Alþýðublaðið - 04.01.1990, Page 6

Alþýðublaðið - 04.01.1990, Page 6
6 Fimmtudagur 4. jan. 1990 Erfiðleikar okkar* • • Framh. af bls. 4. úthluta í samræmi við raunveru- lega byggðaáætlun eða þeir leigja siíkar heimildir út tímabundið til tekjuöflunar. Flestum ætti að vera Ijóst að við getum ekki haldið í nú- verandi atvinnustefnu, haldið vonlausum fyrirtækjum í rekstri með niðurfærslum skulda eða víkjandi lánum sem eru oftast beinir styrkir. Hér eru breytingar óumílýjaniegar en aiiir sijórn- málaflokkar eiga það sameigin- legt að forðast að ræða slíkt þótt brýnt væri. Slíkar byggðabreytingar ættu að leiða til betri lífskjara allra lands- manna, ekki síst hjá landsbyggða- mönnum sem fengju betri þjón- ustu og tryggari atvinnu í stærri byggðakjörnum eða bæjarfélög- um. Annað vandamál í íslenskri atvinnuþróun er hröð og illa undirbúin uppbygging nýrrar atvinnustarfsemi þar sem ríkir kappsemi fremur en skyn- semi. Þegar iðnaðarþjóðfélög byggja upp nýjan atvinnurekstur þá gefa menn sér tíma til að afla nauðsynlegrar þekkingar, kanna forsendur og þær aðstæður sem gætu gefið nýrri framleiðslu og nýjum fyrirtækjum rekstrargrund- völl. Við hins vegar sleppum slíku rannsókna- og þróunarstigi en hefjum framleiðslu í fjölda fyrir- tækja án þess að þekkja þann grundvöll sem atvinnustarfsemin hvílir á. Menn verða svo undrandi og vonsviknir þegar atvinnurekstur- inn mistekst og fyrirtækin verða gjaldþrota, þá er þetta kölluð til- raunastarfsemi. Slíkt vinnulag er ekki viðhaft af þeim sem kunna til verka, tilraunir eru ekki geröar á þennan hátt, til þess eru þær of dýrar. Tilraunir eru gerðar til að svara vel skilgreindum spurning- um, einni af annarri, af þolin- mæði uns nauðsynlegur þekking- argrunnur er fyrir hendi til að byggja atvinnustarfsemina á. Slík mistök gerum við i raun aftur og enn á ný, en lærum ekki af fyrri mistökum, af þeirri kostnaðar- sömu reynslu að rannsókna- og þróunarstarfsemi er nauðsynlegur liður og mikilvægt skref í upp- byggingu nýrra framleiðslufyrir- tækja. Atvinnustefna undanfarinna ára, þ.e. rekstur vonlausra fyrir- tækja um dreifðar og fámennar byggðir landsins ásamt illla undir- búinni uppbyggingu nýrrar at- vinnustarfsemi að viðbættri of- framleiðslu í landbúnaði er mikil- vægur þáttur efnahagsvandans og versnandi lífskjara. Með slíkri at- vinnustefnu verða lífskjörin ekki bætt, slík atvinnustefna sogar æ meir til sín af ríkistekjum. Slík só- un á orku og atgervi landsmanna torveldar í raun eðlilegan fram- gang nýrra viðfangsefna, hvort heldur á sviði atvinnu- eða vel- ferðarmála. Nú um jólin minntumst við fæðingar frelsarans og boðskaparins um frið á jörðu. Frelsisbarátta Austur- Fvrópuþjóða hefur átt óskipta at- hygli heimsbyggðarinnar nú síð- ustu daga og vikur. Það frelsi sem Kristur veitir er af öðrum toga, það er frelsi frá mannlegum veik- leika, frá ágirnd og öfund, frá hatri og öðru því sem þjakar mannssál- ina. Frelsi Krists er hið andlega frelsi einstaklingsins. Við ræðum oftar um annarskon- ar frelsi, um þjóðfrelsi og við- skiptafrelsi ýmisskonar, um ein- staklingsfrelsi til athafna en við ræðum ekki um þá fjötra sem Kristur vill leysa með kærleika. Vonandi tekst okkur að nálgast hið andlega frelsi á nýju ári. Mér hefur orðið tíðrætt um menntun og mannúðar- mál, um atvinnumál og byggðaþróun. Þessir þræðir eru litsterkir í menningarvef íslensku þjóðarinnar og gefa tilverunni lif og lit. Við eigum að vísu í erfiðleik- um, við erum ráðvillt en við verð- um og munum ná áttum á ný. Afram munum við deila um leiðir að markmiðum en markmið okk- ar er þó hið sama, að skapa betra líf í lýðfrjálsu landi. Ég óska ykkur öllum árs og frið- ar á nýju ári. Verkalýös- og stjórnmálanefnd SUJ: Kaupmátturinn þegar i stað aukinn SMAFRETTIR Ljoðatonleikaroð stendur nú yfir í Gerðubergi. Verkalýðs- og stjórnmála- nefnd Sambands ungra jafnaðar- manna hefur samþykkt ályktun þar sem meðal annars er lýst þungum áhyggjum vegna þeirr- ar kaupmáttarrýrnunar sem al- mennt launafólk hefur mátt þola frá undirritun síðustu samninga og beinir því til ráðherra AI- þýðuflokksins að leggja fyrir ríkisstjórnina ákveðnar tillögur sem megi auka kaupmátt að nýju. I ályktuninni segir m.a.: „Nefndin leggur áherslu á að ráðstöfunartekj- ur heimilanna verði auknar, meðal annars með því að tekjuskattur á al- mennum launatekjum verði afnum- inn í áföngum, í samræmi við stefnu flokksins. Stórt skref í þá átt verði tekið með stórhækkun persónuaf- sláttar og hækkun á tekjumörkum barnabótaauka. Til að mæta þeim tekjumissi sem ríkissjóður verður fyrir vegna lækk- unar á skatttekjum þessum leggur nefndin til að lagður verði á sérstak- ur hátekjuskattur og sérstakur tíma- bundinn stóreignaskattur. Raun- vaxtatekjur verði skattlagðar eins og gert er við aðrar fjármagnstekjur og launatekjur. Skattadómstóll verði stofnaður og skattsvik með- höndluö sem auðgunarbrot. Þá leggur nefndin til að skorið verði niður í ríkisrekstri og dregið úr millifærslum til velferðarríkis fyr- irtækjanna (sjóðakerfi, styrkir o.s.frv.). Þess í stað verði fyrirtækj- um gefinn kostur á að auka eigið fé sitt, meðal annars með því að gera það að arðvænlegum kosti fyrir al- menning að eignast hlutabréf í fyrir- tækjum landsins. A þann hátt verði um leið stuðlað að valddreifingu innan fyrirtækjanna og hlutur launafólks við stjórnun þeirra auk- inn. Nauðsynlegur liður í þessu sam- bandi er að opna fyrir möguleika á erlendri lántöku og eigin fjáröflun erlendis frá. Um leið verði skjótt og markvisst dregið úr beinum og óbeinum ríkisábyrgðum. Ríkið beiti sér fyrir uppstokkun á núverandi landbúnaðarkerfi og stuðli að nýju kerfi, sem hafi hags- muni þjóðarheildarinnar að leiðar- Ijósi, en ekki hagsmuni úrelts milli- liðakerfis. Nefndin gerir kröfu um að komið verði á svæðaskiptingu mjólkur- og sauðfjárframleiðslu. Þá kröfu verður að gera til nýs land- búnaðarkerfis, að búvörur lækki umtalsvert til neytenda og framlög skattgreiðenda til landbúnaðarmála lækki verulega frá því sem nú er. Það er forsenda þess að sátt náist um að íslenskur landbúnaður haldi velii. Nefndin leggur höfuðáherslu á að i komandi kjarasamningum veröi kaupmáttur launafólks aukinn til muna, en þó einkum kaupmáttur láglaunafólks." Ljóðatónleikar í Gerðubergi Þriðju tónleikar í Ijóðatónleika- röð Gerðubergs verða mánudag- inn 8. janúar kl. 20.30. John Speight, bariton, syngur við undirleik Jónasar Ingimundar- sonar. A þessum tónleikum verður fluttur lagaflokkur eftir B. Britten svo og sönglög eftir Pur- cell, H. Wolf, F. Schubert, R. Schumann, C. Ives o.fl. John Speight stundaði tónlist- arnám við Guildhall Scholl of Music and Drama 1964—72, einnig nam hann tónsmíðar hjá Richard Rodnei Bennet. Hann hefur sungið víða á Englandi og Irlandi bæði í óratoríum, óperum og á Ijóðatónleikum. John hefur tekið þátt í mörgum óperusýn- ingum bæði í Þjóðleikhúsinu og Islensku óperunni. Auk söngsins er John afkastamikið tónskáld. Hann kennir við Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar. 3 sýningar á Kjarvals- stöðum Laugardaginn 6. janúar verða opnaðar þrjár sýningar að Kjar- valsstöðum. í austursal verður opnuð sýn- ing á verkum J.S. Kjarval í eigu Reykjavíkurborgar. í vestursal sýnir Margrét Jóns- dóttir olíumálverk. í vesturforsal sýna Helgi Þor- gils Friðjónsson og Hallgrímur Helgason portrett. Kjarvalsstaðir eru opnir dag- lega frá kl. 11.00 til 18.00 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Gamla Kompaníið hf. og Kristján Siggeirsson hf. sameinast Fimmtudaginn 21. desember 1989 var stofnað nýtt fyrirtæki í húsgagnaiðnaði, gks hf. Að stofnun hins nýja fyrirtækis standa fyrirtækin Gamla Komp- aníið hf. og Kristján Siggeirsson hf., en þessi fyrirtæki hafa starfið síðan 1908 og 1919. Þróunarfé- lag íslands er einnig stofnaðili að hinu nýja fyrirtæki, en Félag ís- lenskra iðnrekenda hefur aðstoð- að við undirbúning. Hið nýja fyr- irtæki, gks hf. mun um áramót yfirtaka alla framleiðslu Gamla Kompanísins hf. og Kristjáns Siggeirssonar hf. „Tilgangurinn með sameining- unni er að koma á fót einu öfl- ugu fyrirtæki sem á arðsaman hátt byggir á hönnun, fram- leiðslu, kaupum og sölu á hús- gögnum, innréttingum svo og öðrum skyldum vörum og þjón- ustu," segir í frétt frá gks. hf. Hlutafé hins nýja fyrirtækis er ákveðið 82,5 milljón króna og eru þegar fengin hlutafjárloforð fyrir um 75 milljónum króna. Af- gangurinn 7,5 milljónir verður seldur á næstu vikum á opnum markaði. í samþykktum hins nýja félags eru engar kvaðir lagðar á viðskipti með hlutabréf félagsins og við það miðað aö þau verði skráð á opnum hluta- bréfamarkaði í framtíðinni. Nýr opnunartími Listasafns íslands Listasafn íslands vill vekja at- hygli á breyttum opnunartíma safnsins. Til að koma á móts við óskir gesta mun safnið fram- vegis vera opið alla daga nema mánudaga, kl. 12.00—18.00. Veit- ingastofa safnsins er opin á sama tíma. Sýning á íslenskri myndlist 1945—1989 í eigu safnsins, stendur nú yfir í öllum sýningar- sölum. Aðgangur er ókeypis svo og að auglýstum leiðsögnum. Ættarskömm Bach- ættarinnar í Norræna Það verður lítið um dýrðir í Norræna Húsinu fimmtudags- kvöld kl. 20.30. Þá mun söng- hópurinn Emil ásamt Önnu Siggu og vel völdum hljóðfæra- leikurum þó reyna að gera sitt besta í að túlka „tónlist" ættar- skammar Bach-fjölskyldunnar, P.D.Q. Bachs (1807—1842?)! Listrænum hæfileikum P.D.Q., yngsta og sísta syni Jóhann Sebastians Bach, er best lýst með því að segja að það sé hin mesta óheppni að latneska orða- sambandið „DIABOLUS in MUSICA" hafi verið tekiö í notkun á tímum P.D.Q., (það hefði verið ákjósanlegast viður- nefni fyrir hann). Honum var lýst af bræðrum sínum sem bólu á andliti tónlistarinnar! Eftirlifandi afkomendur Bachs reyndu þar af leiðandi að útmá öll verksummerki um tilvist hans þegar hann dó. Þó ekki með betri árangri en svo að bandar- íski hljómfræðingurinn og préd- ikarinn Peter Schickele fann nokkur handrit af verkum hans og ákvað að helga líf sitt rann- sóknum á lífi og verkum P.D.Q. Bachs. Peter hefur nú skrifað ævisögu P.D.Q. og staðið að út- gáfu og hljóðritun fjölda verka hans. Uppfærsla á nokkrum af þess- um verkum fer sem áður segir fram í Norræna húsinu firhmtu- daginn 4. janúar kl. 20.30. Ekki er mælt með þessari uppákomu fyrir viðkvæmar eða veikar sálir! Jólatrésskemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miöaverð fyrir börn kr. 500 og fyrirfulloröna kr. 200. Miðar eru seldir á skrifstofu VR, Húsi verslunarinn- ar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.