Alþýðublaðið - 14.11.1989, Page 5
Þriðjudagur 14. nóv. 1989
5
FRÉTTASKÝRING
Stœrstu fyrirtœki landsins 1979—1988:
Verður Hagkaup arftaki SÍS?
SÍS er ekki lengur yfirburdafyrirtæki íslensks viöskiptalífs. Veltan hefur
minnkaö um 9 milljaröa og hiö sama er aö segja um olíufélögin. Hagnaöur
20 stœrstu fjármálafyrirtœkjanna varö yfir 2 milljaröar króna á síöasta ári.
Samband íslenskra samvinnufélaga er ekki lengur yfir-
burðafyrirtæki í íslensku viðskiptalífi. Árin 1981 og 1984
velti SIS 71—72% fleiri krónum en næsta fyrirtæki, en 1988
var hlutfall þetta komið niður í rúm 17%. Um leið fjarlægð-
ust stærstu kaupfélögin efstu sætin á lista Frjáisrar versl-
unar yfir stærstu fyrirtæki landsins á síðasta ári.
Meðfylgjandi tafla sýnir saman-
tekt á 20 stærstu fyrirtækjum
landsins síðastliðin 10 ár, að und-
anskildum nokkrum opinberum
stofnunum. SÍS er ennþá efst á
blaði, en meðal samvinnufyrir-
tækja sem voru meðal 20 stærstu
fyrirtækja fyrir 9—10 árum en eru
nú horfin af listanum eru Sláturfé-
lag Suðurlands, Kaupfélag Borg-
firðinga, Mjólkurbú Flóamanna,
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga og
Osta- og smjörsalan.
Hagkaup nálgast toppinn
óðfluga
Það fyrirtæki sem á síðustu ár-
um hefur náð lengst í að nálgast
toppinn er Hagkaup. Á fáum árum
hefur verslun þessi orðið að stór-
veldi, birtist fyrst á lista okkar
1981 i 20. sæti, en er nú í 8. sæti og
kemst raunar upp fyrir ÍSAL ef
dótturfyrirtækið Miklatorg/IKEA
er lagt við, þar sem veltan var 985
milljónir að núvirði á síðasta ári.
Önnur ný fyrirtæki á listanum
miðað við fyrri ár eru Mikligarð-
ur/KRON, Hekla og Aðalverktak-
ar, þar sem veltan minnkaði
reyndar talsvert 1988.
Annað stærsta fyrirtæki lands-
ins taldist Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, sem oftast áður. 1 þriðja
og fjórða sæti komu Landsbanki
og Flugleiðir, sem markar engin
tímamót. Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda (SÍF) voru í
fimmta sæti og Kaupfélag Eyfirð-
inga Akureyri (KEA) heldur sínu
sjötta sæti, enda gætti þar á bæ
ekki sama samdráttar og hjá öðr-
um samvinnufyrirtækjum.
Olíufélögin þr jú juku veltu sína á
síðasta ári, eftir að hún hafði farið
minnkandi um skeið. Velta þeirra
varð að núvirði 16,4 milljarðar
króna á síðasta ári, en 15,5 millj-
arðar árið áður. Á síðasta áratug
náði velta þeirra hámarki árið
1982, en þá var hún 24,9 milljarð-
ar króna. í fyrra var veltan því 8,5
milljörðum lægri en þegar best
lét, sem er samdráttur um 34%.
Olíufélögin
Litlar breytingar hafa hins vegar
orðið á markaðshlutdeild olíufé-
laganna innbyrðis. Olíufélag sam-
vinnumanna, EISSO, hefur haft
40-44%, Skeljungur (SHELL)
31-33% og OLÍS 24-25%. Örlítið
lif færðist þó í „samkeppnina“ eftir
að Óli Sigurðsson keypti OLÍS og á
síðasta ári juku ESSO og OLÍS hlut-
deild sína á kostnað SHELL.
Velta banka hefur verið nokkuð
sveiflukennd síðustu árin í kjölfar
breytinga og aukinnar sam-
keppni. Velta þeirra náði hámarki
árið 1983, en árið eftir tóku gildi
breytingar sem höfðu mikil
sveifluáhrif. Af veltu Landsbank-
ans að dæma eru bankarnir óðum
að ná sér eftir samdráttarárin
1984 og 1986.
Af landsins stærstu fyrirtækjum
sem náðu að auka veltu sina um-
talsvert að raungildi i fyrra má
nefna Landsbankann, Hagkaup,
Búnaðarbankann, ESSO, Lands-
virkjun, Útvegsbankann, OLÍS,
lðnaðarbankann, Járnblendifé-
lagið, Iðnlánasjóð, Sjóvá, Síldar-
verksmiðjur ríkisins, Brunabótafé-
lagið, Andra hf, Arnarflug, ístak
og Nóatún hf.
Hlutfallsleg aukning veltu varð
hins vegar mest hjá Féfangi hf eða
326%, hjá Rafveitu Siglufjarðar
319% og hjá lcecon 278%.
20 fésýslufyrirtæki
græddu 2 milljaröa
Fyrirtæki sem minnkuðu hvað
mest að umfangi voru SIS, Aðal-
verktakar, Mjólkursamsalan, Slát-
urfélagið, Osta- og smjörsalan,
Kaupfélag Skagfirðinga, Grandi
hf, Hagvirki, Heildverslun Ingvars
Helgasonar, Áburðarverksmiðj-
an, Sveinn Egilssqn og Bílaborg.
Að vanda skar ÁTVR sig úr hvað
gróða varðar, enda einstætt fyrir-
tæki og vart samanburðarhæft.
Hagnaðurinn á síðasta ári nam
tæpum 4 milljörðum króna. Ann-
ar mesti hagnaður ársins varð hjá
Flugleiðum, 806 milljónir. í næstu
sætum komu Póstur og sími, ÍSAL
og Járnblendið með 480—540
milljónir. Sé litið á hagnað sem
hlutfall af veltu er ÁTVR enn efst
með 54,6%, en siðan koma Við-
lagatrygging islands með 39,9%,
LOTTÓ með 32,2%, Frihöfnin
með 25,7% og Kaupþing með
23,4%.
Við samanburð á fyrirtækjum á
lista Frjálsrar verslunar kemur
glögglega í Ijós að enn einu sinni
er það fésýslan sem er farsælust
atvinnugreina þessi misserin.
Undantekningarlaust komu fjár-
málafyrirtækin út með hagnaði á
síðasta ári og mikla aukningu á
veltu. Hagnaður 20 umfangs-
mestu fjármálafyrirtækjanna á
síðasta ári, þar sem er að finna
viðskiptabankana, stærstu spari-
sjóðina, nokkra fjárfestingalána-
sjóði og fyrirtæki „gráa markaðar-
ins", nam rúmum 2 milljörðum
króna á verðlagi síðasta árs.
hafa dregist saman
Þrátt fyrir glæsilegar nýjar höfuöstöðvar blasir viö Sambandinu talsverður
samdráttur i veltu og hugsanlega fall af tindi islensks viöskiptalífs i náinni
framtíð.
20 stærstu fyrirtæki íslands 1979—1988
— Velta í milljónum króna á verölagi í nóvember 1989 —
1979
1. SÍS 28.660
2. SH 20.410
3. Flugleiðir 10.450
4. Landsbanki 9.830
5. ESSO 9.810
6. ÍSAL 9.465
7. KEA 9.210
8. SÍF 8.785
9. SHELL 7.800
10. OLÍS 6.585
11. Mjólkursamsalan 6.155
12. Eimskip 5.375
13. Sláturfélagið 4.730
14. Síldarv. ríkisins 4.010
15. Kaupfélag Borgf. 3.480
16. Búnaðarbanki 3.210
17. Mjólkb. Flóamanna 3.135
18. KASK 2.645
19. Útgfélag. Ak. 2.645
20. Útvegsbanki 2.600
1984
1. sls 26.740
2. SH 15.520
3. Flugleiðir 13.020
4. Landsbanki 11.900
5. ÍSAL 11.035
6. ESSO 10.435
7. KEA 8.445
8. SÍF 8.005.
9. SHELL 7.340
10. Eimskip 6.460
11. OLÍS 5.930
12. Sláturfélagið 4.285
13. Búnaðarbanki 4.175
14. Mjólkursamsalan 4.030
15. Járnblendið 3.800
16. Útvegsbanki 3.765
17. Hagkaup 3.655
18. Síldarútv.nefnd 3.525
19. Kaupfélag Borgf. 3.100
20. Kaupfélag Skagf. 2.940
1980
1. SÍS 27.660
2. SH 1&340
3. Landsbanki 12.030
4. ÍSAL 10.520
5. SÍF 10.485
& ESSO 10.455
7. KEA 8.585
8. Flugleiðir 8.255
9. SHELL 7.925
10. Mjólkursamsala 6.355
11. OLÍS 6.320
12. Eimskip 6.240
13. Sláturfélagið 4.730
14. Búnaðarbanki 4.110
15. Síldarv. ríkisins 3.620
16. Kaupfélag Borgf. 3.420
17. Osta & smjörsalan 3.205
m Utvegsbanki 2.995
19. Mjólkb. Flóamanna 2.990
20. Utgfélag Ak. 2.650
1985
1. SÍS 27.605
2. SH 17.405
3. Landsbanki 14.920
4. Flugleiðir 13.540
5. ESSO 9.810
6. SÍF 9.320
7. KEA 8.760
8. ÍSAL 8.345
9. SHELL 7.630
10. Eimskip 6.355
11. Búnaðarbanki 6.245
12. OLÍS 5.590
13. Útvegsbanki 4.945
14. Sláturfélagið 4.880
15. Hafskip 4.495
16. Mjólkursamsalan 4.205
17. Hagkaup 3.910
ia Osta & smjörsalan 3.575
19. Síldarv. rikisins 3.400
20. Kaupfélag Borgf. 3.090
1981
1. sis 26.590
2. SH 15.535
3. Landsbanki 13.235
4. SÍF 13.090
5. ESSO 10.490
6. KEA &840
7. Flugleiðir 8.810
8. SHELL 8.270
9. ÍSAL 8.100
10. Eimskip 7.250
11. Mjólkursamsala 6.760
12. OLÍS 6.000
13. Búnaðarbanki 4.790
14. Sláturfélagiö 4.775
15. Saml. skreiðarf. 3.620
16. Kaupfélag Borgf. 3.420
17. Útvegsbanki 3.305
18. ísl. umboðssalan 3.300
19. Síldarv. ríkisins 3.115
20. Hagkaup 2.960
1986
1. sis 30.055
2. SH 19.080
& Flugleiðir 12.605
4. SÍF 11.776
5. Landsbanki 10.385
6. KEA &970
7. ÍSAL 7.895
8. ESSO 7.780
9. Eimskip 7.100
10. SHELL 5.550
11. Hagkaup 4.955
12. Sláturfélagið 4.900
13. Búnaðarbanki 4.525
14. Mjólkursamsalan 4.500
15. OLÍS 4.290
16. Aðalverktakar 3.715
17. Útvegsbanki 3.635
18. Osta & smjörsalan 3.615
19. Kaupfélag Borgf. 3.020
20. Kaupfélag Skagf. 2.910
1982
1. SÍS 26.675
2. Landsbanki 16.755
3. SH 14.730
4. SÍF 13.210
5. Flugleiðir 11.790
6. ESSO 10.830
7. KEA 9.000
8. ÍSAL &375
9. SHELL 8.115
10. Eimskip 7.025
11. OLÍS 5.945
12. Búnaðarbanki 5S05
13. Útvegsbanki 5.090
14. Slátu rfélagið 4.720
15. Mjólkursamsalan 4.365
1& Kaupfélag Borgf. 3.450
17. Hagkaup &090
18. Osta & smjörsalan 3.025
19. Aöalverktakar 2855
20. Mjólkb. Flóamanna 2.850
1987
1. SÍS 28.560
2. SH 18.790
3. Landsbanki 13.560
4. Flugleiðir 13.405
5. SÍF 1&290
& KEA 9.335
7. ÍSAL 8.005
8. Eimskip 7.205
9. ESSO 6.505
10. Hagkaup 6.205
11. Búnaðarbanki 6.175
12. Sláturfélagið 5.335
13. SHELL 5.160
14. Mjólkursamsalan 4.480
15. Aðalverktakar 4.465
16. Osta & smjörsalan 3.910
17. OLIS 3850
18. iðnaðarbanki 3.655
19. Hekla 3.560
20. Kaupfélag Skagf. 3.435
1983
1. SÍS 28.660
2. Landsbanki 18.310
3. SH 17.655
4. Flugleiðir 12.885
5. ÍSAL 11.070
6. ESSO. 10.860
7. SÍF 9.370
8. KEA 8.860
9. SHELL 7.710
10. Eimskip 7.080
11. Búnaðarbanki 6.240
12. OLÍS 6.060
13. Útvegsbanki 5.580
14. Sláturfélagið 4.305
15. Mjólkursamsalan 4.035
16. Hagkaup 3.395
17. Aðalverktakar 3.345
18. Kaupfélag Borgf. 3.310
19. Osta & smjörsalan 2.735
20. Járnblendið 2.680
1988
1. SÍS 21.100
2. SH 17.970
3. Landsbanki 15.745
4. Flugleiðir 12.215
5. SÍF 11.590
6. KEA 9.115
7. ÍSAL 9.015
8. Hagkaup 8.085
9. Búnaöarbanki 7.295
10. ESSO 7,190
11. Eimskip 6.260
12. SHELL 4810
13. Útvegsbanki 4.495
14. OLÍS 4.425
15. Iðnaðarbanki 4.255
16. Mikligarður/KRON 4.030
17. Hekla 3.675
18. Aðalverktakar 3.660
19. Mjólkursamsalan 3.450
20. Járnblendifélag 3.315
Skýringar: Veltutölur eru fengnar úr
árlegu yfirliti tímaritsins Frjálsrar
verslunar. Allar tölur hafa verið fram-
reiknaðar samkvæmt framfærslu-
vísitölu til vísitölustigs í nóvember
1989 (miðaö við meðalvísitölu hvers
árs). Nokkrum opinberum fyrirtækj-
um með ótvíræða sérstöðu hefur
verið sleppt af listunum. Þetta eru
ÁTVR, Póstur og sími, Landsvirkjun,
Fiskveiðasjóður, Rafmagnsveitur
ríkisins og Rafmagnsveitur Reykja-
víkur. SH stendur fyrjr Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. SÍF stendur fyrir
Sölusamband íslenskra fiskfram-
leiðenda. KASK stendur fyrir Kaup-
félag austur Skaftfellinga. Saml.
skreið. stendur fyrir Samlag skreið-
arframleiðenda.