Alþýðublaðið - 22.03.1991, Side 2
2
Föstudagur 22. mars 1991
Tertuhungur
Kristirm T. Haraldsson og fleiri
ungir jafnaðarmenn fengu það
hlutverk á sunnudaginn var að
„gera innrás“ í nokkur bakarí
borgarinnar rétt fyrir lokun
þeirra. Fjölmenni á afmæli Al-
þýðuflokksins sem hátíðlegt var
haldið á Hótel Sögu var meira en
nokkurn hafði órað fyrir. Búist
hafði veriö við um 300 manns,
en til leiks mættu meira en 900,
að talið var. Ljóst var því strax að
hótelið mundi ekki eiga nægar
tertubirgðir og var því farið í að
bjarga málum. „Það kom auðvit-
að svipur á mannskapinn í bak-
aríunum, þegar við komum og
keyptum allar tertur sem þar
voru á boðstólum,'1 sagði Krist-
inn, betur þekktur sem Kiddi rót-
ari og landsfrægur sem slíkur.
Trió Reykjavikur i
Hafnarfírði
A sunnudaginn heldur Tríó
Reykjavíkur tónleika — ekki í
Reykjavík, heldur í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Gestur tríósins er
Ron Levy, bandarískur píanó-
ieikari. í tríóinu eru þau Halldór
Haraldsson, píanóieikari, Gudný
Gudmundsdóttir, fiðluleikari og
Gunnar Kuaran, sellóleikari,
einvalalið. Tríó Reykjavík fór í
sína fyrstu tónleikaför í nóvemb-
er i fyrra tii Norðurlandanna og
fékk mjög góðar viðtökur, svo
sem vænta mátti.
Tónskáld fá
starfslaun
Sinfóníuhljómsveit íslands hefur
ákveðið að veita tveim tónskáld-
um starfslaun, þrjá mánuði
hvoru, þeim Áskeli Mássyni og
Hauki Tómassyni.
Kaffi — ekki gott
fyrir alla
Nýlega bárust blaðafréttir um að
kaffi væri sárasaklaus drykkur.
Ekki er það að sjá í grein í Heil-
brigdismálum, sem Eiríkur Örn
Arnarson ritar. Hann greinir frá
rannsóknum i Noregi og í
Bandaríkjunum þar sem fram
kemur að kaffi virðist geta haft
áhrif á lífslíkur þeirra sem eru
með hjarta- og æðasjúdóma.
Fram kom að þeir sem drukku
meira en fjóra bolla á dag af
þessum vinsælasta drykk ver-
aldar, áttu von á auknum líkum
á áfalli. Þá kemur í Ijós að könn-
un Geðrannsóknastofnunar Há-
skóla íslands 1987 leiddi í Ijós að
95% fullorðinna íslendinga
neyta drykkja með koffeini dag-
lega. Þeir sem drukku kaffi,
drukku að meðaltali sjö bolla á
dag. Þar af drukku 5% meira en
15 bolla á dag. Slíkt kallar að
sjálfsögðu á óþægilegar hliðar-
verkanir, hjartslátt, höfuðverki
og svefnleysi.
Afgreiðslu-
þingi lokið
Löggjafarsamkoman er fyrst og fremst
i af kosningum, #.d. tokust póiitisk sambönd vettvangur framkvœmdavaldsins
IFRÉTTASKYRING \
Hundr
innar va
bar keim
ó elleftu stundu og önnur voru svikín. Ríkisstjórnin
gæti setið ófram, ef annar meirihluti er ekki þegar
fyrir hendi eftir kosningar. Viðreisnarstjórnin 1963
tilkynnti þá að loknum koshingum að hún hygðist
sitja. Það sama gæti gerst nú. Þrátt fyrir annriki á
þingi náðu óbreyttir þingmenn litlu fram. Alþingi ís-
lendinga ber sterkan keim af þvi að mál eru af-
greidd. Ríkisstjórnin þarf að fá sitt fram — og gerir
það. Framkvæmdavaldið ofkeyrir oft á tiðum lög-
gjafarsamkomuna.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
Takast ný bræðrabönd eða situr núverandi stjórn éfram aö loknum kosningum 20. apríl?
Ráðherrar ná sinu fram
Nokkur stór mál sem komu frá
ríkisstjórn hlutu afgreiðslu. Mikill
fjöldi mála leit dagsins ljós en fá
þingmannamál voru afgreidd. 266
mál hlutu afgreiðsíu af 476 málum
sem voru til meðferðar. Einungis 7
þingmannafrumvörp urðu að lög-
um en 65 stjórnarfrumvörp. 149
fyrirspurnum þingmanna var
svarað, munnlega eða skriflega.
Það eru í raun einu mál hins al-
menna þingmanns, sem hlutu af-
greiðslu.
Fyrirspurnir eru ekkert annað
en spurningar sem lagðar eru fyrir
ráðherra. Spurningunum gæti
ráðherra í mörgum tilvikum svar-
að beint án þess að málið kæmi
fyrir Alþingi. Sumar fyrirspurnirn-
ar eru þess eðlis að þær útheimta
dýrar rannsóknir opinberra aðila,
eins og ríkisendurskoðunar, og
virðast margar fremur lagðar
fram til að vekja athygli fjölmiðla.
Það er þó skiljanlegt að þingmenn
leggi fram fyrirspurnir, þar sem
það er kannski eini vettvangur
þeirra. Flest önnur mál þing-
manna daga einfaldlega uppi.
Ef fyrirspurnirnar eru dregnar
frá öllum málafjöldanum kemur í
ljós að 117 önnur mál voru af-
greidd. Af 190 lagafrumvörpum,
sem voru lögð fram, urðu t.d. að-
eins 72 að lögurn. Sum mál eru
margflutt. í haust verður að taka
upp frá grunni öll mál sem ekki
voru afgreidd að fullu á þessu
þingi.
Þingið var stutt en annasamt,
sagði forseti sameinaðs þings við
þingslitin. Þingmenn voru 139
daga á þingi, frá 10. okt. til 21. des.
1990 og frá 14. jan. til 20. mars
1991. Gert er ráð fyrir að þing
komi saman í maí vegna stjórnar-
skrárbreytinga sem þingið sam-
þykkti nú. Eru þetta m.a. ákvæði
um að Alþingi starfi framvegis í
einni málstofu. Nýtt þing þarf að
fjalla um málið og samþykkja til
þess að stjórnarskrárbreytingin
nái fram.
Uppákoma á___________________
sidasta degi_______________
Þó að oft sé deilt á þingi vildu
þingmenn fara heim í frí í fullri
sátt. Það tókst þó ekki alls kostar
við þingslitin í fyrradag, því að
ekki tókst að slíta þingi á viðeig-
andi hátt. Þingslit áttu að fara
fram klukkan tíu að loknum kosn-
ingum í stjórn Landsvirkjunar, Kis-
iliðjunnar, orkuráðs og Viðlaga-
tryggingar íslands. Guðrún Helga-
dóttir, forseti sameinaðs þings, til-
kynnti í upphafi þingfundar að
komið hefði fram ósk um að kosn-
ingum í stjórnirnar yrði frestað,
þar sem ekki hefði náðst sam-
komulag um kosningarnar. Hugð-
ist hún fresta þeim til næsta þings
(eftir kosningar).
Upphófust þá eins og hálfs tíma
umræður um þingsköp. 26 sinnum
var tekið til máls undir liðnum: Á
að kjósa eða ekki? Tvisvar var gert
hlé á þingstörfum til þess að freista
þess að ná samkomulagi um kosn-
ingu. Forseti úrskurðaði að vegna
óska þingmanna og án samkomu-
lags yrði kosningu frestað þar til
næsta þing kæmi saman.
Kosning i stærsta
fyrirtæki landsins_____________
Það vakti nokkra furðu á þingi
að kvennalistakonur skyldu ætla
að setja það að skilyrði að þær
fengju stjórnarkonu í Landsvirkj-
un. Voru þær á höttunum eftir bit-
lingum? Þær segja það furðulega
fullyrðingu að staðhæfa að kosn-
ing í ráð og nefndir sé ekki eðlilegt
hlutverk Alþingis.
Stjórnarseta í Landsvirkjun er
veigamikil staða og feitur biti.
Stjórnarformaður mun hafa 180
þúsund króna tekjur á mánuði.
Þetta er líka stærsta fyrirtæki
landsins. Skuldlausar eignir eru
samkvæmt uppgjöri 1989 and-
virði 23 milljarða króna. Alþingi
átti að kjósa þrjá stjórnarmenn og
þrjá til vara í stjórnina.
Óvæntar umræður í þinglok um
kosningu í stjórnirnar fjórar leiddu
í Ijós að kosningaskjálfta er farið
að gæta og jafnvel nokkurs kær-
leika þvert á sambönd. Stjórnar-
kosningarnar hafa verið á dagskrá
þingsins síðan 4. mars. Kvennalisti
og Sjálfstæðisflokkur höfðu gert
með sér samkomulag um að full-
trúi Kvennalista lenti í Landsvirkj-
unarstjórninni. Síðdegis þann
sama dag gerist það að Alþýðu-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur ná
saman um að fresta kosningu.
Friðrik Sophusson, varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði á Al-
þingi að beiðni hefði komið frá Al-
þýðuflokki um að fresta kosning-
um og að sjálfstæðismenn hefðu
fallist á hana. Halldór Blöndal
sagði að það hefði skýrt komið
fram á fundi þingflokksformanna
að þing yrði kallað saman að lokn-
um kosningum, og það þing gæti
kosið í stjórnirnar.
Þung orð féllu í umræðunum
um þingsköp. Málmfríður Sigurð-
ardóttir, formaður þingflokks
Samtaka um kvennalista, kallaði
ákvörðunina um frestun „skrum-
skælingu lýðræðis."
Skúli Alexandersson sagði að
verið væri að brjóta þingsköp og
lög með því að það þing sem sæti
kysi ekki. Páll Pétursson þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins, sagði að framsóknar-
mönnum væri ekkert að vanbún-
aði að ganga þegar til kosninga í
stjórn Landsvirkjunar o.fl. Hjör-
leifur Guttormsson sagði ljóst að
nýtt bandalag hefði myndast í
þinginu, ákvörðunin um frestun
væri pólitísk skilaboð um nýja við-
reisn að loknum kosningum.
Álmál, félagsþjónusta
og Evrópumál___________________
Eiður Guðnason, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, segir
að ráðherrum Alþýðuflokksins
hafi tekist að ná óvenjumörgum
stórum málum í gegn. Mesta afrek
ríkisstjórnarinnar sé þó að hafa
náð verðbólgunni niður. Eiður tel-
ur líklegt að sumarþing verði kall-
að saman —■ og jafnvel haustþing
þegar í september ef samningar
um hið Evrópska efnahagssvæði
verða komnir á það stig að þingið
þurfi að fjalla þar um.
Jóhanna Sigurðardóttir lagði
fram nokkur stór mál á félags-
sviði. Af þeim sem runnu í gegn á
síðustu stundu má nefna iokun
húsnæðiskerfisins frá 1986, lög-
festingu á Búseta og lög sem
skikka sveitarfélög til að halda
uppi ákveðinni félagsþjónustu.
Þar er safnað saman á einn stað
ýmsum félagsmálum. Einnig má
nefna lög um jafnrétti karla og
kvenna, sem skylda ríkisstjórn til
að leggja fram á fjögurra ára fresti
þingsályktun um jafnréttisstefnu.
Lög um fjárfestingu eriendra að-
ila í atvinnurekstri á Islandi og
margvísleg löggjöf sem eykur
stórlega frelsi einstaklinga og fyr-
irtækja í viðskiptalífi eru dæmi um
mál sem voru á verksviði Jóns Sig-
urðssonar iðnaðarráðherra. Al-
málið verður þó það mál sem
gnæfir yfir. 800 milljónir eru veitt-
ar í Iánsfjárlögum til að nauðsyn-
legar rannsóknir megi fara fram til
undirbúnings byggingu álversins.
Væntanlegir samningar um
sameiginlegt efnahagssvæði 19
ríkja í Evrópu verða stærstu milli-
ríkjasamningar íslendinga til
þessa. Stefnt er að samningum á
næstu mánuðum. Jón Baldvin
Hannibalsson ber ábyrgðina fyrir
íslands hönd og hefur tvisvar lagt
fram í vetur skýrslur um gang við-
ræðna og um efnisatriði væntan-
legs samnings.
Kosningabönd________________
Þingmenn þóttust skynja pólit-
íska strauma undir þinglok. Fáir
höfðu trú á því að ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar sæti út
kjörtímabilið. A-flokkarnir stukku
saman í stjórnarsæng eftir nokkuð
langar erjur, en stjórnin hefur
reynst sterkari en við var búist.
Það er sennilegt að bæði Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubanda-
lag gætu vel hugsað sér að halda
stjórninni við eftir kosningar. Og
stjórnin gæti setið áfram, ef aðrir
stjórnmálaflokkar gerðu ekki
beinlinis tilkall til ráðherrastóla.
Flokkarnir ganga óbundnir til
kosninga, en þau yfirgripsmiklu
mál sem vega þyngst í þjóðmála-
umræðunni — t.d. álmálið og Evr-
ópusamningar — hafa kallað fram
bræðrabönd á Alþingi, sem kynnu
að verða til þess að önnur stjórn
tæki við.