Alþýðublaðið - 11.10.1991, Page 3
Föstudaqur 11. október 1991
3
Kristinn Finnbogasson
framkvæmdastjóri
Fæddur 28. maí 1927 - Dáinn 4. október 1991
Kveöja frá Landsbanka íslands
Nú lefifí éíj augun aflur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
nu'n ueri vörn í nólt.
Æ, virzt mifi að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn enffil, svu éff sofi rótt.
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri og bankaráðsmað-
ur í Landsbanka íslands, andaðist
þann 4. þ.m. eftir erfiða sjúkrahús-
legu. í dag er hann til moldar bor-
inn. Hann sat bankaráðsfund, sem
haldinn var á Isafirði 7. september
sl. Grunaði þá engan, sem þann
fund sat með Kristni, að þetta yrði
síðasti bankaráðsfundur, sem
hann sæti.
Kristinn heitinn var fæddur á
Ketilvöllum, Laugardalshreppi,
28. maí 1927 og var því 64 ára
gamall er hann lést.
Foreldrar hans voru Finnbogi
Árnason og Sigríður Ólafsdóttir.
Ungur að árum lærði Kristinn raf-
virkjun og varð meistari í þeirri
grein. Starfaði hann við þá iðn hér
í Reykjavík og á Blönduósi í nokk-
ur ár. Er hann flutti til Reykjavíkur
gerðist hann bílasali, var iðnrek-
andi um skeið og forstjóri flugfé-
lagsins Iscargo í nokkur ár. Á þess-
um árum voru Kristni falin mörg
trúnaðarstörf fyrir Framsóknarfé-
lögin í Reykjavík og Framsóknar-
flokkinn. M.a. var hann formaður
fulltrúaráðs Framsóknarfélag-
anna, formaður Félags framsókn-
armanna í Reykjavík og gegndi
auk þess fjölda trúnaðarstarfa fyr-
ir flokk sinn og lét sér mjög annt
um velferð hans.
Árið 1971, þegar Blaðaprent hf.
var stofnað, var hann kjörinn í
stjórn þess og um skeið var hann
stjórnarformaður Blaðaprents hf.
Tvívegis var Kristinn fram-
kvæmdastjóri dagblaðsins Tím-
ans. Gegndi hann því starfi sam-
tals í 12 ár, nú síðast frá 1985 til
dauðadags.
Kristinn Finnbogason var kjör-
inn af Alþingi í bankaráð Lands-
banka íslands 1. janúar 1973, og
sat í því óslitið síðan, og alla tíð
sem varaformaður þess. Kristinn
var mjög áhugasamur um rekstur
bankans.
Kristinn Finnbogason var tví-
kvæntur. Fyrri kona hans var Elín
Jörgensen f. 10.11. 1924, dáin 31.
ágúst 1987 og eignuðust þau tvö
börn, Sigríði og Kristin. Eftirlif-
andi kona hans er Guðbjörg Jó-
hannsdóttir, f. 29.4. 1927. Eignuð-
ust þau fimm börn, Arnrúnu Lilju,
Finnboga Eirík, Hjört, Önnu og
Árna Hannes. Á yngri árum eign-
aðist Kristinn dóttur, Guðrúnu,
með Huldu Alexandersdóttur.
Kristinn Finnbogason Jjekkti
alla innviði Landsbanka Islands
mjög vel eftir langa setu í banka-
ráði. Hann setti sig vel inn í hin
ýmsu mál, sem komu til kasta
bankaráðsins, og var fljótur að
átta sig á margbreytilegustu mál-
um. Kristinn var þéttur á velli og
fasmikill í framkomu, skapstór og
fastur á sínum skoðunum, en þó
samvinnuþýður, þegar málin
höfðu verið rædd og krufin til
mergjar. Kristinn Finnbogason
sýndi það í störfum sínum í banka-
ráði Landsbanka íslands að hann
vildi hag bankans sem mestan.
Að leiðarlokum vil ég, fyrir
hönd Landsbanka íslands, þakka
Kristni Finnbogasyni fyrir langt
og gott samstarf og heilladrjúgt
starf í þágu Landsbanka íslands.
Við munum sakna hans í banka-
ráðinu og óneitanlega er stórt
skarð höggvið í raðir okkar við
fráfall Kristins.
Landsbanki íslands vottar ekkju
hans, frú Guðbjörgu Jóhannsdótt-
ur, börnum hans og öðrum að-
standendum innilegustu samúð.
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
formaöur bankaráös
Landsbanka íslands.
Verkalýðs- og stjómmálanefnd SUJ
Tillögur SIIJ ekki að
finna í Ijárlagafrumvarpi
Á morgun, iaugardaginn 12.
október, ki. 10, heldur verka-
lýös- og stjórnmálanefnd Sam-
bands ungra jafnaðarmanna um-
ræðufund í Alþýðuhúsinu í
Reykjavík. Þar verður rœtt nýút-
komið fjárlagafrumvarp rikis-
stjórnar Sjálfstœðis- og Alþýðu-
flokks.
Gestur fundarins verður Össur
Skarphéðinsson, þingmaður
Reykjavíkur og formaður þing-
flokks Alþýðuflokks.
Mikil umræða hefur orðið um fjár-
lagafrumvarpið síðan það var kynnt
í byrjun mánaðarins og sýnist sitt
hverjum.
Ungir jafnaðarmenn hljóta að
skoða frumvarpið með tilliti til
stefnu sambandsins, sem mörkuð
var á síðasta sambandsþingi sem og
í málefnavinnu fyrir 45. flokksþing
Alþýðuflokksins og alþingiskosn-
ingarnar í vor. Aherslurnar eru
mjög skýrar. Ungir jafnaðarmenn
hafa lagt höfuðáherslu á tekjujöfn-
un í gegnum skattakerfið og róttæk-
ar breytingar í sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálum. Á 45. flokks-
þinginu vöktu ungir jafnaðarmenn
athygli fyrir skelegga baráttu fyrir
tillögum sínum um hækkun skatt-
leysismarka en þó sérstaklega fyrir
tillögur sínar í sjávarútvegsmálum.
Ljóst má vera að þessar tillögur er
hvergi að finna í fjárlagafrumvarpi
Davíðs Oddssonar.
Vissulega verður að hafa hugfast
að enn eitt árið þarf þjóðin að mæta
ytri áföllum í formi aflasamdráttar.
En ungir jafnaðarmenn hafa einmitt
haldið fram að slíkum samdrætti
eigi að mæta með tekjujöfnun í
gegnum skattakerfið og uppstokk-
un í sjávarútvegi og landbúnaði.
Einnig er það stórt réttlætismál að
almennt launafólk, sem borið hefur
hitann og þungann af þjóðarsátt-
inni, fái nú umbun erfiðis síns í formi
aukins kaupmáttar. Því var lofað og
við það verður að standa. Það er
kominn tími til að þeir sem betur
mega sín í þjóðfélaginu fórni ein-
hverju á altari þjóðarsáttar. SUJ hef-
ur flutt tillögur um skatt á fjár-
magnstekjur, óbeinan hátekjuskatt,
stóreignaskatt, veiðileyfagjald fyrir
aðgang að sameiginlegum fiskimið-
um landsmanna, niðurskurð á milli-
liðakerfílandbúnaðarins og velferð-
arkerfi fyrirtækjanna.
Það er verulegt áhyggjuefni að í
þessu fjárlagafrumvarpi er ekki
dregið úr ríkisútgjöldum, heldur
þvert á móti eru þau aukin og skatt-
byrði launafólks enn þyngd. Það
hefði þurft að segja sumum það oft-
ar en einu sinni að slíkt gerðist með
fjárlögum ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokks. f hreinskilni sagt
er erfitt að sjá sólina fyrir skýjunum
í þessu fjárlagafrumvarpi.
Jón Baldur Lorange, formaður
verkalýðs- og
stjórnmálanefndar SUJ
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ!
Á morgun, laugardaginn
12. október, kl. 10.00
heldur verkalýðs- og
stjórnmálanefnd Sam-
bands ungra jafnaðar-
manna umræðufund um
nýútkomið fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar.
Gestur fundarins verður Össur Skarphéðinsson,
þingmaður Reykvíkinga og formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins.
Fundarstaður: Rósin, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu
8—10.
Fjölmennum.
MINNUM Á
KRATAKVÖLD
miðvikudag 16. október.
Nánar auglýst eftir helgi.
Alþýöuflokks félag Reykjavíkur.
If 1 /11 IfiLVSfWI f{
Utboð
Snjómokstur á Norðurlandi eystra
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í snjómokstur
á Norðurlandi eystra veturna 1991—1993.
1. Norður-Þingeyjarsýsla
2. Suður-Þingeyjarsýsla
3. Eyjafjarðarsýsla
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera), frá og með 14. október nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 21. október 1991.
Vegamálastjóri
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Vélstjórar
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða vélstjóra
til starfa á Siglufirði. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita rafveitustjóri á
Siglufirði og svæðisrafveitustjóri á Blönduósi.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist fyrir 19. október nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Ægisbraut 3, 540 Blönduósi.
Auglýsing
frá félagsmálaráðuneytinu
Kynningarfundir um áfangaskýrslu nefndar um
breytingar á skiptingu landsins í sveitarfélög verða
sem hér segir:
15. október 1991 kl. 14.00
Hvanneyri, Bændaskólinn.
15. október 1991 kl. 20.30
Búðardalur, Dalabúð.
16. október 1991 kl. 14.00
Patreksfjörður, Félagsheimilið.
16. október 1991 kl. 20.30
ísafjörður, stjórnsýsluhúsið.
18. október 1991 kl. 14.00
Snæfellsnes, Fél.heimilið Breiðablik.
21. október 1991 kl. 14.00
Hvammstangi, Vertshúsið.
21. október 1991 kl. 20.30
Sauðárkrókur, Safnahúsið.
22. október 1991 kl. 14.00
Akureyri, Hótel KEA.
22. október 1991 kl. 20.30
Húsavík, Hótel Húsavík.
23. október 1991 kl. 14.00
Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf.
23. október 1991 kl. 21.00
Höfn, Hótel Höfn.
24. október 1991 kl. 14.00
Selfoss, Hótel Selfoss.
29. október 1991 kl. 20.30
Keflavík, Flughótelið.
Félagsmálaráðuneytið
FELAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Síöumula 39 — 108 Reykjavík — Simi 678500
Forstöðumaður
útideildar
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns útideild-
ar.
Háskólamenntun á sviði félags-, uppeldis- eða sál-
fræði er áskilin og einnig reynsla af starfi með ungl-
ingum. Æskilegt er að starf geti hafist eigi síðar en
1. janúar nk.
Útideild er deild innan Félagsmálastofnunar
Reykjavíkur sem sinnir leitar- og vettvangsstarfi
meðal unglinga og er markmiðið með starfinu að
fyrirbyggja að unglingar lendi í erfiðleikum og að-
stoða þá ef slíkt kemur fyrir. Starfð felur í sér, auk
vettvangsstarfs, einstaklings-, hóp- og samfélags-
vinnu.
Starf forstöðumanns er fólgið í ábyrgð á daglegum
rekstri, skipulagningu á starfi deildarinnar, auk al-
mennra starfa í deildinni.
Starfið býður upp á mikla möguleika þar sem starf
útideildar er í stöðugri mótun.
Nánari upplýsingar veitir Petrína Ásgeirsdóttir, for-
stöðumaður útideildar, s. 621611 og 20365 og Vilm-
ar Pétursson, deildarstjóri unglingadeildar, í s.
625500.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.