Alþýðublaðið - 05.07.1991, Side 3
Nýting bílastœða ekki mikil enfyrirhugað að eyða
a.m.k. 500 milljónum í bílageymslur á nœstunni
Þrátt fyrir að nýting bílastæða
í miðborginni sé innan við 60%
stefna borgaryfirvöld að því að
reisa enn eitt nýtt bílageymslu-
hús í miðbænum. Nú standa yfir
framkvæmdir við bílageymslu-
hús við Hverfisgötuna og þegar
því verki verður lokið er fyrir-
hugað að hefja framkvæmdir á
því svæði sem Akraborgin hefur
aðstöðu sína. Kostnaður við
þessar tvennar freunkvæmdir er
áætlaður um 500 milljónir. Sam-
anlagt er hér um að ræða um 500
stæði og kostar því hvert þeirra
um 1 milljón.
í lok febrúar gerði Alþýðublaðið
könnun á nýtingu bílastæða í borg-
inni og var útkoman sú að hún væri
innan við 40%. Það er nokkuð ann-
að en könnun borgaryfirvalda gefur
til kynna. Skammt frá svæði Akra-
borgarinnar, sem nú er fyrirhugað
að byggja á, eru Bakkastæði og
Kolaportið, samtals um 510 stæði.
Samanlagt ná þessi svæði rétt rúm-
lega 50% nýtingu samkvæmt könn-
un borgarinnar og í næsta nágrenni
á að bæta við a.m.k. 260 bílastæð-
um.
Nýtt og glæsilegt bílahús við
Bergstaðastræti og Skólavörðustíg
er með um 55% nýtingu og nú er
verið að byggja bílageymsluhús
með 270 stæðum í 200 metra fjar-
lægð þar frá, þ.e. beint á móti Þjóð-
leikhúsinu.
Bilageymsluæði_________________
Alþýðublaðið bað Ólínu Þorvarð-
ardóttur, borgarfulitrúa Nýs vett-
vangs, að gera grein fyrir mati
þeirra á þessari stefnu borgarinnar í
bílastæðismálum í miðbænum og
hvort ekki væri komið nóg af bíla-
stæðum.
„Við hjá Nýjum vettvangi höfum
lengi viljað láta endurmeta bíla-
stæðaþörfina í Reykjavík. Við erum
þeirrar skoðunar að þetta bíla-
geymsluæði, sem er að tröllríða
borginni núna, gefi ástæðu til að
menn staldri við og fari að hugleiða
framhaldið. Við þurfum að hugleiða
hvert stefnir í skipulags- og um-
hverfismálum þar sem okkur sýnist
að einkabílisminn sé orðinn allsráð-
andi. Og maður fer að spyrja sig að
því hvort þessi borg sé hönnuð fyrir
bila eða fólk.
Fulltrúar Nýs vettvangs hafa bent
á að það mætti nú fara að skoða aðr-
ar lausnir til að leysa þennan um-
ferðarvanda, eins og hann er t.d. í
miðborginni, með því að efla al-
Þarna er borgin búin að sprengja sig
menningssamgangnakerfið, sem
núna stendur hreinlega ekki undir
nafni. Það er verið að draga saman
þjónustuna og vagnarnir eru mjög
illa nýttir."
Midbærinn fyrir fólk
en ekki bila__________________
En hvað með almennt skipulag
kvosarinnar og miðbæjarins?
„Við höfum viljað líta á þessi bíla-
stæða- og miðbæjarmál öll í sam-
hengi. Við teljum að það væri rétt,
og höfum lagt til, að Kvosin verði
endurskipulögð og menn reyni svo-
lítið að leita nýrra leiða frekar en að
grípa sífellt til handahófskenndra
lausna. Þessi bílastæðamál eru
dæmi um það sem kalla má handa-
hófskenndar lausnir.
Gagnvart þessu bílageymsluhúsi,
sem nú er gert ráð fyrir á lóð Akra-
borgarinnar, höfum við lengi haldið
því fram að efla þurfi tengsl hafnar-
innar og miðbæjarins. Þar er um að
ræða söguleg tengsl og ég tel að það
væri slæmt ef þau tengsl yrðu eyði-
lögð, t.d. með því að girða svæðið af
með bílageymslum. Nýr vettvangur
hefur lagt áherslu á að hafnarsvæð-
ið sé nýtt með miðbænum sem vett-
vangur fyrir lifandi fólk og starf-
semi. Það virðist oft eins og menn
sjáist ekki fyrir í allri þessari fram-
kvæmdagleði."
niður á mikið dýpi við Hverfisgötu. Þarna á að rísa (bílalaus) bilageymsluhöll
A-mynd: Spessi.
Ólína Þorvarðardóttir, full-
trúi Nýs vettvangs, segir
að helst líti út fyrir að bíla-
geymsluæði hafi gripið um
sig hjá ráðamönnum borg-
arinnar.
NÝTING BÍLASTÆÐA BORGARINNAR
Stæði samtals N'ýting 27.2. 1991 Nýting í %
Við Bergstaðastræti 155 35 og 38 22,6-22,5
Kolaport 174 55 og 54 31,6-31,0
Bakkastæði 336 110 og 119 32,7-35,4
Tollbrú 54 36 og 34 62,1—58,6
Vesturgata 7 106 56 og 52 52,8—49,0
Samtals 829 292 og 297 35,2—35,8
Alþýðublaðið gerði könnun á nýtingu bílastæða í miðborginni í lok febrúar
1991. Þar var útkoman nokkuð önnur en í könnun borgarinnar.
Tiarnarsvæði i rústum
Ymislegt bendir til að skipulag og
frágangur í kringum ráðhúsið verði
ekki á sama veg og upphaflega var
gert ráð fyrir. Göngubrúin, sem
liggja á frá ráðhúsinu yfir á lóð Iðnó,
hefur verið að færast úr stað og sí-
fellt er klipið af eignarlóð leikhúss-
ins. Hvernig líst Ólínu á þau mál?
„Nú eru t.d. stórtækar fram-
kvæmdir við Vonarstrætið og búið
að rústa öllu fyrra útliti norður-
bakka tjarnarinnar. Þar er t.d. búið
að rífa niður gömlu ísbryggjuna í al-
gjöru heimildaleysi, það er verið að
hamast inni á eignarlóð Iðnó án
nokkurra formlegra samþykkta og
menn höfðu ekki einu sinni fyrir því
að ieita eftir tilskildum leyfum fyrir
framkvæmdum, svo mikill er gösl-
aragangurinn. Þetta eru bara dæmi
um það sem við höfum bent á, að
menn ættu að fara sér örlítið hægar
og yfirvega betur hvert stefnir með
skipulag miðborgarinnar."
Austurvöllurinn
perla borgarinnar_____________
Komið hefur til tals að gera bíla-
stæði undir Austurvöllinn. Hvað
segir Ólína um það?
„Borgarfulltrúar Nýs vettvangs
hafa hingað til Iagt á það áherslu að
skipulag kvosarinnar verði tekið til
endurskipulagningar þannig að litið
sé á miðbæinn allan sem lifandi
heild. Liður í því er t.d. að beina at-
hyglinni að sögulegum svæðum, t.d.
Austurvellinum, sem er að mínu
mati a.m.k. ein dýrasta perla borg-
arinnar. Ég er t.d. ekkert hrifin af því
að fara að grafa upp allan Austurvöll
og stoppa hann upp neðanjarðar
með 160 bílastæðum, eins og hug-
myndir hafa verið uppi um. Austur-
völlurinn á að vera útivistarstaður,
friðarreitur gangandi fólks, og það
sem við þurfum er að losna við bíl-
ana af Austurvelli og koma þar fyrir
fólki. Þá gerir ekki svo mikið til þó
menn geri tilraunir með að opna
Austurstræti fyrir bilaumferð, svo
framarlega sem fólki er gefinn kost-
ur á einhverju öðru betra.
Ég sé Austurvöll fyrir mér sem fal-
legt stjórnsýslutorg, eins og sjá má í
ýmsum borgum Evrópu, og ég vil
sjá miðbæinn sem vettvang mann-
lífs og menningar. Þess vegna ríður
á að menn flýti sér hægt, ígrundi vel
áður en lengra er haldið hvernig
best verði hlúð að þeirri þjónustu-
starfsemi sem á að vera í hjarta
borgarinnar í framtíðinni."