Alþýðublaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 27. apríi 1990
3
Lafontaine, kanslaraefni vestur-þýskra jafnaöarmanna á batavegi
eftir morötilrœöi
Heldur kosninga-
baráttunni áfram
(KÖLN, Reuler)
Garðar
Sveinn
Árnason
látinn
Garðar Sveinn Árnason,
fyrrum framkvæmdastjóri
Álþýðuflokksins er látinn.
Garðar Sveinn var 46 ára að
aldri er kallið kom á föstu-
daginn var, langt um aldur
fram. Garðar Sveinn hóf ung-
ur að starfa að hugsjónum
jafnaðarmennskunnar, sat
m.a. í stjórn Sambands ungra
jafnaðarmanna og í fiokks-
stjórn Alþýðuflokksins.
Garðars Sveins verður minnst
nánar í Alþýðublaðinu á morg-
un, laugardag. Útför hans verð-
ur gerð frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík á mánudaginn kemur."
Oskar Lafontaine, kansiara-
efni vestur-þýskra jafnaðar-
manna er á batavegi eftir að
kona réðst að honum á mið-
vikudagskvöld og stakk hann í
hálsinn með 20 sm langri
breddu.
Lafontaine, hefur ákveðið að
halda áfram baráttunni gegn
Helmut Kohl, kanslara Vest-
ur-Þýskalands, um kanslarasætið í
kosningunum í desember, að sögn
Hans-Jochen Vogel, formanns
Jafnaðarmannaflokksins.
Árásarmaðurinn, Adelheid
Streidel, 42 ára kona sat kosninga-
fund vestur-Þýskra jafnaðar-
manna í einni helstu samkomu-
höll Kölnar, Stadthalle. Konan sem
var með fangið fullt að blómum
fór upp á svið undir því yfirskyni
að fá eiginhandaráritun Lafonta-
ine, en fyrr en nokkurn varði dró
hún fram hníf og réðist á kansl-
araefið sem hné blæðandi niður.
Flogið var með Lafontaine á há-
skólasjúkrahúsið í Köln þar sem
hann undirgekkst tveggja klukku-
stunda uppskurð. Talsmaður
sjúkrahússins sagði iíðan hans
góða miðað við aðstæður í samtali
við blaðamenn í gærmorgun og
að hann hefði jafnvel haft í flimt-
ingum þegar hann ræddi við sam-
starfsmenn sína um morguninn.
Lítið er enn vitað um árásar-
manninn eða af hvaða ástæðu hún
framdi ódæðisverkið. Að sögn
vestur-þýsku lögreglunnar eru þó
einhverjar líkur taldar á að morð-
tilraunin tengist pólitískum hrær-
ingum í Vestur-Þýskalandi, en
vildi ekkert frekara láta hafa eftir
sér um það.
Þess má geta að hefði Streidel
tekist ætlunarverk sitt, að myrða
Lafonteine kanslaraefni jafnaðar-
manna eru hverfandi líkur taldar á
að pólitískum andstæðingum
Kohls, kanslara hefði tekist að
velta honum úr sessi í kosningun-
um í desember.
OSCAR LAFONTAINE í Reykjavík síðasta sumar, en hingað kom hann i
boði Alþýðuflokksins.
Karl Helgason varð 150.000 krónum
ríkari eftir að úrslit i samkeppni um
handrit að barnabók á vegum
Vöku-Helgafells. Eins og í hin fjögur
skiptin fékk verðlaunin höfundur
sem er að þreyta frumraun sína við
ritun barnabókar. karl heldur á ein-
taki af bók sinni sem kom út i gær.
Barnabókaverdlaun
Vöku-Helgafells
Karl Helga-
son hlaut
verðlaunin
Karl Helgason hlýtur Barna-
bókaverðlaunin sem
Vaka-Helgafell stendur fyrir í ár.
Karl fær verðlaunin fyrir fyrstu
bók sína, I pokahorninu sem
segir frá ungum dreng sem
dreymir um að verða hetja, hann
hefur orðið undir í samkeppn-
inni við félagana en að því kem-
ur að hann verður að reyna að
gera drauma sína að veruleika.
Verðlaunaféð nemur 150.000
krónum.
Alls bárust 29 handrit í sam-
keppnina sem nú er efnt til í 5ta
sinn. Jafnoft hafa verðlaunin fallið í
skaut höfundi sem er að stíga sín
fyrstu skref á rithöfundarbrautinni.
Olafur Ragnarsson formaður stjórn-
ar Verðlaunasjóðsins afhenti Karli
verðiaunin í gær og jafnframt fyrsta
eintak bókarinnar sem kom út í gær.
FOSTUDAGSSPJALL
Er Davið Oddsson sósialisti?
Nú er Davíð búinn að kaupa Hótel Borg. Hann virðist ætla
að keppa viö Laufdal um hásæti skemmtanakóngsins, því
fyrir á borgin gamla Broadway og skopparakringluna.
En af hverju vill Davíð efla hinn
opinbera atvinnurekstur? Auk
hótela og skemmtistaða, sem
borgin kemur til með að eiga, rek-
ur hún t.d. rörasteypu og malbik-
unarstöð og heldur úti umfangs-
miklum vinnuvélarekstri.
Þannig hafnar Davíð Oddsson
stefnu Sjálfstæðisflokksins, eins og
hún a.m.k. kemur fram á þingi.
Forysta flokksins þar þolir varla
að ríkið eigi skrifborð og stóla
Guömundur
Einarsson skrifar
handa starfsfólki sínu heldur þarf
að bjóða það allt út. Þessi forysta,
að vísu, þolir starfsfólk ekki held-
ur og krefst þess yfirleitt að það sé
borið út.
En forystan í borginni vill opin-
beran rekstur í sem mestum mæli.
SÍS út, borgin inn
Það veitir raunar ekki af að ein-
hver taki nú við af Sambandinu í
félagslegum rekstri. SÍS hefur um
árabil verið með atvinnurekstur á
öllum sviðum þjóðlífsins. Þeir reka
allt frá sultugerð, dagblöðum og
allt upp í stjórnmálaflokk.
Á sama tíma og Sambandið snýr
baki við hinu félagslega rekstrar-
formi og brýtur og bramlar sig nið-
ur í hlutafélög, byggir Davíð upp
hinn opinbera rekstur borgarinn-
ar.
Af hverju borgarsósíalisma?
Skýringar á sósíalisma Davíðs
gætu verið fjölmargar.
Kannski að hcinn er listfengur og
langflestir listamenn eru kommar.
Kannski er hann framsóknar-
maður þ.e. góðviljaður athafna-
sinni, sem finnst aðSÍS, borgin eða
ríkið eigi að sjá fyrir öllu sem er
gott og fólki kæmi vel að hafa.
Kannski er hann eins og
Kvennalistinn sem ekki þoiir að
einstaklingar græði á góðum
möguleikum því gróði er vondur.
Kannski er hann bara eins og
AA mati greinarhöfundar, eru kaup Daviös Oddssonar borgarstjóra á Hótel Borg, enn eitt dæmiö um aö borgar-
stjóri vilji efla allan opinberan atvinnurekstur í borginni. Daviö fari þannig þvert á stefnu Sjálfstæöisflokksins sem
vill minnka opinberan atvinnurekstur.
gömlu karlarnir úr öllum flokkum
sem sögðu: „Okkur vantar Land-
smiðju, Sementsverksmiðju og
Áburðarverksmiðju. Einstakling-
ar eiga ekki pening, er ekki treyst-
andi og hafa ekki áhuga á svoleið-
is þjóðþrifamálum. Við látum hið
opinbera redda málinu."
Þetta sögðu þeir í gamla daga.
Nú er búið að selja Landsmiðjuna
einstaklingum, verið að breyta
Sementsverksmiðju í hlutafélag,
svo ríkið eigi hægara með að selja
hluti og Davíð sjálfur hefur heimt-
að að ríkið hætti með áburðarfa-
brikkuna, enda sé hún ekki hag-
kvæm.
Eða bara sjálfstæðismaður?
Kannski er Davíð bara eins og
venjulegur sjálfstæðismaður frá
því fyrir Eimreiðarhóp, sem er til í
að láta hið opinbera standa í at-
vinnurekstri á meðan af því hlýst
ágóði.
En er ekki Alþýðubandalagið
með sömu afstöðu?