Alþýðublaðið - 13.07.1990, Blaðsíða 5
T
Föstudagur 13. júlí 1990
5
LANDSMÓT l
BLÍÐSKAPARVEÐRI
Nú stendur yfir 20. landsmót UMFÍ i Mosfellsbæ.
Það stendur ffró 12. til 15. júli. Hér er um heilmikið
mót að ræða þar sem innan Ungmennafélags ís-
lands eru um 40.000 félagsmenn. Þeir starfa i 240
ungmennafélögum viðast hvar ó landinu og samein-
ast i 19 héraðssamböndum.
Landsmót eru haldin á 3ja ára
fresti og fór það síðast fram á
Húsavík árið 1987. í Mosfellsbæ er
öll keppnisaðstaða mjög góð og
mótshaldið allt til fyrirmyndar.
Alls keppa um 1998 manns á
mótinu og keppnisgreinarnar eru
margar og af ýmsum toga. 1 dag
verður t.d. háð keppni í pönnu-
kökubakstri og hefst hún klukkan
15.00. Af öðrum íþróttum má
nefna knattspyrnu, körfubolta,
frjálsar íþróttir, siglingar, skák,
bridge, hestaíþróttir, júdó, dráttar-
vélaakstur, karate, borðtennis og
sund svo allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari Alþýðublaðsins mættu á móts-
stað í gær var mikið líf og fjör og
veðrið lék við mótsgesti.
Við hittum fyrst fyrir fimm
hressar stúlkur úr UDN, Ung-
mennasambandi Dalamanna og
Norður-Breiðfirðinga, en þær
höfðu þá nýlokið að keppa við
UMSK, Ungmennasamband Kjal-
arnesþings. Þær vildu sem minnst
láta hafa eftir sér um úrslit en létu
það ekki spilla góða skapinu.
Við litum næst inn í skúr sem
virtist draga að sér mikinn mann-
fjölda. í ljós kom að hann hýsti
íþróttavöruverslun og er það versl-
unin Austurbakki sem sér um
þann rekstur. í herbergi þar innaf
stóð tæki sem vakti undrun okkar
og við hlið þess stóð Ólafur Guð-
mundsson frá fyrirtækinu Stoð í
Hafnarfirði en það sérhæfir sig í
stoðtækjasmíði. Hann upplýsti
okkur um að tækið væri kallað
hlaupaband og væri notað til að
athuga hlaupastíl fólks. Fólk
hleypur eftir bandinu en verknað-
urinn er tekinn upp á myndbands-
spólu. Þá er hægt að athuga hvort
eitthvað megi bæta t.d. með inn-
leggi í skóm eða álíka hjálpartækj-
um.
Úti við hlaupabrautina sat kona
sem var greinilega niðursokkin í
vinnu sína. Þegar við tókum hana
tali kom í Ijós að hún heitir Susan
Nemeth, er fædd í Ungverjalandi
og þjálfar frjálsíþróttadeild HSH á
Snæfellsnesi. Hún er menntuð í
íþróttafræðum i Búdapest og
eyddi fjórum árum í Kuwait við
þjálfun. Hún hrósaði vellinum í
Mosfellsbæ og sagði að krökkun-
um líkaði mjög vel á mótinu.
Margir viðmælenda okkar
kvörtuðu þó yfir nálægðinni við
höfuðborgina og sögðu stemmn-
inguna ekki vera eins góða og áð-
ur.
Hvað um það. Skipulagðir eru
miklir rokktónleikar þar sem
Stjórnin, Sálin hans Jóns míns, Síð-
an skein sól, Ný dönsk, Stuðmenn
og Styrming sjá um fjörið.
Þessi ungi Mosfellingur lét sig ekki vanta á Landsmótið en hann heitir Reynir Ingi Árnason og er fimm ára.
Þessar ungu stúlkur úr UDN létu engan bilbug á sér finna þó að ekki hefði gengið sem skyldi Susan Nemeth, hinn ungverski þjálfari HSH, var niðursokkin i vinnu sina þar sem hún sat á
í fótboltanum gegn UMSK. Þær heita (talið frá vinstri): Pálína Jóhannsdóttir, Fríða Ólafsdóttir, áhorfendapöllunum.
Hanna Jóhannsdóttir og Ragnheiður Bæringsdóttir.
Þessir bridge-spilarar gætu kallast fulltrúar hinna þöglu íþrótta.
Stulkurnar í HSK og UMFK drógu hvergi af sér í handboltanum. A-myndir: Kr.B.