Alþýðublaðið - 02.02.1985, Síða 4

Alþýðublaðið - 02.02.1985, Síða 4
Útgefandi: Blað h.f. Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Arni Stefánsson. Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson. Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Eva Guömundsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð. Sími:81866. Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38. Laugardagur 2. febrúar 1985 Prentun: Blaðaprent, Síöumúla 12. alþýóu Áskriftarsíminn er 81866 Karl Steinar Guðnason: Er atviimuleysi fiskverkun- arfólks „eðlilegt“ Karl Steinar Guðnason tók til máls utan dagskrár á Alþingi nú í vikunni í tilefni hrikalegs atvinnuleysis á Suð-vesturlandi um þessar mundir. Benti hann þingmönnum á að sjávarútvegur á þessu svæði væri að koðna niður og ekkert gert í málinu, heldur þætti það þvert á móti tíðindalítið þótt hundruðir manna væru atvinnulausir vikunum saman. ræða Karls Steinars birtist hér að meginhluta. „Frá því um miðjan desember hefur vinnsla fisks á Suðvesturlandi verið afar takmörkuð, hundruð og aftur hundruð verkafólks hafa bæst í hóp atvinnulausra og er talið að 75% af þessu vinnuafli séu kon- ur. Á Suðurnesjum hefur ástandið verið sýnu verst en þar voru fyrstu vikuna í janúar allt fram til þessa dags á sjötta hundrað manns at- vinnulausir. Þetta sama fólk hefur að stærstum hluta verið án atvinnu frá því um mánaðamótin nóvem- ber/desember. í Hafnarfirði hafa rúmlega 200 manns verið atvinnu- lausir frá 6. okt. sl., í Reykjavík misstu 236 verkakonur atvinnu á Þorláksmessu og eru margar þeirra atvinnulausar enn. Á sama tíma og fjöldi kvenna í fiskiðnaði i Reykja- vík er atvinnulaus eru dagblöðin full af auglýsingum frá hvers konar þjónustuaðilum þar sem óskað er eftir starfsfólki til vinnu. Það þýðir ekki að fiskvinnslufólk eigi greiðan aðgang að þeirri atvinnu, enda oft erfitt fyrir rosknar konur eða ein- stæðar mæður að skipta yfir í versl- unar- eða þjónustustörf á skömm- um tíma. Þar kemur til sú staðreynd að fólk sem unnið hefur lengi í fiski hefur aflað sér sérþekkingar sem hvergi nýtist nema í fiskiðnaði. Það er oft líka þannig að bönd rnilli almenns verkafólks og sjávarútvegs eru sterk eftir áratuga þjónustu, bönd sem erfitt er að slíta þrátt fyrir erfiða afkomu. Eðlilegt ástand? Þessar atvinnuauglýsingar sýna hins vegar hvað þrífst best þessa dagana, þ. e. verslun og hvers konar þjónustustarfsemi. Þær sýna líka hversu fiskiðnaðurinn hefur sett niður að sjávarútvegur er á fallanda fæti. Á Suðurnesjum er hins vegar svo komið að atvinnuauglýsingar berja menn ekki augum. Reyndar er svo komið á því landsvæði að á undanförnum árum hefur mikil þensla átt sér stað á sumrin en strax að hausti og út veturinn hefur at- vinnuástandið verið afleitt. Ástandið hefur þó ekki orðið erfið- Karl Steinar Guðnason: Er réttlœt- antegt að kvótinn njörvi suma landshluta niður í atvinnuleysi á meðan ofþensla er slík annars stað- ar? ara en einmitt nú. Þar hefur ríkt óþolandi atvinnuleysi sem verður að bæta úr. Ég verð að játa að það er nöturleg staðreynd að það þykja ekki tíðindi Iengur þegar hundruðir, jafnvel þúsundir verkafólks er atvinnu- laust. Það er gjarnan sagt: Já, þetta er tímabilið, þetta fylgir þessum árstíma o. s. frv. Það er skelfilegt þegar sú hugsun kemur fram að þetta ástand sé eðlilegt. Það eru mannréttindi að hafa atvinnu og það er í fyllsta inæli óeðiilegt þegar þau mannréttindi eru ekki fyrir hendi. Ég minni líka á að ástandið er nú mun verra í þessum efnum en fyrr. Öryggi fiskverkunarfólks Lengi hefur verkalýðshreyfingin barist fyrir auknum réttindum fisk- verkunarfólks. Það hefur stundum tekist að stíga fetið fram á við en aldrei nóg. Nú vill svo til að á borð- um alþingismanna liggur frumvarp til laga um uppsagnarfrest sem Guðmundur J. Guðmundsson og JóhannaSigurðardóttiro. fl. flytja. Af því tilefni leyfi ég mér að spyrja sjávarútvegsráðherra hvort hann muni beita sér fyrir samþykkt þessa frumvarps, hvort hann muni á þann hátt slást í lið þeirra sem vilja auka öryggi fiskverkunarfólks á vinnu- markaðnum. En það eru fleiri spurningar sem leita á. Ég spyr ráðherra: Hvernig stendur á því að á sama tíma og leyft er að flytja hundruð útlend- inga til starfa r fiskiðnaði á Vest- fjörðum eru hundruðir verka- kvenna og verkamanna án atvinnu á Suðurnesjum, Reykjavík og Hafnarfirði? Hvað um aflamiðlun? Er réttlætanlegt að kvótinn njörvi suma landshluta niður í atvinnu- leysi á meðan ofþenslan er slík annars staðar? Á Suðurnesjum er nú svo komið að hvert skipið á fæt- ur öðru er selt af svæðinu vegna rekstrarerfiðleika. Talið er að níu þúsund tonna kvóti hafi þannig á skömmum tíma verið fluttur frá Suðurnesjum. Eftir situr verkafólk- ið verkefnalaust, atvinnulaust. Fiskvinnslufyrirtækin sem eftir eru skortir hráefni og viku eftir viku koma til með að falla niður vinnslu- dagar vegna hráefnisskorts ef að líkum lætur. Ég spyr sjávarútvegsráðherra: Er það staðföst ætlun hans að láta kvóta fylgja skipi hvernig sem atvinnuástandið er á því svæði sem skipið kemur frá? Eru það úígerð- armenn skipa sem einir eiga fiskinn í sjónum, á verkafólkið engan rétt? Mér er það ljóst að sjávarútveg- urinn á í erfiðleikum, þrátt fyrir að síðasta ár var eitt það fengsælasta í sögu þjóðarinnar. Ástæðan er sú helst að sjávarútvegurinn er fórnar- dýr efnahagsstefnu ríkisstjórnar- innar. Margir útvegsmenn hafa freistast til að flytja fisk út ferskan í gámum í þeirri von að fá meira verð fyrir fiskinn eða til ^ð fá bein- harða peninga strax í reksturinn. Ég veit að oft tekst að fá gott verð og það væri afturhaldssemi að leggjast alfarið gegn þeirri þróun eða þeim nýjungum sem nú eru mögulegar með nýrri flutningatækni. En slíkar breytingar verða að taka mið af at- vinnuástandi sem er í Iandinu hverju sinni. Á Suðurnesjum er mikið um að fiskur er fluttur út í gámum. Mér er kunnugt um af viðtölum við menn í sjávarútvegi á Suðurnesjum að í mörgum tilfellum fæst lægra verð fyrir fisk sem fluttur er út í gámum en elia mundi fást. Ég spyr sjávarút- vegsráðherra: Er fylgst með því á hvaða verði gámafiskurinn er seld- ur? Hefur verið kannað, hvort það er alltaf hagkvæmara að selja fisk- inn ferskan, þar sem verkamanns- höndin kemur hvergi nálægt eða selja hann fremur til frystingar hér heima? Gera þarf átak Ég fullyrði að sjávarútvegur er verr kominn á Suðurnesjum en annars staðar á landinu, sem rekja má til ýmissa orsaka. Um skeið guldu Suðurnesin svokaliaðrar byggðastefnu, þar sem Fram- kvæmdastofnun neitaði að veita fyrirtækjum á Suðurnesjum sömu fyrirgreiðslu og tíðkaðist annars staðar. Þá er það staðreynd, að skreiðarverkun hefur verið afar mikil á svæðinu og sitja menn nú uppi með mikið af óseljanlegri vöru, sem vissulega hefur óheyri- legan kostnað í för með sér. Sú stað- reynd að fjöldi skipa hefur nú verið seldur af svæðinu án þess að nokkuð komi í staðinn segir sína sögu. Það segir þá sögu, að fyrir- tæki annars staðar á landinu eru betur í stakk búin til að reka útgerð, hafa efni á að kaupa sér ný skip fremur en aðrir. í ljósi þessa tel ég að taka þurfi málefni sjávarútvegs á Suðurnesjum sérstökum tökum. Gera þarf sérstakt átak til að útgerð og fiskvinnsla á þessu svæði haldi ekki áfram að koðna niður. Ég minnist þess að í málefnasamningi síðustu ríkisstjórnar var ákvæði um atvinnuuppbyggingu eða átak í at- vinnumálum á Suðurnesjum. Reyndar var þetta stefnuatriði sett í kaflann um utanríkismál svo að ljóst má vera að höfundar þess hafa haft litla hugmynd um það að út- gerð og fiskvinnsla eru aðalat- vinnuvegur Suðurnesjamanna. Reyndin varð sú að ekkert var gert með þetta ákvæði, hvorki á sviði sjávarútvegsmála, iðnaðar eða í öðru. Og áfram hallar undan fæti í sjávarútvegsmálum á þessu svæði, og svo mun enn verða ef ekkert verður að gertí* ' MOLAR Menn, heslar og hundar á Skaganum í Skagablaðinu, sem gefið er út á Akranesi er sagt frá því að á sl. ári hafi mönnum fækkað í fyrstasinn í áratug. Frá því í fyrra hefur íbú- um á Akranesi fækkað unt 60. En þar sem Skagamenn eru í bðli sinu bjartsýnir voru þeir snöggir að finna ljósa punktinn við þessa fækkun. Fækkunin þýddi jú meira rými fyrir hina, sem eftir eru á Skaganum. Ekki má mis- skilja þetta svo að Akurnesingum hafi þótt þröngt urn sig í bókstaf- legri merkingu, heldur hefur veriö erfitt ástand í atvinnumálum á staðnum, einsog á fleiri stöðum, sem byggja afkoniu sína að miklu leyti á útgerð. Snarpar umræður urðu um atvinnumálin á bæjar- stjórnarfundi og sýndist sitt hverjum. Sjálfstæðismenn voru að vonum all ánægðir með ástandið og töldu það síst verra nú en áður. Hinsvegar fannst þeim umfjöllun bæjarblaða um at- vinnuástandið ol' neikvæð og vildu þeir að blöðin fjöllliðu um þessi mál af meiri bjartsýni. Spunnust miklar umræður um þátt bæjarblaðanna í atvinnu- ástandinu og voru menn langt frá því að vera á einu nráli um hann. Kom sú hugmynd fram að rneiri- hlutinn léti frá sér fara greinar- gerð um atvinnuástandið og yrði hún birt í bæjarblöðunum með mynd af öllum bæjarfulltrúunum skælbrosandi, fyrst allt væri i svona góðu lagi. En ýmislegt annað ber á góma á bæjarstjórnarfundum á Skag- anum. Til að mynda hafa miklar deilur sprottið um reiðgötur. Ein vinsælasta reiðleið hestamanna á Akranesi hefur verið upp með Berjadalsá að hlíðum Akrafjalls. Þar sem þetta er rétt hjá sorp- haugunum eru oft glerbrot og rusl á veginum, getur þetta valdið slys- um. Ódýr og góð lausn þykir að ýta slóð meðfram veginum. Fannst þó sumum slíkt mikil til- ætlunarsemi af hestamönnum, fannst þeir vel geta séð um sínar reiðgötur sjálfir. Einum bæjar- fulltrúanna fannst nær að leggja gangstéttir fyrir vegfarendur. Annar kallaði slíka skoðun dæmalausa þröngsýni og endir- inn varð sá að málinu var vísað frá til bæjarráðs. En það eru fleiri skepnur en hestar senr koma upp á borð hjá bæjarstjórnarfulltrúunum og valda deilum, því hundahaldið hefur vakið úlfaþyt þar sem á mörgum öðrum bæjum. Vildi einn bæjarfulltrúinn láta kjósa um hundahald í næstu bæjar- stjórnarkosningum. Því var and- mælt og það kallað fáránlegt, það tjóaði ekkert að kjósa urn slíkt, hundahald yrði alltaf leyft með einhverjum undantekningum. Ástæðan fyrir því að deiit er um þetta mál nú ku vera sú að mikið hefur verið um að hundar gangi Iausir og þó sérstakur hundaeftir- litsmaður hafi verið ráðinn á stað- inn hefur ekki tekist að fram- fylgja reglum um hundahald. Ástæðan fyrir þvi ntun einkum sú að geymsla fyrir fangaða hunda væri mjög ófullnægjandi. Lækningatónlist Það hefur lengi verið vitað að tón- list getur haft róandi áhrif á fólk, eða æsandi, allt eftir eðli þeirrar tónlistar sem hlustað er á. Þetta hafa sálfræðingar í Bandaríkjun- um nú ákveðið að notfæra sér við lækningu á streitu og þunglyndi. Hafa þeir fengið sænska þunga- viktarmanninn í rafeindatónlist, Ralph Lundsten til liðs við sig, til að setja saman tónlist á kasettu. Verða þær síðan leiknar fyrir sjúklingana og er bara að vona að þessi tilraun gefist vel, því óneit- anlega hljómar það betur ef hægt er að lækna þá af þessu meini með ljúfum tónurn en sterkum lyfjum. Ralph þessi er annars þekktastur fyrir tónverk sitt við skáidverkið „Lord of the rings“, eftir Tolkiene. Hann hefur líka sanrið tónverk við þátt Gunnars á Hlíðarenda i Njálu, svo eitthvað sé nefnt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.