Alþýðublaðið - 31.12.1991, Qupperneq 12
12
Þriðjudaqur31. desember 1991
Jón Ásberg
Salómonsson
bæjarfulltrúi Húsavík
- Hvaða atburðir eru þér efst í
huga af innlendum vettvangi á ár-
inu sem er að líða?
,Ætli samningar við Evrópu-
bandalagið um myndun Evrópsk
efnahagssvæði sé ekki það minnis-
stæðasta frá því ári sem nú er að
líða.“ - Hvaða erlendir atburðir eru
þér minnisstæðastir á árinu?
„Það er tvímæialaust fall Sovét-
ríkjanna."
- Er eitthvað sem er ofar öðru í
huga þínum er varðar persónulega
hagi þína á árinu?
,Ætli það sé ekki það að ég
keypti mér nýjan bíl.“
- Hvaða væntingar hefur þú til
komandi árs?
,JÉg er ekki allt of bjartsýnn á
nýja árið eins og staðan í atvinnu-
málum er háttað víða á landsbyggð-
inni. Það er víða atvinnuleysi og
erfiðleikar því samfara. - Seturðu
þér áramótaheit?
„Nei, örugglega ekki. Eg þarf
þess ekki með því ég er hættur að
taka í nefið.“
- Hvemig metur þú ástand og
horfur á Húsavfk á næsta ári?
„Horfumar em ekki allt of góðar
því við byggjum okkar atvinnulíf á
þjónustu við landbúnað og sjávanít-
veg en það hefur verið samdráttur í
báðum þessum atvinnugreinum.
Það gefur auga leiða að þetta mun
koma við okkur héma á Húsavfk.
Bærinn hefur verið að setja heil-
mikinn pening í Fiskiðjusamlag
Húsavíkur til þess að halda því á
floti. Þótt slíkt sé í raun og vem
ekki hlutverk sveitarfélaganna hafa
þau víða neyðst til að hlaupa undir
bagga með atvinnulífinu. Mér líst
því afar illa á ef ríkisvaldið ætlar
síðan að fara að setja aukaskatt á
sveitarfélögin sem em að berjast
við að halda uppi atvinnu víða um
land í erfiðu árferði."
Jón Gröndal
bæjarfulltrúi Grindavík
- Hvaða atburðir em þér efst í
huga af innlendum vettvangi á ár-
inu sem er að líða?
J fljótu bragði held ég að það
hljóti að vera ríkisstjómarmyndun-
in og kosningamar. Þá er manni að
sjálfsögðu ofarlega í huga hið
hræðilega sjóslys sem við þurftum
að horfa upp á héma um daginn."
- Hvaða erlendir atburðir em þér
minnisstæðastir á árinu?
„Það er ekki nokkur vafi að það
er upplausn Sovétríkjanna."
- Er eitthvað sem er ofar öðm í
huga þínum er varðar persónulega
hagi þína á árinu?
„Það er ekki hægt að segja að
einn sérstakur atburður standi þar
upp úr. Þetta ár hefur verið mér og
minni fjölskyldu gott. Þegar ég lít
til baka get ég ekki annað en verið
ánægður með árið 1991 fyrir mína
hönd og fjölskyldu minnar."
- Hvaða væntingar hefur þú til
komandi árs?
„Það er fyrst og fremst brýnt að
ríkisstjómin nái tökum á efnahags-
málunum og að við fömm að vinna
okkur út úr þessum vanda sem við
emm í. Eg vona að reynsluleysi
þeirra hái því ekki að þeir nái tök-
um á þeim. Það em helstu vonir
sem ég bind við næsta ár á innlend-
um vettvangi." - Seturðu þér ára-
mótaheit?
„Nei. ég geri það nú yfirleitt ekki
og það hefur gengið illa að láta þau
standast."
- Hvemig metur þú ástand og
horfur í Grindavík á næsta ári?
„Við höfum miklar áhyggjur af
atvinnumálunum.
Kvótaskerðingin kemur að sjálf-
sögðu mikið við þetta byggðarlag.
Annars standa fiskvinnslufyrir-
tæki hér almennt mjög vel og sveit-
arfélagið stendur vel. Við erum að
fara af stað með sundlaugarbygg-
ingu og auk þess emm við að vinna
mikið við Bláa lónið sem gefur
ýmsa möguleika. Við emm í við-
ræðum við Hitaveitu Suðumesja
um að yfirtaka reksturinn á því en
það hefur gegnið á ýmsum nieð
reksturinn á aðstöðunni við Bláa
lónið. Það er annars gott hljóð í
Grindvíkingum og enginn uppgjaf-
artónn. Við teljum okkur hafa náð
mjög góðum árangri gangvart ríkis-
kerfmu þannig að við fáum góðar
fjárveitingar þrátt fyrir mikinn nið-
urskurð almennt. Við megum því
vel við una og atvinnuhorfumar em
nokkuð góðar ef það gengur eftir
sem upp er lagt með.“
Steingrímur
Ingvarsson
bæjarfulltrúi Selfossi
- Hvaða atburðir em þér efst í
huga af innlendum vettvangi á ár-
inu sem er að líða?
,Ætli það séu ekki kosningamar
og stjómarmyndunin."
- Hvaða erlendir atburðir em þér
minnisstæðastir á árinu?
„Það em vafalaust breytingamar í
Sovétríkjunum.“
- Er eitthvað sem er ofar öðm í
huga þínum er varðar persónulega
hagi þína á árinu?
„Það er ferðalag sem við hjónin
fómm í til Þýskalands ásamt öðmm
hjónum. Við fómm reyndar einnig
til Flórída í Bandaríkjunum og
hvoru tveggja vom ákaflega
skemmtilegar ferðir."
- Hvaða væntingar hefur þú til
komandi árs?
„Maður er ekki alveg nógu bjart-
sýnn eins og málin horfa við hjá
okkur núna. Svo ég haldi áfram
með Sovétríkin. þá em þar að gerast
hlutir sem maður veit ekki ennþá
hvemig munu þróast."
- Seturðu þér áramótaheit?
„Nei. Eg held ég þurfi þess ekk-
ert. Ég reyki ekki og get þvf ekki
lofað mér að hætta slíku. Maður
reynir bara að lifa lífmu lifandi
áfram eins og maður hefur reynt að
gera hingað til.“
- Hvemig metur þú ástand og
horfur á Selfossi á næsta ári?
„Mér finnast horfur heldur góðar.
Þó að þessi samdráttur í landbúnað-
arframleiðslu hafi orðið og verði þá
hefur verið rennt ýmsum nýjum
stoöum undir atvinnulífið hér á Sel-
fossi á undanfömum árum. Ég held
því að atvinnulífið geti tæpast orðið
annað en gott áfram. Ég er því bjart-
sýnn fyrir okkur héma útaf fyrir
sig."
Guöfinnur
Sigurvinnsson
bæjarfulltrúi Keflavík
- Hvaða atburðir em þér efst í
huga af innlendum vettvangi á ár-
inu sem er að líða?
„Ætli það hafi ekki verið myndun
nýrrar ríkisstjómar."
- Hvaða erlendir atburðir em þér
minnisstæðastir á árinu?
„Það sem hefur verið að gerast í
Sovétríkjunum. Það er sjálfgefið.“
- Er eitthvað sem er ofar öðm í
huga þínum er varðar persónulega
hagi þína á árinu?
„Það er ekkert sérstakt. Það hefur
allt verið í góðu lagi og heilsan góð.
Þetta hefur verið farsælt ár hjá mér
og minni fjölskyldu.“
- Hvaða væntingar hefur þú til
komandi árs?
„Ég vona bara að það rætist eitt-
hvað úr atvinnumálunum hjá okkur
héma í Keflavík. Það em margir
möguleikar í augsýn en atvinnu-
leysið er talsvert eins og er. Maður
vill sjá einhveija upplyftingu í þeim
málum.“ - Seturðu þér áramótaheit?
„Ég held ekki.“
- Hvernig metur þú ástand og
horfur í Keflavík á næsta ári?
„Ég sé fram á þungan róður
a.m.k. í upphafi árs. Maður vonar
auðvitað að það verði meiri gróska
og meiri vinna í bænum á komandi
ári. Það em mörg verkefni sem bíða
okkar. Þá vil ég gjaman fara að sjá
mína menn í fótboltanum upp í
fyrstu deild aftur. Það hefur gengið
vel í körfunni en við viljum fara að
sjá betri tíð í fótboltanum. Sundið
hefur blómstrað hér þannig að það
er ýmislegt gott að gerast hjá okkur.
Sundfélagið héma var t.d. að vinna
bikarkeppnina í fyrsta skipti nú um
daginn sem má rekja til betri að-
stöðu til sundiökunar. Það sem þarf
er að hlúa að mannlífinu héma og
koma atvinnumálunum í betra horf.
Flokksstarfið hefur verið gott hjá
okkur og ég á ekki von á öðru en að
það blómstri áfram"
Gudmundur
Þ.B, Ólafsson
bæjarfuUtrúi
Vestmannaeyjum
- Hvaða atburðir eru þér efst í
huga af innlendum vettvangi á ár-
inu sem er að líða?
„Alþingiskosningamar og úrslit
þeirra. Myndun ríkisstjómar sem ég
var ekki allt of ánægður með enda
hef ég ekki séð neitt í fari stjómar-
innar sem breytir þeirri skoðun
minni að þar hafi verið vitlaust að
farið. Auk þess er mér ofarlega í
huga öll sú vinna sem var lögð í að
fá mann fyrir Alþýðuflokkinn kjör-
inn hér á Suðurlandi en það tókst
því miður ekki. En það kemur dag-
ur eftir þennan dag.“
- Hvaða erlendir atburðir eru þér
minnisstæðastir á árinu?
„Það er náttúrulega þær breyting-
ar sem hafa verið að eiga sér stað í
Austur-Evrópu og vom undirstrik-
aðar með hmni Sovétríkjanna. Þá er
það viðurkenning okkar á sjálfstæði
þjóða í Júgóslavíu en það er þó dap-
urlegt að það skuli gerast á sama
tíma og þar á sér stað mikið blóð-
bað.“
- Er eitthvað sem er ofar öðm í
huga þínum er varðar persónulega
hagi þína á árinu?
„Það er að bamabam númer tvö
kom í heiminn á árinu. Það er ekk-
ert sem tekur því fram. Ég og rnínir
ættingjar bjuggum við góða heilsu
og gott líf.“
- Hvaða væntingar hefur þú til
komandi árs?
„Ég vona að nýja árið verði öllum
sem best og vonandi náist góð
stjóm í landsmálunum með betra
atvinnulífi og góðu árferði sem skili
sér til landsmanna allra. Það er von
mín á þessum tímum þegar heldur
mikill svartsýnistónn er í flestum að
svartsýnisspár gangi ekki eftir. Þá
vona ég að aukinn friður komist á í
heiminum.“
- Seturðu þér áramótaheit?
„Nei. Ég set mér enginn sérstök
áramóta heit annað en það sem
maður hefur í lífsveganestið. það að
gera sitt besta í því sem maður tek-
ur sér fyrir og sjá svo til með árang-
urinn." - Hvemig nietur þú ástand
og horfur í Vestmannaeyjum á
næsta ári?
„Ég met stöðuna þannig að horf-
ur fyrir Vestmannaeyinga hafa allt-
af verið góðar. Hér bvr duglegt og
gott fólk og enginn ástæða til ann-
ars. þrátt fyrir sviptingar í þjóðlff-
inu. en að ætla að hér tekist að halda
þeim stöðugleika og metnaði sem
hefur alltaf ríkt. Hér hefur verið að
eiga sér stað sameining á frystihús-
um og vonandi reynist það jafn vel
og væntingar standa til. Það er að
vísu dapurlegt að héðan úr byggð-
arlaginu hefur verið að flytjast
kvóti en ég hef enga ástæðu til að
ætla annað en að hann skili sér aftur
og það mjög fljótlega.
Maður er að vísu ekkert allt of
ánægður með það sem er að gerast
hér í bæjarpólitíkinni og má þar
nefna t.d. nýálagðan sorpeyðingar-
skatt. Auk þess veit ég ekki hvemig
meirihlutinn ætlar að bregðast við
einhverjum aukaálögum á bæinn