Alþýðublaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 1
Einhugur á fundi forsœtisráðherra Norðurlanda Samningar um EES er forgangsmarkmið Forsætisráðherra Dan- merkur, Poul Schluter, segir aö það sé hneyksli ef ekki náist samningar milli EFTA og EB um evrópskt efnahagssvæði. Davíö Oddsson forsætisráö- herra ítrekar að þaö sé ekkert sem bendir til þess að Islendingar muni sækja um aðild að Evrópubanda- laginu á þessari öld og seg- ir að möguleikar á um- sókn íslands séu enn minni ef ekki náist samn- ingar um evrópska efna- hagssvæðið. Þetta kom fram á frétta- mannafundi forsætisráð- herra Norðurlanda í Reykja- vík í gær, en árlegur sumar- fundur þeirra fór fram fyrr um daginn. Ráðherrarnir lögðu allir áherslu á mikil- vægi þess að samningar tækj- ust um EES. Davíð Oddsson sagði íslendinga halda til streitu kröfunni um frjálsan aðgang að mörkuðum fyrir vörur sem væru mikilvægar fyrir okkur og þeir gætu ekki fallist á neina lausn sem fæli í sér frávik sem nokkru næmi varðandi þetta atriði. Ingvar Carlsson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, sagði meðal annars að þótt Svíar hefðu samþykkt að sækja um aðild að EB breytti það engu um áhuga þeirra á að samn- ingar tækust um EES. Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, sagði hags- muni íslendinga og Norð- manna fara saman í sjávarút- vegsmálum varðandi samn- inga um EES en þar þyrfti að byrja upp á nýtt eftir að EB braut samkomulagið sem náðist í Lúxemborg. Esko Aho, forsætisráðherra Finnlands, sagði stjórn sína leggja þunga áherslu á að samningar tækjust milli EFTA og EB. Hann taldi að norrænt samstarf yrði víð- tækara í framtíðinni og benti meðal annars á hjálp til ríkja Austur-Evrópu í því sam- bandi. Hinir forsætisráðherr- arnir lögðu einnig áherslu á nauðsyn þess að efla og styrkja norrænt samstarf á sem flestum sviðum. Davíð Oddsson sagði í þessu sambandi að á fundi þeirra forsætisráðherranna í Reykjavík hefði verið lögð fram fyrsta áfangaskýrsla samstarfsráðherra Norður- landanna um mótun sam- skipta Norðurlanda í framtíð- inni eftir þær breytingar sem nú eiga sér stað í Evrópu. Forsætisráðherrarnir ræddu á fundi sínum í gær um stöðu samningaviðræðna um evrópskt efnahagssvæði eftir að síðustu samningalotu lauk í Brussel og gáfu út sam- eiginlega yfirlýsingu um mál- ið. Þar leggja þeir áherslu á að víðtækur samningur um evrópskt efnahagssvæði sé forgangsmarkmið allra ríkis- stjórna á Norðurlöndum til að tryggja samvinnu EFTA-ríkjanna og Evrópu- bandalagsins eftir að innri markaður EB gengur í gildi hinn 1. janúar 1993. Til þess að samningar um EES geti gengið í gildi samhliða sé nauðsynlegt að fullgerður samningur verði undirritaður í haust. í yfirlýsingunni segir enn- fremur að samningur um evr- ópskt efnahagssvæði muni styrkja og tryggja áframhald- andi þróun samvinnu á sviði viðskipta og tryggja svipuð skilyrði atvinnulífs á Norður- löndum. Samningurinn myndi renna stoðum undir aðlögun Norðurlanda með því að settar yrðu sameigin- legar reglugerðir á þeim svið- um þar sem ekki gilda nú þegar samnorrænar reglur. Þeir segja nayðsynlegt að bæði EFTA-ríkin og aðildar- riki Evrópubandalagsins leggi sitt af mörkum til að fundin verði lausn á þeim álitamálum sem enn eru óút- kljáð. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra bauð starfsfélögum sínum til kvöldverðar í Perl- unni í gærkvöldi en í morgun ætluðu ráðherrarnir að fara til Vestmannaeyja og gestirn- ir síðan heim á leið síðdegis. Þrír forsætisráðherranna slá á létta strengi fyrir fundinn með fréttamönnum. Frá vinstri Gro Harlem Brundtland, Noregi, Esko Aho, Finnlandi og Ingvar Carlsson frá Svíþjóð. A-mynd E.ÓI. Bongarspítali og Landakot í eina sæng? Endurskipulcigning sjúkrahúsanna og skýrari verkaskipting gœti sparað 3-4 hundruð milljónir á ári Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- og trygginga- ráðherra segir að nauð- synlegt sé að koma á öfl- ugri samvinnu og jafnvel sameiningu Borgarspítal- ans og Landakots. Jafn- hliða þurfi að semja um verkaskiptingu ríkisspít- alanna. Heilbrigðisráð- herra segir að þessar breytingar gætu sparað ríkissjóði á milli 3 og 4 hundruð milljónir í rekstr- arkostnað á ári. Þá segir heilbrigðisráðherra að ýmsar fleiri tillögur um endurskipulagningu sem leitt gæti til sparnaðar séu til skoðunar í ráðuneytinu. Heilbrigðisráðherra sagði í stuttu viðtali við Alþýðublað- ið að eitt af því sem lögð hefði verið mikil áhersla á, bæði af síðustu ríkisstjórn og þessari, væri að reyna að koma á samstarfi og samvinnu og jafnvel sameiningu sjúkra- húsanna í Reykjavík. ,,Með því má draga úr kostnaði og nýta betur fjármuni sem eru í spítalarekstrinum hér. Það er talsverð hætta á því að sér- staklega stærri spítalarnir fari meira og minna að þróast eftir samhliða brautum þann- ig að menn séu að tvítaka hlutina í staðinn fyrir að koma upp verkaskiptingu á milli þeirra, sem þýðir að hvor um sig hefur ákveðna þætti sem hann einbeitir sér að. Það er miklu skynsamlegra i ekki stærra þjóðfélagi en okkar, sérstaklega þegar um dýra hátæknispítala er að ræða, að þeir séu nokkuð sér- hæfðir í stað þess að vera allir að fást við það sama meira og minna.' Sighvatur segir að gengið hafi frekar erfiðlega að koma þessari sérhæfingu á, m.a. vegna þess að hugsanlega hafi verið einhver tortryggni þarna á milli. „Þetta eru ólík- ar stofnanir, ríkisspítalarnir og svo Borgarspítalinn, sem var lengi sveitarfélagsspítali, og loks Landakot, sem er sjálfseignarstofnun. Það er hins vegar alveg nauðsynlegt að ná árangri í þessu. Eg hef farið þess á leit við samstarfs- ráðið, sem skipað er fulltrú- um þessara stofnana, að það leggi mikla áherslu á að á næstu vikum og mánuðum náist niðurstaða í þessum málum' Sighvatur segist hafa átt fundi með Guðmundi G. Þór- arinssyni, formanni nefndar- innar, og segist treysta því að hann og aðrir í nefndinni vinni mjög ötullega að þessu verkefni. „Ég held það sé óhjákvæmilegt að gera ráð fyrir því að þetta starf verði unnið með öðrum hætti en hlaupum nefndarmanna og hef því ráðið Harald Ólafs- son, formann yfirstjórnar Landakotsspítala, til að sinna þessum málum í hlutastarfi tímabundið. Þetta er tíma- bundið verkefni, sem við ætl- um að reyna að keyra til loka á næstu mánuðum," sagði heilbrigðisráðherra, Sighvat- ur Björgvinsson, að lokum. RITSTJÓRN © 625566 - 625538 . FAX 627019 . ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR ©

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.