Alþýðublaðið - 13.07.1990, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 13.07.1990, Qupperneq 8
•••• •••• • • • • • •••• •••• • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • LONDON: Breskur ráð- herra dró í gær til baka um- mæli sín þess efnis að Vest- ur-Þjóðverjar stefni að yfir- ráðum í Evrópu og það að fórna fullveldi landsins til að ganga í Efnahagsbanda- lag Evrópu mætti líkja við það að gefast upp fyrir Ad- olf Hitler. Nicholas Ridley, viðskipta og iðnaðarráð- herra landsins, sem er í op- inberri heimsókn í Ung- verjalandi, dró þessi ummæli til baka í gær til þess að lægja þann mikla pólitíska óróa sem ummælin hans hafa valdið. Margarét Thatcher hafnaði kröfu stjórnarand- stæðinga um að reka Ridley. DAMASKUS ! Vonir manna um að lausn vestrænna gísla sem eru haldi hryðjuverkasamtaka sé í sjónmáli eru tekn- ar að dofna þar sem ekkert hefur enn heyrst frá mannræn- ingjunum. íranska fréttastofan IRNA sagði um síðustu helgi að mannræningjar hefðu tekið ákvörðun um að veita evrópskum gíslum frelsi. STOKKHOLMUR : írakar hengdu á miðvikudag sænsk- an ríkisborgara sem sakaður var um njósnir i þágu Israels- manna að sögn Stens Andersson, utanríkisráðherra Svía. Svíar hafa kvatt sendiherra sinn í Irak heim til viðræðna og utanríkisráðherrann hefur fordæmt aftökuna. MANAGUA : Tíu daga verkfalli verkamanna sem fylgja Sandínistum að máli lauk í gær. Verkföllin hafa leitt til mik- illa átaka á götum höfuðborgar landsins, Managua, og er talið að þau séu eitt erfiðasta verkefnið sem stjórn Violettu Chamorro hefur þurft að glíma við frá því hún tók við stjórnartaumum. SEOUL: Forsætisráðherrar Norður- og Suður-Kóreu munu hittast síðar á þessu ári. Þetta er í fyrsta sinn síðan skaganum sem ríkin tvö standa á var skipt. Ráðherrarnir munu ræða leiðir til að draga úr spennu milli ríkjanna með það fyrir augum að einhvern tímann verði hægt að sam- eina jrau að nýju. HOUSTON : Fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims lauk á miðvikudag. A fundinum iýstu leiðtogarnir yfir stuðningi við sovésk stjórnvöld og vilja til að vinna að opnun mark- aða en ekki tókst að leysa ágreining milli þeirra um efna- hagsaðstoð við Sovétríkin. Niðurstaða fundarins varð sú að hverri þjóð væri frjálst að aðhafast það sem hún kysi til að koma Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, til hjálpar. FREETOWN : Líberískir uppreisnarmenn höfnuðu í gær tillögum um vopnahlé til að binda enda á borgarstyrjöld sem geisað hefur í landinu að undanförnu en þúsundir manna hafa fallið í bardögum. Uppreisnarmenn búa sig nú undir að gera síðustu árásina í þeim tilgangi að koma for- seta landsins, Samuel Doe, úr valdastóli. LONDON: Breski rithöfundurinn Salman Rushdie mun bráðlega gefa úr tvær nýjar bækur að sögn útgefanda hans. Rushdie hefur verið í felum síðan Ayatollah Kho- meini lýsti hann réttdræpan. BAGHDAD: Aðskilnaðar- sinnaðir skæruliðar Kúrda sögðu í gær að þeir hefðu fellt 179 íranska hermenn í fyrstu árás af mörgum í til- efni þess að nú er ár liðið frá morðinu á leiðtoga þeirra Abdolrahman Qass- emlu. SOWETO, Suður-Afríka: Hópur blökkukvenna tók það ráð í neyð sinni í gær að afklæðast og standa naktar fyrir framan jarðýtur til að koma í veg fyrir að þær gætu fram- kvæmt skipun suður-afrískra stjórnvalda um að rífa niður hrörleg heimili þeirra. Lögregla beitti síðan táragasi til að tvístra hópi ungmenna sem grýttu steinum að lögreglu og verkamönnum. KAIRO : Hafez al-Assad, forseti Sýrlands, mun halda í sína fyrstu opinberu heimsókn til Egyptalands síðan 1976 á laugardag. Hosni Mubarak tekur á móti forsetanum í Kaíró en fylgir honum síðan til hafnarborgarinnar Alexandríu þar sem Assad mun dvelja. ERLENDAR FRÉTTIR Umsjón: Laufey E. Löve Sovétríkin: Flokkurinn klofnar (MOSKVA, Reuter) Boris Jeltsín, forseti Sovétlýð- veldisins Rússlands, lýsti því yfir í gær á 28. flokks- þingi sovéska kommún- istaflokksins sem nú stendur yfir að hann hygð- ist segja sig úr flokknum. Skömmu síðar tilkynnti fulltrúi Lýðræðisvett- vangs, eins af flokksbrot- um sovéska kommúnista- flokksins, að Lýðræðis- vettvangur væri genginn úr kommúnistaflokknum og hefði í hyggju að stofna nýjan flokk. Það var Vladímír Shosta- kovsky, leiðtogi Lýðræðis- vettvangs, sem tilkynnti þessa ákvörðun á flokksþing- inu í gær um að kljúfa flokk- inn og stofna nýjan stjórn- málaflokk. Um 100 þingfull- trúar 'tilheyra Lýðræðisvett- vangi af þeim 4700 sem sitja þingið. Ekki var þó talið fuíl- víst að allir þeirra myndu styðja þessa ákvörðun. Áður en þingið hófst höfðu með- limir Lýðræðisvettvangs lýst því yfir að þeir hefðu í hyggju að kljúfa sig út úr flokknum ef róttækar breytingar yrðu ekki gerðar á stofnunum hans. Jeltsín sagði eftir að hann hafði tilkynnt úrsögn sína úr flokknum að hann hefði tekið þessa ákvörðun til að geta einbeitt sér að störfum sínum sem forseti stærsta lýðveldis Sovétríkjanna, Rússlands. Hann lýsti því jafnframt yfir að í starfi sínu gæti hann ekki eingöngu tekið mið af hags- munum flokksins við ákvarð- anatöku, því væri eðlilegt að hann segði skilið við flokk- inn. Flokksþingið sem er það 28. í röðinni er talið mjög mikilvægt sérstaklega fyrir valdastöðu forseta landsins, Míkhaíl Gorbatsjov, sem átt hefur við að etja mikla erfið- leika innanlands. Kjör Vlad- ímírs ívashkos, fyrrum forseti Sovétlýðveldisins Úkraínu, til embættis fulltrúa aðalritara á miðvikudag er talið vera mikill sigur fyrir Gorbatsjov. En embætti fulltrúa aðalrit- ara er næstvaldamesta emb- ætti innan sovéska kommún- istaflokksins. Gorbatsjov hafði mælt með Ivashko í embættið gegn harðlínu- manninum Jegor Lígatsjov. Embætti fulltrúa aðalritara er að skipuleggja daglegt starf innan flokksins og fylgjast með því. Innanlandsátök hafa sett svip sinn á flokksþingið því að á miðvikudag fóru náma- verkamenn í helstu náma- héruðum landsins í sólar- hringsverkfall. Kröfðust verkamennirnir þess meðal annars að stjórn Nikolajs Ryzhkovs forsætisráðherra Sovétríkjanna segði af sér. Einn talsmaður verkfalls- manna sagði réttast að kalla verkfallið verkfall gegn flokksræðinu. Forseti stærsta lýðveldis Sov- étrikjanna, Rússlands, Boris Jeltsín, lýsti því yfir í gær að hann hygðist ganga úr Sov- éska kommúnistaflokknum. Sviþjód: Sviar framselja flugræningja (STOKKHOLMUR, Reuter) Sænsk yfirvöld lýstu því yfir í gær að ákvörðun hefði verið tekin um að framseija 17 ára gamlan sovéskan flugræningja, Dmítrí Semjonov, til Sovét- ríkjanna. Ákvörðunin er að sögn stjórnvalda tekin í von um að hún megi verða til þess að draga úr þeirri miklu bylgju flugrána sem gengið hefur yfir að und- anförnu, en eftir að Semj- onov rændi flugvélinni hafa fimm aðrar sovéskar farþegarflugveiar verið neyddar til að lenda á sænskri grundu. Hæstiréttur Svíþjóðar hafnaði á miðvikudag beiðni Semjonovs um landvistar- leyfi í Svíþjóð og var ákvörð- un dómstóla að sögn byggð á aldri og andlegu ástandi hans. í gær tóku síðan stjórn- völd endanlega ákvörðun um að senda Semjonov til síns heima og var þar farið að mati hæstaréttar. Semjonov neyddi sovéska farþegaflug- vél með 121 farþega innan- borðs til að lenda á sænskri grundu þann 9. júní síðastlið- inn. Ógnaði hann áhöfninni með gervihandsprengju. Semjonovs hefur verið vandlega gætt af sænskum fangavörðum vegna hótana hans um að fremja sjálfsmorð verði honum ekki heimiluð landvist. Flugræningjans unga getur beðið allt að 10 ára fangelsisvist í Sovétríkj- unum. Enn hefur ákvörðun ekki verið tekin um hvenær Semjonov verður sendur til Sovétríkjanna en að sögn Lars Magnusson, talsmanns sænska utanríkisráðuneytis- ins, verða smáatriði framsals- ins nánar rædd við sovéska embættismenn. Búist er við því að Svíar taki á næstunni ákvörðun um að vísa tveim öðrum sovésk- um flugræningjum úr landi sem nú eru í gæslu sænsku lögreglunnar. Magnusson sagði þessar ákvarðanir þó ekki þýða að Svíar myndu hafna öllum siíkum beiðnum um landvist í framtíðinni. Albanía: Um 4500 flóttamenn ó leið til italiu (BÚDAPEST, Reuter) Fimm skip með rúmlega 4500 al- banska flóttamenn innan- borðs eru væntanleg til hafnar í Adríahafi á föstu- dag. Flóttamennirnir sem hafa hafst við í vestrænum sendiráðum í höfuðborg Albaníu, Tírana, að undan- förnu eru að flýja stalín- ískt stjórnarfar heimafyr- ir. Líkur eru taldar á að um 40 flóttamönnum í sendiráði Ungverja verði heimilað að slást í för með þeim 4500 AI- bönum úr vestrænum sendi- ráðum sem munu fara sjóleið- ina frá Albaníu. Búist var við að skipin sem flytja munu flóttamennina kæmu til al- bönsku hafnarborgarinnar Durazzo í gær. Þaðan verður farið með flóttamennina til ítölsku hafnarborgarinnar Brindisi og er búist við fyrstu skipunum þangað snemma á föstudag. Miklum fjölda tjalda hefur verið slegið upp í borginni Brindisi sem er í suðaustur- hluta Italíu og mun fólkið haf- ast þar við fyrst um sinn. Ákvarðanir um framtíðar- dvalarstað fólksins verður tekin síðar. Atburðirnir í Tírana hafa þótt minna mjög á það þegar fjöldi fólks leitaði í sendiráð Vestur-Þjóðverja í Aust- ur-Þýskalandi á síðasta ári skömmu fyrir fall Berlínar- múrsins. Embættismaður í ungverska utanríkisráðu- neytinu lýsti því þó yfir í gær að líkur væru á að albönsk- um stjórnvöldum myndi tak- ast að einangra þennan at- burð og komast þannig hjá verulegum þjóðfélags og stjórnarfarsbreytingum líkt því sem urðu í Áustur-Evrópu á síðasta ári. BROTTFOR FLOTTAFOLKS FRA ALBANIU J Ú G Ó S L A V i A, FÖSTUDAGURINN 13. JÚLÍ Siglt með 2000 Crý'g j flóttamenn frá _ 'i Durazzo til Bríndisi BULGARIA ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI \ 51 flóttamaður J flýr til Prag TÍRANA ALBANIA --------------------------------- . ^----------------------------------------------------------------------- í BRINDISI Or.rtrliíir Þar verður dvalið í ortnuts^ tjaldborg áður en © s haldið verður til Æ®?*- _. ... SSii Vestur-Þvskalands :s: Otranto© ' GRIKKLAND , %■■. ' 'v-v ; \' Flóttafólkið ráðgerir að haida til Bandaríkjanna og Ástraiíu ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI ; Sex flóttamenn komast : : til Otranto með bát MIÐJARÐARHAF km 200 REuTSR

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.