Alþýðublaðið - 07.01.1993, Qupperneq 4
Gœöaflísar
á f*óðu verði
;=íass
líV 1 y
Storhoffia 17, viO (íullinhrú - sími 67 4« 44
MMIBLMD
Skreytingar við 'ólí tælqfm.
Opið aíía daga tií kí. 22
STEFANSBDOM
SKIPHOLTI 50 B — SlMAR 610771 & 10771
Fréttir í hnotskurn
NEMUR BURT JÓLAKILÓINI Fyrrum alþingismaður, Ás-
geir Hannes Eiríksson. býður þeim sem vilja losna við aukakíló jóla og ára-
móta, lil námskeiðs um reglulegt mataræði í húsnæði íþróttasambands fs-
lands í Laugardal um næstu helgi. Námskeið Ásgeirs Hannesar hefst kl. 9 á
föstudagskvöld og heldur áfram á laugardag 9. janúar. Farið verður eftir kerfi
því sem finna má í bók Ásgeirs Hannesar, Það er allt hægt vinur! Önnur út-
gáfa þeirrar bókar var að koma út hjá Almenna bókafélaginu. Ásgeir Hann-
es er í síma 74811 og í bílnum sínum í 985 21453. Það má bæta því við að
bók Ásgeirs Hannesar er hin gagnlegasta og meira að segja skemmtileg lesn-
ing.
Ásgeir Hannes við síðasta vinnustað sinn, - hann lifir samkvæmt kenningum sín-
um og hefur losnað við ótölulegan fjölda kílóa.
NATO-HERSHÖFÐINGI HINGAÐ: Yfirmaður herafla Atl-
antshafsbandalagsins á meginlandi Evrópu (SACEUR), John M. D. Shalik-
ashvili, hershöföingi, kemur í dag hingað til lands. Hann mun eiga viðræður
við Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra seinna í dag.
NÝLISTASAFNIÐ 15 ÁRA: í fyrradag var 15 ára afmæli Ný-
listasafnsins að Vatnsstíg 3b. Safnið var stofnað á þrengingatímum miklum,
listasöfn þjóðarinnar og einkasafnarar sváfu Þymirósarsvefni, listgagnrýn-
endur vom með augun í hnakkanum og litu með söknuði til kreppu og eftir-
stríðslistar. Almenningur lét sér fátt um finnast hvað snéri upp og hvað nið-
ur í menningu landins. Nýlistasafnið umbylti hlutunum, safnaði saman ungu
fólki og braust fram til sigurs i baráttunni gegn viðhorfum sem vom andstæð
nýstárlegri tjáningu og frumlegri hugsun. I safninu stendur nú samsýning, en
þar sýna Elva Jónsdóttir, Elsa D. Gísladóttir, Pétur Örn Friðriksson,
Ólöf Nordal, Ingileif Thorlacius og Ragna Hermannsdóttir.
BORGIN SÆKIR JÓLATRÉN: Starfsmenn Reykjavíkur-
borgar munu safna saman jólatrjám borgarbúa í ár. Munu borgarbúar án efa
fagna þessari þjónustu, en Hafnfirðingar einir hafa til þessa notið slíkrar
þjónustu. Reykvíkingar eru beðnir að færa jólatrén að lóðamörkum til að
flýta söfnuninni, cn hún stendur aðeins einn dag, föstudaginn 8. janúar.
Jólatrén mega alls ekki fara í öskutunnumar, en hægt að koma þeim á gáma-
stöðvar Sorpu, sem opnar em ífá kl. 13 sex daga vikunnar.
HEIMILISFÓLK A GRUND OG ASI/ASBYRGI:
Sam-
kvæmt upplýsingum Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar voru heimil-
ismenn á Gmnd í Reykjavfk 267 talsins um áramótin, í Ási og Ásbyrgi í
Hveragerði dvöldu alls 112 manns, samtals 379 manns á heimilunum báð-
um. Á Gmnd voru 175 konur en aðeins 92 karlar, - fyrir austan voru 69 karl-
ar en 43 konur. Á Gmnd lést 41 kona á síðasta ári en 16 karlar. í Ási/Ásbyrgi
létust tveir karlar á árinu 1992, en engin kona.
TSHEKHOV-VIKAIMIR: Dagana 17. til 24. janúar verður mik-
il kynning á ævi og verkum hins fræga rússneska rithöfundar, Antons
Tsjekhov, á vegum MÍR, Menningartengsla íslands og Rússlands. Kynn-
ingin hefst á sunnudag kl. 16 með kvikmyndinni Anna um hálsinn, sem
byggð er á smásögu skáldsins. Sama dag opnar sýning á Ijósmyndum úr leik-
húsum í Moskvu og fleiru. Á mánudagskvöld kl. 20.30 verður sendiherrafrú-
in Nína Akímova, gestur MÍR, en hún er leikkona að mennt. Flytur hún
spjall um Tsjekov og rússneska leiklist, auk þess sem hún segir álit sitt á leik-
sýningum sem hún hefur skoðað í Reykjavík. Á miðvikudag, laugardag og
sunnudag heldur dagskráin áfram með heimildarmynd og kvikmyndum sem
gerðar hafa verið eftir verkum skáldsins mikla.
Sigurður Einarsson
íþróttamaður ársins
Sigurður Einarsson, spjótkastari
úr Ármanni, var kjörinn íþrótta-
maður ársins 1992 af íþróttafrétta-
mönnum. Eins og allir landsmenn
eflaust muna þá vann Sig-
urður það glæsilega afrek á
síðasta ári að verða í fimmta
sæti í spjótkasti á Ólympíu-
leikunum í Barselóna á
Spáni sl. sumar.
Tíu efstu í kjöri íþrótta-
fréttaritara á íþróttamanni árs-
ins fengu gjafir frá Máli og
menningu, þrír efstu menn
fengu auk þess bikar til eignar
og Sigurður sigurvegari einnig
flugmiða ífá SAS og að sjálf-
sögðu farandbikarinn fræga
sem íþróttamaður hvers árs
fær og hefur verið afhentur
síðan 1958.
1 öðm og þriðja sæti vom
handknattleiksmenn enda
stóðu þeir sig mjög vel á
Ólympíuleikunum og lentu
þar í fjórða sæti eftir að hafa
tapað fyrir Frökkum í barátt-
unni um silfurverðlaunin.
Kristján Arason Islandsmeist-
ari með FH var í öðm sætinu
og Geir Sveinsson úr Val og
landsliðsfyrirliði í handknatt-
leik varð í því þriðja.
f fjórða sæti lenti síðan
knattspyrnumaðurinn knái,
Eyjólfur Sverrisson sem leikur
með VfB Stuttgart og varð
Þýskalandsmeistari með þeim á síðasta
ári.
Ulfar Jónsson golfari úr Keili lenti
síðan í 5. sætinu en hann er besti kylf-
SIGURÐUR EINARSSON,
spjótkastarinn knái úr Ármanni,
var kjörinn Iþróttamaöur ársins
í kjöri íþróttafréttamanna. Hann
er vel að titlinum kominn. Vax-
andi íþróttamaöur seni vænta
má mikils af í framtíöinni.
A-mynd E. Ól.
ingur sem fslendingar hafa átt fyrr og
síðar. Auk þess að vera íslandsmeistari
vann hann Norðurlandamótið í golfi
bæði sem einstaklingur og með ís-
lenska liðinu.
Einar Vilhjálmsson spjót-
kastari úr IR lenti í 6. sætinu en
allir þekkja hans frábæra ár-
angur í gegnum tíðina þó ekki
hafi gengið sem skyldi hjá hon-
um á stórmótum. Hann bætti
hins vegar íslandsmet sitt veru-
lega á árinu.
í 7. sætinu varð Sigrún
Hrund Hrafnsdóttir úr Ösp og
Ólafur Eirfksson f ÍFR og KR
varð í áttunda sæti. Bæði unnu
þau glæst afrek í sundi á
Ólympíuleikum fatlaðra á síð-
asta ári.
Bjarni Friðriksson júdómað-
ur úr Ármanni lenti í 9. sæti en
hann er vel þekktur af afrekum
sínum í gegnum tíðina og í 10.
sæti varð Sigurður Bárðarson
fyrir hestaíþróttir en hann kem-
ur úr Fáki og hefur sýnt mikla
yfirburði á mótum í hestafþrótt-
um.
%
'vi'
%
Itáí
Vi
é
ty,
fc/i
. j
\-L'
l-l
S
I/'
m—7nr
l„ V
Skilafrestur
launaskýrslna o.fl gagna
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr.
laga nr. 75/1981 um tekju- og eignar-
skatt hefur skilafrestur eftirtalinna
gagna, sem skila ber á árinu 1993
vegna greiðslna o.fl. á árinu 1992,
verið ákveðinn sem hér segir:
1. Til og með21. janúar 1993:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Til og með 20. febrúar 1993:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Til og með síðasta
skiladegi skatt-
framtala 1993:
1. Greiðslumiðaryfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausa-
fé, fasteignum og fasteignaréttindum,
sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. sömu
laga.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar
sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki,
sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1992 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer
bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði
sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI
l f ' N
\ V