Alþýðublaðið - 13.07.1990, Page 7
Föstudagur 13. júlí 1990
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
7
Lárétt:1 yrkja, 5 varga, 6 uppi-
staöa, 7 sting, 8 saur, 10 árr, 11
þjóta, 12 mjög, 13 auðugar.
Lóörétt: 1 hangsa, 2 inntak, 3
skóli, 4 heillrar, 5 rotnar, 7 fé, 9
kvendýr, 12 kúgun.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 glæps, 5 hlíf, 6 rek, 7 sá,
8 einatt, 10 ið, 11 lóu, 12 kurr, 13
skari.
Lóðrétt: 1 gleið, 2 líkn, 3 æf, 4 slát-
ur, 5 hreins, 7 stóri, 9 alur, 12 KA.
DAGFINNUR
Afkonum> dvergum og
stjórnmálamönnum
Þannig er mál með vexti að ég er
gamall ungmennafélagsmaður.
Ekki svo að skilja að aldurinn spilli
nokkru enda er ég í blóma lífsins,
vörpulegur á velli, góður í geði og
uppfylli því öll þau helstu skilyrði
sem þarf.
Nú verður það að viðurkennast
að ég hef ekki sinnt ungmenna-
hreyfingunni sem skyldi síðustu
áratugina en þegar ég frétti að nú
ætti að halda landsmót UMFÍ í
Mosfellsbæ beið ég ekki boðanna
en rauk af stað með konu og
króga.
Ég hlakkaði mikið til enda
minnti mig að auk allra venjulegra
íþrótta væri keppt í samræmdu
sporti fornu. hað var eins og mig
minnti endilega að hápunktur
mótsins væri hin forna keltneska
íþrótt sem kallast dvergakast.
Nafnið skýrir sig sjálft.
Þegar ég loks mætti á staðinn sá
ég hvergi merkt fyrir velli undir
þessa göfugu íþrótt. Ég reyndi að
spyrjast fyrir en skipuleggjendur
mótsins komu algerlega af fjöll-
um. Engin virtist kannast við að
keppt hefði verið í þessari íþrótt
og konan sagði þetta alveg týpískt
fyrir mig. Ég hefði örugglega séð
þetta í sjónvarpinu og orðið svo
heillaður að það hefði blandast
æskuminningunum.
Út vil ek, frussaði ég út úr mér,
fullur yfirlætis og ættjarðarástar,
viss í minni sök.
Þegar við keyrðum gegnum
Mosfellssveitina hélt konan yfir
mér háværan reiðilestur. Hvernig
dytti mér eiginlega svona vitleysa
í hug. Dvergakast, ekki nema það
þó.
*
Eg reyndi aftur á móti að koma
samræðunum upp á ögn vitrænna
plan.
„Hvað er svona fáránlegt við
það?“, sagði ég og reyndi að halda
stillingu minni.
,, Það myndi enginn fást í þetta,"
sagði hún og augun skutu gneist-
um, ,, og auk þess eru þeir mis-
þungir svo að keppnin yrði ójöfn.
Þeir sem fengju létta dverga hefðu
forskot."
Allt í einu skaut eitursnjallri hug-
mynd í kollinn á mér. „ Við látum
þá bara dvergana vera og köstum
stjórnmálamönnum í staðinn. Þeir
sem hafa minnstu pólitíska vigt
hafa þá forskot á hina. Þá gengur
það kannski loksins eftir sem spáð
var og hinir síðustu verða loksins
fyrstir."
Konan horfði á mig með óræð-
um svip en fór svo allt í einu að
flissa. Mér leið ónotalega því ég
var ekki viss um hvort hún væri að
hlæja að heimsku minni eða snilli.
Mér varð hugsað til orða Shake-
speares: „ Hverflyndi, nafn þitt er
kona.“
Fallið frá ákæru á
hendur Khasoggi
Bandaríkjastjórn hefur fellt niður
ákæru á hendur saúdí-arabíska
vopnasalanum Adnan Khasoggi.
Hann var ákærður fyrir fjármálam-
isferli og fyrir að hjálpa Imeldu
Marcos að dylja eignarhald á fjár-
festingum í New York.
Khasoggi var einn af rikustu
mönnum heims en veldi hans hefur
farið ört hnignandi. Hann neyddist
til að selja snekkjuna sína og kaup-
andinn var enginn annar en Donaid
Trump en sá er nú kominn í miklar
fjárhagskröggur. Khasoggi er talinn
hafa hjálpað Imeldu Marcos, ekkju
Ferdinands Marcosar fyrrum ein-
valds á Filippseyjum, að dylja eign-
arhald á fasteignum í New York, að-
allega byggingum og listaverkum.
Ekki fara i safari i
Kenýa
Bandarísk yfirvöld hafa varað
þegna sína við að ferðast um Kenýa
en þar hafa verið mikil róstur und-
anfarið.
Til átaka hefur komið milli lög-
reglu og mótmælenda en þeir berj-
ast m.a. gegn einflokkskerfinu í
landinu. Nú hafa rósturnar komist á
það stig að ekki þykir lengur öruggt
að ferðast um landið. Ferðamanna-
iðnaðurinn er stærsta gjaldeyris-
tekjulind landsins en um 600,000
ferðamenn lögðu leið sína til lands-
ins árið 1988. Síðastliðinn mánudag
breiddust óeirðirnar út frá höfuð-
borginni Nairobi til nágrannasveita.
Mótmælendurnir berjast fyrir fjöl-
flokkakerfi en þjófar og skemmdar-
verkamenn hafa nýtt sér ástandið
og stunda iðju sína af miklum móð.
Lögfræðingur að nafni Gibson
Kamau Kuria leitaði hælis í banda-
ríska sendiráðinu í Nairobi en hann
hefur háð hatramma baráttu fyrir
lýðræði og mannréttindum í land-
inu. Kenísk yfirvöld hafa sakað
bandarísk stjórnvöld um að skipta
sér af innanríkismálum en banda-
ríski sendiherran lætur engan bil-
bug á sér finna og hefur fullan
stuðning Bandaríkjastjórnar til að
verða við þeirri ósk Kuria að flytja
úr landi.
Carter boðar frið í
Afríku
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, segir það nauðsyn-
lega forsendu fyrir friði í Afríku að
leiðtogar ríkja álfunnar stöðvi borg-
arastyrjaldir þær sem geisi í löndun-
um.
Þetta kom fram í ræðu sem hann
hélt á ársþingi Samtaka um einingu
Afríku í Addis Ababa. Borgarastyrj-
aldirnar standa einna helst í vegin-
um fyrir bættum lí fskjörum í þessari
fátækustu álfu heims. Carter sagði
flest alþjóðleg samtök á borð við
Sameinuðu þjóðirnar máttlítil til að
taka á þessum málum. „ÖIl viðleitni
í þá átt að bæta lífskjörin og bjarga
lífum barnanna er drepin niður af
þessum stanslausu borgarastyrjöld-
um sem þjaka álfuna," sagði Carter
á þinginu í Addis Ababa.
Carter hefur ásamt Juliusi Nyer-
ere, forseta Tanzaníu, reynt að
miðla málum í hinu langvarandi
borgarastríði sem geisar í Eþíópíu
milli stjórnarhersins og skæruliða-
hreyfingar sem berst fyrir sjálfstæði
Erítreu. Undirbúningsviðræður fyr-
ir friði hófust í fyrra en skæruliðarn-
ir hafa neitað að snúa aftur að samn-
ingaborðinu. Carter er mjög
óánægður með hvernig viðræðurn-
ar sigldu í strand og hyggst hitta for-
seta Eþíópiu, Mengistu Haile Mari-
am, að máli eftir fundinn í Addis
Ababa.
Mila Fitzgerald
lögð á spitala
Tónleikar jazzsöngkonunnar Ellu
Fitzgerald, sem halda átti á Norður-
sjávarjazzhátíðinn i á Hollandi, féllu
niður vegna veikinda. Talsmaður
hátíðarinnar sagði orsök veikind-
anna vera vatnstap úr líkama Ellu.
Ella er orðin 72 ára og samkvæmt
síðustu fréttum var ástand hennar
bærilegt en hún sá sér ekki fært að
vera við opnunarathöfn jazzhátíð-
arinnar. Hún veiktist síðastliðinn
mánudag eftir að hafa borðað og
drukkið of lítið. Hún var tafarlaust
flutt á nærliggjandi sjúkrahús og
lögð inn á gjörgæslu. Hún flýgur aft-
ur til Bandaríkjanna strax og heils-
an leyfir.
Myndatexti:
Hin heimsfræga jazzsöngkona Ella
Fitzgerald var lögö inn á sjúkrahús í
Hollandi
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Fjörkálfar 18.20 Unglingarnir í
hverfinu 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Poppkorn 19.25 Reimleikar á Fáfnis-
hóli 19.50 Maurinn og jarðsvínið
20.00 Fréttir og veður 20.30 Lands-
mót UMFÍ í Mosfellsbæ 21.30 Berg-
erec 22.20 Póker-Alice 23.50Út-
varpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Emilía 17.35
Jakari 17.40 Zorro 18.05 Ævintýri á
Kýþeríu 18.30 Bylmingur 19.19 19.19
20.30 Ferðast um tímann 21.20
Heilabrot (The Man with two Brains
22.50 í Ijósaskiptunum 23.15 Pyttur-
inn og pendúllinn 00.35 Gildran
02.40 Dagskrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 í morgunsárið 09.00 Fréttir
09.03 Litli barnatíminn: „Litla músin
Píla pína" eftir Kristján frá Djúpalæk
09.20 Morgunleikfimi 09.30 Innlit
10.00 Fréttir 10.03 Þjónustu- og neyt-
endahornið 10.10 Veðurfregnir 10.30
Á ferð 11.00 Fréttir 11.03 Samhljóm-
ur 11.53 Á dagskrá 12.00 Fréttayfirlit
12.01 Úr fuglabókinni 12.20 Hádeg-
isfréttir 12.45 Veðurfregnir. Dánar-
fregnir. Auglýsingar 13.00 í dagsins
önn 13.30 Miðdegissagan: „Vatn á
myllu kölska" eftir Ólaf Hauk Símon-
arson 14.00 Fréttir 14.03 Ljúflingslög
15.00 Fréttir 15.03 Á puttanum milli
plánetanna 16.00 Fréttir 16.03 Að ut-
an 16.10 Dagbókin 16.15 Veðurfregn-
ir 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir
17.03 Tónlist á síðdegi 18.00 Fréttir
18.03 Sumaraftann 18.30 Tónlist.
Auglýsingar. Dánarfregnir 18.45
Veðurfregnir. Auglýsingar 19.00
Kvöldfréttir 19.30 Auglýsingar 19.32
Kviksjá 20.00 Gamlar glæður 20.40
Suðurland — Njála 21.30 Sumarsag-
an: „Dafnis og Klói'' 22.00 Fréttir
22.07 Að utan 22.15 Veðurfregnir.
Orð kvöldsins 22.25 Úr fuglabókinni
22.30 Danslög 23.00 Kvöldgestir
24.00 Fréttir00.10Samhljómur01.00
Veðurfregnir 01.10 Næturútvarp.
Rás 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03
Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit. Aug-
lýsingar 12.20 Hádegisfréttir 14.10
Brot úr degi 16.03 Dagskrá 18.03
Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32
Söðlað um 20.30 Gullskífan 21.00 Á
djasstónleikum 22.07 Nætursól
01.00 Næturútvarp.
Byigjan
07.00 Hallur Magnússon og Kristín
Jónsdóttir 09.00 Fréttir 09.10 Páll
Þorsteinsson 11.00 Ólafur Már
Björnsson 12.00 Hádegisfréttir 14.00
Helgi RúnarÓskarsson 16.00 íþrótta-
fréttir 17.00 Síðdegisfréttir 17.15
Reykjavík síðdegis 18.30 Kvöld-
stemmning í Reykjavík 22.00 Á næt-
urvaktinni 03.00 Freymóður T. Sig-
urðsson.
Sfjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Á bakinu
í dýragarðinum 10.00 Bjarni Haukur
Þórsson 12.00 Hörður Árnarson og
áhöfn hans 15.00 Snorri Sturluson
og sögurnar 18.00 Kristófer Helga-
son 21.00 Darri Ólason á útopnu
03.00 Jóhannes B. Skúlason.
Aðalstöðin
07.00 Kominn tími til 09.00 Á nýjum
degi 12.00 Á hádegi 13.00 Með bros
á vör 15.00 Rós í hnappagatið 16.00
í dag, í kvöld 19.00 Við kvöldverðar-
borðið 20.00 Undir feldi 22.00 Kerta-
Ijós og kavíar 02.00 Næturtónar.
Bíræfnir
blómasalar
Ungir blómasalar hringdu dyra-
bjöllum í Hamrahverfi í Grafarvogi á
dögunum og buðu kurteislega
blómvendi til sölu, til að styrkja
Rauða krossinn, sögðu börnin. Ein-
hverjir karlmenn keyptu vendi til að
gleðja sína betri helminga. En svo
kom á daginn að blómin voru
reyndar tekin úr skrautgörðum
heimila i hverlinu. Fréttablaðið
Grafarvogur segir að blómasalarnir
hafi Iæðst í skjóli kvöldkyrrðar og
skilað aftur peningunum inn um
bréfarifur í húsum þar sem blóm
höfðu verið keypt. Blaðið bendir
foreldrum á þá skyldu þeirra að
brýna fyrir börnum það grundvall-
aratriði eignarréttarins að slíta ekki
blóm í blómabeðum á lóðum fólks.
Einn
með kaffínu
Eiginkonan: —Hvað viltu í af-
mælisgjöf, elskan?
Eiginmaðurinn: — Hvað með
tveggja mínútna þögn?
KROSSGÁTA N
□ 1 2 3 4
5 ■i
6 □ 7
8
10 , ■ 11
■ 12
13 □