Alþýðublaðið - 09.05.1990, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 09.05.1990, Qupperneq 8
MMBUBLMffl) Miövikudagur 9. maí 1990 RITSTJÓRN 2? 681866 - 83320 FAX 82019 m • ••• • ••• • • • • • • • • • « • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • « MOSKVA — biistrasaltsríkin þrjú halda áfram baráttunni fyrir sjálfstæði þrátt fyrir þrýsting stjnrnvalda í Kremi. Haft er eftir háttsettum sovéskum embættismanni í Litháen að sovésk stjórnvöld kunni að sjá sig knúin til að beita her- valdi ef spennan eykst frekar í Litháen. MOSKVA — Mikliail (lor- batsjov, forseti Sovétríkj- anna, beindi orðum sínum sérstaklega til sovéska hersins í ræðu sem hann hélt á oppnunarhátið í til- efni af því að nú eru 45 ár liðin frá því að seinni heim- styrjöldinni lauk. Þar lagði hann áherslu á að herinn kæmist ekki hjá því að taka þátt í endurbótastefnu stjórnvalda en herinn hefur til þessa reynst forsetanum tregur í taumi. OSLO — Utanríkisráöherrar sjö Afríkuríkja hitta fulltrúa Islands, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands í Oslo dagana Li. og 14. maí til að ræða hvernig binda megi enda á aðskilnaöarstefnu stjórnar hvita minnihlutans í Suð- ar-Afríku. Þetta er i fyrsta sinn sem Namebía tekur þátt í viöræðum sem þessum eftir aö hún fékk sjálfstæði frá Suö- ur-Afriku fyrr á þessu ári, en þetta er i þriðja sinn sem fund- ur sem þessi er haldinn. BRUSSEL — Marc Kyskens, utanríkisráöherra Belgíu sagði aö KB-ríkin 12 hefðu í hyggju að senda aðstoð, m.a. læknisaöstoð til Litháen sem þátt í neyöaraðstoð en tók sérstaklega fram að þetta bæri ekki að skoða sem ögrun við sovésk stjórnvöld. Kyskens gerði sérstaklega að um- talsefni á blaðamannafundi ólíka afstöðu stórveldanna í NATO, s.s. Bandarikjanna og Frakklands sem vilja gæta þess að ögra bvergi sovéskum stjórnvöldum og þeirra smærri sem setja spurningu við stefnu stórveldanna í mál- efnum Litháen. Utanrikisráðherrann nefndi Island sérstak- legasem dæmi um afstöðu smáríkis og sagði að Danir sem eru aðilar að KB, styddu afstöðu Islendinga. WASHINGTON — Kíkar og fátækar þjóðir þessa heims luku í gær fundarhöldum sem nú hafa staöiö yfir í rúm tvö ár. Þar tókst samkomulag um 60 milljaröa dollara framlag efnaðari þjóöa til að styðja hin ungu lýöræöis Austur-Kvr- ópu og einnig til að stuðla að efnahagslegum úrbótum í ríkjum þriðja heimsins. KAUPNANNAHÖFN — Kinhver óþokkinn hefur tekið sig til og skoriö litlu hafmeyjuna í Kaupmannahöfn á háls. Danska lögreglan sagöi aöskuröurinn sem er lKsm langur heföi sennilega verið þarna svo vikum eða mánuðum skipti. Það var ekki fyrr en athugull ungur vegfarandi tók eftir lýtinu á hafmeyjunni að ódæðisverknaðurinn upp- götvaöist. Hafmeyjan hefur mátt þola ýmislegt í gegnum árin af mannavöldum og er þess skemmst að minnast þeg- ar hún var gerö höfðinu styttri áriö 1964. Þess má ueta að enn hefur upprunalegt höfuð hennar ekki komið ííeitirn- ar. WASHINGTON — Ný gerð meðaldrægra kjarnorku- flauga sem Kínverjar eru aö framleiða verða að öllum lík- indum tilbúnar til uppsetningar að tveimur árum liðnum að sögn bandarískra embættismanna. Talið er að Kínverj- ar ætli flaugarnar aöalllega til útflutnings til Miöaustur- landa. T0KY0 — Japanskt hvalveiðifélag sem stundar hvalveið- ar í rannsóknarskyni seldi afla nýlokinnar vertíðar á met verði í gær en sífellt minna framboð þessarar eftirsóttu vöru á japansmarkaði hefur leitt til mjög hás verðlags. BERGEN — Alþjóðleg umhverfismálaráðstefna 34 ríkja sem kennd er við Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs varsett í gær. Meðal þess sem rætt verður á ráð- stefnunni er eyðing óson- lagsins og sú hætta sem ýmsum dýra- og plöntuteg- undum er búin af völdum mengunar. ERLENDAR FRÉTTIR Umsjón: Laufey E. Löve mmmmmmmmsmmmmt^mmmmmsmm■■■■■■■■■ Eystrasaltsríkin: Eistneska sovétlýðveldið íær nýtt nafn, Eistland (MOSKVA, LONDON, Reut- er) Eistneska þingið sam- þykkti í gær að breyta nafni lýðveldisins sem næsta skref í baráttunni fyrir sjálfstæði landsins. Þá var samþykkt að taka að nýju upp skjaldarmerki og fána Eistlands sem lagður var af þegar Sovét- menn tóku yfir stjórn landsins 1940. Kazimiera Prunskiene, forsætisráð- herra Litháen kom í gær til Lundúna en hún hyggst fara fram á stuðning Breta við sjálfstæðisyfirlýsingu landsins á fundi með Margaréti Thatcher, for- sætisráðherra á morgun. Atkvæði á Eistneska þing- inu féllu þannig að 73 voru samþykkir breyttu nafni lýð- veldisins, 14 á móti og tveir sátu hjá er haft eftir háttsett- um embættismanni í Kornin- únistaflokknum. Héðan i frá er nafn lýðveldisins því Eist- land en ekki Kistneska sovét- lýöveldiö og skjaldarmerki þess, þrjú Ijón á gullnum grunni, í stað merki komm- únismans hamars og sigðar i forgrunni rísandi sólar. Þá var Kistneski fáninn endurvak- inn. Kistland hefur fylgt í fót- spor Lettlands og lýst yfir að- lögunartímabili sem endar með því að Eistland verður lýst sjálfstætt riki. Ákvörðun var tekin um það á Eistneska þinginu að fresta umræðum um hvort taka skuli í gildi ákvæöi stjórnarskrárinnar frá 1937 þar sem kveðiö er á um aö Eistland sé sjálfstætt ríki og að aðeins þau lög skuli gilda sem Eistneska þingið setur þjóðinni. Prunskiene, forsætisráö- herra Litháen hyggst fara fram á pólitískan stuöning Breta þegar hún hittir Thatc- her aö máli á fundi þeirra á morgun. Hún ítrekaði jafn- framt mikilvægi alþjóðlegrar viðurkenningar á sjálfstæöi Litháa á fundi með blaða- mönnum eftir komuna frá Washington þar sem hún átti fund með Bush, forseta Bandaríkjanna. Forsætisráöherrann benti enn fremur á að viðurkenn- ing á sjálfstæði Litháen þyrfti ekki að vera ógnun við stefnu Gorbatsjov, forseta Sovétríkj- anna því sjálfstæði Litháa færi saman við lýðræðislegar umbætur í Sovétríkjunum. Prunskiene mun halda til Frakklands á fimmtudag til fundar við Francois Mitterr- and, forseta Frakka. Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands: Ákvörðun um hernaðarlega stöðu sameinaðs Þýskalands ekki fresiað (BONN, Reuter) Helmut Kohl, kanslari Vest- ur-Þýskalands segir til- lögu Sovétmanna um að sameining þýsku ríkjanna geti farið fram án þess að ákvörðun um hernaðar- lega stöðu þess hafi verið tekin ekki koma til greina. Kohl segist engan veginn geta tekið undir með Eduard Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, aö fresta megi ákvöröunum um hver staða sameinaös Þýska- lands á alþjóöavettvangi verði og nefndi spurninguna uin hvort það skuli tilheyra NATO sem dæmi. Kohl sagði Vestur-Þýsk stjórnvöíd vilja halda sig við sína upphaflegu tímaáætlun sem gerir ráö fyrir að ákvörð- un um hernaðarlega stöðu landsins liggi fyrir í haust. Austur- og Vestur-Þýska- land ásamt Bretlandi, Frakk- landi og Bandaríkjunum eru hlynnt fullri aöild sameinaðs Þýskalands aö Atlantshafs- bandalaginu en meö því skil- yröi að hersveitir bandalags- ins haldi sig frá austurhluta landsins. Sovétríkin sem ásamt hin- um íjórveldunum sitja fund- inn um sameiningu Þýska- lands eru andsnúnir aöild Þýskalands framtíöarinnar að NATO. Sovétmenn hafa þess í staö lagt til aö samein- aö Þýskaland veröi hlutlaust ríki, standi utan hernaöar- bandalaga eða eigi aðild að báðum hernaðarbandalög- unum, NATO og Varsjár- bandalaginu. Kohl segir Vestur-Þýsk stjórn- völd ekki geta fallist á tillögu Shevardnadze. utanríkisráö- herra Sovétríkjanna um aö fresta ákvörðun um hernaöar- lega stööu sameinaös þýska- lands. Sovétmenn draga úr her- styrk á Kyrrahafssvæðinu (MANILLA, Reuter) Sovét- menn munu kveðja heri sína heim frá Víetnam burt séð frá hver niðurstaða samningafunda Banda- ríkjamanna og Filippsey- inga um áframhaldandi rekstur herstöðva á Filips- eyjum verður, sagði Sok- olov, sendiherra Sovét- manna í Manilla í gær. Sokolov sagði Sovétmenn hafa tekið ákvöröun um aö draga úr herstyrk á Kyrra- hafssvæðinu og að þeir hvettu Bandaríkjamenn til að gera slíkt hiö sama í Ijósi auk- innar þíöu í samskiptum stór- veldanna. Öryggi ríkja verður ekki tryggt með því að hlaða upp vopnum, sagði sendiherrann. Hann benti á að Sovétmenn hefðu tekið upp stefnu sem miðaði að því að tryggja nægjanlegan herafla en forð- ast ofgnótt þar. Umfram- magn hertóla þjónaði engum tilgangi fyrir varnir ríkja. Sendiherrann svaraöi þeirri spurningu játandi hvort Sovétmenn myndu kveðja herafla sinn frá Cam Ranh Bay þótt Bandaríkja- mönnum tækist að semja við Filipseyinga um áframhald- andi veru bandarísks herafla þar. Hann sagði það hins veg- (BRUSSEL, Reuter) Kfnahags- bandalag Evrópu, EB, hefur tekið ákvöröun um að hefja samningaviöræður við Frí- verslunaisamband Evrópu, EFTA, um sameinginlegt markaðssvæöi i lok júní á þessu ári. Talsmaöur EB sagði að Efnahagsbandalagið stefndi að því í viðræðunum við EFTÁ að auka efnahagslega ar alfarið á valdi þessara tveggja þjóöa, Bandarikja- manna og Filippseyinga aö ákveða hvort framhald yrði á veru herstöðva Bandaríkja- manna þar. Tvíhliöa samn- ingaviðræður ríkjanna hefj- ast 14 maí. Bandaríkjamenn hafa fariö samvinnu bandalaganna meö það fyrir augum aö eftir að sameiginlegur markaður EB landanna verður að veru- leika 1992 geti þáttur EFTA orðið sem mestur. Stefnt var að því að ákvörð- un Efnahagsbandalagsins lægi fyrir í fyrrihluta apríl- mánaðar en hún hefur dreg- ist að sögn embættismanna vegna ágreinings um hversu fram á að fá aö halda áfram rekstri hernaðarmannvirkja sem staðsett eru á Filippseyj- um en samningur þeirra viö Filippseyinga rennur út á næsta ári. Bandaríkjamenn telja herstöðvarnar nauðsyn- legar til aö tryggja hernaöar- legan stöðugleika svæöinu. mikið ákvörðunarvald EFTA eigi aö hafa um sameiginlegt markaössvæöi bandalag- anna. EFTA ríkin stefna aö því að ná samkomulagi fyrir næstu áramót, en flestir embættis- menn Efnahagsbandalagsins eru sagðir svartsýnir á að þaö takist. EB-EFTA vidrœöurnar: Viðræður hefjast í lok júní

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.