Alþýðublaðið - 06.09.1988, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 06.09.1988, Qupperneq 2
2 Þriðjudagur 6. september 1988 MPÍÐUBLMÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Umsjónarmaöur helgarblaös: Blaðamenn: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blaö hf. Hákon Hákonarson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Þorlákur Helgason Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttirog Ómar Friöriksson. Þórdís Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga. AÐ LOKNUNI AÐALFUNDI STÉTTARSAMBANDS BÆNDA Aðalfundi Stéttarsambands bænda lauk um helgina. Stéttar- sambandið heldureins og hver önnur hagsmunasamtök í þessu landi árvisst samkomur til að minna á tilverurétt sinn. Þær.sam- komur breyta í sjálfu sérekki framvindunni, og sjaldnast komast menn að öðrum niðurstöðum en þegar eru gefnar. Niðurstöðum sem sagan hefurskráð. Þannig erog um Stéttarsambandsaðal- fundinn. Þar hafa menn að venju haft „verulegar áhyggjur" af því sem erað gerast í landbúnaðinum. Fyrirfundinum lágu m.a. þær upplýsingar að þjóðin borðaði minna kindakjöt en áður og að bændum, sem hefði verið vísað á nýgreinar í landbúnaði vegnaði illaog væru á kafi í skuldum. Refarækt var fyrir tveimurárum tal- in vonlaus iðja, vegna þess einfalda lögmáls aö hrökkvi tekjur ekki til fyrir kostnaði, aukast skuldir. í dag eiga margir refabænd- ur von á því að sjá nöfn sín á prenti í Lögbirtingablaðinu, verði ekkert að gert. Við þeim blasir gjaldþrot. Landbúnaðarstefnu þjóðarinnar ætti líka aö vera fyrir löngu búið að lýsa gjaldþrota. I fjölda ára voru bændur og búalið hvött til að framleiða meira, en neytendur gátu alls ekki innbyrt allt sem var framleitt, og með breyttum lífsháttum, fóru íslendingar aó borða annað en lambakjöt. Gífurlegar fjárfestingar í landbún- aðinum í áratugi skiluðu ekki tekjum til bænda í samræmi við til- standið. Kerfið tók seint við sér og illa, og það var erfitt að víkja af braut og draga úr framleiðslu. Seinast tóku milliliðirnir í kerf- inu við sér, því að þeir hafa sitt á hreinu. Rétt sambönd við Sam- bandið hafaséð fyrirþví. Milliliðirnir, sölustarfsemi og markaðs- mál öll eru í dag i hróplegu ósamræmi við þarfir neytenda og skammta bændum smánarkjör. Aðalfundur Stéttarsambandsins svaraði þvi ekki, hvernig beri að leysa vanda landbúnaðar. Á fundinum var m.a. fellt að reyna að hlúa að minni sláturhúsum, þó að vitað sé að neytandinn vilji kjötið ferskt á markað og allan ársins hring, og það séu einmitt smáu sláturhúsin sem geti sinnt þessum þörfum. Forystumenn bænda á aðalfundinum vildu miklu frekar styðja við það gamla kerfi, sem tryggiráfram aö gamalt kjöt séávallt til staðar, og ríkið greiði hundruð milljóna fyrir geymslu á því í frystihúsum út um allartrissur. í dag eru birgðirkindakjöts um þúsund tonn. Birgðir sem væntanlega verða geymdar langt fram á vor, þar til þeim verður fleygt eða þær seldar niðurgreiddar ofan í útlendinga. Helsta svar aðalfundarins við vandanum var sá að það beri að hyggja aö nýjum búvörusamningi, þegar sá sem nú er í gildi rennurút 1992. Fram að þeim tímamunu bændurslátún og hirða vitandi vits að halli enn frekar undan fæti. VINÁTTUHEIMSÓKN m Olafur fimmti Noregskonungur sækir ísland heim þessa dag- ana. Fyrir meira en fjórum áratugum kom hann í heimsókn sem krónprins áSnorrahátíð. í dag heldur konungurásamt fylgdarliði í Reykholt í Borgarfirði, en þar verður um ókomna framtíð aöset- urfyrir fræðimenn, sem vilja nema norræna tungu og sögu. Þaö fer vel á því. Snorri Sturluson er ókrýndur konungur sagnaritunar /og tengir menningu Noregs og Islands órjúfanlegum böndum. Megi heimsókn Ólafs konungs örva samskipti norrænna vina- þjóða. ÖNNUR SJÓNARMIÐ „Meiriháttar fjármálaleg afglöp“ kallar Alfreð Þorsteinsson sölu Granda. BORGARAFLOKKUR- INN er ekki mjög áberandi í stjórnmálaumræðunni. Þing- menn hans reyna þó að sinna grasrótinni eftirfremsta megni. Oddviti flokksins á Suöurlandi, Óli Þ. Guðbjarts- son skrifar í Dagskrána á Sel- fossi, sem fer víða um kjör- dæmi Óla Þingmanns. Óli leggur út af kvæði Grims Thomsens um staka báru sem eigi er ein stök. Óli segir að efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar séu hver annarri verri: „Þegar rikisstjórnin lagði fram sitt fyrsta frumvarp til fjárlaga árid 1988 voru hyrn- ingarsteinarnir tveir — fast gengi og hallalaus fjárlög — auðvitað á grundvelli aðhalds og sparnaðar! Þessi markmið voru básún- uð um allt þjóðfélagið í hinni magnþrungnu fjölmiðlun allra rása Ijósvakans sem og gjörvallri stjórnarpressunni. Hvernig átti almenningur að gruna að þeir, sem þannig lýstu vilja sínum og höfðu til þess öruggan þingmeirihluta næðu að standa við hvorugt þessara meginmarkmiða? Álögur á almenning og atvinnulíf jókst um 50% á milli áranna 1987 og 1988 eða um röska 20 milljarða króna og hvernig átti nokkurn að óra fyrir þvi, að slík fádæma skattaaukning nægði ekki til að ná hallalausum ríkissjóði? Og það með þetta ráðdeildar- fólk í forsvari á hverjum pósti Sjaldan er ein báran stök, segir Óli Þ. Guöbjartsson um aðgerdir rikisstjórnarinnar. — ellefu ráðherra og hver þeirra með sérhæfðan að- stoðarmann til þess að halda aftur af sér og forðast freist- ingar.“ Og framundan er enn meiri öldugangur spáir Óli Þ. Guð- bjartsson: „Og nú er komið fram um höfuðdag. Forstjórar hafa sagt fyrir um næstu kenni- leiti i efnahagsstjórnuninni. Niðuríærslan er náðarmeðal- ið. En því miður bendir margt til þess, að þeir sem örlögum ráða i þessum efni ætli enn að þrjóskast við að höggva að rótum meinsins þ.e. að af- nema sjálfvirkni vísitölu láns- kjara og skila matarskattin- um með tilheyrandi sam- drætti í óráðsíu rikiskerfis- ins. Hætta er á að enn verði nokkurt bil milli orða og athafna. Fólk kom saman fyr- ir fáum dögum í Sjálfstæðis- húsinu í Reykjavik og ræddi þar m.a. um að finna yrði leiðir til að vernda þá sem lægstar hefðu tekjurnar. Að því loknu voru gefin út bráðabirgðalög, sem m.a. lækkuðu laun bænda um 6-10% þegar í stað — skerð- ing, sem þeir einir stétta hafa enn þurft að þola. Efasemdir þeirra, sem ótt- ast að meðalið verði mein- semdinni verra eru vissulega skiljanlegar. Og engan furöar þegar efnahagsstjórn seinustu mánaða er vegin og metin þó óttinn við hið fornkveðna vaki í margra hug. „Eigi er ein báran stök ein er síðust og mest...“ FÉNGU Hvalur hf. og þau önnur fyrirtæki sem keyptu Granda af borgarstjóra um daginn, hluta af Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni og Essó í kaupbæti? Alfreð Þor- steinsson, varaborgarfulltrúi spyr þessa í Tímanum á föstudag. Alfreð segir m.a.: „Borgin kemur vægast sagt mjög illa út úr þessu fjárhagslega. Til að hægt væri að stofna fyrirtækiö Tagði borgarsjóður á sínum tíma fram 212 milljónir króna og ef sú upphæð er fram- reiknuð með lánskjaravisitölu að viðbætuum 5% vöxtum nemur hún um 410 milljónum króna. Það má því segja að með því að selja hlut borgar- innar á 500 milljónir sé verið að kasta þessum 410 milljón- um, sem skattgreiðendur hafa pungað út, út um glugg- ann. Þarna er nánast verið að gefa einkaaðilum Bæjarút- gerðina gömlu fyrir slikk, kannski 100 milljónir, og þar ofan á kemur eignarhluturinn í sildar- og fiskimjölsverk- smiðjunni og Esso.“ „Afglöp“ kallar Alfreð söl- una: „Það sem hér hefur gerst eru meiriháttar fjármálaleg afglöp sem borgarstjóri ber að stærstum hluta ábyrgð á. Þá mætti spyrja: Hefur eitt- hvað áunnist með samein- ingu BÚR og ísbjarnarins fyr- ir sjávarútveginn í Reykjavik eins og til stóð með stofnun Granda? Það sem blasir við í dag er að það hefur aldrei ríkt meiri óvissa varðandi þessa atvinnugrein en nú. Það er kjarni málsins. Þegar Grandi var stofnaður var starfsfólki fækkað um þriðjung og útgerð og fisk- vinnsla hefur ekki verið jafn lítil í Reykjavík í áratugi.“ Segir Alfreð Þorsteinsson borgarf ulltrúi. 3000 sjálfboðaliðar vinna hjá breskum sorgarsamtök- um sem leiðbeinendur. For- maður samtakanna var hér á ferð fyrir stuttu og flutti með- al annars fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð. Morgun- blaðið hefur þetta m.a. eftir Parkes þessum: „Oft reynist erfitt að sætta sig við missi ástvinar, ekki síst ef missinn ber brátt að. Það er ekki óalgengt að við- brögð fólks einkennist af reiði og sektarkennd. Margir þjást af sektarkennd og finnst þeir hafa brugðist þeim látna. Reiðin gerir oft vart við sig hjá syrgjendum en fólk reynir frekar að dylja reiöina því að það þykir ekki viðeigandi að vera reiður út i látinn mann. Stærstu mistök flestra syrgjenda eru að reyna að dylja tilfinningar sínar og láta sem ekkert sé. Reiðin er til dæmis hvorki góð né slæm í sjálfri sér en hana má virkja til góðs.“ Einn með kaffinu Þingmaðurinn hélt fund í kjördæminu. Hann gerði sig dálítið breiðan og sagði: — Þegar ég fluttist úr héraðinu og til Reykjavíkur átti ég ekkert nema 50 krónur sem hann Siggi á Holtabakka lánaði mér. En nú held ég að Siggi sé látinn, en ég er kominn aftur fjáðari en þegar ég fór héðan! Ellihrumur maður stóð upp aftast í salnum og kallaði skrækri röddu: — Ég er nú enn á lífi góði! Þingmaðurinn svaraði í fáti: — Siggi minn, hvernig væri að þú lánaðir mér aðrar 50 krónur svo ég geti borgað þér hundrað kallinn sem ég skulda þér?!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.