Alþýðublaðið - 30.05.1991, Page 4
«t*»
ipholtiSÖc S-688<5gl
MÞYBUBLiBlÐ
iðEYniSTOBIN.
Sævarhöfða 4. s.686300.
Heimur í hnotskurn
ENNISRAKAÐIR Á þessari mynd er hljómsveitin Elpuerco/Ennis-
rakaðir. Þeir heita Oddur F. Sigurbjörnsson, Jón Kjartan Ingólfs-
son, Páll Viðar Kristinsson, Hlöðver Guðnason og Elías Bjarnhéð-
insson. Þeir verða á Tveim vinum á sunnudagskvöldið að kynna nýja
hijómplötu sína. ,,Það verða engin núll,“ segja piltarnir. Sérstakur heið-
ursgestur kvöldsins verður Sverrir Stormsker eða Ormurinn beri.
NAMSLANIN SKERT: Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson,
hefur látið svo um mælt að námslán hafi á undanförnum árum hækkað
umfram almenna verðlagsþróun. Samstarfsnefnd námsmannahreyfing-
anna er ekki á sama máli og telur að framfærslugrunnur námslána hafi
ekki í raun hækkað neitt frá í ársbyrjun 1985. Skorað er á menntamála-
ráðherra og ríkisstjórn að endurskoða afstöðu sína „áður en hlaupið er
til í óðagoti og lífsviðurværi þúsunda námsmanna skert um 20%“. Þá
krefst samstarfsnefndin að hætt verði að egna saman launafólki og
námsmönnum með því að afbaka staðreyndir eins og raun hefur orðið
á, eins og segir í fréttatilkynningu nefndarinnar.
MENNINGARMÁL VERKALÝÐSINS: Þessa dagana heldur nor-
ræni MFA-skólinn námskeið í Ölfusborgum. Námskeið skólans eru
haldin til skiptis á Norðurlöndunum. Höfuðviðfangsefnið er að þessu
sinni þróun mála í Evrópu. Fjallað er meðal annars um Evrópubandalag-
ið og evrópskt efnahagssvæði, sjónarmið verkalýðshreyfinga á Norður-
löndum og stöðu einstakra ríkja gagnvart EB. Þá er fjallað um norrænt
samstarf og íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Þátttakendur eru 30 talsins
frá flestum Norðurlandanna. Allir starfa þeir að fræðslu- og menningar-
málum verkalýðshreyfinganna. Stjórnendur námskeiðsins eru Malin
Olsson frá Sviþjóö og Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
ÓKEYPIS HELGARNÁMSKEIÐ: Þeir sem áhuga hafa á að kynna
sér jóga og sjálfsvitund eiga kost á ókeypis námskeiöi sem hefst kl. 20
í kvöld og heldur áfram laugardag og sunnudag. Það verður haldið í
Árnagarði við Suðurgötu. Shri Chinmoy setrið gengst fyrir þessu nám-
skeiði og munu veröa kenndar slökunar- og einbeitingaræfingar, auk
þess sem hugleiðsla verður kynnt.
0S0NLAGIÐ 0G HUÐIN: Bandarískur prófessor, Thomas G. Jan-
sen, heldur fyrirlestur um ósónlagið og hvaða áhrif breytingar á því
hafa á húðina. Fyrirlesturinn er á morgun, föstudag kl. 13—14 í Eir-
bergi, gamla hjúkrunarskólanum. I’rófessorinn er fyrrverandi formaður
í félagi bandarískra húðlækna og er háskóiakennari í Arkansas.
RAÐHERRAR UTAN: Ráðherrarnir Davíð Oddsson, Jón Baldvin
Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson fara utan til Osló á laugardaginn
til viðræðna við norska ráöherra. Rætt veröur um samninga um evr-
ópskt efnahagssvæði, aöallega um hin viðkvæmu sjávarútvegsmál. Með
ráðherrunum verður í för Hannes Hafstein, aðalsamningamaður Is-
lands um evrópska efnahagssvæðið. Ráðherrarnir koma heim samdæg-
urs.
SYSTUR SELJA PÚSTRÖR: Þær systurnar Sigríður, Pálína og
Bára Sigurbergsdætur eiga og reka fyrirtækiö Fjöðrina, sem flestir
bíleigendur þekkja. Fjöðrin framleiðir, flytur inn og selur púströr á allar
gerðir bifreiða. Faðir þeirra systra, Sigurbergur Pálsson, stofnaði
Fjöðrina fyrir 35 árum. Á afmæli fyrirtækisins á dögunum var sölubúðin
stækkuð og henni gjörbreytt, enda hefur Fjöðrin farið út í sölu á meira
úrvali bílahluta, selur nú m.a. dempara, boddíhluti í allar geröir bíla og
fleiri hluta. Á myndinni eru systurnar þrjár, frá vinstri: Sigríður, Bára og
Pálína.
RÍKISSTOFNUN Á HÖGGSTOKKINN: Ríkisfyrirtækið Bifreiða-
próf ríkisins verður trúlega leitt á höggstokkinn í þeim niðurskurði
sem ríkisstjórnin stendur nú fyrir. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráö-
herra segir þessa starfsemi óhentuga einingu sem sjálfstæða stofnun. Nú
er kannað hvernig hentugast — og ódýrast — sé að reka þessa starfsemi.
Talað er um að fella þessa starfsemi undir Umferðarráð.
Milljóna króna húsviðgerd reyndist
Vita gagnslaus
— og nú er húsið jafnvel verr á sig komið en áður
„Eftir þessar svokölluðu við-
gerðir á húsinu eru sprungurn-
ar jafnvel orðnar stærri en fyrr,“
sagði Guðmundur Steinþórsson,
húsvörður í háhýsinu Engihjalla
2 í Kópavogi í spjalli við Alþýðu-
blaðið. Ibúar hússins, sem er að-
eins rétt rúmlega áratugs gam-
alt, létu til skarar skríða gegn
gífurlegum steypuskemmdum
fyrir tveimur árum.
Fengnir voru verkfræðingar frá
fyrirtækinu Línuhönnun, sem áttu
að stjórna þessu verki og gefa góð
ráð. Sagði Guðmundur að því fé sem
sú ráðgjöf kostaði, hefði verið kast-
að á glæ. Verktakinn, ungur maður,
greinilega reynslulítill, með skóla-
stráka í vinnu, gat síðan á engan
hátt valdið verkefninu. Gafst hann
hreinlega upp á tímabili, en lauk
verkinu um síðir.
„Viðgerðin" sýndi sig fljótt í að
vera afar illa unnin. Sprungur komu
fljótlega í Ijós, og í dag eru þær enn
svæsnari en þær voru fyrir. Sagt er
að viðgerðarmennirnir hafi víkkað
út sprungur í veggjum hússins til að
koma í þær einhverju klístri, sem
síðar hefur ekki haldist við í sprung-
unum.
i Eftir standa íbúarnir með hriplekt
hús, eftir að hafa fórnað hundruð-
um þúsunda króna hver, í vonlausa
viðgerð.
Víðar við Engihjalla er pottur
brotinn í þessum efnum og nú síðast
auglýsti húsfélagiðí Engihjalla 3 eft-
ir tilboðum í viðgerð á húsi sínu. í
Engihjalla 9 eru fyrirhugaðar við-
gerðir í sumar.
Pálmi Rögnvaldsson, einn íbúa í
Engihjalla 9, sagði í gær að húsið
væri 12 ára gamalt, en þarfnaðist
verulegra viðgerða, enda væri víða
farið að leka með gluggum og
sprungur komnar í múrinn. Sagði
Pálmi undarlegt til þess að vita að
svo virtist sem enginn væri ábyrgur,
■ en varla gæti talist eðlilegt að svo
nýleg hús þörfnuðust svo mikilla
viðgerða.
„Hús sem voru steypt í eldgamla
daga eru svo eitutsterk að mönnum
reynist erfitt að brjóta veggi í þeim.
Byggingamönnum nútímans hefur
ekki tekist eins vel upp og fyrirrenn-
um þeirra," sagði Pálmi.
ENGIHJALLI i Kópavogi — þar eru allmargar háreistar ibuOaDlokkír, flestar
hverjar um áratugs gamlar, og eru þær margar illa farnar. Strákurinn á mynd-
inni sýnir eina af mörgum sprungum i húsinu Engihjalla 2. Það hús á þó aö
heita nýlega viðgert. A-mynd: E.ÓI.
Verðlag í matvöruverslunum
Óbreytt í þrjá mánuði
Verdlagsstofnun heldur uppi
bráðnauðsynlegu eftirliti með
vöruverði, ekki hvað síst í mat-
vöruverslunum, þar sem al-
menningur eyðir hvað mestu af
launum sínum. Ánægjuleg tíð-
indi komu frá stofnuninni í gær-
verðlag hreyfist nánast ekki í
matvöruverslunum.
Fylgst hefur veriö með vöruverði
50 algengra vörutegunda í 49 versl-
unum á höfuðboigarsvæðinu með
reglubundnum könnunum. í janúar
var vörutegundunum fjölgað í 80 og
verslunum í 54. í lok apríl var gerð
samsvarandi könnun sem leiðir eft-
irfarandi í ljós.
— Meðalverð á könnuðum vörum
hélst óbreytt á þessu 3 mánaða
tímabili. Verð á 37 vörutegundum
liafði hækkað lítillega, en verð á 45
tegundum hafði hækkað lítillega
eða var óbreytt.
— Meðalverðið á vörum í könn-
uninni lækkaði á bilinu 0,1% til
6,7% í 17 verslununt, en hækkaði á
bilinu 0,1% til 5,9% í 37 verslunum.
Vöruverð í Hagkaupsverslunum
lækkaði mest, eða um 5,8% til
6,7%.
Þær vörur sem lækkuðu í verði
voru strásykur, að meðaltali 5,7%
og kjúklingar, sem lækkuðu að
meðaltali um 5,4% á þessu þriggja
mánaða tímabili. Niðursuðuvörur
ýmsar, svo og hreinlætisvörur voru
þær vörur sem helst höfðu hækkað.
Samskonar kannanir eru gerðar á
Norðurlandi vestra, Akureyri og á
Austfjörðum. Þróun verðlags á Ák-
ureyri er sú samaog á höfuöborgar-
svæðinu, en á hinum tveimur svæð-
unum hefur orðið hækkun um 1% á
tímabilinu.
Neytendur geta gengið að þvi sem vísu — verðlag á matvöru breytist ekki, alla vega sáralítið, og þá oft til lækkunar.
A-mynd: E.ÓI.