Alþýðublaðið - 01.05.1991, Page 1

Alþýðublaðið - 01.05.1991, Page 1
Ný stíórn í vorbtíðunni Það var vorlegt um að litast á Álftanesinu í gær- dag, þegar nýir ráðherrar stigu út á hlaðið á Bessa- stöðum. Var haft á orði að veðurblíðan boðaði gott samstarf flokkanna tveggja í ríkisstjórn — storma- samar ríkisstjórnir hefðu oft á tíðum orðið til í ill- viðrum. Það sem kætti ráðherrana á myndinni hér fyrir ofan var að bílstjóri Jóns Baldvins mætti á rauðum og glæsilegum Citroén-bragga til að aka utanríkisráðherranum til höfuðborgarinnar, en Jón Baldvin hefur opinberlega lýst aðdáun sinni á hinni frönsku hönnun á því farartæki. Davíð, forsætis- ráðherra, tekur bakföll á myndinni og það er létt yfir ráðherrum Alþýðuflokksins, þeim Eiði Guðna- syni, umhverfisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra og Sighvati Björgvinssyni, heilbrigðisráðherra, svo og Þorsteini Pálssyni, sjávarútvegsráðherra frá Sjálfstæðisflokknum. Á bls. 8 í blaðinu segir frá atburðum dagsins í gær, undirritun stefnuyfirlýsingar og formlegum stjórnarskiptum á Bessastöðum. 1. maí ávarp Alþjódasambands frjálsra verkalýðsfélaga Brauð — friður — frelsi ..Milljónir karla og kvenna halda 1. maí hátíðlegan til þess að í sam- einingu minna á hugsjónir verka- lýðshreyfingarinnar. Alþjóðlegur baráttudagur launafólks er tákn fyr- ir baráttu gegn efnahagslegu og fé- lagslegu ranglæti og sýna staðfasta trú á lýðræði, frelsi og virðingu fyrir mannréttindum. Þessar óaðskiljan- legu hugsjónir um lýðræði, frelsi og mannréttindi öllum til handa voru kveikjan að stofnun Alþjóðsam- bands frjálsra verkalýsðfélaga árið 1949. Kjörorð þess — brauð, friður, frelsi — er jafn brýnt baráttumál verkalýðshreyfingarinnar 1991 eins og það var þá.“ Þetta er upphaf 1. maí ávarps Al- þjóðasambands frjálsra verkalýðs- félaga árið 1991. í ávarpinu er enn- fremur minnt á að langvarandi og djúpstæður ójöfnuður ríki enn inn- an ríkja og í samskiptum milli ríkja. Mannréttindi séu fótum troðin, rétt- ur stéttarfélaga að engu hafður og íbúum þróunarríkjanna sýnt full- komið tómlæti. „Barátta verkalýðshreyfingarinn- ar er fyrst og fremst barátta fyrir auknu lýðræði. Verkalýðshreyfing-. in á í stríði þar sem hún talar máli launafólks. Hún berst fyrir því að framlag þess sé metið að verðleik- um með réttlátri skiptingu þjóða- auðs,“ segir í ávarpinu. „Félagsmenn frjálsra verkalýðsfé- laga lögðu sittcif mörkum til þess að steypa kommúnísku einræði í Mið- og Austur-Evrópu. Nú taka þeir virk- an þátt í endurreisnarstarfi sem stefnir að því að tryggja mikilvæga félagslega sátt um efnahagsþróun," segir einnig í ávarpinu. Þá er tekið fram að með hverjum deginum sem líður verði alþjóðleg samstaða verkalýðsfélaga mikil- vægara tæki il þess að minna á þá sæmd sem verkafólki ber, virðingu fyrir rétti þess og réttlátari þjóðfé- lagslegri stöðu þess. Alþjóðleg sam- staða sé með launafólki sem enn sé haft að féþúfu af minnihlutahópum sem hafa kastað eign sinni á allan auð heilla þjóða. Samstaða sé einnig með körlum og konum sem enn sé íþyngt með lánum sem það beri enga ábyrgð á og hafi ekki haft hag af. í ávarpinu segir að alþjóðleg hreyfing verkalýðsfélaga muni áfram vinna með launafólki þróun- arríkjanna og stéttarfélaga þeirra með það að markmiði að eyða auð- mýkjandi fátækt sem iðnvæddar þjóðir beri mikla ábyrgð á, að auka þróunaraðstoð og fjárfestingu í fé- lagslegum auði eins og menntun, þjálfun, húsnæði og almannatrygg- ingum, að laða fjölmennan hóp launamanna, sem enn standa utan stéttarfélaga, til félaganna svo þeir fái notið hagsbótanna sem felast í samstöðu hreyfingarinnar. RITSTJÓRN (Ö 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR (f) 625566

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.