Alþýðublaðið - 05.11.1991, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.11.1991, Blaðsíða 4
MUÍH Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 Fréttir í hnotskurn MIKLIGARÐUR MEÐ TVÆR NÝJAR HVERFISBÚÐIR: íwar í Breiðholti og miðhverfum borgarinnar, allt í kringum Grensásveg, munu án efa fagna tilkomu Miklagarðs í hverfi sín. í gær kvisaðist það út að stórverslunin tæki við þessum hverfisbúðum á næstu dögum. Hér er um að ræða Vörðufell í Breiðholti og Grensáskjör við Grensás- veg. Mikligarður er stórmarkaður og heildverslun og hefur alla hurði til að veita góða þjónustu og gott verð á vöru sinni. STUTT GLEÐISPIL : Síðustu sýningar á Gleðispili, leikriti Kjartans Ragnarssonar, verða í Þjóðleikhúsinu í þessari viku, á fimmtudag og sunnudag. Kjartan fjallar í leikritinu um fyrsta leikritaskáld fslendinga. Sigurð Pétursson, og vin hans, Geir biskup Vídalín. Leikritið gerist í Kaupmannahöfn og á íslandi um aldamótin 1800. Af verki eftir Kjart- an Ragnarsson hefur Gleðispilið stöðvast óvenju stutt á sviðinu. TOLLKRIT: Vilhjálmur Egilsson. framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs íslands, hefur ritað flokkshróður sínum, Friðriki Sophussyni fjármálaráðherra, bréf. Tekur hann þar upp þráðinn þar sem frá var horfið i svonefndum tollkrítarmálum. Telur hann að almennur gjald- frestur á aðflutningsgjöldum sé nauðsynlegur íslenskri verslun, í því skyni að styrkja samkeppnisaðstöðu hennar. Fjölmargir fjármálaráð- herrar undanfarinna ára hafa verið með tollkrítarmálið á borði sínu og flestir haft góð orð um að koma henni á — en ekkert gerst til þessa. JÓLABÆKUR SNEMMA Á FERÐ: Nokkrar fyrstu jólabíekur árs- ins eru komnar á markað. Barnabókaútgáfan hefur sent frá sér tvær barnabækur, sem heita Refurinn frábæri og Grútur og Gribba, eftir Roald Dahl í þýðingu Arna Arnasonar. Dahl var um árabil einn allra vinsælasti barnabókahöfundurinu á enska tungu. en hann lést fyrir ári, 74 ára. Við flettingu á þessum bókum má vel greina að hér er á ferðinni hin besta skemmtan fyrir krakka, sem farnir eru að stauta sig áfram í bókum. Kkki spillir fyrir að bækurnar eru skemmtilega mynd- skreyttar. HRINGT UM HEIMSINS HÓF:Símnotendur sem tengdir eru staf- ræna símkerfinu í Reykjavík geta nú hringt sjálívirkt til skipa sem búin eru Inmarsat-A-gervihnattaþjónustunni. Hringja þarf samkvæmt stað- setningu skips, t.d. 871 á austursvæði Atlantshafs. 874 á vestursva*ði. 872 á Kyrrahaf og 873 ef skip er á Indlandshafi. NEYÐARATHVARFIÐ: Rauðakrosshúsið, Tjarnargötu 35, starfr;ek- ir sérstakt neyðarathvarf fyrir börn og ungiinga. auk símaþjónustu með ráðgjöf fyrir ungmenni að tuttugu ára aldri. Kiwanismenn í Kötlu komu færandi hendi í heimsókn á dögunum. gáfu heimilinu ísskáp. viftu og örbylgjuofn. Til Rauðakrosshússins hafa meira en 8 þúsund unglingar hringt frá því þjónustan hófst fyrir nærri <i árum. Krindin eru margvísleg, allt frá vangaveltum um kynlíf eða einelti að sjálfsmorðs- hugleiðingum og kynferðislegu ofbeldi. Myndin er frá afhendingu gjaf- ar þeirra Kiwanismanna. LEIKSKALD MOTMÆLA: Á tímum niðurskurðar mótmæla marg- ir skertum hlut úr ríkiskassanum — sjóði allra landsmanna. Leik- skáldafélag íslands hefur sent fjárlaganefnd bréf þar sem mótmælt er fyrirhuguðum niðurskurði á fjármagni til leiklistarstarfs. Sérstaklega er á það bent að Alþýðuleikhúsinu er ekki ætluð króna úr sameigin- legum sjóðum. Þetta bendi til að stjórnvöld vilji leikhúsið feigt. KENNARALAUNIN KLEN: Kennarar á íslandi hafa barist harðast allra stétta fyrir hærri launum á síðustu árum. Fréttablað BK, Banda- lags kennara, greinir frá því í forsíðufregn að kaupmáttur taxtalauna hafi lækkað um 0,4% hjá kennarastéttinni á tímum þjóðarsáttar. Á sama tíma er talað um að kaupmáttur hafi hækkað nokkuð hjá öðrum þegnum í þjóðfélaginu. Laun kennara hafa þótt heldur slök, en gerast nú heldur klén, ef rétt reynist að kaupmáttur fari iækkandi hjá þeirri góðu stétt fólks. Landsbjörg og Slysavarnafélagið Grunnt á því góðn Grunnt er á því góða milli Slysavarnafélags íslands og Landsbjargar, hinna nýstofnuðu landssamtaka björgunarsveita. „Einu merkin, sem við höfum heyrt um óánægju, hafa komið frá Slysavarnafélagi íslands, eða öllu heldur hluta af forustu þess,“ segir Ólafur Proppé, for- maður Landsbjargar, í bréfi til félaga Landsbjargar. Segir hann forseta SVFI ekki vanda þeim Landsbjargarmönnum kveðj- urnar á opinberum vettvangi. Ólafur segir að því miður verði það að segjast eins og er að sjaldn- ast hafi Slysavarnafélagið átt frum- kvæði að samstarfi björgunarsveita landsins. Hinsvegar hafi litlu munað að Slysavarnafélagið kæmi til sam- starfs í fyrra. „Þegar þing Slysa- varnafélagsins var haldið á árinu 1990 var að dómi þeirra sem best þekktu til aðeins spurning um nokkrar vikur hvenær tekist hefði að sameina í eitt félag nær allar björgunarsveitir landsins," segir Ól- afur í bréfi til félaga Landsbjargar. Samþykkt hefði verið ályktun sem dugað hefði stjórn félagsins til að ganga endanlega frá sameiningar- samningi og mál svo langt komin að fyrir lágu tillaga að nafni og helstu atriði nýrra laga og skipulags. Á þessu þingi hefði verið kjörin ný stjórn Slysavarnafélagsins og nýr forseti komið til starfa. Nýja stjórnin hefði lítinn eða engan áhuga haft á sameiningarmálinu. Bendir Ólafur á að Slysavarnafé- lagið hafi eytt tugum þúsunda króna í það eitt að láta skrá fjöimörg nöfn um það leyti sem stofnun Lands- bjargar var á lokastigi. Meðal nafn- anna er „landssamband björgunar- sveita", sem er undirtitill Lands- bjargar. Önnur nöfn sem skráð voru eru Björgunarfélag íslands, Björg- unarsveitir íslands, Slysavarnaþing, Komum heil heim og þrjú ensk nöfn til viðbótar. Ólafur Proppé segist vongóður um gott samstarf þrátt fyrir mold- viðrið. „Björgunarsveitir Lands- bjargar og Slysavarnafélags Islands munu vinna saman sem einn mað- ur, hér eftir sem hingað til. Sigrun Magnúsdóttir, matvörukaup- maður, borgarfulltrúi og varaformað- ur Kaupmannasamtakanna, fagnar 60 ára afmæli Rangár ásamt félaga sínum og viðskiptavinum. Kaupmaðurinn á horninu Rangá 60 ára - í lullu it •• • fjori Sigrún Magnúsdóttir er ekki bara borgarfulltrúi. Hún er fyrst og fremst kaupmaður, og hefur verið það síðustu 20 árin. Versl- un hennar og Agnars Árnason- ar, Rangá í Skipasundi, þekkja allir. Búðin er 60 ára í dag, og er, ásamt Versluninni Vísi á Lauga- vegi 1, elst matvöruverslana í Reykjavík. Sigrún segir að vissulega eigi kaupmaðurinn á horninu í vök að verjast í samkeppninni við stór- markaði og aðra, sem virðast njóta sérkjara hjá heildsölum. Rangá hef- ur rekið tvær búðir, báðar í Sunda- hverfi, í Skipasundi og í Efstasundi. Nú er svo komið að sameina verður þessar tvær verslanir, enda stutt á milli þeirra. Engu að síður, — Rangá, kaupmannsbúðin á horninu, er í fullu fjöri þrátt fyrir háan aldur. „Við höfum ekki farið varhluta af þeim stormum sem nú geisa á mat- vörumarkaði borgarinnar, en grunnurinn er traustur og við von- umst til áframhaldandi ánægjulegra samskipta við íbúa Langholtshverf- is, svo og við aðra borgarbúa," sagði Sigrún Magnúsdóttir í gær. Gömul nóta til Rangár, meöan versl- unin var enn við Hverfisgötu. Þa handskrifuðu heildsölurnar slíkar nótur, og rithöndm varð aö vera glæsileg. FJOUJI VINNINGSHAFA UPPHÆÐAHVEHN VINNINGSHAFA 2.844.980 54.909 6.819 4.376 454 Heiktarvinningsupphæð þessa viku: 6.178.240 uppiys!ngarsimsvari91'681511lukkuuna991002 Vinningstölur laugardaginn SIIJ fagnar EES - sendir Jóni Baldvin heillaóskir Framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna fagnar því að samningar hafa tekist um myndun Evrópsk efnahagssvæð- is (EES). Framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna sam- þykkti á fundi 2. nóvember svo- hljóðandi ályktun: „SUJ telur að með þátttöku i samningum EFTA- og EB-þjóðanna hafi íslendingar stigið mikilvægt spor í átt til þeirrar samlögunar og samhæfingar sem stefnt er að í efna- hagslífi og félagsmálum í Evrópu. SUJ telur að samningar um evr- ópska efnahagssvæðið séu mikil- vægustu milliríkjasamningar seni þjóðin hefur gerst aðili að allt frá því að hún öðlaðist sjálfstæði. Jafna má mikilvægi þeirra á efnahagssviði við þau tímamót er verslun var gefin frjáls hér á landi um miðja síðustu öld. Ungir jafnaðarmenn vænta þess að íslensk stjórnvöld haldi áfram þeirri frjálsræðisþróun sem Alþýðu- flokkurinn hefur beitt sér fyrir í efnahagslífinu og tryggi þar með að samningurinn um EES skili þjóðinni traustari atvinnuvegum og almenn- ingi bættum lífskjörum. Samband ungra jafnadar- manna sendir utanríkisráð- herra, Jóni Baldvini Hannibals- syni, heillaóskir í tilefni niður- staðna samningagerðarinnar um F.F.S. SU J ítrekar stuðning við þá stefnu sem hann hefur fylgt í gegnum tvær ríkisstjórnir og leitt hefur til niðurstöðu sem veitir íslandi „vegabréf inn í tutt- ugustu öldina“.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.