Alþýðublaðið - 23.02.1985, Page 2
2
Laugardagur 23. febrúar 1985
SUNNUDAGSLEIÐARI,
Erindrekar andskotans
Þaö er dauði og djöfuls nauð
er dyggðarsnauðir fantar!
safna auð með augun rauð
en aðra brauðið vantar.
Ö. A.
Þessi vísa er eitt af mörgum snjöllum fram-
lögum, sem jafnaöarmaöurinn Örn Arnarson
lagöi til verkalýðsbaráttu fyrri tima. Nauð
djöfulsins birtist okkur ( margvíslegum mynd-
um. Hér mun lyft Ijósi aö tveim siíkum, sem eru
af sama toga en þó sín í hvorum ramma. Eitt af
átumeinum ísi. þjóölífs er ofneysla á áfengi og
eiturlyfjum. í flestum tilvikum er neysluþróun-
in með þeim hætti aö einstaklingurinn kynnist
Bakkusi sem glaðværum og góðum gesti, sem
síðar sest upp og gerist herra hússins. Skeifi-
legaoft tekst honum að leiða með sér til sætis
lagsbræður sína kannabis, amfetamin, barbit-
ur og L. S. D.l Diasepan.
„Dísa frænka“ er þá gjarnan látin smeygja
sér fyrst inn til að taka lásinn af viljastyrknum
og ekki ósjaldan þá með vegabréfsáritun frá
heilbrigðisgeiranum. Allt þetta lið vinnur svo
stórvirk skemmdarverk á miðtaugakerfi og
heila einstaklingsins, breytir persónugerð
hans, skaphöfn og siðferðislegum viðhorfum
þannig, að það sem honum var andstyggð al-
gáðum verður undir áhrifum vímuefnanna
líkamleg og andleg nauöþurft. Helsjúkur of-
neytandinn stjórnarekki eigin gerðum umfram
þeim að svala allsráðandi flkninni. Viðhorf til
þess sjúkafólks eru mismundandi, flestir bera
þó I brjósti gagnvart því vorkunn eða samúð.
Þó eru þeir til í þjóðfélaginu, sem eru svo al-
gjörir siðferðislegir öreigar að hafa eymd fólks
að féþúfu og valda þjáningu i lífi meðbræðra
sinna, ekki sist saklausra barna.
Þeir sem smygla og selja eiturefnin eru oft
sjálfir ánetjað ógæfufólk gertútafþeim erind-
rekum andskotans, sem fjármagnaeiturkaup-
in og auðgast á því að eyðileggja einstaklinga
og fjölskyldur. Þegar upp kemst um þetta
glæpafólk þá er sú afstaða laga og almenn-
ingsálits skýr, að geyma það bak við lás og slá.
En það er líka hægt að hafa eymd fólks að fé-
þúfu án þess að fremja glæp að lögum.
Ung hjón I Rvk. völdu þann kost að borða
grjónavelling eins og Steingrímur ráðherra og
nota alit sitt fé til greiðslu á íbúðarskuld sinni.
Fyrir vikið gjaldféll átta þúsund króna iðgjald
til milljónafyrirtækis, það lenti því I innheimtu
hjá ríkismenntuðum rukkara, sem hefur bréf
upp á rétt sinn frá Háskóla íslands. I fyllingu
tímans og eftir að hafa neitaö öðrum samning-
um en fullri greiðslu á skuldinni, þá lét rukkar-
inn taka sjónvarpið úr stofunni hjá ungu hjón-
unum og seldi á nauðungarsölu. Sjónvarpið
seldist á eliefu þúsund krónur, sem var ná-
kvæmlega sama upphæð og áfallinn kostnað-
ur rukkarans. Eftir stendur eins og I upphafi
átta þúsund kr. skuld við milljónafyrirtækið.
Ríkismenntaði rukkarinn byrjar nú enn að
skrifa sín bréf og lætur tlmann vinna fyrir sig,
því í formi innheimtukostnaðar vex ný ull á
fórnarlömbin og hann mun rýja þau aftur og
aftur inn að skinni. Enn eiga þau sitt hvað selj-
anlegt s. s. þurrkara, þvottavél, ísskáp o. fl.
Ungu hjónin eygja enga leið tii lausnar. Ríkis-
stjórnin hefur lagt þau eins og þúsundir
annarra Islendinga í fjötra og hlekki fjárhags-
legs umkomuleysis. Þetta unga fólk er jafn fast
í greipum þessara nútlma þrælahaldara og
dópistinn í greip eitursalans.
Þeirafkastamestu (hópi þessara rukkara hafa
komið sér upp hundruðum ef ekki þúsundum
fórnarlamba og rýja þau með skipulögðum
hætti, eftir tölv'uforritum.
En jörðin brennur nú þegar undir fótum
þessara erindreka andskotans. Nýtilkomin fá-
tækrahjálp við húsbyggjendurgerirekki annaö
en seinka smávegis kveikjunni á þeirri tíma-
sprengju, sem sækir afl sitt í réttlætiskennd
og reiði niðurlægðrar þjóðar. D. K.
Utsala 1
og Flugmálastjórn um þátttöku í
kostnaði við rannsóknina og að at-
hugaður yrði sá möguleiki að flytja
innanlandsflugið á Keflavíkurflug-
völl, en þá með t. d. einteinungs-
hraðasamgöngum á milli.
Um þessa tillögu sagði Sigurður
að það væri afstaða Alþýðuflokks-
ins að þjóðin hefði alls ekki efni á
því að ráðast í svona framkvæmdir
er kostuðu milljónahundruði,
hvorki fyrir eigið fé, né væri stætt
að auka á erlendar skuldir. Benti
hann á að flugtækni væri í stöðugri
framför og meiri möguleiki á því að
stytta flugbrautirnar eða breyta á
annan hátt er mjakað gæti flugvell-
inum fjær byggð. Ýmsir möguleikar
væru fyrir hendi sem vert væri að
huga að. Benti Sigurður á að það
skyti skökku við þegar alþýðu-
bandalagsmenn legðu til að færa
innanlandsflugið upp á Keflavíkur-
flugvöll, samtímis sem þeir bentu á
hversu gífurlega mikið skotmark
hann væri. í raun virtist Alþýðu-
bandalagið enga stefnu hafa í þessu
máli og gæti í hvorugan fótinn stig-
ið.
Tillaga Alþýðubandalagsins fékk
6 atkvæði þeirra og Kvennafram-
boðs, aðrir voru á móti.
Moggavaldið 1
förinni við meirihlutaálit mennta-
málanefndar i neðri deild. „Þetta
álit einkennist af framsóknar-sjón-
armiðum í útvarpsmálum. Hið
mótsagnakennda frumvarp sem
nefndin hafði til meðferðar er
þynnt út á kostnað frjálsra stöðva
og Ieitast við að gera hlut Ríkisút-
varpsins sem mestan"
Síðan efast leiðarahöfundur um
að sjálfstæðismenn séu tilbúnir að
veita frumvarpinu brautargengi í
núverandi mynd og bendir í því
sambandi á að Friðrik Sophusson,
varaformaður flokksins, telji sig
ékki bundinn af neinu slíku sam-
komulagi.
Þó Mogginn hafi ekki áður séð
ástæðu til að bregða fæti fyrir
frumvarpið, virðist hann nú vera al-
varlega að íhuga slíkt. Og þá er eftir
að reyna á hvort Moggavaldið ræð-
ur rneiru en skoðanamyndun al-
mennings í landinu; hvort vald hans
nær Iíka yfir Alþingi landsmanna.
Eitt er víst að útvarpslagahausverk-
ur ríkisstjórnarinnar er ekki úr sög-
unni. Og þá er það spurningin hvort
ekki sé rétt að afhausa þolanda, svo
tryggingamál sé notað, til að losa
hann við verkinn í eitt skipti fyrir
öll.
Davíðssálmur 1
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn mynduðu stjórn.
Davíðssálmurinn á fimmtudags-
kvöldið var því að við völd væri
óhæf ríkisstjórn, að formaðurinn
hefði valdið honum vonbrigðum,
að ríkisstjórnin ætti að annað hvort
að láta hendur standa fram úr
ermum og láta verkin tala, því
þeirra væri valdið, mátturinn og
dýrðin ef vilji væri fyrir hendi, eða
leggja upp laupana, sem heilbrigð-
ast væri.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
_____I REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunardeild Droplaugar-
staða.
• Sjúkraliðar við hjúkrunardeild Droplaugarstaða.
Upplýsingar veitir deildarstjóri á hjúkrunardeild, í
síma 25811.
• Forstöðumenn við dagheimilið Sunnuborg, Sólheim-
um 19, Völvuborg, Völvufelli 7 og dagh./leiksk. Iðu-
borg, Iðufelli 16.
•Fóstrurvið Árborg, Dyngjuborg, Bakkaborg, Grænu-
borg, HKðaborg, Holtaborg, Iðuborg, Leikfell, Sunnu-
borg, Völvuborg og Ösp.
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu
dagvistar, sími 27277 og forstöðumenn viðkomandi
heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 4. mars 1985.
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðarog tæki sem eru til
sýnis í bækistöð Reykjavíkurhafnar að Hólmaslóð 12 I
Örfirisey.
1. Mercides Benz 207 flokkabifreið með palli árg.
1976.
2. Volvo f 86 vörubifreið árg. 1974.
3. Mazda 818 árg, 1977.
4. Mazda 818 árg. 1977.
5. Mercides Benz 309 16 manna rúta árg. 1974.
6. Broyt x 2 grafa.
7. Grjótbor á hjólastelli.
8. Loftpressa 110 cu. ft.
9. Fergusson dráttarvél.
10. Monimac bandsög sagarstærð 62 cm.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavik þriðjudaginn 26. feb. nk. kl. 15. f. h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Fulltrúaráð
Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík
Fundurverðurhaldinn mánudaginn 25. febrúarkl. 20.30
í Félagsmiðstöð jafnaðarmanna,
Hverfisgötu 8—10.
Fundarefni: Sigurður E. Guðmundsson, bæjarfulltrúi
talar um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Fulltrúar fjölmennið.
Stjórnin
Alþýðuflokksfólk
— Kópavogi
Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna I Kópavogi verð-
ur haldin laugardaginn 23. febrúar nk. I Félags-
heimili Kópavogs.
Salurinn opnaður kl. 19. og er miðaverð kr. 700
aðeins. Heiðursgestur hátíðarinnar verður Gréta
Aðalsteinsdóttir sveitarstjórnarfuIItrúi I Mos-
fel Issveit,
Dans — glaumur — gleði — tii kl. 3.
Miðapantanir hjá Grétu (44071), Hrafni (43936) og
Hauði (41394).
Mætum öll — létt I lund.
Nefndin.