Alþýðublaðið - 21.02.1991, Qupperneq 7
Fimmtudagur 21. febrúar 1991
7
Óli Þ. Guðbjartsson mun nú taka til athugunar tillögur nefndar um bætta öku-
kennslu.
Endurbætur á ökukennslu:
Ný reglugerð
i undirbúningi
Breytingar á reglugerd um
ökukennslu munu væntanlega
sjá dagsins ljós áður en langt um
líður. Nefnd á vegum dómsmála-
rádherra hefur skilað tillögum
um fyrirhugaðar breytingar og
hafa þær tillögur verið til um-
sagnar hjá ýmsum aðilum, en
frestur til að skila umsögnum
rann út í gær.
Sigurður Jónsson, aðstoðarmað-
ur dómsmálaráðherra, er formaður
nefndarinnar. Hann vildi lítið ræða
tillögur nefndarinnar að svo komnu
er Alþýðublaðið spurðist fyrir um
þær í gær. Sigurður sagði að nú
þyrfti að fara yfir álit umsagnarað-
ila. Síðan kæmu væntanlega full-
mótaðar tillögur frá nefndinni, en
hvenær það verður væri ekki hægt
að segja til um að svo stöddu.
Launavísitala hækkar um 0,1%
Hagstofan hefur sent frá sér út-
reikning á launavísitölu fyrir febrú-
ar. Hún er 120,2 stig.eða 0,1% hærri
en í janúar. Samsvarandi vísitala,
sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána, tekur
sömu hækkun og er því 2.629 stig í
mars 1991.
Ofitæmi, exem, vörtur
í Feyki segir frá ömurlegu ástandi
gamla íþróttahússins á Blönduósi. í
fundargerð æskulýðs- og íþrótta-
ráðs segir að mikill raki sé í salnum
og séu „allskonar ofnæmi, exem og
vörtur algeng meðal barnanna og
staðreynd er að varla líður vika án
þess að barn slasi sig,“ segir í fundar-
gerðinni. Sveinn Kjartansson
skólastjóri kannast ekki við að
börnunum stafi hætta af salnum og
vill að menn bíði eftir að nýtt
iþróttahús verði tekið í notkun
haustið 1992.
Guðriður GuðlaugsdóHir
Fœdd 16. apríl 1912 — Dáin 13. febrúar 1991
Yndisleg móðursystir er látin.
Glaðvær, kímin og uppörvandi,
sama á hverju gekk. Undir lokin
var heilsan þrotin og hún lést á
Landspitalanum eftir skamma
legu.
Dúa, eins og hún var alltaf köll-
uð, fæddist í hjarta Suðurlands, að
Götu í Holtum og svo var kalt, að
mamma hennar tjaldaði yfir vögg-
una, hrímið var svo mikið í bað-
stofunni. Dúa var tvíburi og tók
ljósmóðirin Ágústa hana með sér
og sagði bændahöfðinginn Sigur-
jón í Raftholti, sonur Ágústu, að
hann liti alltaf á Dúu sem systur
sína.
Ársgömul flutti hún með foreldr-
um sínum, Guðríði Eyjólfsdóttur
og Guðlaugi Þórðarsyni, að Vatns-
nesi í Grímsnesi, þar sem hún ólst
upp fram að fermingu. Þá keyphi,
foreldrar hennar Tryggvaskála á
Selfossi og var flutt í Skálann 1925.
Á Selfossi voru þá fimm hús og
reisti pabbi Dúu það sjötta, Ingólf,
sem stendur við Eyrarveg 1.
Ævintýrið mikla var að byrja,
Selfoss var að rísa úr öskustónni,
og allt tengdist það Tryggvaskála
meira eða minna. Fólkið borðaði
þar, skemmti sér þar og hélt þar
til. Fjöldi opinberra stofnana byrj-
aði rekstur sinn í einhverju horn-
inu á Skálanum. Plássið sjálft var
líka sem ein fjölskylda, húsin
spruttu upp, sem og atvinnufyrir-
tækin. Mjólkurbúið, Kaupfélagið,
Sláturfélagið, byggingafyrirtæki,
verslanir og þjónustustofnanir.
Allir áttu leið um Skálann, þar sem
Dúa vann og kynntist þessu öllu.
Tugir ungra stúlkna hvaðanæva
að unnu með Dúu og oft var glatt
á hjalla. Svo komu ungu mennirn-
ir og slegið var upp balli. Róman-
tíkin blómstraði.
Dúa fór í húsmæðraskóla, það
var mikill áfangi, og æ síðan unni
Dúa menntun og fræðum. Henni
þótti mjög gaman að tungumálum
og sjálfsagt hefur það hjálpað,
þegar breski herinn gekk hér á
land í heimsstyrjöldinni og Ár-
borgarsvæðið breyttist nánast í al-
þjóðaflugvöll.
Dúa var þá gift Daníel Berg-
mann bakarameistara, en yngri
systir hennar, Bryndís, var gift
Grími Thorarensen, syni Egils í
Sigtúnum.
Var nú hafist handa í samvinnu
við Kaupfélag Árnesinga og bak-
að beinlínis fyrir allt Suðurland.
Dúa tók á honum stóra sínum, því
Danni var afburðamaður að dugn-
aði og hæfileikum. Eiginkonan
unga stóð þá dag og nótt við hlið
mannsins síns við bakaraofninn.
Danni var líka mikill sögumaður
og unni leiklist. Er mér það í
barnsminni þegar pabbi og hann
tóku lagið saman, báðir karlakórs-
bassar í Karlakór Reykjavíkur og
Fóstbræðrum.
í stríðinu hófst mikil sumarbú-
staðaalda í landinu. Föðurbróðir
minn hafði keypt land við Álfta-
vatn í Grímsnesi í Þrastaskógi.
Pabbi fékk nú hálfan hektara af
þessu landi og reisti þar sumarbú-
stað með svila sínum, Magnúsi H.
Magnússyni. Skömmu seinna
komu Dúa og Danni og reistu sér
bústað þarna hjá ásamt fleiri vin-
um. Þetta voru mikil hamingjuár.
Synir Dúu og Danna, Grétar og
Guðlaugur, fóru fyrir miklum her-
skara krakka og frændaliðs. Farið
var um allan skóg, buslað í vatn-
inu og mjólkurpósturinn frá Mið-
engi notaður til útreiða. Svo sann-
arlega voru æsir á Iðavelli og síð-
an stungið ofan í bala á kvöldin.
Bakaríið á Selfossi var selt, Dúa
og Danni fluttu til Reykjavíkur og
keypt var bakarí á Nesveginum og
seinna Tjarnarbakarí. Hlutirnir
voru stundum erfiðir, þungur
rekstur og hjónabandið gliðnaði.
Dúa missti þó aldrei móðinn, enda
stóðu synir hennar með henni
sem klettar. Hún elskaði þá út af
lííinu.
Aftur fór að birta til. Dúa sneri
sér að vinnumarkaðinum og Gulli
stofnaði Karnabæ. Átti tugi versl-
ana, saumastofu og innflutnings-
fyrirtæki. Grétar gerðist hugsjóna-
maður fyrir SÁÁ. Það var yndis-
legt að sjá hvað þeir voru góðir
móður sinni, enda hafði hún fórn-
að þeim öllu og tók nú þátt í vel-
gengni þeirra af lífi og sál. Mamma
mín fylgdist líka alltaf með, enda
tvíburasystir. Svo lentu þær sam-
an í Hátúninu. Önnur mjaðmar-
brotin, hin með sjúk lungu og
hjarta. Þær fylgdust hvor með
annarri, tóku þátt í lífi hvor ann-
arrar, nákvæmlega eins og þær
höfðu alltaf gert. Stundum fannst
manni að það hlyti að vera eitt-
hvað undursamlegt við það, að
vera tvíburi. Amma átti tvenna
tvíbura og svo var elsta systir. All-
ar iifðu þær sínu eigin lífi, en líka
lífi hinna. Systur eru ef til vill bara
svona. Eindrægnin algjör.
Dúa laðaði alla að sér og öllum
þótti vænt um hana. Stundum átti
hún sínar erfiðu stundir, en oft var
hún líka mjög hamingjusöm. Þá
geislaði hún af hamingju og gleði.
Hún var vinamörg og með af-
brigðum trygglynd.
Algóður Guð taki hana að hjarta
sér og styrki synina í mikilli sorg,
tengdadæturnar, barnabörnin og
barnabarnabörnin. Nú hrímar
ekki lengur á hana Dúu mína.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Steindór GK-101 í öldurótinu undir Krýsuvíkurbjargi. A-mynd: E.ÓI.
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Stundin okkar 18.25 Þvotta-
birnirnir 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Fjölskyldulíf 19.20 Steinaldarmenn-
irnir 19.50 Jóki björn 20.00 Fréttir,
veður 20.35 íþróttasyrpa 21.00 Ríki
arnarins (3) 22.00 Evrópulöggur
23.00 Ellefufréttir 23.10 Uns sól er
sest 00.05 Dagskrárlok.
Slöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Með Afa
19.19 19.19 20.10 Óráðnar gátur
21.00 Paradísarklúbburinn 21.55
Gamanleikkonan 22.20 Réttlæti
23.10 Dóttir kolanámumannsins
(Coalminer's Daughter) 01.10 CNN.
Rós I
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 07.32
Daglegt mál 07.45 Listróf 08.00
Fréttir og Morgunauki 08.30 Frétta-
yfirlit 8.32 Segðu mér sögu 09.00
Fréttir 09.03 Laufskálinn 09.45 Upp-
haf rússneska ríkisins 10.00 Fréttir
10.03 Morgunleikfimi 10.10 Veður
10.20 Við leik og störf 11.00 Fréttir
11.03 Tónmál 11.53 Dagbókin 12.00
Fréttayfirlit á hádegi 12.20 Hádegis-
fréttir 12.45 Veðurfregnir 12.48 Auð-
lindin 12.55 Dánarfregnir 13.05 í
dagsins önn 13.30 Hornsófinn 14.00
Fréttir 14.03 Útvarpssagan: Göngin
14.30 Miðdegistónlist 15.00 Fréttir
15.03 Leikrit vikunnar 16.00 Fréttir
16.05 Völuskrín 16.15 Veðurfregnir
16.20 Á förnum vegi 16.40 Létt tón-
list 17.00 Fréttir 17.03 Vita skaltu
17.30 Tónlist á síðdegi 18.00 Fréttir
18.03 Hér og nú 18.18 Að utan 18.30
Auglýsingar 18.45 Veðurfregnir
19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kviksjá 19.55
Daglegt mál 20.00 í tónleikasal 22.00
Fréttir 22.07 Að utan 22.15 Veður-
fregnir 22.20 Lestur Passíusálma
22.30 Til sóma og prýði í veröldinni
23.10 í fáum dráttum 24.00 Fréttir
00.10 Tónmál 01.00 Veðurfregnir
01.10 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Níu fjögur 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
16.00 Fréttir 16.03 Dagskrá 17.30
Meinhornið 18.00 Fróttir 1K03 Þjóð-
arsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Gull-
skífan 20.00 Lausa rásin 21.00 Þættir
úr rokksögu íslands 22.07 Landið og
miðin 00.10 í háttinn 01.00 Næturút-
varp á báðum rásum til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís
Gunnarsdóttir 12.00 Hádegisfréttir
14.00 Snorri Sturluson 15.00 Fréttir
17.00 ísland í dag 18.30 Hafþór Freyr
Sigmundsson 22.00 Kristófer Helga-
son 23.00 Kvöldsögur 24.00 Kristó-
fer áfram á vaktinni 02.00 Þráinn
Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin
12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson
14.00 Sigurður Ragnarsson 17.00
Björn Sigurðsson 20.00 Jóhannes B.
Skúlason 22.00 Ólöf Marín Úlfars-
dóttir 02.00 Næturbrölt Stjörnunnar.
Adalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Fram að hádegi 09.15 Heiðar,
heilsan og hamingjan 09.30 Heimil-
ispakkinn 10.00 Hver er þetta? 10.30
Morgungestur
11.00 Margt er sér til gamans gert
11.30 Á ferð og flugi 12.00 Hádegis-
spjall 13.00 Strætin úti að aka 13.30
Gluggað í síðdegisblaðið 14.00
Brugðið á leik í dagsins önn 14.30
Saga dagsins 15.00 Topparnir takast
á 15.30 Efstá baugi vestanhafs 16.15
Heiðar, heilsan og hamingjan 16.30
Akademían 18.30 Smásaga Aðal-
stöðvarinnar 19.00 Eðaltónar 22.00
Á nótum vináttunnar 24.00 Nætur-
tónar Aðalstöðvarinnar.