Tíminn - 05.11.1967, Side 2
14
SUNNUDAGUR 5. nóvember 1967.
TÍMINN
Þetta var þaríiuir lestur og
mætti oftar vekja alþingismenn
til umtaigsunar um, að þeim ber
að gæta valda og virðingar Al-
þingis, það geta engir gert íyrir
þá. Sannleikurinn er sá, að í
þessum efnum hafa háttvirtir al-
þingismenn sofið á verðinum —
verið of eftirlátir við ríkisstjóru-
ina og látið ímyndaða stundar-
hagsmuni eða hagræði villa sér
sýn.
List um landið
Á miövikudaginn talaði Ingvar
Gíslason í sameinuðu AJþingi fyr-
ir þingsályktunartillögu um lista
söfn og listsýningar utan Reykja-
víkur, er hann flytur ásamt Ólafi
Jóhannessyni. Þetta er ein af
þeim mörgu tillögum, sem ekki
fá þinglega afgreiðslu þing eftir
þing.Fjallar tillagan um nefnd er
geri tillögur um stofnun og starf-
rækslu opimberra listasafna utan
Reykjavíkur og tillögur um í sam-
ráði við samtök myndlistarmanna
hvernig helzt megi stuðla að þvi,
að haldmar verði fleiri mynd'list-
arsýningar utan höfuðborgarinn-
ar. Ingvar flutti hina ágætustu
ræðu fyrir þessari tillögu, og fer
hér á eftir stuttur kafli úr ræð-
unni:
„Það er sagt, að verið sé að
framikvæma menningarbyltingu í
Kína. Hér á landi hefur einnig
orðið allstórtæk menningarbylt-
ing á síðustu mannsöldrum, sem
m.a. er fólgin í því, að mikil
gróska hefur verið á ástundun
fagurra lista, m.a. tónlist og my-nd
list, sem íslenzka þjóðin hefur
lengst af farið á mis við í saman-
burði við flestar Evrópuþjóðir.
íslenzkir listamenn hafa unnið
stórvirki og aukið menningarauð
æfi þjóðarinnar meira en í töl-
um verði talið.
En hvers virði eru þessi menn-
ingarverðmæti, ef almenningur í
landimu fær ekki aðstöðu til að
njóta þeirra. Hvers konar skipu-
lag er það, sem lætur viðgang-
ast, að helmingur þjóðarinnar er
útilokaður frá persónulegum
kynnum af starfi helztu lista-
manna sinna. Ég held, að það
sé mikil, nauðsyn að rísa upp
gegn svo ranglátu skipulagi. Úr
því að Alþingi hefur viðurkennt
réttmæti þess, a@ stuðlað sé að
listasköpun í landinu, leiðir af
því, að það á einnig að gera
sitt til þess, að listin nái út til
fjöldans að öllum almenmngi,
hvar sem er á landinu, sé gert
kleift að njóta verka beztu lisca-
manna sinna, enda vinnur lista-
maðurinn ekki fyrir sjálfan sig
einvörðungu. Hann er að /inna
fyrir þjóð sína, fyrir alla þá, sem
hafa vit og þroska til þess að
njóta þess, sem er fagurt >g
göfgandi. Og slíkar persónur eiu
ekki aðeins finnanlegar í Rvík.
íslenzk alþýða er vel upplýst,
listelsk, bókmenntahneigð og
menntafús og það fer ekki eftix
búsetu manna, hvað menn skiiia
og hvað menn skynja af því, sem
vel er gert í mennt og listum.
En skipulag okkar gerir hér mik-
inn mun á.
Útilokunarstefnan
Hér ríkir útilokunarstefna eins
konar í mennta- og menningar-
málum. Það kemur ekki sízt fram
í því, hvernig listkynningu er
háttað í landinu. Þetta er öllum
til stórrar skammar og ýmsum
til skapraunar að minnsta kosti
mér, og því þef ég þing eftir
þing reynt að opna augu ráða-
manna og raunar listamanna
sjálfra á nauðsyn þess, að eitt-
hvað verði gert til þess að draga
úr þeim aðstöðumun og ranglæti,
sem rfkir að þessu leyti í land-
i-nu og fer að ég held versnandi,
að minnsta kosti ekki batnandi
eftir því sem bezt verður séð.
Tiliaga sú, sem hér er til um-
ræðu. hefur það markmið, að
bæta úr á þessu sviði. Hún gerir
ráð fyrir, að listasöfn verði stofn
uð utan Rvíkur, og að nefnd
manna geri tillögur um, hversu
þeim verði bezt fyrir komið og
hvernig þau skuh starfa. Einnig
gerir tillagan ráð fyrir, að nefnd-
in bendi á leiðir til þess að
fjölga listsýningum. sem haldnar
verði utan höfuðborgarinnar og
hafi samráð um bað við samtök
myndlistarmanna. Þannig eru
tveir aðskildir þættir i cillögunni,
sem þó eru samtvinnaðir og miða
að hinu sama að fla listmennt
í iandinu og gera raunhæfar ráð-
stafanir tii þess a. gera listina
að alþjóðareign, koma listinni út
til fólksins, miðla menningar-
a'uðæfum og gera sem al'lra flest-
um kleift að kynnast hinu bezta
á sviði listsköpunar.
Ef þessi tillaga næði fram að
ganga, eða starfað yrði í anda
hennar, þá mundi árlega verða
farið um landið með ýmsar sýn-
ingar, samsýningar fleiri en eins
myndlistarmanns, eða sérsýning-
ar eins manns, og fólki með því
móti gefinn kostur á að sjá með
etgin augum úrvals verk beztu
listamanna. Þá mundu fleiri en
Rivtkingar eiga þess kost að sjá
yfirlitssýningar á verkum helztu
myndllistarmanna á einhverju til-
teknu árabili og myndu fleiri en
höfuðsstaðarbúar og þeir, sem
þangað slæðast, fá að sjá yfirlits-
sýningar stórmenna á sviðum ís-
lenzkrar myndlistar, eins og Ás-
grims og Kjarvals, svo þeir tvedr
séu nefndir, sem enginn þorir að
gera lítið úr, og allir viðurkenna,
að eru í hópi fremstu snillinga
þjóðarinnar fró upphafi íslands-
byggðar. Þá myndu ungir lista-
menn verða kynntir fyrir sinni
eigin þjóð með ekki minni hátið-
arbrag, en nú gerist, þegar ísl.
listamenn fara land úr landi með
sýningar, en láta annars eins og
ísl. menning og ísl. þjóð takmark
ist við þá landsspildu, sem liggur
á milli Selsvarar og Elliðaánna.
Hvað mundu menn segja við því,
ef ekki væru til bókabúðir og
bókasöfn annars staðar en í Rvík.
Eöa ef ísl. sveitamenn og íbúar
kaupstaða og kauptúna úti um
land, þekktu ekki aðrar bókmennt
ir en vísnatilbúning næstu ná-
granna sinna. Ég held, að flest-
um þætti þetta heldur fátæklegt
andans fóður.
Þroski almennings
Sem betur fer er almenningur
á íslandi svo vel menntur, að
hann kann vel að gera greinar-
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fijót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gulismiður.
Bankastræti 12.
TRULOFUNARHRINGAR
atgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land. —
H A L L D Ó R
Skóiavörðustig 2.
Auglýsið í Tímanum
mun á skáldskap Egi'ls Skalla-
grímssonar og erfiljóðanna í dag-
blöðunum, og því eru menn fær-
ir um þetta, að þeim hefur verið
kennt að njóta skáldlistar, að
skilja hismið frá kjarnanum,
menn hafa frá blautu barnsbeini
þroskað smekk sinn á bessu sviði,
lært að meta það, =em vel er
gert og gildi hefur og sækjast
þvi eftir að hafa bað um hönd,
sem einbverju varðar til þroska
og m'ennin'garauka.
Það er ekki til siða, að hindra
menn í að kynnast góðum bók-
menntum, þeim er dreift með
ýmsum hætti út á meðal almenn
i..gs, hafi menn ekki sjálfir efni
á að eignast bækur, þá eru þær
fáanlegar á söfnum í næsta ná-
grenni. Það er ekki nauðsynlegt
að fara til Rvíkur til þess að sjá,
hvernig bók lítur út og hvað á
hana er skráð. En myndlistar-
verk eru ekki síður þroskandi og
ánægjuileg- en bókmenntir. Það
er ekki minna um vert að eiga
góðan málara en skáld og rit-
höfunda. Og það er ekki síður
nauðsynlegt, að ailmenningur
kynnist myndlist en skáldskaipar-
list. Myndlistin er jafn lifandi
þáttur í menningarlifi þjóðarinn-
ar og bókmenntirnar og hennar
eiga menri að fá að njóta engu
síður. Myndlistin á ekki að vera
eitthvert einangrað fyrirbæri, sem
einn fær notið og annar ekki.
Við flutningsmenn þessarar til-
lögu, erum sannfærðir um nauð-
syn aðgerða í þessu máli. Við
erum einnig þeirra'r skoðuniar, að
hér sé ekki um neitt risaverk-
efni að ræða, sem ógerningur sé
að ieysa. Við höfum víst oft
axlað þyngri býrðar og ekki lát-
ið á sjá.
Það, sem fyrst og fremst þarf
að gera, er að samstilla þá krafta
sem telja má, að eigi hér ein-
hvern hlut að máli og helzt gætu
orðið að liði. en það er yfir
stjórn menntamála, listamenn
sjálfir og samtök þeirra og al'lir
áhugamenn heima í héruðum og
annars staðar, þar sem þá er að
finna.“
Þannig mæltist Ingvari Gisla-
syni og verður þessum orðum
hans án efa gaumur gefinn.
Tómas Karisson.
JOHNS-MANVILLE
Glerullareinangrun
.Fcein i>t' fleiri nota Johns-
Manvillt glerullareinangrun- |
m nef alpapptrnum
anda eiÞ bezta einangrunar-
íínit oe iafnframi það
ódyrasta.
Þéi ereiðið álíka fyrir 4”
• Vi jierul' og 2V4 ’’ frauð-
oiasteinangrun og fáið auk
>es? álpappú með
Hagkvæmii greiðsluskilmálar.
Sendun urr land allt. —
latn'e flugfragt borgar sig.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut i21. Simi 10600.
Akureyri:
Glerárgötu 26. Simi 21344.
LÁHD^
^ROVER
BENZÍN EÐA DIESEL
'jAr Land-Rover er nú fullklæddur að innan —
í toppi, hliðum, hurðum og gólfi. —
•jt Endurbætt sæti; bílstjóra-sæti og hægra fram-
sæti stillanleg.
Endurbætt mælaborð með læsanlegu hanzka-
hólfi.
Ný matthúðuð vatnskassahlíf.
Krómaðir hjólkoppar.
■^r Krómaðir fjaðrandi útispeglar.
■^ Ný gerð af loki á vélarhusi.
----------------AUK ÞESS-------------------------------
er Land-Rover afgreiddur með eftirtöldum búnaði:
Aluminiumhús með hliSargluggum — Miðslöö með rúðublásara — Afturhurð
meö varahjólafeslingu — Aftursæti — Tvær rúðuþurrkur — Stefnuljós — Læs-
ing á hurðum. — Innispegili — Útispogill — Sólskermar — Dráttarkrókur —
Gúmmf á pctulum — Dráttaraugu að framan — Kílómetra hraðamælir með
vcgmæli — Smurþrýstimælir — Vatnshitamælir — 750x16 hjólbarðar — H. D.
afturfjaðrir og sverari höggdoyfar aftan og framan — Eftirlit einu sinni
eftir 1500 km. — Hliðarstig fyrir farþega — Stýrisdempari. —
VERÐ UM KR. 188,000,00 BENZÍN
VERÐ UM KR. 208,000,00 DIESEL
S'imi 21240 HEILDVERZLUNIN HEKLA hf Laugavegi 170-172