Alþýðublaðið - 06.09.1988, Síða 1

Alþýðublaðið - 06.09.1988, Síða 1
Þriðjudagur i. septem ASÍ og ríkisstjórnin MINNI LÍKUR Á SAMRÁDI Eftir viöræður forystu- manna ríkisstjórnarinnar og fulltrúa Alþýöusambandsins í gær viröast líkur ekki hafa aukist um samráö vegna væntanlegra efnahags- aðgerða. Sú var aö minnsta kosti skoðun forsætis- ráðherra eftir fundinn. Ásmundur Stefánsson lýsti einnig óánægju sinni meö ýmis svör ríkisstjórnarinnar viö framkomnum spurningum Alþýðusambandsins. Við- ræðuaðilar ákváðu að meta niðurstöðu fundarins í sínum herbúðum áður en ákvcröun verður tekin um framhaldið. Skattsvikin Hvar er rassían gegn skattsvikurunum? Avöxtun Arið 1987 tók skattrann- sóknarstjóri færri ný mál fyrir en árið 1983 — en upphæð álagningarhækkunar sexfald- aðist á hinn bóginn að raun- virði. í fyrra leiddu rannsóknir til hækkunar um 104 milljónir króna hjá 104 aðilum — milljón á kjaft. En skattrann- sóknarstjóri bendir á að mest sé þetta vegna bókhalds- og söluskattseftirlits, enn vanti mannskap í hinn raunveru- lega rannsóknarþátt. Sjá jbak „Ég hef ákveðið að svipta Pétur Björnsson, viðskipta- fræðing og eiganda verð- bréfafyrirtækisins Ávöxtunar, leyfi til verðbréfamiðlunar um stundarsakir í samræmi við ákvæði 17. greinar laga um veröbréfamiðlun. Ástæðan er að nú stendur yfir opinber rannsókn á meintum lögbrot- um fyrirtækja sem hann er aðili að og starfar fyrir,“ segir Jón Sigurðsson viðskiptaráð- FRÆÐSLUSTJOR- AR LAGÐIR AF? I drögum að fjárlögum fyrir næsta ár er m.a. gerð tillaga um 1200 milljóna króna lækk- un útgjalda með skipulags- breytingum, hagræðingu og breytingu á reglum um þjón- ustu og framlög. í ábending- um nefnda og starfshópa er m.a. gerð tillaga um að sam- eina stofnanir, sem vegna eðlis og aðstöðu eiga sam- leið og er talið hagkvæmt að fella saman. Þar munu m.a. vera uppi hugmyndir um að fella Almannavarnir ríkisins og Veiöieftirlitiö undir Land- helgisgæsluna. í þessum hugmyndum mun einnig fel- ast tillaga um að leggja niður fræðslustjóraembættin. í tillögunum kennir margra grasa s.s. að leggja niður starfsemi eða færa hana til aðila utan ríkiskerfisins og að fresta fyrirhugaðri aukn- ingu ríkisumsvifa með því að breyta starfsáformum og gildistöku laga um nýja starf- semi ávegum ríkisins. Dæmi um slíkt eru ákvæði um fram- haldsskóla. Þá eru hug- myndir um að hagræða i starfsemi og rekstri með til- flutningi verkefna á milli stofnana og fækkun þeirra s.s. með þvi að færa Al- mannavarnir og Veiðieftirlit til Landhelgisgæslunnar og ennfremur að sameina stofn- anir og einfalda skipulagið. Þar munu menn m.a. hafa augastað á fræðslustjóra- embættunum. Stefnt er að niðurskurði, sparnaði, hagræðingu og tekjuöflun upp á 5 milljarða miðað við núverandi drög aö fjárlagafrumvarpi. M.a. er áformað að koma við hækk- un á sértekjum ríkisstofnana af þjónustu og aðstöðu sem þær veita. Ábendingar hafa komið fram um að stofnun- um, sem reknar eru með ríkisframlagi til viðbótar við eigið aflafé, verði ákveðið fast framlag en starfi að öðru leyti sjálfstætt og á eigin ábyrgð og að skipulag og rekstur sjúkrahúsa og lækna- þjónustu verði endurmetið með tilliti til hagræðingar og lækkunar á tilkostnaði. Er mönnum þar starsýnt á Landakotsskýrsluna vegna verktakastarfsemi lækna, til- vísunarkerfis og síaukin rann- sóknarverkefni lækna. Þá mun einnig eiga að ná niður lyfjakostnaði. Viðskiptaráðherra sviptir Pétur Björnsson leyfi til verðbréfamiðlunar. Jón Sigurðsson vísar gagnrýni Ólafs Ragnars á bug og segir hann slettireku í málinu. herra í samtali við Alþýðu- blaðið. í gær lokaði bankaeft- irlitið Ávöxtun að beiðni eig- endanna vegna gifurlegrar innlausnar verðbréfa sem sjóðurinn á útistandandi. „Verðbréfamiðlunarleyfi Péturs Björnssonar var vegna Ávöxtunar sf., verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf. og rekstrar- sjóðs Ávöxtunar hf. og eftir að þetta leyfi hefur um stundarsakir verið fellt niður þá er þessum aðilum óheim- ilt að annast verðbréfamiðl- un. Ákvörðunin um þessa leyfissviptingu er tekin í kjölfar ákvörðunar ríkissak- sóknara um að hefja opin- bera rannsókn á rekstri og starfsemi þessara fyrirtækja á grundvelli athugunar bankaeftirlits Seðlabanka ís- lands sem staðið hefur um nokkurra mánaöa skeið,“ segir Jón Sigurðsson. „Málflutningur Ólafs Ragnars Grimssonar um þetta er því fjarstæöukennd- ur,“ segir haun en i gær sendi Ólafur Ragnar frá sér yfir- lýsingu þar sem viðskiptaráð- herra var gagnrýndur fyrir að hafa ekki fyrr tekið í taumana með athugun bankaeftirlits- ins. „Ólafur er þarna að reyna að vinna sér athygli með því að velta sér upþ úr vandræð- um annarra. Framganga bankaeftirlitsins og annarra opinberra aðila er óumdeilan- lega í góðu lagi. Hitt ersvo annað mál að ég legg nú mikið kapp á að vandaðri lög- gjöf um verðbréfasjóðina verði sett þegar í haust. Frumvarpið er þegar fullbúið og í þvi felast öruggari eftir- lits- og upplýsingaákvæði. Löggjöf girðir þó því miður ekki fyrir öll vandræði af þessu tagi og þótt þau hefðu verið sett að bragði, hefði það engu breytt um efnis- atriðin í þessu tiltekna máli. Sá straumur þeirra sem áttu þarna inni sparifé, til þess að fá þaö endurgreitt, eftir að órói var vakinn í málinu, hefur áreiðanlega komið öll- um ( meiri vandræði en þörf var á. Vil ég þó ekki draga úr því að þarna hafi verió pottur brotinn. Ég vil ekki gera þetta mál að deilumáli á milli mín og Ólafs Ragnars en tel að hann hafi verið slettireka í þessu máli,“ segir Jón Sigurðsson. Olafur V. Noregskonungur kom til íslands í gær í opinbera heimsókn. Eftir hádegisverö með forseta íslands hélt Ólafur i móttöku fyrir landa sina aö Hótel Sögu og var meðfylgjandi mynd Magnúsar Reynis tekin við það tækifæri. Um kvöldið var siðan á dagskrá kvöldverðarveisla á Bessastöðum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.