram-
kvæmdir af þessu tagi?
„Já, við erum þegar búin
aö veita fé núna til byggingar
vamarvirkja í Holtahverfi á
ísafirði. Það eru fyrstu varnar-
virkin sem á aö byggja núna,
og verður byrjaö á þeim I
haust. Þar verður geröur
garöur til þess aö brjóta upp
flóðið, en ekki til aö breyta
stefnu þess. Þetta er mjög
lítill hluti af Holtahverfinu
sem er í hættu, þannig aö
þaö þarf i raun og veru að-
eins aö bremsa flóöiö af al-
veg í restina. Þaö er búiö aö
hanna garö og lægð fyrir
ofan hann sem eru þannig út-
reiknuð aö flóöið á aö stööv-
ast eöa brotna upp þar. Þaö
er fyrsta varnarvirkið sém er
gert eftir okkar samþykktum
og forskriftum. Flateyringar
hafa hinsvegar byggt nokkrar
keilur fyrir ofan Flateyri þar
sem hættan er mest, en
okkar skoðun er sú aö þær
séu fulllitlarog muni ekki
koma aö gagni nema þá
hugsanlega í einu flóöi. Þaö
eru líka mjög skiptar skoðan-
ir um ágæti þeirra gagnvart
þurrum hlaupum, þær eru
fremur taldar duga á vot
snjóflóð, svipað því og var á
Patreksfirði. Flateyri er því
einnig staður sem viö erum
meö í skoðun, og veröa
sennilega gerðar tillögur um
varnarvirki þar. Áöan var ég
svo á fundi meö sérfræðing-
um um hættumat á snjó-
flóðavarnarvirki á Súóavík,
þannig aö þetta er allt í
gangi.“
— Er einhver fjárveiting
fyrir hendi til geröar varnar-
virkja?
„Já, samkvæmt nýjum
lögum um varnir gegn flóö-
um og skriöuföllum var stófn-
aður sérstakur sjóöur sem
hefur fastar tekjur af iðgjöld-
um viðlagatryggingar til
þessa verkefnis. Það er nóg
fé I þessum sjóöi nú til aö
hefja framkvæmdir mjög
víða.“
— Þegar vegir lokast eins
og á Ólafsfirði um daginn, og
staöurinn einangrast, hvað er
hægt að gera, hvaða hlut-
verki gegna almannavarnir í
slíku ástandi?
„Almannavarnahlutverkið
er að samræma alla öryggis-
þjónustu og hjálparstarf viö
byggðina. í þessu tilfelli, og
öllum öðrum, er þetta tví-
skipt. Annars vegar er þaö í
höndum almannavarnanefnd-
ar svæöisins, sem er lög-
skipuð, og við höfum gert í
samvinnu viö þá nefnd
ákveöna neyðaráætlun sem
þeir fara eftir ef svona kemur
upp á, sem og þeir geröu á
Ólafsfiröi, þannig aö nefndin
tekur á sig vandamálin innan
byggðarlagsins. Almanna-
varnir rlkisins faraeinnig I
gang og samræma alla aö-
stoö við byggöina, leitast viö
aö halda uppi neyðarsam-
göngum, neyðarfjarskiptum
og flytja til manna þaö sem
aö þeir þurfa til þess að
styrkja þá, og frá þeim þaö
sem þeir þurfa aö koma frá
sér, t.d. ef slys hefur átt sér
staö. Að þessu unnum viö
meðan hættuástandiö var á
Ólafsfirði; við sendum þyrlu á
svæöiö til þess aö hafa viö-
bragðsstöðu, viö tryggóum
þeim fjarskipti meö okkar fjar-
skiptakerfi ef sfmakerfið bil-
aöi, og einnig var lögö áhersla
á aö opna veginn um leiö og
fært var. Það var gert strax
öörum megin frá, en mérskilst
aö hinn sé svo illa farinn aö
þaö sé margra daga verk aö
opna hann.
Okkar hlutverk er sem sagt
aö gera allt sem þjóðfélagið
getur, samræma þær aðgerðir
sem þjóöfélagiö hefur upp á
að bjóða til aö hjálpa á hættu-
svæöum, en almannavarna-
nefndin á aö vinna eftir því
skipulagi sem viö höfum gert
innan byggöarinnar. Almanna-
varnanefndin á Ólafsfiröi stóð
sig mjög vel um daginn og
geröi stóra hluti eftir áfallið.“
— Hvaö er efst á verkefna-
skrá ykkar í almannavörnum i
þessum málum?
„Þaö er þetta hættumat á
skriðumálunum, og í kjölfar
þess að koma meö tillögur um
varnir gegn snjóflóðum og
skriöuföllum. Auk þess
gætum viö okkur á því aö
halda þessum neyöaráætlun-
um alltaf á því formi sem rlkj-
andi aðstæður gefa mögu-
leika til. Viö erum svo líka aö
vinna aö því aö styrkja búnaö-
arlega og tæknilega veika
hlekki í öryggiskerfi þessara
svæöa, t.d. hvað snertir fjar-
skipti sérhæfös búnaðar og
þar fram eftir götunum. Þá eru
þjálfun og fræðsla stööugt í
gangi hjá okkur. Viö munum
t.a.m. dreifa almenningsleiö-
beiningarbæklingi inn á öll
heimili í þeim byggðum þar
sem er snjóflóðahætta um
leiö og snjórinn fer aö koma,
meö ítarlegum upplýsingum
um hvernig fólk á aö bregöast
viö ef þaö lendir i snjóflóöi."