Alþýðublaðið - 01.05.1991, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 01.05.1991, Qupperneq 13
Miðvikudagur 1. maí 1991 13 um Evrópskt efnahagssvæði rökréttar. Við eigum þó að standa fast á fyrirvörum okkar varðandi sjálfstæði þjóðar- innar þ.e. landhelgina, eignarhald á auðlindum og sér- stöðu íslensks vinnumarkaðar. í samningunum um Evrópska efnahagssvæðið má ekki líta eingöngu til hags- muna atvinnurekstrar og stjórnvalda. Það er grundvallar- krafa íslenskrar verkalýðshreyfingar að aðild að svæðinu, ef til kæmi, grafi ekki á nokkurn hátt undan þeim réttind- um og ávinningum sem íslenskt launafólk hefur náð fram á undanförnum árum og áratugum. íslenskt launafólk krefst þess að félagslega íbúðakerfið verði elft svo lágtekjufólk þurfi ekki að bíða árum saman eftir að komast í húsnæði við hæfi. Við eigum að mynda hér launastefnu þar sem skilgreind eru markmið um aukna atvinnu og aukinn kaupmátt launa í áföngum. Til þess höfum við alla möguleika. Jafn- framt er það krafa að samnings- og verkfallsréttur iðn- nema verði viðurkenndur. Á baráttudegi launafólks lítum við til þeirra milljóna manna, kvenna og barna sem búa við hörmungar hernað- arofbeldis og kúgunar. Hvarvetna í heiminum eru frjáls verkalýðsfélög í fararbroddi mannréttinda. í Austur- Evrópu hafa verkalýðsfélög og stéttasambönd barist fyrir auknum lýðréttindum. í S-Afríku sér nú loks fram á árang- ur í baráttu þeldökkra íbúa landsins gegn harðstjórum hvíta minnihlutans. Á síðustu vikum höfum við fylgst með þeim hörmungum sem dunið hafa á Kúrdum. Islenskt launafólk skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að ofsóknum á hendur Kúrdum linni og þeim verði tryggt sjálfsforræði. Með samstöðu launafólks og fyrir frumkvæði verkalýðs- hreyfingarinnar tókst að koma efnahagsmálum þjóðarinn- ar í það horf að þau standast samjöfnuð við nálæg lönd. Með sama hætti eigum við að nota samtakamáttinn tii að auka kaupmáttinn og koma launamálum í það horf að sómi verði að. Með þetta í huga horfum við björtum augum til framtíð- arinnar. LAUNAJÖFNUN - AUKINN KAUPMÁTTUR. Konur búa oft viö sannkölluð sultarlaun á vinnustöðum, ekki síst i ýmsum iðnaði. 1. maí ávarp Iðnnemasambands íslands Ýmis merki um að þjóðar sáttín sé að springa Eins og venja er 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, er dagurinn notaður til að setja fram kröfur um bætt kjör þeirra lægstlaunuðu. Verkalýðshreyfingin er í hátíðarskapi og sendir frá sér ávörp sem innihalda kröfur um réttlátara þjóðfélag og jafnari skiptingu þjóðartekna. Það setur einnig óneitanlega svip sinn á 1. maí í ár að kosn- ingar eru nýafstaðnar. í kosningabaráttunni lofuðu öll framboð bættum kjörum þeirra verst settu. Frá því i febr- úar 1990 hefur verið tími þjóðarsáttar. Þá voru gerðir samningar sem höfðu það markmið að ná niður verð- bólgu, stöðva kaupmáttarhrapið og ná niður vöxtum. Þetta hefur tekist í öllum aðalatriðum þó svo árangurinn í vaxtamálum sé ekki nægilega góður. Ýmis merki eru hinsvegar á lofti um að þjóðarsáttin geti verið að springa. Ef það gerist þá er eins víst að sá árangur sem náðst hefur muni ekki nýtast til bættra kjara fyrir láglaunafólk. Þessum staðreyndum verður verkalýðshreyfingin að bregðast við. Það er með öllu óviðunandi ef ekki næst í gegn veruleg kjarabót til handa þeim lægstlaunuðu strax í næstu samn- ingum. Verkalýðshreyfingin verður að sjá til þess að þau kosningaloforð sem gefin hafa verið um bætt kjör þeirra lægstlaunuðu verði efnd. Atvinnurekendur eru nú farnir að búa sig undir að hefja upp gamla sönginn um slæma af- komu og lítið svigrúm til kauphækkana þegar samningar verða lausir. Staða verkalýðshreyfingarinnar til að fara út í verkfallsaðgerðir til að ná fram bættum kjörum þeirra sem eru á lægstu laununum er hins vegar slæm. Þessi slæma staða helgast fyrst og fremst af því að hér á landi hefur verið byggt upp húsnæðiskerfi sem hneppir fólk í skuldafen mestan part af starfsævi þess. Með þessu kerfi hefur eigna- og forréttindastéttum þessa lands tekist að lama að mestu leyti slagkraft verkalýðshreyfingarinnar. Verkafólk hefur ekki efni á, vegna lágra launa og hárra skulda, að leggja niður vinnu til að knýja á um bætt kjör. Jafnframt hefur eigna- og forréttindastéttum þessa lands tekist að færa allan umráðarétt yfir helstu auðlind þjóðar- innar, fiskimiðunum, yfir á útgerðarauðvaldið. Þetta hefur það í för með sér að ef verkfallsaðgerðir eru boðaðar meðal verkafólks í fiskvinnslu þá er útgerðarmönnum í lófa lagið að selja veiðiheimildir burt úr einstökum byggð- arlögum. Þar með hafa þeir selt lífsbjörg fólks burt frá því og gildir þá einu hversu há launin eru ef enga vinnu er að fá. Ætli verkalýðshreyfingin einhvern tímann að eiga raunverulega möguleika á því að minnka launamisréttið í íslensku þjóðfélagi þá verður að ráðast gegn þessum þátt- um. Það þarf að losa verkafólk undan þeim skuldaklöfum sem séreignastefnan í húsnæðismálum hefur leitt af sér. Leggja verður stóraukna áherslu á byggingu félagslegra íbúða og kaupleiguíbúða. Verkalýðshreyfingin verður að setja fram skýlausar kröfur um að ráðstöfunarréttur út- gerðarmanna yfir fiskinum sem syndir í sjónum verði tek- inn af þeim og færður til fólksins sem vinnur við, og byggir alla sína afkomu á sjávarútvegi. Þessar breytingar eru frumskilyrði þess að verkalýðshreyfingin hafi þann slag- kraft sem nauðsynlegur er til að knýja fram raunverulegar kjarabætur til þeirra lægst launuðu. En hverjir eru þeir lægstlaunuðu? Lægstu verkamanna- laun í dag eru nú 41.333,- kr. á mánuði. Byrjunarlaun iðn- nema eru hins vegar 32.935,- kr. á mánuði og þá eru laun ekki greidd á meðan á skólanámi stendur. Séu hinsvegar einnig greidd laun í skóla þá eru byrjunarlaun iðnnema 23.833,- kr. á mánuði. Þessar launatölur eru einungis kunnar iðnnemum og aðstandendum þeirra. Þar af leiðir að þegar verkalýðsforingjar tala um að leiðrétta laun þeirra lægst launuðu þá er það sjaldnast sem þeir eiga við laun iðnnema. Það er skýlaus krafa Iðnnemasambands ls- lands að við gerð næstu kjarasamninga og leiðréttingu launa þeirra lægst launuðu verði laun iðnnema leiðrétt og þau verði framvegis hlutfall af launum sveina en ekki hlut- fall af lægstu verkamannalaunum eins og nú er. Stéttarfé- lög iðnaðarmanna verða að gera sér grein fyrir því að þeg- ar laun iðnnema eru eins lág og raun ber vitni þá leiðir það til þess að iðnnemar eru fyrst og fremst notaðir sem ódýrt vinnuafl. Það hefur síðan í för með sér að fjöldi iðnnema miðast við fjölda meistara og fjöldi sveina verður of mikill og iðnnemarnir fá minni tilsögn í faginu og verða þar af leiðandi lakari fagmenn. einnig hafa lág laun iðnnema í för með sér atvinnuleysi fyrir sveina. Vegna mikils munar á launum sveina og nema þá er nemunum sagt upp störfum um leið og þeir hafa lokið námi og nýir nemar ráðnir í stað- inn. Leiðrétting launa iðnnema ætti því ekki einungis að vera krafa Iðnnemasambands Isands heldur einnig krafa stéttarfélaga iðnaðarmanna. Með breytingum sem urðu við upptöku laga um fram- haldsskóla er ekki neitt lengur sem bannar iðnnemunum að fara í verkfall. Iðnnemasambandi lslands hefur nú verið breytt yfir í stéttarsamtök iðnnema. Það er krafa Iðnnema- sambands íslands að samtökin verði viðurkennd sem samningsaðilar um kaup og kjör iðnnema. Þeir samningar sem gerðir eru um kaup og kjör iðnnema án þess að iðn- nemar hafi um þá úrslitavald eru ekki samningar heldur þvinganir. Hverri þjóð sem sækir til framfara er nauðsynlegt að hlúa vel að allri verkmenntun. íslendingum er þetta lífs- nauðsyn því þeir samningar sem nú fara fram um Evrópskt efnahagssvæði munu að öllum líkindum hafa í för með sér stóraukna möguleika fyrir erlenda iðnaðarmenn, fa^- lærða sem ófaglærða, að sækja hingað vinnu. Eina svar Is- lendinga við þeirri þróun er að eiga vel menntaða iðnaðar- menn sem geta staðist samanburð hvaðan sem er úr heim- inum. Það vantar hins vegar mikið á að stjórnvöld og menntamálaráðherra geri sér grein fyrir þessu eins og sést gjörla á þeirri forgangsröð sem hefur verið á uppbyggingu menntastofnana. Á meðan nemendum Iðnskólans í Reykjavík hefur fjölgað um helming á tíu árum án þess að húsnæði skólans hafi verið aukið og vinnueftirlitið hefur hótað að loka einstökum deildum skólans vegna heilsu- spillandi aðstöðu þá ræðst hið opinbera í að kaupa húas- næði undir Listaháskóla. Af þessu sést að nú eins og áður virðast stjórnvöld líta á iðn- og verkmenntun sem annars flokks nám. Iðnnemasambandið krefst þess að iðn- og verkmenntun skipi jafn háan sess og bóknám og listnám. 1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Þá er við hæfi að íslenskt verkafólk minnist þeirra markmiða sem frumkvöðlar verkalýðshreyfingarinna höfðu að leiðarljósi og voru alþjóðleg; frelsis, jafnréttis og bræðralags. Iðn- nemasamband íslands minnir félagsmenn sína og allt ís- lenskt launafólk á að þrátt fyrir brýna nauðsyn þess að leiðrétta kjör þeirra verst settu í íslensku samfélagi þá eru íslendingar í öllum aðalatriðum vel settir sé miðað við þær hörmungar sem fólk víða út um heim þarf að iíða. Á hverjum sólarhring deyja yfir 40.000 börn undir fimm ára aldri af völdum sjúkdóma sem auðvelt er að koma í veg fyrir. Um 150 milljónir barna í heiminum eru vannærð, þar af eru um 25 milljón börn á hungurmörkum. Ríflega 100 milljónir barna á skólaaldri hafa aldrei inn í kennslustofu stigið. Þar af eru stúlkubörn í meirihluta. Yfir 30 milljónir barna eru heimilislaus og á vergangi. Fyrir árið 2000, eftir 9 ár, munu yfir 10 milljónir barna í Mið- og Austur Afríku hafa misst a.m.k. annað foreldri sitt úr eyðni. Sjö milljónir barna eru flóttamenn af völdum stríðs og annarra hörmunga. iðnnemasamband Islands hvetur íslenskt launafólk að hafa þessar staðreyndir í huga þegar það gerir upp hug sinn til þátttöku Islendinga í þróunaraðstoð. Jafnframt krefst Iðnnemasamband Islands stöðvunar á þeirri pen- ingasóun sem birtist í vopnaframleiðslu ríkustu þjóða heims og bendir á að þeir fjármunir væru betur nýttir til að leysa mannlegar þjáningar í stað þess að framleiða mannlegar þjáningar. Iðnnemasamband íslands mun með þátttöku sinni í Norrænu dagsverki, NOD 91, sem miðar m.a. að því að safna fjármunum til uppbyggingar á menntunarmöguleik- um fyrir brasilíska æsku, reyna að leggja sitt af mörkum til að gefa börnum og ungmennum sem litla ástæðu hafa til bjartsýni von um betra líf. Kröfur Iðnnemasambands íslands á 1. maí alþjóðlegum baráttudegi verkafólks eru. Nýtt húsnæðiskerfi sem losar launafólk úr skuldaklöfum séreignarstefnunnar í húsnæðismálum. Afnám ráðstöfunarréttar útgerðarmanna á fiskimiðum þjóðarinnar. Viðurkenning á samningsrétti iðnnema. Laun iðnnema verði prósentuhlutfall af launum sveina. Stórbætt aðstaða til iðn- og verknámskennslu. Aukin hlutdeild íslendinga í þróunaraðstoð. 1 Stöðvun hernaðarhyggju hvar sem er í veröldinni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.