Tíminn - 27.06.1968, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Almennur fundur stuðningsmanna
Gunnars Thoroddsens
Ferðir á fundinn í Laugardalshöll í kvöld kl. 21,00:
MOSFELLSSVEIT:
HAFNARFJÖRÐUR:
KÓPAVOGUR:
ÁLFTANES —
GARÐAHREPPUR:
SELTJARNARNES:
Frá Seljabrekku kl. 19,45
Frá Reykjum kl. 20,10.
Frá Hvaleyrarholti kl. 20,00
Stanzað á sömu stöðum og Hafnarfjarðar-
strætisvagnar.
Tekur farþega á Kópavogshálsi kl. 20,15.
Frá Landakosti kl. 19,45 — um Suðurkant
og Garðaholt. (Stanzar á sömu stöðum og
áætlunarbifreið Landleiða).
Frá Mýrarhússkóla kl. 20,00 um Nesveg 6
Melabraut — Skólabraut — Nesveg.
Ferðir til baka að fundi loknum
KJÖRFUNDUR
í REYKJAVÍK
við kosningu forseta íslands hefst kl. 9,00, sunnu-
daginn 30. júní n.k. og lýkur kl. 23,00 þann dag.
Borgarstjórinn í Reykjavík mun auglýsa sérstak-
lega kjörstaði, skiptingu í kjörsvæði og kjör-
deildir.
Yfirkjörstjórnin mun á kjördegi hafa aðsetur í
Austurbæjarskólanum, og þar hefst talning at-
kvæða, þegar að loknum kjörfundi.
Yfirkjörstjóm vekur athygli kjósenda á eftir-
farandi ákvæði laga nr. 6/1966:
„Áður en kjósandi fær afhentan kjörseðil,
skal hann, ef kjörstjórn óskar þess, sanna
hver hann er, með því að framvísa nafn-
skírteini eða á annan fullnægjandi hátt“.
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík, 26. júní 1968
Páll Líndal
Eyjólfur Jónsson Hjörtur Torfason
Jón A. Ólafsson Sigurður Baldursson.
Haitl
Framhald at bls. 7.
hans. Skömmu síðar lýsti
hann sig konung eyjarinnar.
Umbætur hans
Honum var ljóst hvers Haiti
búar þurftu með — hann vissi
t.d. að þeir þurftu íiburð og við
höfn t.þ.a. auka sjálfsmeðvit-
und íbúanna sjálfra og álit
Haiti erlendis. Þess vegna lét
hann byggja sér krýningar-
kirkju á mettíma, einnig reisti
hann sér lystihöll eftir fyrir
mynd frá Sans-Souci og síðar
kastala sem skyldi vera óvinn
andi. Hann lét senda sér veld-
issprota frá London, meira en
meterslangan, og hann skap-
aði nýja aðalsstétt. Til þess að
alls réttlætis sé gætt verður að
taka það fram að nöfnin Mar-
melaði og Límonaði voru ekki
alveg eins brosleg í raun og
veru og þau hljóma í okkar
eyru, þetta voru nöfn á tveim
ur bæjum á Haiti.
En hann hóf einnig umbæt-
um, sem miðuðu að háleitu
marki, þrátt fyrir að hann
skorti bæði menn og fjár-
magn. Hann var sjálfur ólæs
og óskrifandi, og réði til sín
marga ráðgjafa, m. a. ýmsa
hvíta menn, sem lásu og skrif-
uðu öll opinber skjöl fyrir
hann.
Hann lét reisa skóla og
sjúkrahús (þar voru sjúkling-
arnir hlekkjaðir ef þeir vildu
LJÖSASAMLOKURNAR
Heimsfrægu 6 og 12 v. 7" og 5%'"
Mishverf H-framljós,
viðurkennd tegund
BÍLAPERUR
Fjölbreytt úrval —
Sendum gegn póstkrófu um land allt
SMYRILL
Laugavegi 170 — sími 12260
FIMMTUDAGUR 27. júní 1968
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. —
- SIGMAR & PÁLMI -
Hverfisgötu 16 a. Sími 21355 og Laugav. 70. Sími 24910
Jörb
óskast
Lítil jörS óskast til leigu
eða kaups. Tilboð er greini
ástand húsa og ca. verð,
ef hægt er, sendist blað-
inu sem fyrst, merkt:
„Beggja hagur“.
BÆNDUR
ATHUGIÐ
15 ára drengur vill kom-
ast í sveit á gott heimili.
Þaulvanur. Upplýsingar í
síma 32812.
ekki leggjast ‘ inn af fúsum
vilja, og hann krafðist eins
mikillar vinnu af verkamönn-
unum og krafizt hafði verið af
þeim meðan þeir voru þrælar.
Miklar framfarir urðu í norð-
urhluta Haiti, sem hann réði
fyrir — en þjóð hans hafði
ekki skilning á þeim. Hún
hafði lifað miklu þægilegra lífi
meðan hinir hvítu húsbændur
þeirra voru við völd.
Endalok Henrys
Henry konungur hélt samt
völdum meðan hann hafði enn
vald á sjálfum sér. En svo
fékk hann slag og þótt hann
tæki til við störf sín á nýjan
leik eftir veikindi með
ofurmannlegum viljakrafti
gerðu uppreisnartilhneiging
ar sífellt oftar vart við sig.
Hluti hersins gerðu uppreisn,
og ættflokkarnir í suðurhluta
eyjarinnar börðust gegn hon-
um undir stjórn sinna eigin
leiðtoga.
Einn góðan veðurdag, þegar
hann frétti um nýjan ósigur
hers síns, miðaði hann skamm
byssu sinni ofsareiður á sendi-
boðann og hleypti ai, en hæfði
óvart einn hirðmanna sinna.
Þessi atburður varð honum
um megn, hann lokaði sig inni
í svefnherbergi sítnu, kallaði
til sín eiginkonu sína og börn
og kvaddi þau innilega. Hinztu
orð hans voru „Nú þegar
Haiti bióðin ber ekki lengur
traust til mín veit ég hvað
mér oer að gera“ Síðan læsti
hann dyrunum og skaut sig.
Konungsríkið var fljótlega
úr sögunni á eftir konungin-
um. Synir hans voru myrtii
með oyssustingjum, eiginkona
hans varð landflótta og átti í
mörg ár heima i Hastings á
Bretlandi, hallir og kastalar
Henrvs voru lagðir í rústir.
Arftakinn
Henry konungur, sem aldrei
hafði verið þræll sjálfur og
var raunar kynblendingur eins
og Ijósleit húð hans benti til,
þótt hann leyndi því ætíð
sjálfur, var á margan hátt fyr-
irmyndarþj óðhöf ðingi þessa
blökkumannaríkis. Hann var
umburðarlyndur nema gagn-
vart svikurum, hann treysti
mönnum, þeim sem hann taldi
vini sína treysti hann raunar
of vel, og hann var algjörlega
laus við kynþáttafordóma og
því varð valdatímabil hans
sannkölluð gullöld hinna lang
hrjáðu Haitibúa.
Nú er Doc Dulvalier við
völd á Haiti og hefur skipað
sjálfan sig þar einræðisherra
fyrir lífstíð. Hann ríkir með
aðstoð hjátrúar, vopnaðra
stigamanna, ógna og hryðju-
verka.
En það er önnur saga. . .
(Þýtt og endursagt.
ERLEN-T YFIRLIT.
Framhald af iis. 9.
jafnframt. Fljótlega að náminu
loknu, var hann kosiun héraðs
saksóknari og þótti röskur í
þvi starfi. Hann var því kjör-
inn dómsmálaráðherra Kali-
forníu árið 1934, og rikisstjóri
fjórum árum síðar sem fram-
bjóðandi repu'Mikana. Á þeim
áium þótti hano fremur íhalds
samur, en gerðist stöðugt frjáls
lyndari eftir að hann varð ríkis
s-tjóri. Árið 1945 gerðist hann
t.d. talsmaður mjög víðtækra
almannatrygginga. Vinsældir
hans í Kaliforníu urðu svo mikl
ar, að hann var tvívegis endur
kjörinm ríkisstjóri og vann í
bæði skiptin prófkjörin hjá
báðum aðalflofckunum. Fyrir
forsetakiosnmgarnar 1948 gaf
Warren kost á sér til franuboðs
og var studdur af hinurn frjáls
lyndari armi republikana.
Hann beið ósigur fyrir Dewey
á flokksþinginu, en féllst þá
á að gefa kost á sér sem vara-
forseti. Fyrir fors&tafcosning-
arnar 1952, var hann einn
helzti stuðningsmaður Eisen-
howers, og átti hann mikinn
þátt í að Taft beið ósigur
fyrir Eisenhower, þegar repu
blikanar útnefndu forsetaefn-
ið. Að launum skipaði Eisen-
hower hann forseta hæstarétt
ar árið 1953 og hefur Warren
gegnt þvi starfi síðan. Það
var þá nokkuð gagnrýnt, að
Warren væri etoki nógu lærð-
ur lögfræðingur. Hann hefur
sýnt í starfi, að hann hafði
það til að bera, sem var enn
mikilvægara en lagaþekkingin,
en það var milkil starfsreynsla
á breiðum vettvangi, mikil
kynni af óiíku fólki, og þó
umfram allt rík jafnréttis-
kennd og víðsýni, j-afnhliða
mffclu huigrekki til að gera
það eitt, sem hann áleit rétt.
Earl Warren verður jaf-n-
an talinn ei-nn af beztu so-n-
um Bandaríikjanna.
Þ.Þ.