Alþýðublaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 3. ágúst 1985
RAFBUÐ SAMBANDSINS
Eina bröndótta
við þá stuttu
Litið inn í Rafbúð Sambandsins í Ármúla 3, rœtt við
verslunarstjórann Þorkel Ingimarsson, vitsmunirnir
brýndir í hraðskák við skáktölvu og síðan huggaðir
með hátíðarkaffi í tilefni af frídegi verslunarmanna
HREYFILL
68-55-22
Hringferðir eða skot-ferðir. — Allt eftir þínum óskum.
VISSIR ÞÚ
að leigubíll (4 farþegar) kostar aðeins 13 kr. á km ef þú fœrir í ferð sem tœki
fleiri en einn dag, kostar bttlinn aðeins 4.178,- kr., innifalið 200 km á dag. 7
farþega bttar eru aðeins 20% dýrari þ.e. 16 krónur kttómeterinn ef farþegar eru
5 eða fleiri.
Gerðu nú samanburð á okkar verði, btta-leigubtta og áœtlunarbtta.
Höfum nú langflesta 7 farþega bílana og svo að sjálfsögðu
fjögurra farþega líka,
Munið að hjá okkur er mesti möguleiki til að fá btt á öllum tímum sólar-
hrings.
Fljót og góð þjónusta. Stœði um allan bœ.
HREVFILL
68-55-22
Þorkell Ingimarsson, verslunar-
stjóri.
ið sem hefur þá furðulegu náttúru
að geta jafnað tímanum, þannig að
tölvan notar um það bil jafn mikinn
tíma og andstæðingur hennar. Sé
hann fljótur svarar hún að bragði,
en dregur í tímann hugsi andstæð-
ingurinn sig um. Eins ber þó að
gæta í þessu sambandi og það er að
hún hefur dreift ónotuðum tíma.
Ef andstæðingurinn notar segjum 5
mínútur á einn leik, hugsar hún sig
ekki endilega um í 5 mínútur um
næsta leik, heldur svarar jafnvel
strax og á þá tima inni.
Af þeirri reynslu sem ég hef haft
af skáktölvum, og vel að merkja hef
ég ekki reynt þær allar, er 2001 tví-
mælalaust sú sterkasta og óvenju-
góð í endatafli. Þá ber að hafa það
i huga að öll notkun 2001 er afar
einföld, svo vandi er að ruglast i
málinu og það sem er einna mikil-
vægast er að prógramið sem er í
svonefndum kubbi, verður einfalt
að endurnýja eftir því sem full-
komnari kubbar koma á markað-
inn. Það er nánast eitt handtak.
Að mínu mat er hér um að ræða
besta kostinn í skáktölvum í dag og
verðið skemmir ekki fyrir.
Góða skemmtun."
Eftir þennan fyrirlestur þáðum
við enn hátíðarmolakaffi hjá Þor-
katli og reyndum síðan allt hvað af
tók að máta þá stuttu í hraðskák.
Það tókst þó ekki betur en svo, að
okkur var skapi næst að taka hana
undir arminn, eitthvað afsíðis í Ár-
múlann. Riddaramennskan varð þó
kappinu yfirsterkari, svo við drukk-
um bara meira kaffi, hirtum gíró-
seðlana okkar, óskuðum verslunar-
fólkinu til hamingju með daginn,
og fórum að skrifa blaðið.
(flauknecht
Einn af nágrönnum okkar hér
við Ármúlann er Rafbúð Sam-
bandsins í Samvinnutryggingahús-
inu, Ármúla 3. Á leið með gíróseðl-
ana i bankann sér maður stundum
hóp af fólki í Rafbúðinni djúpt nið-
ursokkið í einhver greinilega meiri
háttar andans átök. Þetta eru skák-
kappar framtíðarinnar og nútíðar-
innar að spreyta sig að máta skák-
tövlu eina þrælmagnaða, Chess
2001, og virðist meðalmönnum
ekkert auðvelt að koma hælkrók á
þá stuttu. Annars getur legið vel á
henni og gefur hún þá færi á sér
enda setur hún upp 12 mismunandi
svipbrigði eftir því hvernig henni
líst á andstæðinginn.
Eftir eina bröndótta á „barna-
stiginu“ lá það vel á okkur að við
tókum verslunarstjóra Rafbúðar-
innar, Þorkel Ingimarsson tali og
spurðum hann í tilefni af hátíðis-
degi verslunarmanna, hvað væri nú
efst á baugi á „stassjóninni".
Þorkell benti á einn lítinn grip,
handhægan og yfirlætislausan,
opnaði litla hurð og þá reyndist
þetta vera allt í einu: ísskápur, elda-
vél, vaskur og svo ágætis geymslu-
skápur. Það sem meira er, undrið
Úr hinni vistlegu Rafbúð Sambandsins í Ármúla 3.
kostar ekki yfir tuttugu þúsund
krónur og alveg eistaklega þægilegt
í sumarbústaðinn, hesthúsið eða
hvar sem er.
Þorkell benti okkur á hin þekktu
Bauknecht-heimilistæki, en þau
eru vestur-þýsk gæðavara. ísskáp-
ar, frystikistur, eldavélar, örbylgju-
ofnar, þvotta- og uppþvottavélar
ásamt þurrkurum seldust grimmt
núna, enda væri góð fjárfesting í
þessum tækjum. Hægt væri einnig
að fá ramma til þess að festa framan
á tækin svo þau pössuðu alveg við
eldhúsinnréttingarnar.
Við snerum okkur nú aftur að
skáktölvunni enda var nú mættur
landsfrægur skáksnillingur, Jó-
hann Þórir Jónsson og við spurðum
hann, hvað hann gæti frætt okkur
Draumur sumarbústaðs- og hesthúseigandans. Eldavél, vaskur, ísskápur
og venjulegur geymsluskápur, — allt í einum hlut.
um þá stuttu, annað en það að geta
mátað okkur á leið í bankann. Jó-
hann sagði:
„Skáktölvan 2001 er mikil fram-
för frá þeim tölvum, sem á mark-
aðnum hafa verið að undanförnu.
Varðar mestu hversu fljót hún er að
leika, varla hægt að segja að maður
þurfi að bíða eftir svari.
Seljendur skáktölva hafa yfirleitt
reynt að miða skákstyrk tölvanna
við Elo-stigin, en erfitt hefur reynst
að fá þær til að standa undir stigun-
um hvað skákstyrk snertir.
„2001“ er gefin upp með 2100
skákstig og mín reynsla er sú eftir
ótal skákir yfir eina helgi að hún
standi fyllilega undir stigunum.
Eins og fram kemur í auglýsingunni
frá Rafbúð Sambandsins hefur
þessi tölva upp á margt að bjóða.
Skemmtilegast er 10. styrkleikastig-