Alþýðublaðið - 01.08.1985, Qupperneq 3
Fimmtudagur 1. ágúst 1985
3
Hvammstangabúar eru meðal þeirra sem nú fá vörur á sama verði og íbúar höfuðborgarsvœðisins.
Húsnœðisstofn un:
Sækið um greiðslujöfnun
fyrir 1. september
Sambandið:
Fraktfrítt
um landið
Lögin um greiðslujöfnun gengu í
gildi þann 11. júlí 1985. Tilgangur
laganna er að jaf na greiðslubyrði af
fasteignalánum einstaklinga, sem
tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæð-
is til eigin nota. Skal misgengi, sem
orsakast af hækkun lánskjaravísi-
tölu eða byggingarvísitölu umfram
hækkun launa og/eða af hækkuð-
um raunvöxtum, ekki valda því að
greiðslubyrði af greindum lánum
þyngist.
í greiðslujöfnun felst, að hækki
laun minna en lánskjaravísitalan
eða byggingarvísitalan, er hluta
endurgreiðslu lánsins frestað þar til
laun hækka á ný umfram viðmið-
unarvísitöluna. Þetta gerist með
þeim hætti, að mismunur launavísi-
tölu og viðmiðunarvísitölu er færð-
ur á sérstakan jöfnunarreikning.
Skuld á jöfnunarreikningi telst
hluti af höfuðstól lánsins og um
hana gilda því sömu kjör og um
ræðir í lánssamningi. Þessi skuld er
síðan endurgreidd hlutfallslega
þegar launavísitalan hækkar um-
fram viðmiðunarvísitölu, eða eftir
upphaflegan lánstíma, ef skuld er
þá á jöfnunarreikningi.
Greiðslumarkið (þ.e. afborgun
og vextir) er gjaldfallin afborgun og
vextir á verðlagi 1. mars 1982, hafi
lán verið stofnað fyrir þann tíma.
Hafi lán verið stofnað eftir 1. mars
1982, þá er greiðslumarkið á verð-
lagi við lántöku.
Á gjalddaga láns er greiðslu-
markið framreiknað miðað við
breytingu á launavísitölu, sem Hag-
stofa íslands reiknar út, og borið
saman við gjalddagafjárhæð láns-
ins (afborgun, vextir og verðbæt-
ur).
Greiðslujöfnunin nær sjálfkrafa
til allra, sem fá sín lán útgreidd eftir
gildistöku laganna.
Einstaklingar, sem fengið hafa
fullverðtryggð lán úr byggingar-
sjóðunum fyrir gildistöku laganna
og eru í greiðsluerfiðleikum, geta
sótt um greiðslujöfnun fyrir 1. sept.
1985:
1. Vegna komandi gjalddaga.
2. Vegna fyrri gjalddaga.
3. Vegna komandi og fyrri gjald-
daga.
Eins og áður hefur komið fram
geta einstaklingar, sem eru í
greiðsluerfiðleikum sótt um
greiðslujöfnun vegna fyrri gjald-
daga. Þeim verður gefinn kostur á
að fresta greiðslu eða hluta af
greiðslu afborgana, vaxta og verð-
bóta á næsta heila ári hvers láns.
Frestun greiðslu af slíku láni skal
heimil allt að þeirri fjárhæð sem á
jöfnunarreikningi stæði, ef ákvæði
þessara laga hefðu gilt frá lántöku.
Þessi frestun gildir aðeins einu
sinni.
Umsóknareyðublöð liggja
frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkis-
Á undanförnum tveimur árum
hefur Kennslumiðstöð Náms-
gagnastofnunar gengist fyrir kynn-
ingarstarfsemi fyrir kennara og
ýmsa aðila innan fræðslukerfisins.
Má þar nefna kynningu á tölvum og
skólastarfi, myndböndum í skóla-
starfi, dagskrá um fræði- og hand-
bækur í skólastarfi, dagskrá um
kennslu fatlaðra barna og fleira.
Næstu mánuði mun Námsgagna-
stofnun ásamt fleiri aðilum standa
að eftirtöldum dagskrám:
Norrœna húsið:
Biskupsfyrir-
lestur í kvöld
í dag, fimmtudaginn 1. ágúst kl,
20:30 heldur dr. Sigurbjörn Einars-
son, biskup, fyrirlestur í Norræna
húsinu. Fyrirlesturinn nefnjst „Úr
kirkjusögu íslands" og verður
fluttur á sænsku, þar eð þetta er lið-
ur í sumardagskrá hússins.
Þessi sumardagskrá, „Opið hús“,
er aðallega ætluð norrænum ferða-
mönnum og fyrirlestrar þarafleið-t
andi jafnan fluttir á einhverju
Norðurlandamálanna. íslendingar
eru þó engu að síður velkomnir og
má búast við, að marga fýsi að
hlýða á erindi biskups, svo samofin
sem kirkjusagan er sögu þjóðarinn-
ar.
Eftir kaffihlé verður sýnd kvik-
mynd Ósvalds Knudsen „Heyrið
vella á heiðum hveri“ með sænsku
tali.
Bókasafn og kaffistofa Norræna
hússins verða opin til kl. 22:00, eins
og venja er á fimmtudögum, þegar
„Opið hús“ er á dagskrá. Aðgangur
er ókeypis. • .
ins og bæjar- og sveitarstjórnar-
skrifstofum.
Umsóknum skal skilað til Hús-
næðisstofnunar ríkisins, fyrir 1.
sept. 1985.
Dagana 26.—30. ágúst verður efnt
til dagskrár um byrjendakennslu
undir heitinu HVAÐ UNGUR
NEMUR GAMALL TEMUR.
Meðal viðfangsefna eru: Hvar
stöndum við? Hvað viljum við?
Hvert stefnum við? Flutt verða er-
indi um stefnur og strauma í byrj-
endakennslu og m.a. kynntar nýj-
ungar í skólastarfi erlendis. Haldin
verða námskeið um fjölmörg efni
og kennurum boðið að fást við
verkefnagerð. í tengslum við þessa
dagskrá verður haldin sýning á
kennslugögnum.
Á þessum árstíma eru skólar að
hefjast og þar að auki fjöldi barna
að hefja skólanám í fyrsta skipti.
Við þau tímamót vakna eðlilega
ýmsar spurningar hjá foreldrum og
aðstandendum barnanna.
Á síðustu árum hefur markvisst
verið unnið að kynningu á nýjum
kennsluaðferðum í byrjenda-
kennslu. Þessi kynning hefur farið
fram í kennaranáminu og að sjálf-
sögðu meðal starfandi kennara.
Hún hefur hins vegar ekki náð til al-
mennings nema að litlu leyti. Það er
því mikilvægt að almenningur fái
upplýsingar og fræðslu um þetta
viðkvæma skólastig svo að sem
flestir geti fjallað um það af þekk-
ingu.
Dagana 21.—27. september mun
Jafnréttisráð, í samvinnu við Náms-
gagnastofnun, Kennaraháskóla ís-
lands, Kvenréttindafélag íslands,
Verslunardeild Sambands ísl.
samvinnufélaga sendir nú allar vör-
ur frá matvörudeild sinni til kaup-
félaganna hvarvetna á landinu án
þess að reikna af þeim flutnings-
gjald. Þetta kom til framkvæmda
um síðustu áramót, og ber mönn-
um saman um að hér sé um gífur-
lega mikið hagsmunamál fyrir
landsbyggðina að ræða.
Þetta mál er til komið í framhaldi
af þeirri þróun síðustu ára að land-
ið allt er i síauknum mæli að verða
að einu markaðssvæði. Það felur í
sér að fólk utan Reykjavíkursvæð-
isins er farið að gera ákveðnari
kröfur en fyrr um að vöruverð
heima fyrir sé sambærilegt við það
sem gerist í stórverslunum höfuð-
borgarinnar. Þetta skapar dreifbýl-
isverslunum vitaskuld vissa erfið-
leika, því að til þessa hafa þær orðið
að flytja vörur sínar að mestum
hluta frá Reykjavík. Kostnaðurinn
við það hefur vitaskuld orðið að
leggjast ofan á útsöluverðið heima í
héraði.
Verslunardeild Sambandsins
hafði áður veitt samvinnuverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu þá þjón-
ustu að senda þeim vörurnar ókeyp-
is, en í vetur leið tókst henni að
skipa málum þannig að hún væri
einnig í stakk búin til að veita þessa
þjónustu um land allt. Þetta var
m.a. gert í samvinnu við Skipadeild
Sambandsins, en vörurnar eru ann-
Bandalag kennarafélaga, Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkurumdæmis
og skólaþróunardeild menntamála-
ráðuneydsins, gangast fyrir dag-
skrá sem ber heitið STELPURNAR
OG STRÁKARNIR í SKÓLAN-
UM. Meðal viðfangsefna verða:
Konur og starfsval, konur og tölvu-
mál, hvernig strákar og stelpur birt-
ast okkur í skólabókunum og að-
gerðir á sviði mennta- og jafnréttis-
mála í nágrannalöndunum.
Líklegt er að á dagskránni muni
koma fram athyglisverðar upplýs-
ingar um jafnréttismál í skólum og
er mikilvægt að þeim verði komið á
framfæri við almenning. í tengslum
við dagskrána verður efnt til sýn-
ingar í Kennslumiðstöðinni á náms-
gögnum og heimildum um jafnrétt-
ismál og skólastarf.
Þá mun Námsgagnastofnun
ásamt fleiri aðilum efna til dagskrár
um heilsuuppeldi og heilbrigðis-
fræðslu í skólum.
Dagskráin er í mótun en hugsan-
leg viðfangsefni eru:
— Ávana- og fíkniefni, m.a. í ljósi
athyglisverðra upplýsinga sem ný-
lega hafa komið fram um þessi mál.
Hvað geta skólarnir gert?
— Er mataræði og svefnvenjum
skólabarna ábótavant? Er hugsan-
legt að þessir þættir hafi afgerandi
áhrif á gengi barna í námi og geð-
heilsu þeirra?
— Ást og kynferðisfræðsla.
— Geðheilsa skólabarna.
ars fluttar með bílum eða skipum,
allt eftir því hvor flutningsmátinn
er hagkvæmari hverju sinni. Sér-
staklega verður þess gætt að þessi
þjónusta við landsbyggðina bitni
ekki á samvinnuverslunum höfuð-
borgarsvæðisins eða viðskiptavin-
um þar. Gert er ráð fyrir að tekjur
til að bera uppi kostnaðinn við
þetta fáist með aukinni hagræðingu
og vaxandi veltu sem lækkandi
vöruverð í kjölfar þessa leiði af sér
úti á landi. Á sínum tíma var þessi
ákvörðun m.a. möguleg vegna
þeirra skipulagsbreytinga, sem
gerðar voru í Sambandinu á síðasta
ári, og henni er ætlað að verða til
þess að auðvelda kaupfélögunum
úti á landi að keppa við höfuðborg-
arsvæðið í verðlagningu.
Með öðrum orðum felur þetta í
sér að frá og með síðustu áramótum
njóta neytendur úti á landi ná-
kvæmlega sömu kjara að því er
varðar verð á vörum frá matvöru-
. deild Verslunardeildar og neytend-
ur á suðvesturhorninu. Það sem af
er hefur þessi nýjung einungis hlot-
ið mjög jákvæðar undirtektir frá
kaupfélögunum.
(Fréttatilkynning frá Sambandi ísl.
samvinnufélaga).
Geimöld 4
mikill enn sem komið er. En þá eru
það kapalstöðvarnar sem velja ofan
í notandann í stað ríkisstjónvarps-
ins og ætli þeim allra frjálslyndustu
þætti ekki vegið að sér þar. Tækið
sem þarf til móttökunnar er diskur
— loftnet, sem enn sem komið er
kostar nokkur hundruð þúsund
krónur hingað kominn, en verðið á
eftir að lækka og einnig geta nokkr-
ir tekið sig saman um kaup á slíku
loftneti. 1 Bandaríkjunum hefur
notkun gervihnattasjónvarps þegar
aukist með ódýrari loftnetum af
þessu tagi. Fyrir nokkrum árum
voru einungis nokkur þúsund loft-
net í notkun þar í landi en nú er tal-
ið að þau séu um ein milljón talsins.
Birgir Guðjónsson hjá Hljómbæ
sagði að þeir hefðu enn sem komið
er fengið að stunda móttöku frá
hnettinum óáreittir frá Pósti og
Síma og vonaðist hann til að svo
yrði enn um sinn, en eins og lesend-
um Alþýðublaðsins mun kunnugt
að þá ganga í gildi ný útvarpslög um
næstu áramót, sem svifta Póst og
síma þeirri einokunaraðstöðu sem
verið hefur á rekstri útvarps og
sjónvarpsstöðva.
Heimssagan inn í stofu
Það má því með sanni segja að
geimöld sé gengin I garð að nokkru
leyti hér sem og annars staðar. Eftir
örfá ár geta þeir hörðustu í sjón-
varpsglápinu bætt við það framboð
sem þeir hafa þegar með íslenska
ríkissjónvarpinu, vídeó-leigunum
og kapalkerfunum og fengið til við-
bótar val á allmörgum stöðvum um
gervihnött með ýmsu efni, allt frá
helstu íþróttaviðburðum í beinni
útsendingu til amerískra skemmti-
þátta og bíómynda — eða þá þeir
fróðleiksfúsu geta veitt sér þann
munað að horfa á fréttir lon og don
frá hinum ýmsu stöðvum um allan
heim, fylgst með viðburðum sem
eru að gerast á líðandi stundu og
e.t.v. skipta sköpum í heimssög-
unni.
En einn böggull fylgir þó
skammrifi — flestar þessara stöðva
eru bornar uppi af endalausu aug-
lýsingaflóði, nema um áskrifar-
stöðvar sé að ræða, þannig að land-
inn verður jafnvel best að sér í gæð-
um alþjóðlegra vörutegunda sem
þegar þykja ansi mikið í sviðsljós-
inu hér heima.
Námsgagnastofn un:________
Mikið kynningar-
starf framundan