Alþýðublaðið - 13.07.1990, Side 4

Alþýðublaðið - 13.07.1990, Side 4
4 VIDHORF Föstudagur 13. júlí 1990 MmnBLtmii Ármúli 36 Simi 681866 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blaö hf. Flákon Flákonarson Ingólfur Margeirsson Jón Birgir Pétursson Hinrik Gunnar Hilmarsson Sigurður Jónsson Leturval, Ármúla 36 Oddi hf. Áskriftarsíminn er 681866 Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið SMÁNARBLETTUR Alþýðublaöiö birti í vikunni frásögn af ömurlegri stööu fang- elsismála á íslandi. I helsta fangelsi okkar, Litla Hrauni, er hrúgaö saman þeim sem afplána refsingu fyrir afbrot, hvaöa nafni sem afbrotin nefnast, sem refsaö er fyrir, og óháö því hvernig komiö er fyrir afbrotamönnum. í fangelsinu eru geðveilir menn, síbrota- menn og unglingar, sem mestar líkur eru á aö forherðist viö þær aðstæður sem þeir búa við. Eiginkona afbrotamanns segir í viðtali viö Alþýðublaðiö aö manni hennar sé ekki gef- inn kostur á aö aölagast samfélaginu. Hann hafi framið Ijótt brot í „dóprugli", en séð fjölskyldu sinni farborða í þau tvö ár sem hann hefur beöið afplánunar. Nú þegar hann taki út refs- ingu sé hann innan um geðveika menn sem reyni aö gera honum allt til miska. Ekki sé tekiö tillit til þess að maöurinn vilji vinna sig inn í samfélagið eftir glæpinn. Y firmönnum fangelsismála er vel kunnugt um aðstæðurnar, og sætta sig ekki viö, án þess þó aö nóg sé aðhafst. Haraldur Jóhannessen, forstöðumaður Fangelsisstofnunar ríkisisins, segist margoft hafa bent á aö ekki sé hægt aö sætta sig viö aö geðveikir menn séu á Hrauninu. „Ég spyr, er ekki ástæöa til aö vista geðveika menn á sjúkrastofnunum?" spyr Harald- ur í viðtali viö Alþýðublaðið á þriðjudag. Um þessar mundir sé ástandið mjög slæmt. Lög og reglur ber skilyrðislaust að virða. Afbrot eru afbrot og þeim sem fremja afbrot er refsað. Nær undantekningarlaust eru vímuefni höfð um hönd þegarfólskuverk eru unnin. Sem beturfer bæta margir ráð sitt, og taka fjölmörg félagasamtök þátt í að koma fyrrverandi afbrotamönnum á réttan kjöl. Rík- isvaldið hefur setið eftir í þeim málum. Þar eru fangelsismálin smánarblettur. FÖSTUDAGSSPJALL Pósitíf ur Kvennalisti Samkvæmt ákvörðun nýlegs fundar Kvenna- listans er hann nú á já- kvæðu nótunum. Fund- arkonur komust að þeirri niðurstöðu að i gegnum árin hefðu þær sent frá sér alltof nei- kvæðar bylgjur. Nú væri þjóðin orðin bjartsýn og þá yrðu stjórnmála- flokkarnir að fylgja. Áhætta______________________ Kristín Einarsdóttir alþingis- maður skrifaði á dögunum grein í Morgunblaðið og hafnaði stóriðju- áformum ríkisstjórnarinnar. Þótt greinin hljóti að hafa verið skrifuð í anda hins nýja pósitífisma, er því ekki að leyna að nokkurt þung- lyndi læddist að manni við lestur- inn og vissara var að hafa valíum- ið nærri. í fyrsta lagi kom auðvitað fram að það fylgir því óskapleg áhætta að byggja virkjanir og þoka lífs- kjörum fram á veginn. Þar lýstu sér hjá Kvennalistanum sömu já- kvæðu búhyggindin og hjá ágæt- um bónda austur á landi. Sonur hans hafði keypt dráttarvél til bús- ins og sló stærri bletti í einu en gamli bóndinn hafði vanist. Þá gekk hann fyrir Ijá sonar síns og sagði: „Ef þetta fýkur, hvar stönd- um við þá?“ Óvissa í greininni kom líka fram að það er óvissa um marga þætti í ál- samningum. Það er vissilega greindarlegt af Kvennalistanum að benda á þetta, enda er enn ósamið endanlega um orkuverð, staðsetningu og fleira. Kvennalistinn talar reyndar af mikilli reynslu um óvissu og al- menn óþægindi þess að standa í samningum sbr. síendurteknar stjórnarmyndunarviðræður þeirra á þessu kjörtímabili. Það er miklu þægilegra að hætta sér aldr- ei út í svona samningabrall. Bónd- inn að austan sagði líka eitt sinn: „Ef ég held bara kjafti þá segi ég þó enga vitleysu." Lokið útidyrunum Þegar hér er komið í grein Krist- ínar er gott að taka tvær valíum. Það kemur t.d. í ljós að eftirspurn á áli fer minnkandi, vegna aukins kærleika og friðar í heiminum, því nú þarf ekki að búa til eins margar vígvélar og áður. Kvennalistinn reiknar þó greini- lega ekki með að friðnum fylgi neitt uppbyggingarstarf í Austur- Evrópu og Sovétríkjunum. Ekki eru þær á jákvæðu nótunum um heimsþróunina. Og það er líka vissara að læsa útidyrunum og leggjast í rúmið því Kristín upplýs- ir að ótímabær ellihrörnun, Alz- heimer-sjúkdómurinn, fylgi álinu. Það er eins gott að þessi grein er skrifuð eftir að Kvennalistinn ákvað að vera á jákvæðu nótun- um. Guðmundur Einarsson skrifar RADDIR * Hvernig er aö vera feröamaöur á Islandi? Celine Fuentes og frá Aix en Pro- vence í Frakklandi: Okkur líkar mjög vel að vera hér en maturinn er ofboðslega dýr. Við erum skátar og höfum sótt skátamótið og ferðast um landið. Landslagið líkist oft á tíðum tungl- inu og hitastigið er ólíkt lægra en það sem við höfum vanist frá Suð- ur-Frakklandi. Marie Adamson, frá Altadena í Kaliforníu, USA: Okkur finnst frábært hér á ís- landi, sérstaklega í dag þegar veðrið er svona gott. Bærinn er einstaklega fallegur og garðar húsanna skemmtilegir. Okkur finnst allt mjög dýrt en kaupum ekki mikið. Það eina sem við höf- um keypt eru nokkur dásamlega falleg kort og frímerki. Hanjo Erkamp frá Amsterdam í Hollandi: Hér er frábært að vera en verð- lagið á öllu er mjög hátt. Við tók- um mikið af mat með okkur frá Hollandi því hér er allt um þrisvar sinnum dýrara en þar. En borgin er hrein og mikið hægt að skoða. Kathy Hudack, 42 ára, hjúkrunar- kona, frá Youngstown í Ohio USA: Þetta er búið að vera yndislegt. Fólkið er viðkunnanlegt en verðið á öllum hlutum er hneyksli. Við höfum mjög gaman að því að versla en hér er allt svo dýrt. Ef eitthvað annað mætti bæta þá væri það helst að fjölga veitinga- stöðum og minjagripum. Magnús Oddsson, ferðamála- stjóri: Eg get nú ekki svarað þessu beint 'þar sem ég er ekki ferða- maðui hér á landi. Það fer mikið eftir því hvaða ferðamenn þú spyrð hvernig þeim finnst t.d. verðlagið. Hugsanleg ástæða þess að ferðamönnum finnst allt svo dýrt á íslandi er kannski sú að vissir nlutir sem eru ódýrir í þeirra heimalandi eru dýrir hér þó svo að ekki sé svo mikill munur á verði annara hluta.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.