Alþýðublaðið - 24.01.1990, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 24. jan. 1990
SMÁFRÉTTIR
jr
Alyktun um
orkufrekan
iðnað
Vegna þeirrar umræðu um
staðarval álvers, sem verið hef-
ur að undanförnu, vill hrepps-
nefnd Reyðarfjarðarhrepps
koma eftirfarandi sjónarmiðum
sínum á framfæri.
1. Nýtt álver kallar á virkjun í
Fljótsdal. Hreppsnefnd telur að
nýta beri meginhluta orku
fjórðungsins innan hans enda
ástæðulaust að flytja orkuna
lengra en þörf er. Hreppsnefnd
óttast, að verði meginhluti ork-
unnar fluttur burtu, nú í þess-
um áfanga verði haldiö áfram á
þeirri braut.
2. Reyðarfjörður uppfyllir vel
þau skilyrði sem þurfa að vera
til staöar fyrir stóriðnað. Flutn-
ingslínur frá virkjunum geta
vart verið styttri, samgöngur á
landi allgóðar, stutt á væntan-
legan alþjóðaflugvöll. Landrými
til iðnaðar nægilegt og einnig
fyrir íbúðabyggð. Hafnarskilyrði
ein hin bestu á landinu og lík-
lega hvergi ódýrara að byggja
höfn. Sigling til Evrópu er u.þ.b.
sólarhring skemmri hvora leið
en frá Faxaflóa. Hafíshætta
hverfandi.
3. Hreppsnefnd Reyðarfjarð-
arhrepps mótmælir þeirri skoö-
un, sem oft er haldið fram, að
fámenni Reyðarfjarðar og
næstu nágrannabyggða útiloki
nánast að reisa fyrirtæki á borð
við álver þar. Hreppsnefnd hef-
ur mun meiri áhyggjur af áhrif-
um stöðnunar á svæðinu en af
■tímabundnum þensluáhrifum,
sem vissulega mundu leiða af
byggingu stórfyrirtækis, og lýs-
ir sig reiðubúna til að leysa þau
vandamál í samvinnu við ná-
grannabyggðir.
Ungir leik-
stjórar þreyta
frumraun sína
með reynd-
ustu leikurum
Þjóðleik-
hússins
Dagskrá með smáverkum er-
lendra afbragðshöfunda verður
sýnd á stóra sviði Þjóðleik-
hússins áður en því verður lok-
að vegna viðgerða í febrúar.
Þessi dagskrá verður byggö
upp á örstuttum leikritum og
Ijóðum eftir nokkra merkishöf-
unda, sem sumir hafa aldrei
verið kynntir fyrir íslenskum
leikhúsgestum. Á meðal höf-
unda eru Peter Barnes, Michel
de Ghelderode, Eugene lon-
esco, David Marmet, William
Shakespeare og Harold Pinter.
Tónlist semur Jóhann G. Jó-
hannsson.
Tveir leikendanna hættu í
vetur sem fastráðnir leikarar
við húsið og fóru á eftirlaun.
Þeir Bessi Bjarnason og Rúrik
Haraldsson Fjórir þeirra voru
með í opnunarsýningum húss-
ins og eiga því 40 ára starfs-
afmæli, þau Baldvin Halldórs-
son, Bryndís Pétursdóttir, Her-
dís Þorvaldsdottir og Róbert
Arnfinnsson. Auk þeirra leika
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Arnar Jónsson, Bríet Héðins-
dóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir o.fl.
Leikstjórar eru fjórir talsins,
allt ungt fólk sem nýlega hefur
lokið sérnámi í leikstjórn og
þreytir þarna frumraun sína í
Þjóðleikhúsinu. þar með er
stefnt saman þeim leikurum
sem verið hafa burðarásar
Þjóðleikhússins í 40 ár og
yngstu kynslóð leikstjóra, sem
vænta má að láti til sín taka í
framtíðinni. Leikstjórarnir eru
Hlín Agnarsdóttir, sem hefur
yfirumsjón með dagskránni,
Ásgeir Sigurvaldason, Ingunn
Ásdísardóttir og Sigríður M.
Guðmundsdóttir.
Gunnar Bjarnason, yfirleik-
myndateiknari Þjóðleikhússins
hannar leikmynd og búninga.
Æfingar eru þegar hafnar og
eru sýningar ráðgerðar 15., 17.
og 18. febrúar.
* Krossgátan
1 r-1 i.n
5 c
6 7
é 9
10 □ n
□ Í2l
13 "J
Lárétt: 1 stybba, 5 kappsöm, 6
skjól, 7 tón, 8 ógilda, 10 eins, 11
tíndi, 12 svipað, 13 skaða.
Lóðrétt: 1 fönn, 2 hlíf, 3 reið, 4
vesalast, 5 sífellt, 7 fyrirhöfn, 9
kvenmannsnafn, 12 kusk.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 gjörn, 5 slár, 6 ver, 7 Sl,
8 einatt, 10 ið, 111 lóa, 12 ælir, 13
natin.
Lóðrétt: 1 gleiö, 2 járn, 3 ör, 4
neitar, 5 sveinn, 7 stóin, 9 Alli, 12
æt.
RAÐAUGLÝSINGAR
Rekstur kaffistofu
Stjórn Hafnarborga, menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar auglýsir eftir tilboðum í rekstur kaffi-
stofu hússins.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður.
Tilboð þurfa að berast skrifstofu Hafnarborgar,
Strandgötu 34, Hafnarfirði fyrir 10. febrúar nk.
Stjórn Hafnarborgar.
5000 SÆNSKAR KRÓNUR
5000 SÆNSKAR KRÓNUR
á viku eða jafnvel meira. Stórkostleg söluhugmynd
fyrir alla fjölskylduna.
Við bjóðum upp á góða samvinnu, þar sem við
munum vinna samhliða undir stjórn samtaka okkar.
Þú getur unnið heima, og við krefjumst engrar
reynslu.
Þú ákveður sjálf/ur vinnutíma þinn.
Vinnan felst í að skrifa heimilisföng og að pakka inn
pökkum til viðskiptavina í Evrópu.
Þú færð stöðuga aðstoð frá fyrirtæki okkar.
Þú þarft að leggja fram 16.500 sænskar krónur sem
byrjunarfjármagn. Við sjáum um allt sem þú þarfn-
ast.
Leyfðu okkur að segja þér frá meiru varðandi þetta.
Skrifaðu til okkar upplýsingar og fáðu nánari upp-
lýsingar.
HERMENT AB,
Box 5044,
S-123 05 FARSTA 5,
Sverige.
„Égheld
ég gangí heim“
Eftireinn -ei aki neinn
mÉUMFERÐAR
V RÁÐ
.Flokkætarfið
Alþýðuflokksfólk á Selfossi
Almennur félagsfundur verður haldinn fimmtudag-
inn 25. janúar kl. 20.30 í húsi Verkalýðsfélagsins
Þórs við Eyrarveg.
Fundarefni:
1. Bæjarstjórnarkosningar
2. Alþýðuflokksfélag fyrir Árborgarsvæði
3. Önnur mál
Stjórnin.
OPIÐ PROFKJOR
ALÞÝÐUFLOKKSINS í KÓPAV0GI
verður haldið dagana 24.—25. febrúar 1990.
Framboðsfrestur er til 5. febrúar nk. kl. 20.30.
Kosið verður um sex efstu sæti framboðslistans.
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar,
Steingríms Steingrímssonar, Hátröð 6, s. 43981 fyr-
ir lok framboðsfrests.
Framboði skal fylgja listi 10 meðmælenda, sem eru
flokksbundnir Alþýðuflokksmenn.
22. janúar 1990,
Kjörstjórn.
Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur fund í Alþýðuhúsinu
Strandgötu 32, mánu-
daginn 29. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Skipulagsmál.
Framsaga: Sigþór Jóhannesson
og Jóna Ósk Guðjónsdóttir
Fundarstjóri: Valgerður Guðmundsdóttir.
Allt Alþýðuflokksfólk er hvatt til að mæta á fundinn.
Bæjarmálaráð.
KRATAKAFFI
Byrjum aftur af fullum krafti eftir
jólafrí.
Næsti fundur miðvikudag 24.
janúar næstkomandi kl. 20.30 í
Félagsmiðstöð jafnaðarmanna
Hverfisgötu 8—10.
Gestur fundarins verður Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokks-
ins.
MÆTUM ÖLL.
Stjórn Alþýóuflokksfélags Reykjavíkur
HAPPDRÆTTI
Dregið hefur verið í Happdrætti Fulltrúaráðs Al-
þýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
Upp komu eftirtalin númer:
1. vinningur 1265
2. vinningur 179
3. vinningur 1985
4. vinningur 436
5. vinningur 552
6. vinningur 164
7. vinningur 1063
8. vinningur 833
9. vinningur 806
10. vinningur 932
Allar upplýsingar á skrifstofu Alþýðuflokksins sími
29282.
Almennir
stjórnmálafundir
með Jóni Sigurðssyni, viðskipta-
ráðherra og iðnaðarráðherra og
Jóni Sæmundi Sigurjónssyni al-
þingismanni, verða haldnir á eftir-
töldum stöðum:
Sauðárkróki laugardaginn 27.
janúar, í Safnahúsinu kl. 17.00.
Skagaströnd sunnudaginn 28.
janúar, í Fellshorg kl. 16.00.
Alþýðuflokkurinn.