Tíminn - 29.02.1968, Síða 13

Tíminn - 29.02.1968, Síða 13
FIMMTUDAGUR 29. febrúar 1968. ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Rúmenar sýndu ar í síðari leiknum Sigrudu íslenzka landslíðíð í gærkvöldi með 9 marka mun, 23:14 Slæm tíðindi frá Rúmeníu seint í gærkvöldi. íslenzka landsliSið tapaði síðari lands- leiknum gegn Rúmeníu með 9 marka mun, 14:23, en leik- urinn fór fram*’ í borginni Cluj, sem er norðarlega í Rúmeníu. Úrslitin síðari dag- inn eru sem sé í öfugu hlut- falli við hin hagstæðu úrslit f fyrri landsleiknum, sem fram fór í Búkarest á mánu- dagskvöldið. — Rúmenarnir sýndu klærnar í þessum leik svo um munaði! Því miður reyndist mjög erfitt að ná sambandi viið Rúmeníu í giærkvöldi o.g þrátt fyrir ítrekað ar tilraunir tókst ekki að ná sam- bandi við íslenzka hópinn, sem strax eftir leikinn var drifinn í niæturlestin.a til Búkarest og var á næt'Urferðalagi í alla nótt. í dag heldur íslenzka landsliðið sivo áleiðis til Vesbur-Þýakalandis, þar sem það á tvo landsileiki fyrir hiöndum, þann fyrri í Miinehen á morgiun, föstudag, og síðari leik inn í Bremen á sunnudaginn. Einu uppiýisingarnar, sem íþrótta síðan fiðkfc frá Rúmeníu í gær bvöid'i, voru ldktölur leiiksins, 23: 14. Benda þær tiíl þess, að Rúmen ar hafi tefilt sínu allra sterkasta liði fram, en í fyrri leiknum not uðu þeir eitthvað af sínum yngri mönnum. Úrs'litin valda að sjálif sögðu nokfcrum vonbrigðum, en á það ber að líta, að Rúmenar hafa alitaf þótt geyisisterkir á heimaiveli eins og únslitin í lands leikjuim þcirar gegn Vestur-Þjóð verjum nýlega sönnuðu, en þá unnu Rúmenar með 10 marka mun. Til gamans má get'a þess, að ieifeurinn í gærkvöldi var fimmti landsleikurinn, sem ísland og Rúmenía hej'k# ^^nbyrðis. Úrslát iin í l'eikjunum.til 'þessa hafa orðið á þessa leið: 1. fsl.—'Rúmenía í HM ‘58 13:11 2. íisl.—iRúmenía í Rvk ‘66 117:23 3. ísl'.—Rúmenía í Rvk ‘66 15:16 4. ísl.—Rúmenía í Búlkar ‘68 15:17 5. f'S'l.—Rúmenía í Gluj ‘68 14:23 Sem sé, einn ísienzkur sigur í fimm ieikjum og fjöigur töp. Marka talan 90:74 Rúmenum í hag. Svíar sigruBu Duni í lundsleik 21:19 Danska silfur-liðið í handknatt- leik mátti bíta í það súra epli að tapa fyrir Svíum í landsleik, sem liáður var í Malmö í Sviþjóð á þriðjudagskvöldið. Sigruðu Svíar með tveggja marka mun, 21:19, en staðan í hálflcik var jöfn, hvort liðið hafði skorað 9 mörk. Liðin sýndu ekki sérlega góðan* leik og virðast ekki hafa fundið ,.formið“ frá heimsmeistarakeppn inni síðustu. Beztu ménnnSvíanna voru langskytturnar Thomas Pers son og Lennard Erikson. Mark- vörðurinn, Ulf Johnson sýndi mjög góðan lei'k, en 10 mínútum fyrir leikslok varð hann að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Danska lið ið lék betur í fyrri hálfleik, en náði sér aldrei verulega á strik í þeim síðari. Mörk Sviþjóðar: Lennard Erik son og T. Persson 7 hvor, Kurt Görna Kell 3. Björn Danell og H. Erikson 2 hvor. — Mörk Dana: Graversen 6, Carsten Lund 4, Per Svendsen 3, I. Ohristiansen 2, B. | Thomseen, J. Vodsgard og Frand isen 1 hver. Spennandi úrslitaleikur í badminton-móti Vals Hin nýstofnaða badmintondeild Vals efndi til innanfélagsmóts í Valshúsinu s.l. láugardag og var þátttaka mjög góð. f flokki full- orðinna voru þátttakendur 26 talsins og 10 í drengjaflokki. — Keppt var í tvíliðaleik og er þetta fyrsta badmnitonmótið, sem Valur gengst fyrir. Það er skemmst frá því að segja að keppnin var mjög tvísýn og skemmtileg, einkum var úrslita- leikurinn í flokki fullorðinna spennandi. Þar léku til úrslita þeir Ormar Skeggjason (hinn kunni knattspyrnukappi úr Val) og Örn Ingólfsson á móti þeim Sigurði Tryggvasyni og Hilmari Pietch. Fyrstu lotuna unnu þeir Ormar og Örn 15:10, en aðra lotu unnu Sigurður og Hilmar 17:16. í úrslitalotunni unnu Ormaí og Örn 18:16. Sem sé jaifn og spenn andi leikur. í drengjaflokki léku til úrslita þeir Jón Gíslason og Ragnar Ragn arsson á móti Jafet Ólafssyni og Pétri Árnasyni. Jón og Ragnar sigruðu 11:1 og 11:4. Mótið var vel heppnað, en móts stjóri var Einar Jónsson. Starfsemi badmintondeildar Vals er í full- um gangi og komast færri að en vilja í æfingatíma deildarinnar. SUNDMOT ÁRMANS í KVÖLD Sundmót Ármanns verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudag inn 29. febrúar kl 8,30 keppt verð ur í eftirtöldum greinum: 100 m. skriðstundi karla (bikars) 200 m. bringusund karla (biikars) 100 m. baksund karla i 100 m skriðsund kvenna 200 m. fjórsund kvennaj (bikars.) 100 m. baksund kvenna 50 m. skriðsund drengja (bikars) 100 m bringusund stúlkna I 50 m. bringusund telpna fæddar i 1956 og síðar. I 4x100 m. fjórsund karla ( 4x100 m. skriðsund kvenna. l j Enn fremur verður keppt um j í afreksbikar ÍSÍ er vinnst fyrir bezta ! afrek mótsins samkvæmt gildandi I stigatöfl Wales vann N-írland Wales sigraði N-frland í lands- leik í knattspyrnu í gærkvöldi, 2:0. Leikurinn var liður i Evrópu keppni landsliða (Bretlandseyja- riðillinn), en hafðí litla þýðingu, þar sem England hafði þegar tryggt sér sigur í riðlinum. Bobby Charlton og félagar báru sigurorð af pólsku meisturunum í fyrri leik liðanna í gærkvöldi. Manch. Utd. sigraði pólsku meistarana — í gærkvöldi með 2 : 0 Nokkrir Evrópubikarleikir í knattspyrnu voru leiknir í gærkvöldi. Manch. Utd. lék á heimavelli sínum, Old Traf- ford, gegn pólsku meteturun- um Gornik Zabrze í keppni meistaraliða. Lauk leiknum meS sigri Manch. Utd. 2:0, en í hálfleik var staðan 0:0. — Síðari leikur liðanna fer fram í Póllandi innan tíðar. Kunningjar okkar frá Belgíu, Standard Liege. mótherjar Vals i í 1. u-mferð Evrópubikarkeppninn : ar 1966, léku i gærkvöldi í keppni J bikarhafa gegn Mílanó og varð jafntefli, 1:1. Bæði niörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Þessi leik I ur fór fram í Liege. Þá fór fram leikur í Borga- I keppninni á milli FC Zurioh og í Sporting Lisaboa. Lauk leiknutm i rneð sigri hinna fyrnefndu, Sviss i lendinganna, 3:0. en leikurinn fór j fram á heimavelli þeirra. ! Af öðrum kattspyrnuleikjum, i sem fram fóru í gærkvöldi, má i nefna að Fulham sigraði Sheffield : W. í 1. deildar keppninni í Eng- ; landi 2:0. Spánn vann Svíþjóð Spánverjar sigruðu Svía í lands- leik í knattspyrnu 3:1, sem háður var í Sevilla á þriðjudaginn. Sví- ar skoruðu fyrsta mark leiksins, en síðan ekki söguna meir. HESTAR A SUND Framhald af bls. 16. bóndinn þar nú sinnt gegningum án þess að fara á báti milli húsa. Ofan við Lögberg er végurinn viða undir vatni. Við Litla kaffi er vegurinn undir vatni og sama er að segja um Sandskeið. Unnið er að bráðabirgða viðgerðum á veg inum og er vonazt til að leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss opn ist síðari hluta dags á morgun fimmtudag. í dag var farið með 27 stráka á aldrinum 7 til 13 ára frá heima vistarskólanum að Jaðri. Biörgvin Sigurðsson, skólastjóri sagði Tím anum í dag, að ekki hefði verið fært að hafa börnin þar lengur Jaðar og nærliggjandi bæir hafa verið rafmagnslausir síðan kl. 17 í gærdag: og vegasambandslaus ir síðan flóðin hófust snemma í gærmorgun. Sagði Björgvin að þegar rafmagnið fór hafi skólinn einnig orðið hita og vatnslaus. Ekki var nokkur leið að koma börnunum í burtu í gærkvöldi. En í rnorgun lagði allur hópurinn að stað, ásamt starfsfólkj staðar ins, fótgangandi að Silungapolli. Fór hópurinn upp í hraunið við Heiðmörk og komst þá leiðina að Silungapolli. Þar var Guðmundur Jónasson fyrir með fjallabíl og selflutti hann börnin frá Sdunga polli og á veginn við Gunnars hólma. Þar tók rútu'bíll við þeim og flutti til Reykjavíkur. Brúin við bæinn Elliðavatn stendur enn af sér flóðin en veg urinn að henni er horfjnn beggja megin. Bíll sem reyndj að kom ast þessa leið í gær fór út af veg inum og afturendi hans á kaf í vatnið. Bílstjóranum tókst að bjarga sér til lands og í dag náð ist billinn upp og er lítið skemmd ur. í dag komust tveir jeppar að Elliðavatni og fóru þeir Vífils- staðaveginn og austan við vatnið, og er það eina leiðin sem hægt er að komast eins og er. Á Jaðri hafa litlar skemmdir orðið af vatni, en þar verður Björgvin að standa við og ausa úr kyndiklefa til að tækin þar skemm ist ekki. En hann sagði að marg ir sumarbústaðir þar í grennd væru umflotnir vatni og í sumum þeirar væri allt að 30 cm vatns borð frá gólfi. Umferð var hleypt á Krísuvík urveginn í dag, en áður var hann ekki opinn nema mjólkurbílum. TRÚLOFUNARHRINGAR — afgreiddir samdægurs. Sendum um allt land. H A L L D Ó R Skólavörðustíg 2

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.