Alþýðublaðið - 10.12.1991, Page 6
6
Þriðjudaqur 10. desember 1991
IM0/II f.l VM VÍ. l K
Auglýsing frá
Tryggingaeftirlitinu
Tryggingaeftirlitið vekur athygli á auglýsingu er
birtist í Lögbirtingablaðinu 28. nóvember sl. varð-
andi fyrirhugaða sameiningu á rekstri B.Í. Líftrygg-
ingar g.t. Brunabótafélags íslands og Líftrygginga-
félagsins Andvöku g.t. í Líftryggingafélagi íslands
hf. og um breytingu á rekstrarformi Líftryggingafé-
lagsins Andvöku g.t.
Tryggingaeftirlitinu ber lögum samkvæmt að at-
huga hvort ástæða sé til að ætla að yfirfærsla trygg-
ingarekstrar og breyting á rekstrarformi geti á
nokkurn hátt skaðað vátryggingartaka og hina vá-
tryggðu. Vegna þessa hefur Tryggingaeftirlitið, með
nefndri auglýsingu, óskað eftir skriflegum athuga-
semdum innan þriggja vikna frá birtingu auglýsing-
arinnar.
Tryggingaeftirlitið, 6. desember 1991.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — sími 678500
Félagsráðgjafar
Óskum eftir að ráða félagsráðgjafa eða starfsmann
með hliðstæða menntun t.d. á sviði sálar- eða upp-
eldisfræða í 50% starf á hverfaskrifstofu fjölskyldu-
deildar í Skógarhlíð 6.
Upplýsingar gefur Ellý Þorsteinsdóttir yfirfélags-
ráðgjafi í síma 625500. Umsóknarfrestur er til 20.
desember nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Berðu ekki við
tímaleysi
í umferðinni.
Núja/i bcehuA,
Margar nýjar, og sumar bráð-
spennandi bækur hafa borist
blaðinu. Það er ijóst að bækur
verða, ásamt hljómplötum, disk-
um og snældum, helsta afþrey-
ingarefni okkar í skammdeginu.
Ekki er að sjá að vegur bókar-
innar sé á niðurleið, öðru nær.
En lítum aðeins á nokkrar þeirra
bóka, sem hafa komið út nýlega,
allt bækur eftir íslenska höf-
unda.
Kristján Eldjárn — ævisaga
Gylfi Gröndal skrifaði þessa bók
eins og Alþýðublaðið hefur greint
frá áður. Þetta er mikil bók að vöxt-
um, eins og vera ber, og glæsilega
útgefin af Forlaginu. Gylfi styðst við
miklar og margvíslegar heimildir
um líf og starf Kristjáns Eldjárns,
ekki síst dagbækur Kristjáns og
minnisblöð, sem vissulega gera frá-
sögnina trúverðuga. Þetta er bók
um mikilhæfan mann, bernsku
hans, unglingsár, námsár og þau
mikilvægu störf sem Kristján innti
af hendi fyrir þjóð sína. Þessi bók
mun verða mikið lesin.
Flugsaga íslands í stríði og
friði 1919 til 1945
Þetta er girnileg bók, sem Eggert
Norðdahl hefur tekið saman og Orn
Gylfi Gröndal
Kristján Eldjám
---TÆVISAGA-----
og Örlygur gefið út. Bókin hefst þar
sem fyrsta flugvélin kemur til ís-
lands 1919. Rakin er saga flugfélag-
anna, félags áhugamanna um flug,
upphafs millilandaflugs og upp-
byggingar flugvalla og annarra
mannvirkja tengdum þeim. í bók-
inni er í fyrsta sinn rakin saga her-
flugs hér á landi og á höfunum í
kringum okkur. Herflugið kostaði
mörg mannslífin, og hér urðu loft-
bardagar við þýskar vélar. Þá kemur
fram að flugvélar urðu fyrir árásum
samherja hér við land. Flugslys
voru líka tíð í flota flughersins.
Margar frásagna Eggerts hafa menn
ekki séð fyrr á prenti og er fengur
að þessari bók.
Svanurinn
Það er ævinlega mikil frétt, þegar
út kemur skáldsaga eftir Guðberg
Bergsson, þann mikla málsnilling.
Svanurinn er ellefta skáldsaga Guð-
bergs á þrjátíu árum, en 1961 kom
út fyrsta skáldsaga hans, Músin sem
læðist. í kynningu Forlagsins segir:
„Svanurinn er saga stúlku. Hún er
níu ára gömul þegar hún er send í
sveitina til að bæta fyrir brot sitt. I
nýju umhverfi vakna óvæntar
kenndir — duiarfullar, ógnvekjandi
og sárar. Náttúra sveitarinnar og til-
JOLATILBOÐ
15% afslattur
af sturtuklefum, hreinlætistækjum,
stálvöskum og blöndunartækjum
Við rýmum fyrir nýjum vörum.
50% afsláttur
af baðinnréttingum og baðskápum
sem verið hafa til sýnis í versluninni.
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 68 64 55 - 68 59 66
finningar telpunnar tala saman á
því margræða máli sem Guðbergur
Bergsson hefur flestum skáldum
betur á valdi sínu.“
DAGBÓK — hvers vegna ég?
Kolbrún Aðalsteinsdóttir skrifar
hér þriðju unglingabókina. Hafa
bækur hennar notið mikilla vin-
sælda meðal unglinga og eru meðal
útlánahæstu unglingabóka á ís-
lenskum bókasöfnum auk þess sem
þær hafa selst vel. Þetta er ævin-
týraleg frásögn af Kötlu, sem hefur
gerst sýningarstúlka á Ítalíu og á
velgengni að fagna. En Katla lendir
í erfiðleikum, ásteu'samböndum, og
allt fer vel...
Davíð og krókódílarnir
Elías Snæland Jónsson skrifar
dags daglega um vandamál þjóðfé-
lagsins á síðum DV. í frístundum frá
blaðamannsstarfinu hefur hann
skrifað bækur fyrir unglinga. Þessi
saga segir frá fjórtán ára pilti, sem
leiðist heima hjá sér og í skólanum.
Þess í stað sækist hann eftir félags-
skap Krókódílanna, sem fást við
ýmislegt miður fagurt og Davíð veit
að er ekki rétt. Hér er lýst hörðum
heimi unglinga í höfuðborginni okk-
ar, spennandi söguþráður, en hlýja í
garð unglinganna. Mál og menning
gaf bókina út.
Lífsháskinn, minningar
Jónasar Jónassonar
Svanhildur Konráðsdóttir ritaði
þessar minningar Jónasar okkar
Jónassonar, útvarpsmanns. Samt er
hann maður pennafær í besta lagi,
það þekkja lesendur Alþýðublaðs-
ins af greinum hans í blaðinu til
skamms tíma. Allir þekkja Jónas úr
útvarpinu, og enginn hefur víst tog-
að annað eins upp úr fólki, svo lag-
inn er Jónas í hinum frægu viðtölum
sínum, enda mannlegur og hlýr. í
bókinni er það Jónas sem leysir frá
skjóðunni og verður ekki annað
sagt en bókin sé hin skemmtilegasta
aflestrar. Jónas Jónasson hefur átt
við sitt böl að stríða, áfengisvanda-
málið, og hann hefur líka átt sína
góðu daga, ekki síst meðan hann
bjó sem barn í Skerjafirði. Jónas
segist árum saman hafa þurft að
berjast við einfarann í sér. Það kem-
ur sannarlega á óvart. Benda má út-
gefanda, Forlaginu, á að það er
mjög til hins betra þegar nafnaskrá
fylgir ævisögu, hana vantar í þessa
annars mjög svo læsilegu bók um
Jónas.
Sossa sólskinsbarn
Þessi bók er eftir Magneu frá
Kleifum og segir frá Sossu, telpu
sem elst upp í stórum barnahópi í ís-
lenskri sveit fyrr á öldinni. Sossa er
dugleg og framkvæmdasöm, hug-
myndarík og ófeimin og kemur öll-
um í gott skap. En hún á það líka til
að vera stór upp á sig og bíta frá sér
ef sá gállinn er á henni. Þóra Sigurð-
ardóttir myndskreytti bókina. Mál
og menning gefur út.