Alþýðublaðið - 01.08.1985, Page 4

Alþýðublaðið - 01.08.1985, Page 4
alþýðu- ■ jTFTTCM Fimmtudagur 1. ágúst 1985 Alþýöublaðiö, Ármúla 38, 3. hæð, 108 Reykjavík., Simi: 81866 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjórn: Friörik Þór Guómundsson (ábm.) Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson, Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsd. Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38. Prentun: Blaöaprent hf, Siðumúla 12. Askriftarsíminn er81866 GEIMÖLD GENGIN í GARÐ? Gervihnattasjónvarp handan við næsta horn! í allri umræðunni um frjálst útvarp og sjónvarp hafa íslenskir áhuga- menn um slíkt oft á tíðum litið framhjá þeim möguleika sem býr í móttöku sjónvarpsefnis um gervi- hnött. Umræðan hefur snúist um jarðbundnari svið — útvarpsstöðv- ar og sjónvarpsstöðvar staðsettar á jörðu niðri. En þeir möguleikar sem felast í sjónvarpi og útvarpi um gervihnött eru sífellt að aukast og búast má við að eftir svo sem tvö til þrjú ár þyki umræðan um jarð- bundnar stöðvar ansi gamaldags. ESC—1 Hljómbær hf. hefur um mánaðar skeið tekið á móti sendingum til reynslu frá hnetti sem nefnist ESC-1. Þessi hnöttur er staðsettur yfir miðbaug í 36.000 km. fjarlægð frá jörðu. Ekki var vitað fyrirfram um gæði móttökunnar, þar sem ís- land er undir 12° horni í útsending- argeisla hnattarins, en þau reyndust betri en menn þorðu að vona, eða allt að 90%. Hnöttur þessi er í eigu Póst og símamálastofnunar Evrópu og það eru stöðvar í Evrópu sem senda efni sitt um hann. Skonrokk 18 tíma á dag Meðal þess efnis sem þeir Hljóm- bæjarmenn geta nú horft á í sjón- varpinu sínu er Music-box, sem að- dáendur Skonrokks í íslenska sjón- varpinu yrðu grænir og gulir yfir að ná. — í Music-box er sent út 18 tíma á sólarhring, frá 7 á morgnana til eitt eftir miðnætti allt það nýjasta úr poppheiminum breska. Þar fer fram vinsældakosning og nýjustu dægurlögin eru kynnt í myndum og músík og öll útsendingin er í stereó. Music box er rekið með auglýsing- um eins og flestar þær stöðvar sem senda út um hnöttinn. Þessi ný- breytni hefur t.d. gert starfsmönn- um Steina hf., sem eru með stærri hljómplötuinnflytjendum hérlend- is, kleift að fylgjast með vinsælda- vali í Music-box meðan á útsend- ingu stendur. Með því móti sjá þeir strax hvaða myndir og hvaða lög fá flest atkvæði og panta síðan plötur til íslenskra poppáhugamanna eftir því. Með þessu móti er einnig unnt að fá vídeómyndir af bresku poppi mun nýrri til lands til sýningar í ís- lenska ríkissjónvarpinu en áður var gerlegt. Því nú er hægt með einu símtali, um gervihnött, að panta mynd sem e.t.v. var sýnd í Music box fyrir nokkrum klukkustundum, og þykir Iíkleg til vinsælda hjá íslensk- um áhorfendum. Síðan kemur myndin með flugi til íslands, og er komin í Skonrokk íslenska sjón- varpsins hálfum mánuði fyrr en áð- ur var mögulegt, þegar þurfti að senda spólur til skoðunar milli landa og panta síðan eftir þeim. Aðför að móðurmálinu? Hjá Hljómbæ er horft á fleiri stöðvar en Music Box, þeir sjá hol- lenska stöð sem sendir eingöngu út amerískar bíómyndir, nú þeir sjá einnig svissneskt áskriftarsjónvarp en þar fer öll útsendingin fram á þýsku. Frá Belgíu berst um loftnet- ið stöð sem heitir Olympus TV og sendir út íþróttaefni og fréttir bæði á ensku og flæmsku. Frá Frakk- Iandi berst síðan TV-5 og frá Ítalíu kemur ítalska ríkissjónvarpið, þannig að það þarf allgóða mála- kunnáttu til þess að geta skilið það framboð sem berst um hnöttinn á hverjum sólarhring. Slíkt og þvílíkt gæti jafnvel aukið málaþekkingu landsmanna, þótt mörgum mál- hreinsunarmanninum þyki e.t.v. um of vegið að rótum móðurmálsins með slíku framboði á erlendum tungum. Auglýsingar eða áskrift? Allar eru ofangréindar stöðvar reknar með auglýsingum og eru því engin áskriftargjöld af þeim. Svo eru hins vegar tvær stöðvar sem ber- ast til Hljómbæjar um loftnetið, sem eru truflaðar vegna þess að þar er um að ræða áskriftarsjónvarp. í áskriftarsjónvarpi þarf að greiða ákveðið gjald fyrir móttökuna og útsendingin er því trufluð þar til notandinn hefur greitt gjaldið sitt. Þá fær hann sent tæki sem „af- truflar" sjónvarpsmerkið og kemur því heilu á sjónvarpsskerminn heima í stofu. Um hnöttinn ESC-1 berst einnig tele-text sjónvarp, en það er eins konar upplýsingasjónvarp. Þar geta notendur „flett upp“ þeim upplýs- ingum sem þeir þurfa mest á að halda hverju sinni, svo sem eins og íþróttafréttum, veðurfréttum og upplýsingum um samgöngumál í Evrópu. Mikill áhugi íslenskir sjónvarpsgláparar hafa sýnt máli þessu mikinn áhuga að sögn Birgis Guðjónssonar hjá Hljómbæ. Helst hafa fyrirspurnir borist frá ýmsum kapalkerfum, sem enn eru starfandi hér á landi þrátt fyrir einokun Pósts og síma á slíkri starfsemi. Með því fyrir- komulagi að kapalkerfin keyptu móttökubúnað ogseldu síðan not- endum sínum aðgang að 2—3 stöðvum í gervihnettinum gegn áskriftagjaldi er búið að lækka móttökukostnaðinn, sem er talsvert Framh. á bls. 3 MOLAR Gæti eins verið api Það hefur varla farið fram hjá neinum að á Kjarvalsstöðum hangir nú úrval af íslenskum lista- mönnum. Á veggjunum hanga ekki afurðir listamannanna held- ur eru það listamennirnir sjálfir í svart hvítu. Það er útflutningsfyr- irtæki í ullariðnaðinum sem stendur að þessari sýningu í sam- vinnu við eina af bókaútgáfunum í höfuðborginni. Það vekur at- hygli manna að engin hannyrða- kona kemst í hópinn. Stingur slíkt óneitanlega í stúf þar sem sýning- unni er ætlað að örva viðskipti með ullarvörur í útlandinu. ís- lenskar hannyrðakonur virðast samt ekki nógu góðir fulltrúar fyrir ullina og var því leitað til menningarvitanna. Þótt þarna eigi að hanga meistaraflokkur menningarinnar á íslandi verður glöggur sýningargestur þó fljótt var við að ýmis andlit eru fjarver- andi. Nægir þar að nefna Véstein Lúðvíksson, Steinar Sigurjóns- son, Friðrik Þór Friðriksson, Megas og allan rokkheiminn og svona mætti lengi telja upp. Skýr- ingin á því er sú að ekki gátu allir verið með og sumir voru erlendis og aðrir vildu ekki vera með. Eft- irfarandi samtal hleruðu Molar í strætó um daginn. Það.voru einn af okkar ungu og upprennandi bókmenntafræðingúm og gamall og gróinn rithöfundur, sem hefði átt að fá að hanga við hliðina á hinum skáldunum, sem áttu orða- stað saman. Bókmenntafræðingurinn: Hvað kemur til að þú hangir ekki uppi á Kjarvalsstöðum? Rithöfundurinn: Ég þurfti að bregða mér bæjarleið í strætó. Bmfr.: Nei, í alvöru talað, hversvegna ertu ekki í úrvalinu? Rith.: Sannast sagna ætluðu þeir að hafa mig með. Það komu skyndilega tveir menn heim til mín og fóru með mig út í bíl. Síð- an var brunað af stað upp Ártúns- brekkuna og ekki stoppað fyrr en uppi í Kollafirði. Þar var ég drif- inn út og mér sagt að stilla mér upp fyrir myndatöku. Þá sagði ég nei. Nú þótti mér nóg komið. Sök sér með bíltúrinn en að láta mynda mig í helvítis rokinu uppi í Kollafirði. Það kom ekki til greina. Og þeir urðu að láta sér það lynda. Annars hefðu þeir al- veg eins getað haft apa með sér. • Hassmoli. Nei LSD-moli Það kom fram í fréttum af fíkni- efnamálinu, sem uppvíst varð í fyrradag, að LSD-inu hafði verið smyglað í pósti. Bréfið var stílað á ákveðið nafn í fjölbýlishúsi í Breiðholti og var viðtakandi ekki skráður í húsinu. Sá mun vera sið- ur bréfbera þegar slíkt kemur upp að leggja bréfið ofan á póstkass- ann í þeirri von að viðtakandi reki augun í það. Þarna lá LSD-bréfið svo í nokkra daga og hefði hver sem er getað laumað því í vasann og farið svo í bullandi tripp í nokkur ár ef hann hefði viljað. Er það hald manna að fréttaflutn- ingur af þessu máli verði til þess að bréf, sem skilin eru eftir svona héðanífrá muni hverfa samdæg- urs. • Hænsnakofinn Hagmæltur góðkunningi Mola sendi okkur eftirfarandi vísukorn vegna þeirrar erju sem gerjar nú í Bandalagi jafnaðarmanna: Hátt þau ætla að hefja storð, Hænsni svipað gala. Kroppa bygg við kámugt borð, Kristófer og Vala. Kvóti óskast Ný vörutegund er nú að hasla sér völl á auglýsingamarkaðinum, er þó varla hægt að tala um vöru, því hér er um að ræða plagg frá sjáv- arútvegsráðuneytinu sem á er færð ákveðin stærðargráða, sem kallast kvóti. Ekki ætlum við á Molum að taka að okkur að út- skýra hugtakið, enda hefur um fátt verið meira skrifað og skrafað síðan sjávarútvegsráðherra tók upp þetta fyrirkomulag. Það var vitað að þessi kvóti hefur gengið kaupum og sölum og munu strangar reglur vera fyrir því hvernig slík kaup ganga fyrir sig. Þar sem eftirspurnin í kvótann er mikil hafa fengsælir útgerðar- menn nú brugðið á það ráð að auglýsa eftir kvóta til sölu. Með- fylgjandi auglýsing var í Moggan- um í gær. Bíðum við nú bara eftir því að þær síður sem ekki eru lagðar undir fasteignaauglýsingar í Mogganum verði undirlagðar undir kvótaauglýsingar. Allt verð- ur sjálfstæðismönnum að aur. Kvóti óskast Þeir sem eiga kvóta á lausu og vilja selja hafi samband í síma hvenær sem er. Heimasími

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.