Alþýðublaðið - 11.10.1991, Page 4

Alþýðublaðið - 11.10.1991, Page 4
Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 Fréttir í hnotskurn „FLOTTHEIT" Á KJARVALSSTÖÐUM: Lesandi sneri sér til blaðsins og átti ekki orð yfir heldur blesalegan viðurgjörning á Kjar- valsstöðum við opnun sýningar. Lesandinn hafði eftirfarandi að segja um Kjarvalsstaðaferðina: ,,Ég hef hingað til talið Kjarvalsstaði eitt virt- asta listasafn þjóðarinnar en ég varð fyrir sárum vonbrigðum. Von- brigðin byrjuðu á því að drykkurinn sem var boðið upp á var veittur úr einnota plastglösum. Það finnst manni nú ekki við hæfi á þessum stað. Svo þurfti ég á salerni, þar urðu vonbrigði mín enn meiri. Þar var verið að skola einnota plastglösin í handlaug og þurrka þau svo hægt væri að nota þau aftur! Mér er spurn, hver stjórnar þessu eiginlega? Eru það forstöðumennirnir, sem vinna að því að gera Kjarvalsstaði að sjoppulegum parísstað fyrir unga nýlistarmenn. Hvers vegna eru eldri og virtari listamenn hættir að sýna þarna?" VIÐVORUM FYRSTIR! Þegar greint er frá „fyrstu pappírslausu viðskiptunum" milli Bónusbúðanna ogSólar hf. hefur það greinilega gleymst að viðskipti Islenskra getrauna geta verið pappírslaus, og hefur verið boðið upp á slík pappírslaus viðskipti í tæpt ár. Getspakir menn kaupa sér forrit á 500 krónur og geta afhent spá sína á disklingi á skrifstofu Getrauna eða sent spána símleiðis, hafi þeir gert samning um greiðsluna áður. Sem sagt, fyrstu pappírslausu viðskiptin á íslandi hófust í febrúar sl. hjá íslenskum getraunum. MERKUR AFANGI: Árið 1985 ákváðu þjóðarleiðtogar heims að efla til muna bólusetningar barna, þannig að í árslok 1990 hefðu 80% allra barna heimsins fengið bólusetningu gegn hinum ýmsu smitsjúk- dómum sem herja á börn. Var þetta ákveðið á fjörutíu ára afmæli Sam- einuðu þjóðanna. Við athöfn í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York á þriðjudag var tilkynnt að þessu markmiði hefði verið náð. HARPAIAUSTURSAL: Ung myndlistarkona, Harpa Björnsdótt- ir, opnar á morgun málverkasýningu sína, Andlit daganna, í austur- sal Kjarvalsstaða. Þetta er sjöunda einkasýning Hörpu. Hún dvaldi í sumar í norrænu listamiðstöðinni í Sveaborg í Finnlandi. Hún sýnir fi() verk. Þá opnar Einar Hákonarson sýningu á morgun á Kjarvalsstöð- um, en í vestur-og austurforsal opnar Hallsteinn Sigurðsson sýningu á höggmyndum. ELDB0RG SÝNIR RAUSN: Félagar í Kiwanisklúbbnum Eld- borgu hafa síðustu tvo áratugina og vel það sýnt mikla rausn ýmsum góðum málefnum í heimabænum, Hafnarfirði. Meðal þesssem styrkt hefur verið með peninga- og tækjagjöfum eru spítalarnir, Sólvangur og St. Jósefsspítali, og auk þess hefur verið stutt við bakið á ungum sem öldnum með ýmiskonar vinnu og gjöfum. Félagarnir hafa lagt á sig mikla vinnu við fjáröflun ýmiskonar og orðið vel ágengt. Nú síðast gáfu þeir FH 50 þúsund til skógræktar á Kaplakrikasvæðinu og eina milljón króna til Sólvangs. Myndirnar eru frá afhendingu gjafanna. ERTU VEL UPPLYSTUR? í dag verður hleypt af stokkunum Degi ljóssins, sem í raun mun standa í nokkra daga. Ljóstæknifélag Is- lands og Félag raftækjasala taka höndum saman og freista þess að vekja athygli almennings á góðri lýsingu, sérstaklega vinnulýsingu á heimilunum, íjölmennasta vinnustað landsins. Með góðri vinnulýsingu heima fyrir má létta vinnuna, auka afköst, bæta heilsu og líðan fólks og síðast en ekki síst fækka slysum, en þau verða alltof mörg á heimil- um landsins. Það er ódýrt að lýsa rétt. Þannig kostar ljósið af 20 watta sparnaðarperu sem látin er loga í 7 tíma aðeins eina krónu. Sérstakar kynningar verða í verslunum raftækjasala á laugardag og út næstu viku. ÞRILLER: Úrvalsbækur hafa sent frá sér níundu spennusöguna. Sú síðasta, Lömbin þagna, þurrkaðist út á fáum dögum. Nú er boðið upp á 58 mínútur eftir Walter Wager, en saga þessi var lögð til grundvall- ar kvikmyndinni Hard 2: Die Harder. Við að blaðatþessari bók er ljóst að þetta er hörkuþriller. SVITALYKT GEGN STREITU 0G KVÍÐA: Dagur á Akureyri segir frá því um síðustu helgi að vísindamenn í Knglandi vinni nú að nýju og betra róandi lyfi. Lyfið er — haldið ykkur nú — unnið úr svita- mólekúli. Með því að anda að sér svitalykt, segja vísindamennirnir. er hægt að draga úr áhyggjum og streitu! Vonandi verður þetta lyf í öllum apótekum — og á bestukaupalistanum. HAFBEITARLAX VILLIST: Veiðimálastofnun segir það vekja at- hygli hversu mikil aukning varð í sumar á laxveiðum í vestfirsku ánum. Þar sé trúlega um að ræða hafbeitarlax sem villst hefur. Stofnunin segir 22 þúsund laxa hafa veiðst á stöng í sumar, 5 þúsund í net í ám og 5 þúsund í sjó, aðallega við Vesturland. Alls endurheimtust 120 þúsund laxar í hafbeit. Heildarveiði lax því 172 þúsund á þessu sumri, 20% meira en í fyrra. Munar þar mestu meiri fjöldi endurheimts hafbeitar- lax; 45% fleiri en árið á undan. Þakið lækkað á húsbréfalánum Litlar eöa engar breytingar hjá þuí fólki sem er aö kaupa sér húsnœöi fyrir 8—9 milljónir króna segir félagsmálaráöherra, eöa rúmlega 80% lánþega samkvæmt reynslunni Ákveðið hefur verið að lækka þá hámarksupphæð sem íbúðar- kaupendur geta fengið í hús- bréf. Nú verður hægt að fá í hús- bréfum hæst 5 milljónir króna vegna notaðra íbúða en 6 millj- ónir vegna nýrra íbúða. Áður gátu íbúðarkaupendur fengið allt að 9,7 milljónum króna í hús- bréf. „Ég hygg að frá því að húsbréfa- kerfið tók til starfa hafi um það bil 18% umsækjenda fengið húsbréf fyrir meira en nemur 6 milljónum króna," sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra í samtali við Alþýðublaðið. „Fyrir þorra fólks er því hér ekki um neina breytingu að ræða." Félagsmálaráðherra sagði þessa ákvörðun til komna vegna þess að ríkisstjórnin hefði einsett sér að minnka lántökur og takmarka þær ábyrgðir sem ríkissjóður gengst fyr- ir. Menn hefðu staðið frammi fyrir því að fara leiðir sem hefðu haft í för með sér aukna greiðslubyrði hjá fólki með hækkun vaxta og skemmri lánstíma eða skerða láns- upphæð til þeirra sem væru að kaupa stærstu eignirnar. Jóhanna telur að betri leiðin hafi verið valin en þessir hlutir verði endurskoðaðir í Ijósi reynslunnar. „Það er rangt sem haldið hefur verið fram," sagði Jóhanna, „að með þessu sé verið að stíla allri þjóðinni inn á 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Þrátt fyrir að hámarkslánin séu 5 til 6 milljónir króna þá er lán- að til kaupa á stærri eignum en sem því nemur. Þannig getur maður, sem er að stækka við sig úr 10 millj- ón króna íbúð í 15 milljón króna húsnæði, fengið 5 milljónir í hús- bréf. Hins vegar verður lánið frá Húsnæðisstofnum aldrei meira en nemur mismuninum á hreinni eign manns og því húsnæði sem hann er að kaupa meðan þessar reglur eru í gildi." Jóhanna sagði að þessar aðgerðir sem nú hefði verið gripið til mundu örugglega stuðla að lægri vöxtum og þar með minni afföllum af hús- bréfum. Þá benti Jóhanna á að þetta hefði í för með sér litlar eða engar breytingar hjá því fólki sem væri að kaupa sér eignir upp á 8—9 milljónir króna. Ferða- beekur frá íslandi Utlendir menn hafa um aldir ferðast um ísland og sumir þeirra síöan skrif- að bækur um þjóðlif og náttúru landsins. Til eru bækur allt siðan á 16. öld og fram til okkar daga, þar sem ritglaðir útlendir ferðamenn gefa löndum sinum innsýn í þjóðfélag okkar, hver á sinn máta. Nú hefur Landsbókasafn íslands opnað sýn- ingu á allmörgum slikum ferðabók- um frá ýmsum tímum. Hún stendur í anddyri Safnahússins við Hverfis- götu og verður opin næstu vikurnar á afgreiðslutima Landsbókasafns. Á myndinni er landsbókavörður, Finn- bogi Guðmundsson, við sýningar- skáp þar sem fágætar islenskar ferðabækur eru sýndar. A-mynd: E.ÓI. Ungir sjálfstœdismenn um sex nœtur meö SAS Undrcmdi og ónægðir Ungir sjálfstæðismenn hafa lýst yfir undrun sinni og Óskastund Eddu i óruglaðri útsendingu Óskastundin hennar Eddu Andrésar á Stöð 2 verður send út til alira landsmanna, sem fylgj- ast vilja með þættinum á þriðju- dagskvöldið. Ragnar Ingimars- son, forstjóri Happdrættis Há- skóla íslands, bað blaðið að leið- rétta þann misskilning sem slæddist inn í gær, að dagskráin yrði rugluð. „Við höfum einmitt lagt áherslu á. að dagskráin milli fréttatímans og Oskastundarinnar verði ekki rugl- uð. Og að sjálfsögðu verður Óska- stundin það ekki heldur," sagði Ragnar. í þættinum verður dregið í hinu nýja „Happó", sjóðshappdrætti Háskóla íslands, í fyrsta sinn. Ragnar sagði að á Stöð l hjá ríkis- sjónvarpinu yrði úrdrátturinn end- urtekinn rétt fyrir ll-fréttir. óánægju með störf flokksbróð- urins í stóli samgönguráðherra, Halldórs Blöndal, þegar hann hafnaði beiðni SAS um að bjóða íslendingum ódýran sex nátta pakka á sama verði og Fiugleiðir bjóða með gistingu í þrjár næt- ur. „Með ákvörðuninni er verið að viðhalda óeðlilegri samkeppnisað- stöðu eins flugfélags í flugsamgöng- um til landsins og frá því á kostnað neytenda," segir i ályktun stjórnar Heimdallar. Þá lýsir stjórnin yfir furðu sinni á þeirri ákvörðun samgönguyfirvalda að synja Flugferðum-Sólarflugi um leyfi til að bjóða almenningi ódýrt leiguflug í vetur. Þessi ákvörðun brjóti í bága við hugsjónir sjálfstæð- ismanna um frjálsa samkeppni og gangi í berhögg við samþykkt lands- fundar, æðstu stofnunar flokksins. „Það er ekki hlutverk samgöngu- ráðherra að standa í vegi fyrir sam- keppni í millilandaflugi með því að hindra breytingar á verðlagningu og vernda hagsmuni eins fyrirtækis á kostnað neytenda. Hlutverk hans hlýtur að vera að gera samgöngur sem greiðastar en það verður best gert með því að efla frjálsa sam- keppni í millilandaflugi með það fyrir augum að sem flest fyrirtæki, innlend sem erlend, séu í jafnri að- stöðu til að keppa um hylli neyt- enda," segja ungir sjálfstæðismenn. Ekki sjá þeir allt alveg svart sem Halldór Blöndal er að sýsla við. Þeir styðja af heilum hug þá ákvörðun að endurskoða rekstur Skipaútgerð- ar ríkisins og segjast vonast til að taprekstrinum verði létt af skatt- greiðendum og fyrirtækinu komið í hendur einkaaðilum. Þióðarsátlin heilsusamleg Árið 1990 hefur hlutfall greiddra veikinda- og slysa- stunda af öllum greiddum stund- um lækkað til muna frá fyrri ár- um. Hlutfallið í fyrra var 2,8%, en árið 1989 3,6% og árið 1988 4,1%. Kemur þetta fram i frétta- bréfi Kjararannsóknanefndar og aftur í fréttabréfi VSÍ undir fyrirsögninni „Bætt heilsa á þjóðarsáttarári“. „Af vettvangi", fréttabréf VSÍ, greinir ennfremur frá skoðanakönn- un, sem Gallup á íslandi gerði fyrir Vinnuveitendasamband íslands seinni hluta september. Þar var spurt um nýja þjóðarsátt, hana vildu 69,5% aðspurðra. Þar var einnig spurt hvort menn vildu slíka samn- inga, jafnvel þó að þeim fylgdu litlar eða engar launahækkanir, — 79,5% svöruðu þeirri spurningu játandi. Gallup vann með 1.000 manna úr- tak og fékk 702 svör.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.