Alþýðublaðið - 05.07.1989, Síða 8
Miðvikudagur 5. júlí 1989
Félagslega íbúðakerfiö:
Nefnd endur-
skoðar kerfið
SUNNLENSKT
SUMAR
A-mynd / E.ÓI.
EFTA og EB:
Gangur viðræðna
samkvæmt áætlun
Félagsmálaráðherra hefur
skipað ncfnd (il að gera til-
lögur um endurskipulagn-
ingu og framtíðarskipan hins
félagslega hluta húsnæðis-
kerfisins. Hlutverk nefndar-
innarer að leggja fram tillög-
ur um cndurbætur á fyrir-
komulagi lánveitinga til fé-
lagslegra íhúðahygginga með
það að markmiði að einfalda
lánafyrirkomulag og auka
skilvirkni félagslcga íbúða-
lánakerfisins. Formaður
nefndarinnar er Ingi Valur
Jóhannesson, deildarstjóri í
félagsmálaráðuneytinu.
Nefndinni er falið að gera
tillögur um breytt fyrir-
komulag á stjórnun og út-
hlutun á félagslegri aðstoð í
Hugsanlegt er að Flugleið-
ir dragi verulega saman fyrir
næsta sumar, einkum á sviði
lciguflugs til sólarlanda og í
Græ'nlandsflugi. Þetta kem-
ur fram í fréttatilkynningu
frá Flugleiðum og þar segir
ennfremur að hugsanlegt sé
að flugfloti félagsins verði
aðeins fimm þotur næsta
sumar og muni þá áhöfnum
fækka um níu. í hverri áhöfn
eru þrír flugmenn og fimm
flugfreyjur. Á móti kemur
hugsanlega fjölgun ákvörð-
unarstaða í Bandaríkjunum.
Sem stendur er unnið að
undirbúningi á sumaráætlun
Flugleiða fyrir sumarið 1990.
Hann er á frumstigi en hug-
myndir liggja fyrir um að
endurskoða leiguflug til sól-
arlanda og einnig til Græn-
lands, en samningur Flug-
leiða um leiguflug milli
Narsarsuaq og Kaupmanna-
hafnar rennur út næsta vor.
Samningurinn er gerður í
dönskum krónum og vegna
gengisþróunar hefur hann
VEÐRIÐ
í DAG
Gengur á sudaustan
golu eða kalda um morg-
uninn og fer að rígna
sunnanlands. Um eða upp
úr hödegi verður úrkomu-
litið á Norður- og Norð-
vesturlandi. Hiti verður
8-12 stlg á Suðvestur- og
Vesturlandi, en allt að 16
stiga hiti að deginum á
Norur- og Austurlandi.
húsnæðiskerfinu. Jafnframt
er henni falið að gera tillögur
um framkvæmd ráðstafana
og leiðir til að auka framboð
leiguhúsnæðis og til að jafna
húsnæðiskostnað leigjenda
til samræmis við húseigend-
ur. Niðurstöður nefndarinn-
ar eiga að liggja fyrir í formi
lagafrumvarpseigisíðaren I.
nóvember nk.
Fjölmörg samtök og félög
eiga fulltrúa í nefndinni, þar
má nefna Byggingarsjóð
verkamanna, Alþýðusam-
band íslands, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja,
Verkamannasamband ís-
lands, samtökin Þak yfir
höfuðið, Samband íslenskra
sveitarfélaga auk stjórnar-
flokkanna.
ekki verið félaginu hagstæð-
ur. Um leið telja Flugleiðir
að hægt sé að bæta sam-
keppnisstöðu félagsins á
Norður-Atlantshafsleiðinni
með því að taka aftur upp
einhverja þeirra ákvörðunar-
staða sem felldir voru út í
fyrra. Það er einkum hinn
nýi flugfloti sem gerir að
verkum að Flugleiðir telja sig
eiga betri möguleika á leið-
inni vestur um haf.
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingunni virðist enn ekki ráð-
ið hversu margar vélar félag-
ið kemur til með að reka
næsta sumar. Þegar hefuri
verið ákveðið að kaupa 5 nýj-
ar vélar, tvær reyndar komn-
ar í rekstur, en í lok sumars
þarf að taka ákvörðun um
hvort tveimur til viðbótar
verður bætt við. Þær kæmu
inn í reksturinn eftir tvö ár
eða siðar og um leið þarf að
taka ákvörðun um hvort
framlengja þarf leigusamn-
ing þotu sem félagið er með á
leigu. Engar ákvarðanir hafa
þó enn verið teknar.
Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra b.vrj-
aði formennskuferil sinn í
ráðherraráði EFTA með
ftindum í Brussel með
Andreissen, varaforseta
Evrópubandalagsins, á
mánudag og Jacques Del-
ors, forseta framkvæmda-
stjórnar bandalagsins, í
gær. Milli funda fór Jón
Baldvin til Bonn til fundar
við Hans-Dietrich Gen-
scher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands.
Á fundunum með for-
ystumönnum Evrópu-
bandalagsins í Brussel var
að sögn Jóns Baldvins
meginviðfangsefnið að
gera þeim grein fyrir stöðu
viðræðna EFTA og EB og
skýra frá sjónarmiðum
forystumanna EFTA varð-
andi framgang viðræðn-
anna. Af hálfu Delors og
Andreissen kom fram að
þeir teldu þessar viðræður
ganga samkvæmt áætlun
og vandamálin sem við
væri að fást væru minni en
við mátti búast.
Georg Reisch, fram-
kvæmdastjóri EFTA, var á
fundunum ásamt utanrík-
isráðherra og sendiherrum
íslands í Brussel og Genf.
Jón Baldvin gerði rækilega
grein fyrir stöðu mála í
þeim starfshópum sem
settir hafa verið upp af
hálfu EFTA-ríkjanna til að
undirbúa samstöðu EFTA
og samstarf.
Fyrsti starfshópurinn
fjallar um fríverslun með
vörur. Þungamiðjan í þeim
tillögum sem ræddar hafa
verið innan hópsins er hug-
myndir um útfærslu á
tollabandalagi. Aðrir kost-
ir eru einnig til skoðunar.
Flestar miða tillögurnar að
því að tryggja að tollfrjáls
viðskipti geti átt sér stað á
svæðinu öllu, þ.e.a.s. innan
EB-ríkjanna tólf og
EFTA-ríkjanna sex. Ein-
hvers konar tollabandalag.
Að því er varðar hags-
muni íslendinga sérstak-
lega sagði Jón að
EFTA-ríkin hefðu tilkynnt
að innan EFTA-svæðisins
yrði komið á fríverslun
með fiskafurðir og ósk
EFTA-ríkjanna væri að
hún yrði útfærð um allt
svæðið.
Starfshópur númer tvö
fjallar um fjármagnsflutn-
inga og fjármagnsþjón-
ustu. Öfugt við það sem
margir höfðu ætlað fyrir-
fram hefur starfshópurinn
þegar komist að sameigin-
legri niðurstöðu án þess að
þar kæmu á dagskrá ein-
hverjir óyfirstíganlegir erf-
iðleikar. Þetta felur í sér að
fyrirvarar einstakra ríkja,
eins og t.d. íslendinga, eru
ekki taldir valda fyrir-
stöðu.
Þriðji hópurinn fjallar
um hindrunarlausa flutn-
inga fólks og búsetu. Þessi
hópur var hvað skemmst á
veg kominn, m.a. vegna
þess að EFTA-ríkin hafa
ekki áður þurft að sinna
þessu verkefni. En að sögn
Jóns Baldvins eru líkur á
að samkomulagsgrund-
völlur hafi þegar fundist,
ef marka má viðbrögð
EB-ríkjanna. Norðurlönd-
in hafa nokkra sérstöðu
hvað þetta snertir. íslend-
ingar hafa þar sérstaka
undanþágu, sem er í því
fólgin að ef um væri að
ræða meiriháttar inn-
streymi fólks á íslenskan
vinnumarkað eða í ein-
staka greinar, sem ylli rösk-
un á vinnumarkaðnum,
hefur íslenska ríkisstjórnin
áskilið sér rétt til takmörk-
unar að höfðu samráði við
stjórnir hinna Norðurland-
anna. íslendingar hafa
óskað eftir því að þessi al-
menni fyrirvari gildi einnig
í samningunum við EB og
undirtektir gefa ekki tilefni
til mikillar fyrirstöðu hvað
það varðar.
Fjórði starfshópurinn
fjallar um svokölluð jaðar-
verkefni, þau verkefni sem
eru fyrir utan innri mark-
aðinn, samrunaferilinn.
Þessi hópur fjallar um að-
gang að æðri menntun,
samstarf á sviði vísinda og
rannsókna og samstarf
gegn umhverfismengun.
EFTA-ríkin hafa sem slík
lagt ríka áherslu á þetta
svið, en líta reyndar svo á
að þau séu lengra komin
hvað varðar umhverfismál-
in. EFTA óskar m.a. eftir
að sett verði á stofn sam-
eiginleg Evrópu-stofnun
um umhverfismál.
Jón Baldvin sagði að
hvað málefni þessa hóps
varðaði legðu íslendingar
m.a. áherslu á aðgang
námsmanna að æðri
menntastofnunum. Hann
sagði að íslendingar hefðu
mikilla hagsmuna að gæta
á þessu sviði, þar sem ára-
tuga- og aldahefð væri fyr-
ir því að íslendingar sæktu
menntun til þessa svæðis.
Fimmti hópurinn, laga-
hópurinn, er skemmst á
veg kominn. Það er af
ásettu ráði gert, því honum
er ekki ætlað að ljúka
ströfum fyrr en komið er í
ljós hvaða árangur næst í
hinum samstarfshópunum
fjórum. Meðal spurninga
sem hópurinn veltir fyrir
sér er hvernig haga megi
eftirliti með framkvæmd
gerðra samninga á svæðinu
öllu og tryggja samræmda
framkvæmd. Einnig fjallar
hópurinn um hvernig leysa
megi úr hugsanlegum
ágreiningsefnum einstakra
aðila svo og um sameigin-
lega stjórn milli EFTA og
EB.
Jón Baldvin sagði það
sameiginlegt mat að það
starf sem byrjaði í fram-
haldi af Oslóaryfirlýsing-
unni, svo og starf hóp-
anna, hefði farið fram eftir
áætlun. Stefnt er að því að
starfshóparnir Ijúki störf-
um þann 25. júlí og að nið-
urstöður verði lagðar fyrir
á æðstu stöðum undir lok
ársins. Þá verður komið að
spurningunni um hvort
eiginlegar samningavið-
ræður geti hafist eða ekki.
Á milli funda með for-
ystumönnum Evrópu-
bandalagsins átti Jón
Baldvin fund með
Hans-Dietrich Genscher,
utanríkisráðherra Vest-
ur-Þýskalands, og skýrði
honum frá gangi könnun-
arviðræðna EFTA-ríkj-
anna við framkvæmda-
stjórn EB. Þá ræddu ráð-
herrarnir tvíhliða mál ríkj-
anna, m.a. spurninguna
um möguleika á fríverslun
með sjávarafurðir og
spurningar um frjálsa
fólksflutninga og búsetu.
hitastig
■ borgum
Evrópu
kl. 12
í gær
að íslenskum
tima.
ISLAND
Hitastig i nokkrum landshlutum kl. 12 i dag
Flugleiðir:
Uppsagnir í
vændum?
I