Alþýðublaðið - 14.01.1993, Qupperneq 4
Gœðaflísar
á góðu verði
5 -
n 1 m
MÞYÐU6MÐIS
SUirhofila 17. vifl (iullinbrú - sími 67 48 44
Sfceytingar við ölí tœfcifœri.
Opið aíía daga til (f. 22
STEFANSBLOM
SKIPHOLTI 50 B - SÍMAR 610771 & 10771
EIGNARHALDSFÉLÖG
SAMEINUÐ
Á sérstökum hluthafafundum eign-
arhaldsfélaga gamla Iðnaðarbanka og
Verslunarbanka í síðasta mánuði var
samþykkt einróma að sameina félögin.
Áður hafði eignarhaldsfélag Alþýðu-
bankans breytt samþykktum sínum á
þann veg að framvegis verður starf-
semi félagsins ekki einvörðungu bund-
in við eign í Islandsbanka. Hluthöfum
eignarhaldsfélagsins var boðið að ger-
ast beinir hluthafar í Islandsbanka. Má
segja að með þessu sé stigið lokaskref-
ið í sameiningu bankanna fjögurra í
einn banka.
VEITTI NÚ EKKIAF
Ferð Halldórs Blöndals samgöngu-
ráðherra með fríðu föruneyti á dögun-
um til Egyptalands og Jórdaníu til að
reyna að fá fólk þessara landa til að
koma til íslands að eyða sparifé sínu
var ekki farin af ófyrirsynju. Það veitti
nú aldeilis ekki af því að kynna landið
á þessum slóðum. Ferð fyrri sam-
gönguráðherra, Steingríms J. Sigfús-
sonar á sömu slóðir í hitteðfyrra hefur
nefnilega Iítinn árangur borið. Utlend-
ingaeftirlitið segir að á síðasta ári hafi
31 Egypti komið til íslands, - en 71
Jórdani. Það er ansi lítið brot af ferða-
mannastraumnum, innan við eitt pró-
mill, því nærri 143 þúsund útlendingar
komu hingað í fyrra.
BLÓÐBRÆÐUR
Leikrit mjög vinsæls höfundar verð-
ur á fjölum Borgarleikhússins á næst-
unni. Willy Kussel. höfundur Blóð-
bræðra, samdi líka Sigrúnu Ástrósu,
sem gekk um nær þriggja vetra skeið á
Litla sviði Borgarleikhússins, og hann
samdi líka Ríta gengur menntaveginn,
sem Þjóðleikhúsið sýnir nú við miklar
vinsældir. Blóðbræður er söngleikur,
sem farið hefur sigurför um hinn vest-
ræna heim á síðasta áratug. Halldór E.
Laxness leikstýrir, en Þórarinn Eld-
járn þýddi verkið. Jón Olafsson
stjómar tónlistinni, en dansa samdi
Henný Hermanns. Fram kemur stór
hópur leikara, þeirra á meðal eru
Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Felix
Bergsson, Magnús Jónsson, Sigrún
Waage og Harald G. Haralds svo ör-
fáir séu nefndir.
VERÐBÓLGAN EYKST
Samkvæmt útreikningum Kaup-
lagsnefndar hefur vísitala framfærslu-
kostnaðar miðað við verðlag í janúar-
byrjun hækkað um 1,2% frá í desemb-
er. Vísitala vöru og þjónustu hækkaði á
sama tíma um 1,3%. Verðbólgan er nú
6,8% miðað við að vísitala framfærslu-
kostnaðar hefur hækkað um 1,7% á
síðustu þrem mánuðum. Verðhækkun
matvöm uin 2% hækkaði vísitöluna
um þriðjung úr prósenti. Vó þar þyngst
hækkun á grænmetisverði og að sú
hækkun á eggjaverði sem fram kom
fyrir jólin, gekk nú til baka. Áfengis-
hækkun upp á 1,6% og hækkun á verði
tóbaks um 6,3% olli 0,13% hækkun
vísitölunnar. Bensín hækkaði um 7,6%
vegna hækkunar bensíngjalds og
hækkar það vísitöluna um 0,3%. Hús-
hitunarkostnaður hækkaði um 8,5% að
meðaltali og þýðir 0,15% hækkun á
vísitölu, hækkun á rafmagnsverði um
2,1% að meðaltali hækkar hinsvegar
vísitöluna lítilsháttar, eða um 0,03%.
Hærri útgjöld vegna tannlækninga
þýðir síðan 0,13% hækkun vísitölu.
LANDSLAG REYNIS
Myndlistarmaðurinn Reynir Sig-
urðsson sýnir verk sín þessa dagana í
Gallerí Fold í Austurstræti. Sýningin
stendur til mánaðamóta. Reynir er 35
ára og útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1980 en starfaði
næstu árin í Noregi. Nú er Reynir bú-
settur í Keflavík. Reynir málar olíu-
akrýlmyndir.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ
Áhugi landsmanna á ættfræði em
engu líkur. Jón Valur Jensson rekur
Ættfræðiþjónustuna í Brautarholti 4 í
Reykjavík. Hann er nú með ný ætt-
fræðinámskeið á prjónunum, bæði í
Reykjavík og eins úti á landi. Nám-
skeiðin em 20 og 24 kennslustunda
grunnnámskeið og 20 stunda fram-
haldsnámskeið. Jón Valur segist hafa
lækkað verðið verulega.
SQRGLEG ENDALOK
HUSS
Fallegt einbýlishús á Amamesi
brann til grunna á mánudagsmorgun-
inn. Kona, eigandi hússins, hafði fylgt
bömum sínum til skóla, - á meðan
brann húsið. Slökkviliðið réð ekki við
eldinn, enda var húsið nánast alelda
þegar að var komið og veður með allra
versta móti, sem torveldaði slökkvi-
starf. Tryggingamál munu hafa verið í
góðu lagi, en engu að síður er tjón kon-
unnar tilfinnanlegt.
Húsið á Arnarnesi, - þar brann allt sem
brunnið gaL A-mynd E. Ól.
Hjálpargagn
fyrír heimilisbókhaldið
og skattframtalið
Eitt af markmiöum íslandsbanka er ab standa vel
ab upplýsingagjöf til vibskiptavina bankans. Þeir eiga því kost á ab fá
heildaryfirlit yfir vibskipti sín vib bankann á árinu 1992.
A vibskiptayfirlitinu kemur fram staba innlána og skulda vibskiptavinarins
um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira.
Hér er um ab rœba hjálpargagn sem kemur ab góbum notum vib heimilis-
bókhaldib og þá ekki síbur vib gerb skattframtalsins.
Þú pantar yfirlitib í nœstu afgreibslu íslandsbanka, þjónustugjald er 7 90 kr.