Alþýðublaðið - 04.12.1992, Qupperneq 12
Gœöaflísar
á góðu veröi
Slorhofíia 17. viíl (iullinbru - sími 67 4844
r i h ii ii i! i r iii ii
Skreytingar við öll tœíqfczri.
Opiðalla áarja tiíltf. 22
STEFANSBÍDM
SKIPHOLTI 50 B - SlMAR 610771 & 10771
VERSNANDI
AFKOMA
FLUGLEIÐA
hafi fjölgað um nærri 6% í millilanda-
flugi og 2% í innanlandsflugi. Þetta
þýðir einfaldlega að farmiðaverð hefur
lækkað mjög, eða um 13% milli ára.
DETTIFOSS
LOSAÐIVÖRU
Á RÚMSJÓ
Ovenjuleg flutningsbeiðni barst
Eimskip nýlega, segir i fréttabréfi fé-
lagsins. Marel hf. hafði borist beiðni
frá þýskum togara, Heinz Daduna,
að fá varahluti í vinnslulínu togar-
ans, sem er framleidd af Marel. Svo
vildi til að togarinn var að veiðum á
siglingarleið Dettifoss, sem átti að
leggja úr höfn daginn eftir til Amer-
íku. Til að spara togaranum langa
sigfingu til íslands, var nú ákveðið að
Dettifoss taeki varahlutina og losaði
vöruna á rúmsjó, mitt á miili íslands
og Ameríku.
Skipin hittust síðan í blíðu og góðu
veðri og var vörunni skipað um borð í
gúmbát og siglt með hana að togaran-
um. Tókust þessiróvanalegu flutningar
hið besta.
Þeir Eimskipsmenn segjast hafa átt í
erfiðleikum með að rukka fyrir þennan
flutning.
Að sjálfsögðu eru engar gjaldskrár
til fyrir flutning sem þennan. Hinsveg-
ar segja þeir að eigendur Heinz Daduna
hafi ákveðið eftir þetta að landa afia
sínum á Islandi og láta Eimskip sjá uni
losun og útflutning á aflanum.
Rúmlega 246 milljón króna hagn-
aður varð af rekstri Flugfeiða fyrstu
9 mánuði ársins, - til samanburðar
var hagnaðurinn á því tímabili í
fyrra 494 milljónir. Afkoman hefur
því versnað til muna.
Allt virðist nú benda til að reksturinn
í ár standi í járnum, enda þn'r sfðustu
mánuðir ársins allajafna erfiðir. Versn-
andi afkoma stafar af því að tekjur af
farþegaflugi hafa lækkað um 7% af
raungildi áárinu, enda þótt farþegum
RÓSUMÁL Á
JÓLAFUNDI í
FIRÐINUM
Hún Rósa Ingólfsdóttir er líklega
með einhverja hressilegustu jóla-
bókina á markaðnum. A sunnudags-
kvöldið ætlar hún að lesa úr bók
sinni á Jólafundi Kvenfélags Hafn-
arfjarðarkirkju sem haldinn verður
í Gafl-inn að Dalshrauni 13, en fund-
urinn hefst kl. 19 með borðhaldi og
leikur Kári Þormar létt lög á píanó
undir borðhaldi og milli atriða.
Veislustjóri verður Sigrún Sigur-
bjartsdóttir, ritari félagsins.
Skemmtidagskráin er vönduð sem
fyrr: Bamakór Hafnarfjarðarkirkju
syngur undir stjóm Brynhildar Auð-
bjargardóttur, nemendur og kennarar
Nýja dansskólans sýna dansa, og séra
Þórhildur Ólafs, aðstoðarprestur Hafn-
artjarðarkirkju flytur jólahugvekjuna.
Formaður Kvenfélags Hafnarfjarð-
arkirkju er Margrét Guðmundsdóttir,
Tjamarbraut 27. Hún tekur á móti gjöf-
um í happdrættið sem verður á jóla-
fundinum, en félagskonur og velunnar-
ar kirkjunnar hafa ævinlega stutt það
og gefið veglega vinninga. Verð miða
á jólafundinn er 1.500 krónur.
GÁMAVIÐ-
GERÐIR TIL
ÍSLANDS
Plimskipafélagið hefur unnið að
því að undanförnu að flvtja heim til
Islands viðgerðir á gámum sínum.
Er það gert í tengslum við umræðum
um að efla íslenskan iðnað. Gáma-
viðgerðir hafa aðallega farið fram í
Belgíu, Hollandi og í Þýskalandi. Um
6000 gámar Eimskips þafnast við-
gerða á ári hverju, auk þess sem
þrífa þarf gáfa félagsins, forskoða
frystigáma auk ýmissa annarra
verkefna sem tengjast gámarekstr-
inum.
Eimskip hefur síðustu tvö árin flutt
heim nokkum hluta þessarar þjónustu,
í fyrra var þriðjungur hennar kominn
heim og á jressu ári mun helmingur
hennar framkvæmdur hér á landi.
Eimskipsmenn segja það ánægju-
lega staðreynd að í mörgum tilfellum
er hagkvæmara að framkvæma við-
gerðimar hér á landi.
Eimskip rekur eigið gámaverkstæði,
og þar hefur fjölgað um 3 starfsmenn,
en auk þess hafa tvö verktakafyrirtæki
hafið starfsemi á Sundahafnarsvæðinu,
Stólpi hf. og Strókur hf., en hjá þessum
fyrirtækjum starfa um 10 manns við
gámaviðgerðir.
Rabarbarasulla.
Góð á súkkulaðikökuna.
Rifsbcrjahlaup.
Gott með osti og út í sósu.
Drottningarsulta.
Góð á vöfflur með rjóma.
Blábcrjasulta.
Góð með villibráð.
Ananasmarmelaði.
Gott með heilhveitikexi.
Blönduð ávaxtasulta.
Góð í bakstur.
\fj
sultur eru ljúffengar
og henta við öll tækifæri
Veljum Islenskt
þegar gæöin eru meiri.
Gulrótarmarmelaði.
Gott með öllu kexi og brauði.
Hindberjasulta.
Góð með kjúklingi.
Sólberjasulta.
Góð með lambakjöti.
BÚBÓThf. sultugerð
Skemmuvegur 24m • 200 Kópavogur
Sími 79977 • Fax 671215
Svcskjusulta.
Góð í hálfmánana.
AUGLÝSINGASTOFA REYKJAVlKllR