Alþýðublaðið - 14.11.1989, Page 1
Flokksstjórn
A Iþýöuflokksins:
Vill frestun
a virðis-
aukaskatti
Á fundi sínum á laugar-
daginn var samþykkti
flokkstjórn Alþýðuflokks-
ins einróma að fresta bæri
gildistöku virðisauka-
skattsins. Fundurinn hét á
ráðherra og þingflokk að
vinna að því að gildistöku
yrði frekstað til 1. júlí
1990 þannig að tryggja
mætti viðunandi kynn-
ingu og vel heppnaða
framkvæmd.
Á sama fundi var ályktað
um máiefni Austur-Evrópu
og flokksstjórnin lýsti sig afar
ánægða með þróun mála á
þeim vettvangi, sérstaklega í
Austur-Þýskalandi, þar sem
ógnarminnismerkið um að-
skilnaðinn, sjálfur Berlínar-
múrinn, riðar til falls eftir að
hafa stíað sundur og skilið að
í 28 ár þjóðir þýska ríkisins.
Vátryggingarfélögin:
Ber að
endurgreiða
söluskatt
Fjárm^laráðherra full-
yrti í utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær að
trygg'ngafélögum bæri að
endurgreiða viðskiptavin-
um sínum söluskatt af
þeim tryggingum sem þeg-
ar hafa verið greiddar og
teygja sig yfir á næsta ár.
Vátryggingar munu ekki
að bera virðisaukaskatt en
hingað til hefur verið
greiddur 25% söluskattur
af þeim.
Það var Jóhann Einvarðs-
son úr Framsóknarflokki sem
hóf umræðuna og vildi fá
fram skýr svör við því hvern-
ig færi með þann skatt af ið-
gjöldum trygginga sem
greiddur hefði verið fyrir
næsta ár.
Jón Baldvin um gildistöku virdisaukaskattsins:
Mikilvægt að fram-
kvæmdin takist vel
Engin ástœöa til frestunar, segir Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvins-
son alþingismaður og
formaður fjárveitingar-
nefndar segist ekki sjá
nokkra ástæðu til að
fresta gildistöku virðis-
aukaskattsins, miðað við
þær upplýsingar sem
hann hefur um gang
undirbúnings í málinu.
Þetta sagði Sighvatur við
Alþýðublaðið í gær eftir
að utandagskrárumræð-
um um málið lauk á Al-
þingi í gær. Sighvatur
segir að kynningarstarf
gagnvart þeim hópum
skattgreiðenda sem
koma til með að greiða
virðisaukaskatt sé kom-
ið lengra en menn átti
sig á. Hins vegar sé alltaf
álitamál hvort og hve-
nær kynning á máli sem
þessu sé nógu góð.
Greinilegt er að nokkur
ágreiningur er innan
stjórnarflokkanna um það
hvort halda beri fast við
fyrirhugaða gildistöku
virðisaukaskattsins um
næstu áramót. í gær var
málið rætt utandagskrár á
Alþingi og svo virðist sem
meirihluti sé fyrir því á
þinginu að fresta gildistök-
unni. Jón Baldvin Hanni-
balsson sagði í umræðunni
að mikilvægast væri að
framkvæmdin yrði eins og
best væri á kosið og hann
benti á að þeir sem um mál-
ið myndu fjalla, þ.e. endur-
skoðendur og starfsmenn á
skattstofum væru ákaflega
uppteknir um áramót en
hefðu betri tíma til að fást
við málið á miðju ári.
Það var Halldór Blöndal
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins sem hóf umræð-
una í kjölfar samþykktar
flokkstjórnar Alþýðu-
flokksins á laugardaginn.
Halldór sagði að samþykkt-
in staðfesti óeiningu og
klofning meðal stjórnar-
flokkanna um málið, auk
þess sem samþykktin væri
vantraust á fjármálaráð-
herra. Halldór sagðist telja
einsýnt úr því sem komið
væri að fresta bæri gildis-
töku skattsins.
Olafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra ítrekaði
að virðisaukaskatturinn
tæki gildi um næstu ára-
mót. Framganga málsins
væri enda í samræmi við
verkáætlun. Þegar væri bú-
ið að semja tvær reglugerð-
ir og von væri á fimm á
morgun (í dag) og þremur í
næstu viku. Það væri því
ekki hægt að segja að stæði
á framkvæmdinni.
Jón Baldvin Hannibals-
son sagði að ekki væri
neinn ágreiningur innan
ríkisstjórnarinnar um skatt-
inn. Samþykkt flokkstjórn-
ar Alþýðuflokksins væri á
engan hátt vantraust á fjár-
málaráðherra. Jón Baldvin
benti hinsvegar á að enn
hefði ekki verið tekin af-
staða tii ákveðinna ágrein-
ingsmála innan stjórnar-
innar en taldi jafnframt að
það yrði ekki vandkvæð-
um bundið að ná sam-
komulagi um þau. Jón
sagði að mestu skipti að
tryggt væri að fram-
kvæmdin væri eins og best
yrði á kosið, um það snerist
málið í raun og veru. Guð-
mundur Ágústsson Borg-
araflokki sagði að hann
gæti vel unað við frestun ef
af henni leiddi að tekin
yrðu upp 2 skattþrep, Sig-
ríður Lilý Baldursdóttir
Kvennalista sagði hinsveg-
ar að fresta bæri gildistöku
virðisaukaskattsinn um
alla framtíð. Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson sagði að sér
virtist sem þetta upphlaup
krata væri til komið aðeins
vegna þess að sveitarstjórn-
armenn innan flokksins
óttuðust að það myndi
skaða málstað flokksins í
þeim sveitarstjórnarkosn-
ingum sem fram fara á
næsta ári.
Það er enn uppi ágreing-.
ur um hvaða matvörur
skuli lenda í lægra skatt-
þrepi, hvernig skuli fara
með endurgreiðslu virðis-
aukaskatts til húsbyggj-
enda og ekki er enn komin
útfærsla hvernig farið verð-
ur með skattlagningu á
sjávarútveg og landbúnað.
Einnig hafa menn ekki tek-
ið ákvörðun um hvort virð-
isaukaskattur verði lagður
á bækur, blöð, Ijósvaka-
miðla og tímarit svo nokk-
ur dæmi séu tekin.
Stungið saman nefjum við utandagskrárumrœðu á Alþingi
í gær. Fremst á myndinni getur að líta ráðherrana Jón Bald-
vin og Jón Sigurðsson. Að baki Jóni Baldvin situr Halldór
Blöndal alþingismaður sem fór fram á umræðuna um giidis-
töku virðisaukaskattsins og hvort henni verði frestað.
Lífeyrissjódur Vesturlands:
Það verður engin lögreglurannsókn
Ríkissaksóknari sér
ekki ástæðu til að láta fara
fram lögreglurannsókn á
fjárreiðum Lífeyrissjóðs
Vesturlands. Bréf þessa
efnis var fyrir helgina sent
þeim þremur verkalýðsfé-
lögum á Vesturlandi sem
kærðu lífeyrissjóðinn til
saksóknara í september.
„Ég harma það að saksókn-
ari hefur komist að þessari
niðurstöðu", sagði Jón Agnar
Eggertsson, formaður verka-
lýðsfélagsins í Borgarnesi í
samtali við Alþýðublaðið í
gær. Jón kvaðst ekki hafa
fengið úrskurðinn í hendur
fyrr en fyrir fáum mínútum
og því ekki reiðubúinn að tjá
sig um framhald málsins. Jón
sagði að í bréfi saksóknara
væri ekki minnst einu orði á
það atriði málsins sem varð-
aði ábyrgð endurskoðenda
vegna ársreikninga lífeyris-
sjóðsins fyrir árið 1984, en
þeir fengust ekki samþykktir,
vegna grunsemda um að þeir
væru rangir. Jón kvaðst enn-
fremur telja það mikilvægt að
fram færi hlutlaus rannsókn á
starfsemi fyrri ára. „Við mun-
um funda um þetta og ég býst
við að niðurstaðan verði sú
að við gerum eitthvað", sagði
hann.
Talsverð óreiða hefur ríkt í
málefnum Lífeyrissjóðs Vest-
urlands árum saman. Þannig
hefur ársreikningurinn fyrir
árið 1984 ekki fengist sam-
þykktur og reikningar ekki
verið lagðir fram fyrir árin
1985-1988. Yfirlit um
greiðslu sjóðfélaga hafa ekki
verið send út um árabil og um
fjögurra ára skeið voru ekki
haldnir fulltrúaráðsfundir. Þá
töldu kærendurnir einnig að
bókhaldsóreiðan hefði kost-
að sjóðinn verulega fjármuni
í greiðslum til endurskoð-
enda.
í úrskurði þeim sem ríkis-
saksóknari sendi frá sér fyrir
helgina, er kærunni í raun
vísað frá. Að hluta til telur
saksóknari að flestir kærulið-
ir varði innri málefni sjóðsins
með þeim hætti að „eigi
verður séð að um refsiverða
háttsemi stjórnarinnar hafi
verið að ræða. Að öðru leyti
segir saksóknari í bréfi sínu
að nú liggi fyrir ársreikningar
til ársloka 1987 og ársreikn-
ingur fyrir 1988 sé á leiðinni.
Að þessu athuguðu þykir Rik-
issaksóknara ekki efni til að
stofna til opinberrar rann-
sóknar á málefnum sjóðsins á
þeim grundvelli sem fram er
settur í kærubréfinu.
í sumar fór fram rannsókn
á fjárreiðum Lífeyrissjóðs
Vesturlands á vegum fjár-
málaráðuneytisins. Gunnar
Zoega, endurskoðandi, vann
þetta verk og skilaði skýrslu
sinni í september. Gunnar
gerði ýmsar athugasemdir
við starfsemi sjóðsins, eink-
um að því er varðaði ávöxtun
fjármagns. í skýrslu hans
kom fram að 25 milljónir af
eignum sjóðsins væru ávaxt-
aðar á almennum sparisjóðs-
bókum, en slíkar bækur gefa
iðulega af sér neikvæða raun-
vexti. Forystumenn verka-
lýðsfélaganna þriggja sem
kærðu sjóðsstjórnina til Rík-
issaksóknara, töldu skýrsl-
una þó ekki fullnægjandi og
héldu því kærunni til streitu.