Alþýðublaðið - 05.07.1989, Page 7
Miðvikudagur 5. júlí 1989
7
UTLOND
Harðstiórinn er látinn —
biðraðir af öðrum harðstjórum
Fréttir fré Teheran herma að herinn og varðliðið styðji
Rafsanjani. Það hefur kvisast að þrir til fjórir Ayatollar
(prestar) kynnu að verða trúarleiðtogar landsins í stað
eins.
Dauði Khomeini gefur svigrúm
til valdabaráttu. Tvær fylkingar
hafa lengi keppst við að hafa áhrif
á Khomeini en hans orð voru lög.
Eftir dauða Khomeini gæti þessi
valdabarátta brotist út fyrir opn-
um tjöldum.
í annarri fylkingunni eru radi-
kalar með innanríkisráðherrann
Ali Khamenei forseti,
sem var tilnefndur œðsti
leiðtogi í Iran, hefur
enn ekki sýnt fram á að
hann hafi styrk til að
verða trúarleiðtogi
landsins. Hin veraldlegu
völd virðast í höndum
Hashemi Rafsanjani,
sem er œðsti yfirmaður
hersins. Ekkert bendir
til, að mildari yfirstjórn
komist á í Iran.
Ali Akbar Mohtashemi í broddi
fylkingar. Radikalar eru mjög
andsnúnir öllu sem að vestan
kemur og eru einangrunarsinnar.
Hin fylkingin er á mildari línu og
vill frið við umheiminn og það
voru þeir sem gátu sannfært
Khomeini um nauðsyn þess að
hætta striðinu við írak. Þeir horf-
ast í augu við það að efnahagslíf
í íran er háð betri samskiptum við
umheiminn.
Rafsanjani______________________
Á Rafsanjani hefur verið litið
sem fylgjanda mildari línu
(moderat). Hann hefur stundum
verið kallaður „uppáhalds-
ayatollah Vesturlanda“ vegna
stefnu hans í utanríkispólitík. Þvi
hrökk umheimurinn illilega við,
við bænargjörð í Therean að
Palestínumenn ættu að drepa 5
Vesturlandabúa fyrir hvern
Palestínumann sent drepinn væri
á herteknu svæðunum. Seinna
fullyrti Rafsanjani að orð hans
hefðu verið slitin úr samhengi og
að hann hefði verið að lýsa því,
hvernig gæti farið ef ísraelsmenn
héldu áfram núverandi stefnu
sinni gegn Palestínumönum.
Rafsanjani hefur einnig verið
harðorður við önnur tækifæri, en
á það hefur verið litið sem tilraun
til að afla sér fylgis hjá radikölum
í landinu.
Rafsanjani þarf á víðfeðmum
stuðningi að halda í forsetakjör-
inu til þess að fá þau völd sem
hann þarf til að koma málum í
það horf sem hann vill. Ekki er
talinn neinn vafi á því að hann
hljóti kosningu, þar sem hann er
eini kandídatinn.
Nú er fjölmenn nefnd að vinna
að nýjum grunnlögum fyrir íran.
Það hefur víst ekki farið fram-
hjá neinum að mikil sorg hefur
ríkt í íran. í heimalandi sínu var
Khomeini dýrkaður og elskaður
álíka ntikið og hann var fyrirlitinn
og hataðurá Vesturlöndum. Jafn-
vel ekki hið langvarandi stríð við
írak þar sem Khomeini sendi
margar kynslóðir út í dauðann
virðist hafa skaðað vinsældir
hans heima fyrir. Andóf gegn
Khomeini var andóf gegn guði —
og fyrir þann glæp er hegnt með
aftöku. Pyntingarog fjöldaaftök-
ur hafa verið daglegt brauð i íran
undir stjórn Khomeini.
(Arbeidcrhladet. Stytt.)
þegar hann í maí sl. lýsti því yfir
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 20.50
TÖFRANDI HELLA-
HEIMUR
Bresk heimildamynd um neðan-
sjávarhella í Wakulla Springs í Flór-
ída.
Sjónvarpið kl. 21.45
EINVÍGI í SÓLINNI
(Duel under the Sun, 1946)
Aðalhluíverk: Gregory Peck,
Jennifer Jones, Joseph Cotlen, Li-
onel Barrymore. Leikstjóri: King
Vidor og fteiri.
Þriggja stjörnu ríflega fertugur-
Ástralska myndin Kjarnorkuslysiö kemur vafalaust ýmsum til að hugsa um
Chernobyl. Þessi mynd var máiuð af sovéska slökkviliðsmanninum Petr Ye-
nets, sem hætti lífi sinu i baráttunni við eldinn í kjarnorkuverinu eystra, og
er þetta ein af fjölmörgum mynda hans.
vestri. Þetta er tilraun framleiðand-
ans og handritahöfundarins Davids
O. Selznick til að fylgja eftir Gone
with the Wind. Stórmynd með lát-
um, yfirþyrmandi á köflum, og
heimskulegu vestrasexi. Fjallar um
kynblendingsstúlkuna sem Jones
leikur og hvernig hún kemst upp á
milli tveggja bræðra. Frábær atriði
inn á milli, en hæggeng frásögn.
Endirinn var umtalaður á sínum
tíma, þótti yfirmáta blóði drifinn
fyrir þeirra tíma smekk. Mynd sem
fellur vel að smekk margra, en í
augum annarra er hún væmið og
einfeldnislegt prump.
Stöð 2 kl. 17.30
HETJUDRAUMAR
(Those Glory Glory Days)
Aðalhlutverk: Zoe Nathenson,
Liz Camion, Cathy Murphy. Leik-
stjóri Phillip Saville.
Fátt eitt er að segja um þessa
mynd, sem titluð er gamansöm fjöl-
skyldumynd. Söguhetjan er ung
stúlka sem hefur verið veik fyrir
fótboltahetjum frá því hún man
fyrst eftir sér. Ekkert kemur fram
um frantleiðsluland, framleiðsluár
eða stjörnugjöf.
Stöð 2 kl. 23.10
KJARNORKUSLYSIÐ
(Chain Reaction, 1980)
Aðalhlutverk: Steve Bisley,
Anna-Maria Winchester, Ross
Thompson. Leikstjóri Ian Barry.
Áströlsk mynd að gæðum fyrir
ofan gott meðallag. Það verður slys
í kjarnorkuveri í Ástraliu, sem
geymir kjarnorkuúrgang. Yfir-
rnenn versins gera allt sem þeir geta
til að halda slysinu leyndu fyrir al-
menningi. Starfsmaður versins,
Thompson, reynir hins vegar að
koma fregninni út með aðstoð
hinna aðalleikaranna. Tvær og hálf
stjarna-.
0 3 STÖÐ 2
17.50 Sumarglugg- inn. 16.45 Santa Barbara. 17.30 Hetjudraum- ar. Gamansöm fjöl- skyldumynd.
1800 18.45 Táknmáls- fréttir. 18.55 Poppkorn. 18.55 Myndrokk.
1900 19.20 Svarta naðran. Breskur gaman- myndaflokkur. 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Grænir fingur (11). 20.50 Tötrandi hella- heimur (Wakulla). Bresk heimilda- mynd um neðansjá- varhella i Wakulla Springs á Floridaskaga. 21.45 Einvigi i sól- inni (Duel in the Sun). Banariskur vestri frá 1946. 19.19 19.19. 20.00 Sögurúr Andabae. 20.30 Stööin á staðnum. Stöð 2 á hrlngferð um landið. Byrjað veröur á að staldra vió I Vest- mannaeyjum. 20.45 Falcon Crest. 2.40 Bjargvættur- inn. 22.30 Tiska.
2300 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Einvigi i sól- inni — framh. 23.55 Dagskrárlok. 23.00 Sögur að handan. Spennu- sögur rétt fyrir svefninn. 23.25 Kjarnorku- slysið (Chain Reaction). Spennu- mynd um kjarnorku- slys i Ástraliu. Stranglega bönnuó börnum.