Alþýðublaðið - 14.11.1989, Page 4
4
Þriðjudagur 14. nóv. 1989
Vinningstölur laugardaginn
11. nóv. ’89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 1.267.909
2. 7 62.841
3. 4af5 192 3.952
4. 3af 5 5.565 318
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.504.159 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Slys gera ekki
boð á undan sér! æssr
yUMFERÐAR
RÁÐ
Minning
Ágústa Jónsdottir
F. 11.5. 1906
„Hafðu engar áhyggjur Guðný
mín, ég tek bara aðfangadaginn
og þú tekur jóladaginn. Aramót-
unum björgum við líká'. Mamma
vann úti og kom heim á hádegi á
aðfangadag og átti þá allt eftir að
gera eins og gengur. Þannig að
hún kveið svolítið fyrir hátíðun-
um, enda orðin ekkja með okkur
systkinin. Þessi lausnarorð komu
frá verðandi tengdamóður eldri
systur minnar, — Ágústu, og þarf
ekki að orðlengja það, að svona
fóru hátíðarhöidin fram næstu
áratugi.
Ágústa er einn heilsteyptasti og
traustasti persónuleiki, sem ég hef
kynnst á ævinni. Aldrei datt af
henni eða draup, en þegar hún
kvað uppúr með eitthvað, sáu allir
á augabragði að einmitt svona átti
málið að vera. Góðmennskan,
höfðingsskapurinn og hlýjan, sem
Ijómaði af þessari konu var ein-
stök. Hún hafði sérstakt lag á
börnum og ól upp barnabörn sín
öll meira eða minna og barna-
barnabörnin áttu visst skjól hjá
henni líka.
Ágústa var gift Skarphéðni
Helgasyni togaraskipstjóra, sem
reyndist mér og systur minni eins
og besti faðir. 011 áramót upp frá
þessu, þegar Héðinn var í landi,
sátum við að spili, og rifumst svo
glæsilega um pólitík, að öllum
hurðum var lokað á okkur. Þegar
ég varð svo háseti hjá Héðni, varð
nú minni tími hjá yfirvaldinu í spil,
en þegar talið barst að nótt hinna
löngu hnífa, stóðst hann ekki mát-
ið. Hvað var líka eitt Sovéttrúboð,
uppá það að ná kapteininum í
iRússa.
- D. 1.11. 1989
Ágústa og Héðinn áttu yndislegt
heimili að Suðurgötu 83 í Hafnar-
firði. Þetta varð nú annað heimili
mitt. Eitt sinn smiðaði ég mér
kajak og réri útá Hafnarfjarðar-
höfn. Farkosturinn sökk, en ég
náði landi. Þá var ekki „Hótel
Sheraton" komið á nýju bryggjuna
í Firðinum, en veitingar Agústu
gáfu því ekkert eftir. Ef mig vant-
aði vinnu í skólafríum, þá var bara
hringt í Fjörðinn. Togari var við
bryggju og nóg að gera og síðan
veisla fyrir ungan verkamann hjá
Ágústu. Þegar systir mín og mág-
ur byggðu í „Allsleysunni" uppá
Mosabarði árið 1956 færðist vett-
vangurinn ofar í Fjörðinn, hjóna-
kornin ungu unnu úti, en Ágústa
passaði heimilið og börnin.
Ágústa er ein sautján systkina,
börn þeirra mætu hjóna Jóns Guð-
mundssonar og Ingibjargar Jóns-
dóttur á Gamla Hrauni í Árnes-
þingi. Hún var skýrð Ágústína en
jafnan kölluð Ágústa. Hún fæddist
að Framnesi, en fór fimm ára göm-
ul til Þórðar bróður síns að Bergi í
Vestmannaeyjum og þaðan til
Gíslínu móðursystur sinnar og
Árna manns hennar í Ásgarði í
Vestmannaeyjum og ólst þar upp.
Árið 1927 giftist hún Einari Guð-
bjartssyni loftskeytamanni í
Reykjavík, en hann fórst með e/s
Brúarfossi þá um sumarið. Síðan
bjó hún með Karli Rósenkjær
verslunarmanni í Vestmannaeyj-
um og er Árni sonur þeirra. Karl
dó árið 1939 og skömmu seinna
kynntist hún Skarphéðni, en þau
eignuðust sitt heim ili í Hafnarfirði.
Að Ágústu standa ýmsir glæsi-
legustu ættbogar landsins og er
skemmst að minnast Bergsættar-
innar, sem Guðni prófessor bróðir
hennar skrifaði um. Ég naut þess í
æsku að fá að kynnast sumu þessu
fólki og sonur fátækrar ekkju bað-
aði sig óspart í birtunni og gleð-
inni, sem fylgdi þessari fjölskyldu.
Einn bróðir Ágústu var Lúðvík
bakari á Selfo' si, en dóttir hans er
Ásta gift Geir Gunnarssyni alþm.
Þau byggðu lika í „Allsleysunni" á
Börðunum og með fleiri vinum og
kunningjum af Holtsgötunni og
víðar í Firðinum má segja, að
þetta hafi verið ein stór fjölskylda,
sem deildi öllum hátíðum og
uppákomum saman.
Áð leiðarlokum þakka ég
öðlingi barngæskuna, styrkinn og
gleðina. Ég votta Skarphéðni,
Árna og öllum ættingjum og vin-
um mína dýpstu samúð. Kærleik-
ans Guð hefur lagt barn sitt sér að
hjarta.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
ÞÚ SKIPULEGGUR
reksturinn á þínu heimili
Þegar kemur að afborgunum
lána er það í þínum höndum
að borga á réttum tíma.
tWp*4*
var gjalddagí húsnæðislána.
Þar með sparar þú óþarfa
útgjöld vegna dráttarvaxta,
svo ekki sé minnst á
ínnheimtukostnað.
16. nóv. leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
1. des. leggjast dráttarvextir á lán með bYggíngarvísitölu.
Greiðsluseðlar fyrir 1. nóv. hafa verið sendír gjaldendum og greiðslur má inna af hendi t öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum.
HÚSNÆÐiSSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK ■ SÍMl 696900
SMAFRETTIR
SPRONí
Kringlunni
Þriðjudaginn 14. nóvember nk.
opnar Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis afgreiðslu í Kringl-
unni 5, í nýja miðbænum.
Afgreiðslan, sem er í nýjum
aðlaðandi húsakynnum í Kringl-
unni 5, verður opin mánudaga til
föstudaga frá kl. 12.30—16.00.
Þar starfa tveir starfsmenn, sem
munu veita viðskiptavinum góða
og persónulega þjónustu.
Þriðjudaginn 14. nóvember nk.
verður opið hús í Kringlunni 5.
Fólki er boðið að koma og skoða
húsakynnin og kynnast þeirri
þjónustu sem þar fer fram.
BHM vill
bækur án
virðisauka-
skatts
Á fundi í framkvæmdastjórn
Bandalags háskólamanna 31.
október sl. var eftirfarandi álykt-
un samþykkt:
Framkvæmdastjórn Bandalags
háskólamanna skorar á stjórn-
völd að undanskilja bækur virð-
isaukaskatti við gildistöku hans
um næstu áramót.
íslensk bókmenning skipar
stærstan sess í menningararfi
þjóðarinnar. Nú á fjölmiðlaöld er
nauðsynlegt að íslensk bók-
menning dafni, en til þess þarf
verð bóka að lækka.
í íslenskri menningarumræðu
er fullt samkomulag um að bæk-
ur séu megin forsenda almennr-
ar og sérhæfðrar menntunar
þjóðarinnar. Þess vegna er nauð-
synlegt að verðlagi bóka sé hald-
ið eins lágu og unnt er og hlýtur
niðurfelling skatta að vera raun-
hæfasta viðurkenning stjórn-
valda á því.