Alþýðublaðið - 05.07.1991, Page 1

Alþýðublaðið - 05.07.1991, Page 1
Okurueröiö í þjónustugeiranum lÍTIL LJÓSMYNDABÚÐ 47% ÓDÝRARIEN RISARNIR — þegar framkalla þarf litfilmuna Verð á ýmiskonar smá- þjónustu á íslandi er svo sem flestir vita ótrúlega hátt, ef miðað er við sam- bærilega þjónustu í ná- grannalöndum okkar. Þannig er það til dæmis með framköilun á mynd- unum úr sumarleyfinu. Verðlagsstofnun kannaði þetta mál. I ljós kom að Ljósmynda- búðin Myndin, Ingólfsstræli 6, býður langlægsta verðið, svo miklu munar að ótrúlegt er. Þannig kostar það 1.577 krónur að láta framkalla og stækka 36 myndir í stærðinni 9x13 sentimetrar hjá Hans Petersen, en aðeins 1.076 krónur hjá Myndinni í Ing- ólfsstræti. Sé beðið um stærri myndir, þ.e. 10x15 senti- metra, þá kosta 36 myndir 1.122 í Ingólfsstrætinu, en í næsta nágrenni í Bankastræt- inu er verðið það sama og á minni myndunum, 1.577 krónur, en verðmunurinn engu að síður 41%. Enn meiri munur var á verðlaginu fyrir eftirtökur af myndum. Þar var Ljós- myndabúðin Myndin í Ing- ólfsstræti með besta verðið. Mynd í stærðinni 13x18 kost- ar þar 120 krónur — en hæst var verðið 197 krónur hjá Tónborg í Kópavogi og í Sæl- gætis- og vídeóhöllinni á Garðatorgi. Verðhækkanir á rúmu ári reyndust vera frá 4—10%, segir Verðlagsstofnun. Verð á Kodak Gold-filmum reyndist mjög svipað á öllum könnuð- um útsölustöðum. ,,Við lifum ágætu lífi þótt við tökum minna," sagði Ein- ar Þórisson í Ljósmyndabúð- inni Myndinni í gær. ,,Við er- um með samskonar tæki og aðrir, kaupum efnin sem til þarf á sömu stöðum. Mann- aflinn hér er eins lítill og hægt er, hér vinna þrír, og geta allir farið í hvaða starf sem er ef svo ber undir. Hitt er annað mál að við lofum ekki myndum tilbúnum eftir klukkutíma, þær koma dag- inn eftir. Við viljum fá eins gott út úr filmunni og hægt er. Ég held að gæðin hjá okk- ur hljóti að vera i besta lagi, því viðskiptavinir okkar koma víðsvegar að, aftur og aftur.“ ÁSÍ— og BSRB-menn rœöa viö Sighvat Vilja fá lægra verð á lyfjum Fulltrúar ASÍ og BSRB telja miklu skipta að lækka lyfjakostnað, bæði með ódýrari dreifingu og hagkvæmari lyfjanotkun. Þeir ræddu málið á fundi með Sighvati Björgvins- syni heilbrigðisráðherra í fyrradag. „Til að ná þeim markmið- um þarf að endurskipuleggja lyfsölukerfið og auka kostn- aðarmeðvitund læknanna, sem í reynd hljóta alltaf að ráða mestu um það hvaða lyf eru valin hverju sinni. Mark- miðið næst ekki með því að flytja kostnaðinn frá ríkinu til einstaklinganna og hverfa þar með frá þeirri grundvall- arstefnu að það séu mann- réttindi að geta sótt heilbrigð- isþjónustu án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hver kostnaðurinn er." Á fundinum gaf ráðherra engin endanleg svör, segir í fréttatilkynningu ASÍ og BSRB. Ljóst er þó að ráðherra stefnir að áðurgreindum markmiðum, þ.e. að lækka lyfjaverð á íslandi, enda mun það vera margfalt hærra en gerist í flestum menningar- löndum, og munurinn slíkur að varla getur eðlilegt talist. Hættulegum raf- tækjum prangað inn á fólk Rafmagnseftirlitsmenn áhyggjufullir vegna óvandaöra raftœkja sem nú eru á markaönum Rafmagnseftirlit ríkis- ins hefur þungar áhyggjur af sölu rafmagnstækja sem ekki hafa fengið eðli- lega skoðun eða samþykki stofnunarinnar. Þá hafa eftirlitsmenn fundið raf- magnsvörur, sem stofnun- in hefur hafnað á þeirri forsendu að þær standist ekki gæðakröfur, í hillum verslana. Þá telja eftirlitsmenn stofn- unarinnar nauðsynlegt að vara fólk við lausasölumönn- um sem sumir hverjir hafa orðið uppvísir að því að selja ósamþykktar rafmagnsvörur. Nú ber einnig nokkuð orðið á því að fólk kaupi rafmagns- vörur í gegnum póstverslun þar sem fyrirtækin hafa hvorki þekkingu né faglegan metnað til að veita nauðsyn- legar upplýsingar, segir í frétt frá Rafmagnseftirlitinu. Þá bendir eftirlitið einnig á að mörg þessara fyrirtækja skorti burði til að veita nauð- synlega viðhalds- og vara- hlutaþjónustu. Því telur raf- magnseftirlitið áríðandi að vara fólk við sölumennsku af þessu tagi, ekki vegna verðs- ins heldur vegna öryggisins, eins og segir í fréttinni. Á síðustu árum hefur fjölg- að þeim tilvikum þar sem eldsupptök hafa orðið af völdum rafmagns og á tíma- bili mátti rekja þriðjung allra bruna í landinu til rafmagns. Bandarísk listaverkagjöf Listaverkið Partnership var afhjúpað við athöfn á uppfyllingunni við Seðlbankahúsið í gærdag. Fjölmenni var viðstatt athöfnina, þrátt fyrir rigninguna, sem Reykvíkingar eru orðnir næsta óvanir. Á myndinni er forsætisráðherra í ræðustól við athöfnina. Verkið er gjöf bandaríska sendiherrans, Lee J. Cobb, til íslensku þjóðarinnar. Er hún gefin í tilefni af 50 ára stjórnmálasambandi íslands og Bandaríkjanna. í gær héldu bandaríkjamenn hér í borg upp á þjóðhátíðardag sinn með ósviknu „barbekjúi" sem haldið var utan- húss, undir plasthimni. A-mynd: Spessi. RÁÐHERRA BANNAR BIRTINGII Á SKÝRSLII UM BÁTSSTRAND Nú eru komnar út skýrslur Rannsóknar- nefndar sjóslysa fyrir und- anfarin þrjú ár. Ekki fékkst fjárveiting fyrr til að gefa skýrslurnar út. Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi samgöngu- ráðherra ákvað að ekki yrðu birtar niðurstöður nefndarinnar um það er mb. Hafmey SF-100 strand- aði í Hornafjarðarósi árið 1988. Þetta kemur fram í formála að skýrslum Rannsóknar- nefndar sjóslysa fyrir árin 1988, 1989 og 1990 sem voru að koma út. Þar segir að nið- urstaða nefndarinnar í Haf- meyjarmálinu hafi sætt harkalegri gagnrýni af stjórn- anda bátsins. Hann hafi bein- línis farið rangt með það sem hann sagði sjálfur fyrir dómi og snúið út úr áliti nefndar- innar. Því hefði verið brýnt að skýrslan væri birt svo al- menningur gæti sjálfur dæmt. En það væri ráðherra sem réði. Fram kemur að ekki er birt- ur nema hluti af þeim skýrsl- um sem nefndin gerði um sjó- slys. Alltaf megi deila um hvað eigi að birta og hvað ekki, en nefndin hafi reynt að draga fram þær skýrslur sem einhvern lærdóm mátti draga af. Tillögur nefndarinnar um hvað ætti að birta og hvað ekki voru bornar undir Stein- grím J. Sigfússon þáverandi samgönguráðherra. Hann samþykkti tillögurnar en ákvað jafnframt að Hafmeyj- armálið yrði ekki birt. Meðal þeirra mála sem fjallað er um í skýrslunum sem gefnar voru út er strand Hrafns Sveinbjarnarsonar III GK-11 við Hópsnesvita í febrúar 1988. Áhöfninni var bjargað af þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Við strandið var skipið undir stjórn stýri- manns. Við lögreglurann- sókn kom fram að hvíldar- tími stýrimanns sólarhring- ana á undan hafði verið 3—4 timar á sólarhring. Álit nefndarinnar er þetta: „Nefndin telur að erfitt sé að koma í veg fyrir svona óhöpp meðan vinnuálag á skipum er svo mikið sem raun ber vitni. Skiljanlegt er að sótt sé stíft þegar gefur á sjó því frátafir eru oft miklar á íslandsmiðum og óútreikn- anlegar. Nefndin leggur til að settar verði reglur um að á siglingu séu alltaf tveir menn í brú. Nefndin telur að ástæða sé til þess fyrir hagsmunaað- ila í sjávarútvegi að reyna að finna viðunandi lausn á hvíld- artíma þeirra sem sjá um stjórn og siglingu skipanna, því á þeim hvílir ábyrgð á lífi og heilsu annarra skipverja. Ef hagsmunaaðilar geta ekki fundið lausn á þessu máli tel- ur nefndin að ekki verði fram hjá því gengið að stjórnvöld verði að setja reglur um lág- markshvíld til handa skip- verjum. Nefndin vill vekja at- hygli á því að þegar þetta slys varð voru veðurskilyrði hag- stæð svo að ekki hlutust slys á mönnum. Ennfremur vill nefndin vekja athygli á því að ofþreyttir menn við stjórn á skipi eru jafn hættulegir og ofþreyttir menn við stjórn annarra farartækja, svo sem bifreiða og flugvéla." Rannsóknarnefnd sjóslysa skipa Haraldur Blöndal hrl., formaður, Hannes Þ. Hafstein forstjóri, Benedikt E. Guð- mundsson skipaverkfræðing- ur, Filip Þ. Höskuldsson skip- stjóri og Sigmar Þ. Svein- björnsson stýrimaður. RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.