Tíminn - 27.06.1968, Blaðsíða 5
FMMTUDAGUR 27. júní 1968
TIMINN
Hér kcmur fiyrst tíim'a'bær
fyrirspurn:
Yfirfull samkomuhús
Mig lamgar tii að koima hér
á framfæri dáMtiMd fyxirspurn
til siökkvistj órans í Reykja-
vík og brunavarnaeftirlitsins
um land allt Þessi fyrirspurn
er í sambandi við forsetakosn
ingarnar sem nú eiga fram að
fara á næstunni. Yfir lands-
lýðinm hafa dunið fréttir af
mjög fjölmennum fundum
beggja framibjóðlenda, og þar
á meðal frá mjög fjölmennum
fundum í Háskólabíói. Nú
langar mig til að spyrja, hvort
það sé í samræmi við reglur
um brunavarnir að yfirfylla
samk-omu'hús svona. Hvað
myn-di aenast ef eldur kæmi
upp í þessurn stóru yfinfullu
samkomulhúsum. Hvað myndi
gierast, aðeins ef brunahræðsia
gripi um sig meðal fólksins,
vegna reykjalyiktar, eða ein-
hvers slfks.
Mér þætti værnt um, að
bruiniavaimayfirvöld wildu
svara þessu, og þá sérstak-
lega ef einhver einn yfirmað
ur gæti gefið um þetta yfir-
lýsin'gu.
B'amakarl.
Athugasemd til
ríkisst j órnarinnar
Hermóður Guðmundsson
skrifar:
Föstudaginn 22. marz s. 1.
var flutt í ríkisútvarpinu kvöld-
vaka „Bændavikunnar“, sem
Búnaðarsamband Suður-Þingey-
inga var beðið að sjá um að
þessu sinni. í sambandi við efn
isval á þessa kvöldvöku var
leitazt við að útvega sem fjöl-
breytilegast efni, m. a. þáttur
úr gamanleiknum „Leirhaus-
inn“ eftir Starra Björgvinsson í
Garði við Mývatn.
Sökum þess, að hér var leitað
eftir nýjum þætti, umfram það
sem áður hefur tíðkazt á hlið-
stæðum kvöldvökum á vegum
bændasamtakanna, var gerð
fyrirspurn um það til ríkisút-
varpsins, hvað langan tíma bún
aðarsambandið gæti fengið til
umráða á kvöldvökunni. Var
því fyrst svarað til, að dag-
skráin mætti í heild taka 70
mínútur. Áætlað efnisval var
síðan við þetta miðað og leik
þættinum ætlaðar 15 mínútur.
Nokkru síðar kom í ljós, að
Mývetningar töldu sig ekki geta
flutt leikþáttinn á skemmri tíma
en 25—27 mínútum. Sýnishorn
af leiknum væri útilokað á
skemmri tíma. Leikþátturinn
yrði því ekki látinn af hendi,
ef þessi tími fengist ekki tryggð
ur.
Af þessu tilefni var aftur
snúið sér til ríkisútvarpsins og
því skýrt frá því, að leikurinn
fengist ekki nema að dagskrár
tíminn fengist lengdur um 10
—15 mínútur. Lofaði dagskrár
stjórinn Haraldur Ólafsson því,
án nokkurs fyrirvara.
í samræmi við þetta loforð
var kvöldvakan síðan undirbú
in og dagskráin tekin upp af
tæknimanni frá útvarpinu, sem
áætlaði dagskrána um 80 mín-
útur.
Til frekari öryggis um hugs-
anlega styttingu á efni kvöld
vökunnar, gaf undirritaður
leyfi fyrir 2—3ja mínútna stytt
ingu á sínum héraðsþætti, ef
dagskrárefnið reyndist of langt
í flutningi, miðað við hinn lof
aða tíma. En hvað skeður við
flutning kvöldvökunnar? Leik-
þátturinn styttur verulega á-
samt kvartettsöng og heildar
tími vökunnar færður niður í
74 mínútur án nokkurs samráðs
eða leyfis þeirra er sáu um efn
ið á hana.
Að vísu var hringt á síðustu
stundu frá útvarpinu og skýrt
en jafnframt tekið fram að ekki
væri um neina breytingu að
ræða úr því sem komið væri. -
Um það tvennt var því aðeins
að velja, að láta kyrrt liggja,
eða þá að stöðva flutning kvöld
vökunnar allrar, væri það þá
hægt eins og komið var. Fyrri
kosturinn var valinn í trausti
þess, að stytting leikþáttarins
hefði verið smávægileg og sam
viskulega framkvæmd. Því mið
ur var þesu þveröfugt farið, —
Afbragðsgóðum samtalsþætti
úr leikþættinum sleppt, ásamt
endaþætti og gerði þetta leik
inn til muna áhrifaminni í flutn
ingi. En með þessu er ekki öll
sagan sögð.
Felld niður
Við endurflutning kvöldvöku
„Bændavikunnar“ þann 31.
marz kom í ljós, að leikþáttur
inn var algjörlega felldur nið-
ur, án nokkurra skýringa, þrátt
fyrir það að endurflutningurinn
hafði verið auglýstur sem „lít
ið eitt styttur“. Fyrir þá, sem
ekki höfðu fylgzt með fyrri
kvöldvökuflutningnum var það
sjálfsögð kurteisi að skýra frá
þeim atriðum er ekki væru end
urflutt og hvaða ástæður lágu
til þess.
Ekki hvað síst af þessum á-
stæðum, varð ekki hjá því kom
ist að gera opinberlega athuga
semd við alla þessa framkvæmd
ríkisútvarpsins á flutningi kvöld
vökunnar og krefjast þess, að
stofnunin biðjist opinberlega af
sökunar á þessari lítilsvirð-
andi framkomu, er hlutaðeig-
endum hefur með þessu verið
sýnd. Er það sannarlega ekki
til of mikils mælst fyrir alla
þá einskisvirtu fyrirhöfn og
fórnfýsi í starfi, er viðkomandi
aðilar hafa sýnt við hin erfið
ustu skilyrði ófærðar og snjó
kyngi, í þeirri góðu trú, að
þeir væru að leggja fram sinn
skerf til þess að gera einu kvöld
vöku bændasamtakanna á árinu
sem fjölbreyttasta og skemmti
legasta, fyrir útvarpshlutendur,
sem svo oft hafa kvartað yfir
því að mikið skorti á skemmti
efni hjá útvarpinu utan af lands
byggðinni.
Þetta er þeim mun athyglis-
verðara vegna ummæla sjálfs
framkvæmdastjóra útvarpsdag
skrárinnar, er hann viðhafði
skömmu áður en þessi kvöld
vaka var flutt, í þættinum póst
hólf 120, en þá sagði hann, ef
ég man rétt, að útvarpið væri
allt af vilja gert að útvega
sem flesta skemmtiþætti sem
víðast að, en vandinn væri bara
sá að ná í þetta efni.
Útvarpið mismunar
landsmönnum
En hvernig er svo farið með
hinn dýrmæta tíma ríkisútvarps
ins, oft á tíðum? í mörgum til
fellum gengur flutningur dag
skrár langt inn á kvöldfrétta-
tímann, þegar leikfélög höfuð-
borgarinnar, eða aðrir Reyk
víkingar eiga hlut að máli. Og
ekki nóg með þetta, í frétta-
aukum eru jafnvel hálf er-
indi stjórnmála- og mennta-
manna endursögð, eins og t. d.
átti sér stað um hina nýju
og fáránlegu örnafnakenningu
eins háskólaprófessors í Reykja
vík, nú fyrir skömmu.
Það virðist því mega draga
þá ályktun af þessu, að hinn
dýrmæti tími ríkisútvarpsins
sé ekki öllum landsmönum jafn
heimill. — Sé það hins vegar
svo, að um mistök sé að ræða í
sambandi við flutning kvöld-
vöku „Bændavikunnar" 22.
marz s. 1., þá er ríkisútvarp-
inu jafn skylt að biðjast afsök
unar, fyrir sína hönd, á því sem
hér hefur miður farið, um leið
og skýrt er frá því að endur-
flutningur leikþáttarins hafi ver
ið bannaður af Mývetningum,
nema að hann yrði fluttur að
öllu leyti eins og þeir gengu
frá honum, en útvarpið hafði
ekki getað orðið við þessari
sjálfsögðu kröfu, sökum þess
að það hafði eyðilagt stytting
una á leikþættinum. Er það mál
margra, að slík misþyrming á
útvarpsefni, sem látið er af
hendi til flutnings brjóti í bág
við lögverndaðan höfundarrétt.
Hitt er svo algert aukaatriði,
þótt ríkisútvarpið telji sér
sæma að greiða allt efni kvöld
vökunnar, ásamt endurflutningi,
með heilum 6 þúsund krónum,
sem er ámóta greiðsla og einn
reykvískur óperusöngvari tek
ur fyrir að syngja nokkur lög á
einni skemmtisamkomu úti á
landi.
:c,-:
I!
nim
sttiiiijiDaua
í LAUGARDALSHÖLLINNI fimmtudaginn 27. júní kl.21:00
Dagskrá: Fundurinn setfur, Gunnar
Friðriksson, formaður
samtaka stuðningsmanna
Gunnars Thoroddsens
Eggert G. Þorsfeinsson
Oddur Ólafsson
Jóhanna Sigurðardóttir
örlygur Hálfdónarson
Ólafur B. Thors
Hermann Guðmundsson
Oddur
Jóhanna
örlygur
Ólafur B.
VlÐAVANGl
Kosninganóttin
og talning atkvæða
Ljóst er nú, að yfirkjör-
stjórnir munu ekki verða við
þeim tilmælum dómsmálaráðu
neytisins að fresta talningu
atkvæða eftir forsetakosning-
arnar á sunnudaginn kemur.
Greinilegt er, að almenning-
ur lét í ljós megna óánægju
er kvisaðist um tilmæli dóms-
málaráðuneytisins. Menn vilja
ekki láta ræna sig kosninga-
nóttinni, sem hefur unnið sér
hefð í hugum almennings. Hvar
vetna í menningarlöndum er
einskis látið ófreistað til að
hraða sem mest talningu at-
kvæða að loknum kosningum.
Það væri því furðulegt, ef við
færum að stíga skref aftur á
bak í þessu efni. Heildarúrslit
í kosningum hér á landi eru
kunn mildu síðar en í öðrum
löndum. Þyrftum við því að
gera gangskör að því að hraða
talningunni, en ekki hið gagn-
stæða. í alþingiskosningunum
í fyrra voru heildarúrslit og
þar með það, hvort ríkisstjórn
in héldi velli — ekki kunn
fyrr en rúmum sólarhring eft-
ir að kjörfundi lauk. Það var
ekki fyrr en aðfaranótt þriðju
dags, sem endanleg úrslit kosn
inganna láu fyrir. Samgöngu-
erfiðleikar eru reyndar meiri
hérlendis en víðast hvar ann-
ars staðar. Þarf víða að fara
langan og erfiðan veg með
kjörgögn úr afskekktum byggð
arlögum til þeirra staða, þar
sem talning fer fram í kjör-
dæminu og þessir erfiðleikar
mögnuðust að sjálfsögðu mjög
með tilkomu hinna stóru kjör-
dæma. En með þeirri sam-
göngutækni, sem nú er ráðið
yfir, á að vera unnt að yfir-
stíga þessa erfiðleika. Yfirkjör
stjórn Vestfjarðakjördæmis
gaf þar mjög gott fordæmi í
kosningunum í fyrravor. Sam-
göngur eru óumdeilanlega erf-
iðastar í Vestfirðingafjórðungi
Samt urðu Vestfirðingar næst-
ir Reykvíkingum og Suður-
nesjamönnum að ljúka taln-
ingu atkvæðanna og talning-
hófst þar fyrr en í hinum dreif
býliskjördæmunum. Það var
Suðurlandskjördæmi, sem þá
rak iestina. Nú mun kjör-
stjórn Suuðrlandskjördæmis
hafa áhuga á því að meiri
hraði verði á talningunni en
í fyrra og mun m.a. hafa í
hyggju að fá þyrlu til að flytja
atkvæðakassa frá Vestmanna-
eyjum til Hvolsvallar, þar sem
talning mun fara fram. Vafa-
Iaust má telja, að verði þeirri
samgöngutækni, sem við ráð-
um yfir, beitt með skynsam-
legum hætti, megi hefja taln-
ingu atkvæða í öllum kjör-
dæmum á kosninganóttina eða
snemma morguns á mánudag.
Erfiðleikarnir eru ekki meiri
en svo, að flýta má talning-
unni verulega frá því sem ver-
ið hefur. Fáránlegt er að
leggja til að talningunni i
Reykjavík og í Reykjaneskjör-
dæmi, þar sem talning atkvæða
hefur undanfarið hafizt þegar
að (oknum kjörfundi kl. 11,
verði seinkað tram á mánu-
dag. Og sem betur fer bendir
nú allt til þess, að þeirri hug-
mynd, að ræna menn kosn-
inganóttinni, hafi nú verið
bægt frá.